Morgunblaðið - 30.03.1995, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Annir á sjálfsaf-
greiðslustöðvunum
ÓVENJUMIKLAR annir voru í
gær, að sögn starfsmanna, á
bensínstöðvunum tveimur þar
sem neytendum stendur til boða
að greiða minna fyrir bensín
dæli þeir sjálfir á bílana. Flestir
sóttu í sjálfsafgreiðslu en aðrir
þáðu að láta afgreiðslumenn
þrífa fyrir sig framrúðuna.
Hans Blomsterberg hjá
bensínstöð Skeljungs við Miklu-
braut sagði að þar væri nú ein-
göngu sjálfsafgreiðsla en fyrst
um sinn væri maður til aðstoðar
og eftirlits á dæluplaninu.
Hann sagði að miklar annir
hefðu verið á bensínstöðinni,
langt umfram það sem veiyulegt
hefði talist og virtist neytendum
falla nýbreytnin vel í geð.
í sama streng tók Gísli
Sveinsson hjá bensínstöð Olíufé-
lagsins við Geirsgötu en þar er
boðið upp á blandað fyrirkomu-
lag; annars vegar sjálfsaf-
greiðslu gegn lægra verði og
hins vegar þjónustu bensínaf-
greiðslumanns gegn því að
greitt sé 1 kr. meira fyrir hvern
lítra.
Gísli sagði að viðskiptin hefðu
stóraukist frá því í gær og væri
megnið af þeim í sjálfsafgreiðsl-
unni. „En fólk er mjög ánægt
yfir því að geta valið,“ sagði
Gísli. „Stundum þurfa menn að
láta athuga olíu eða skipta um
þurrkur og finnst þá gott að
geta notfært sér þá þjónustu en
afgreiða sig annars sjálfir.“
Hann sagði að bensínaf-
greiðslumenn byðu þeim sem
óskuðu eftir þeirra þjónustu
upp á að þrífa framrúður