Morgunblaðið - 30.03.1995, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 30.03.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR FIMmÍtíÓXGÚR 30. MÁR£ í995 3$ RAGNHEIÐUR HULDA ÞORKELSDÓTTIR + Ragnheiður Hulda Þorkels- dóttir fæddist í Fu- rubrekku í Staðar- sveit á Snæfellsnesi 1. febrúar 1919. Hún lést á öldrunar- deild Landspítalans í Hátúni 10 hinn 22. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Þorkell Guðbrandsson verkamaður í Reylqavík, f. 1880, d. 1968, sonur Guð- brands Þorkelsson- ar verzlunarmanns í Ólafsvík og Guðbjargar Vigfúsdóttur, og Theodóra Kristjánsdóttir, f. 1883, d. 1962, dóttir Kristjáns Guðmundssonar bónda á Hjarðarfelli í Miklaholtshreppi og Sigríðar Jónsdóttur. Systk- ini Ragnheiðar voru Sigríður Elín, f. 1909, d. 1994, og Guð- brandur Ágúst fyrrverandi lög- regluvarðsljóri, f. 1914, og lifir hann systur sínar. Hinn 27. desember 1946 giftist Ragn- heiður Gunnari Steingrímssyni loftskeytamanni, f. 23. júní 1921. Börn þeirra eru: 1) The- odóra, f. 26. maí 1947, hjúkrun- arfræðingur á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ak- ureyri, gift Frið- riki E. Yngvasyni lækni og eiga þau tvö börn, Högna og Ragnheiði. 2) Egg- f. 2. janúar 1949, dýralæknir á Tilraunastöðinni á Keldum, kvæntur Bergþóru Jóns- dóttur lífefnafræð- ingi og eiga þau þrjú börn, Dag, Gauta og Valgerði. 3) Gunnar Már, f. 9. júní 1951, dýra- læknir í Noregi, kvæntur Guð- rúnu Þóru Bragadóttur félags- ráðgjafa, og eiga þau þijú börn, Braga Frey, Huldu Mjöll og Gunnar Birki. Ragnheiður lauk námi við Hjúkrunarskóla íslands í októ- ber 1944. Hún starfaði sem hjúkrunarkona með stuttum hléum allt frá námslokum og þar til hún lét af störfum fyrir aldurs sakir. Hún starfaði lengst af á Landspítalanum í Reylgavík, síðast á öldrunar- deildinni í Hátúni 10. Útför Ragnheiðar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, og hefst athöfnin kl. 13.30. LOKSINS hefur Heiða fengið hvíldina. Það eru grimm örlög að þurfa að takast á við þann erfiða sjúkdóm Alzheimer síðustu æviár- in, eftir að vera búin að hjúkra sams konar sjúklingum árum sam- an. Ragnheiður Þorkelsdóttir, tengdamóðir mín, útskrifaðist sem hjúkrunarkona árið 1944 og starf- aði við hjúkrun alla sína starf- sævi. í þessu starfi fengu hennar mörgu góðu hæfileikar notið sín. Hún var jákvæð, drífandi, ósérhlíf- in og gefandi. Hjúkrunarnemar, sem nutu hennar leiðsagnar, bera henni vel söguna. Hún kenndi þeim hjúkrun í besta skilningi þess orðs, því hún setti hlýju og umhyggju fyrir sjúklingunum ofar öllu. En jafnframt lét hún sér annt um vel- ferð samstarfsfólks síns. Mín kynni af Ragnheiði hófust þegar ég og Eggert sonur hennar rugluðum saman reitum. Fyrstu hjúskaparár- in vorum við í námi í Noregi og fæddust synir okkar þar. Það var dæmigert fyrir Heiðu, að þegar, leið að vori og prófum var hún búin að boða komu sína, til að létta okkur róðurinn við prófíestur. Þannig fannst henni sínu sum- arfríi vel varið. Heiða hafði einstaklega góða nærveru, hlý og þægileg. Eg heyrði hana aldrei segja styggðaryrði um nokkurn mann. Það var ómetan- legt fyrir strákana okkar að kynn- ast öðru en hinum einangraða heimi stúdentalífsins. Amma kom með íslenskar hefðir, frásagnarlist- ina og almennan fróðleik. Strák- arnir hlustuðu oft opinmynntir á ömmu sína. Hún þurfti ekki að opna bók þegar hún tók þá með sér á vit ævintýranna. Eftir að fjölskyldan flutti heim urðu samverustundir með Heiðu og Gunnari fleiri. Við eigum marg- ar ljúfar minningar úr ferðalögum um landið og þær eru ófáar sam- verustundirnar á Gnoðarvoginum. Það sem gerir þessar minningar svo ljúfar var sú gestrisni og hlýja sem mætti okkur ætíð. Ég vil að leiðarlokum þakka Heiðu samfylgdina og votta Gunn- ari tengdaföður mínum innilega samúð. Umhyggja hans fyrir Heiðu mörg erfið sjúkdómsár var aðdáun- arverð. Hans er söknuðurinn sá- rastur. Bergþóra Jónsdóttir. Það vorum ekki bara við bræð- urnir sem biðum og biðum eftir ömmu okkar frá íslandi. Kallarnir í vinnunni hjá pabba voru farnir að spyija um hana líka, í gríni og alvöru. Þetta hafði verið hálf- hryssingslegt vor og þeir sáu í heimsókn hennar ömmu okkar betri tíð. Þeir kölluðu hana nefni- lega sólar-ömmuna, uppá norsku. Það brást aldrei að hitabylgja fylgdi Noregsheimsóknum ömmu Heiðu. Þetta var á uppeldisslóðUm okkar í Ósló. Amma kom með só- lina. Við krakkarnir skiptum okkur reyndar lítið af veðrinu sem við lékum okkur í og kölluðum ömmu Heiðu sjaldan annað en kara- mellu-ömmu. Það hefur sína kosti þegar ömmur þurfa að fara í gegnum fríhafnir á leiðinni til barnabarna sinna. Minningarnar um ömmu frá Noregi eru fullar af sól og karamellum. Alltaf var til moli í svanga munna eða bara til að geyma í smáum vösum. Og þetta voru engar venjulegar kara- mellur heldur bréfkaramellur með braki; rauðar og grænar og peningar og súkkulaðiþríhyrning- ar. Hvílík himnasæla. Það var ævintýri að fá þau í heimsókn, ömmu Heiðu og afa Gunnar. Afi kenndi okkur að tefla og sýndi okkur spilagaldra. Amma sagði okkur sögur. íslenskar þjóðsögur í Noregi. Við fluttum þó fljótlega til ís- lands og fundum hér fornar rætur. Amma Heiða var nú orðin sögu- amma og kenndi okkur að við vær- um komnir af Hjarðarfellsætt og Síðu-prestum. Okkur fannst líka oft eins og amma þekkti allt á ís- landi. Á gönguferðum kynnti hún okkur fyrir blómunum og fjöllunum og hveijum dal og þúfu, eins og gömlum kunningjum. Náttúran var til að þekkja hana og vera hjá henni en ekki til að drottna yfir henni. Það er sannkallað ævintýri að gista í Gnoðarvoginum, hjá ömmu og afa. Leggjast á beddann innan um Hlyna kóngsson, Elínu, Sigríði og Helgu, fylgjast með fjölunum falla hverri að annarri hjá kirkju- smiðnum á Rein og hlakka yfir óförum tröllkvenna og Gilitruttar hinnar ógurlegu. Sofna svo með undarlegan ævintýrahroll niður eftir bakinu, fegnir að vita af sér í öryggi og hlýju skjóli. Amma kunni ógrynni af sögum. Hún var söguamrna. Amma var mjög veik í mörg ár. Sögumar hennar eru fyrir löngu orðnar hluti af sjálfum okkur og minningunni um ömmu Heiðu, eins og hún var, kát og hlý. Okkur fannst amma Heiða einfaldlega eins og ömmur eiga að vera. Og það finnst okkur enn. Amma Heiða mun lifa með okkur í minningun- um. Dagur og Gauti Eggertssynir. VALGEIR SIG URÐSSON + Valgeir Sigurðsson fæddist á Steinum í Stafholtstung- um í Mýrasýslu 7. febrúar 1924. Hann lést á Landspítalanum 7. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Seyðisfjarðar- kirkju 18. mars. OKKUR langar að minnast Val- geirs kennara örfáum orðum. í huga okkar er hann ímynd kennarans eins og þeir eiga að vera. Hann var umsjónarkennarinn okkar fyrstu skólaárin og hafði betra lag á okkur en nokkur annar kenn- ari. Það var Valgeir sem kenndi okkur fyrstu ljóðin, og var það oft á tíðum ansi erfitt að læra þau utan að. En Valgeir gerði tímana ávallt áhugaverða og krefjandi svo að metnaðurinn vaknaði til að gera hlutina eins vel og við gátum og átti það við hveija þá grein sem hann kenndi okkur. Láttu guðs hönd leiða hér, lífsreglu halt þá bestu: blessa hans orð, sem boðast þér, í brjósti og hjarta festu. Vertu, guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. Tilgangur okkar er ekki að skrifa eintóma lofræðu um Valgeir, en víst er að hann átti alltaf fastan sess í hjörtum okkar. Við bárum alltaf mikla virðingu fyrir honum. Þegar hormónasveiflur gelgjuskeiðsins voru bæði að yfirbuga okkur og kennarana var Valgeir sendur á staðinn til að miðla málum. Þú varst alltaf fastur punktur í lífi Seyðisfjarðar. Þín mun verða sárt saknað og sérstaklega nú á 100 ára afmæli bæjarins. Við kveðjum þig með söknuði og þökk í hjarta. F.h. árgangs ’74 við Seyðisfjarð- arskóla, Helga Kolbeinsdóttir, Elfa Hlín Pétursdóttir. RADA UGL ÝSINGAR Fundarboð Aðalfundur Mjólkurbús Flóamanna verður haldinn í félagsheimili Hrunamanna, Flúðum, Hrunamannahreppi, þriðjudaginn 4. apríl 1995. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. A TVINNUAUGL ÝSINGAR FUNDIR - MANNFA GNAÐUR Kranamenn Óskum að ráða til starfa vanan kranamann á byggingarkrana. Upplýsingar á skrifstofutíma í síma 622700. . ,, 'á ÍSTAK ÍÞHÖTTIR FVRIR RLLR Fundurinn hefst kl. 13.30. Stjórn Mjólkurbús Flóamanna. Skúlatúni 4, Reykjavík. w w Arsþing IFA , SCANDIC fer fram í dag, fimmtudag, í íþróttamiðstöð- inni í Laugardal, fundarsal 4. Þingið hefst kl. 17.00. Allir ÍFA félagar velkomnir. ■JBdB borgarskipulag reykjavikur 3 Borgartúni 3-105 Reykjavilr - Sími 91-632340 - Mynds. 91-623219 l|| LOFTLEIÐIR Þjónanemar Getum bætt við okkur þjónanemum á vorönn. Upplýsingar á staðnum hjá yfirþjóni milli kl. 14 og 16. G. og G. veitingar. Stjórn íþrótta fyrir alla. íbúar íÞingholtum UU BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR 3 Borgartúni 3,105 Rvík, síml 632340, myndsendir 623218 lll Boðað er til kynningar- og umræðufundar í Ráðhúsi Reykjavíkur (Tjarnarsal) þriðjudag- inn 4. apríl nk. kl. 17.00. Þar verður kynnt umferðarskipulag í Þingholtum og tillögur um útfærslu á gatnamótum Skothúsvegar - Laufásvegar - Þingholtsstrætis og Hellu- sunds. Seljahverfi - Fálkhóll A TVINNUHUSNÆÐI VEIÐI Atvinnuhúsnæði óskast Auglýsum eftir 250-350 fm atvinnuhúsnæði fyrir fjársterkan kaupanda, helst á Ártúns- höfða, en aðrir staðir koma til greina. Ársalir hf., fasteignasala, Sigtúni 9, sími 5624333. Samkvæmt samþykkt borgarstjórnar frá 1. des. sl. er boðað til fundar með íbúðareig- endum að Fálkhól í Seljahverfi og er fundar- efnið nýting þakhæða í hverfinu. Fundurinn verður haldinn í sal Seljaskóla miðvikudaginn 5. apríl nk. og hefst kl. 17.00. Borgarskipulag Reykjavíkur. Fiskeldi Til leigu eldisstöð að Húsatóftum við Grindavík. Borgareldi hf., Suðurlandsbraut 6, Rvík, fax 5880085.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.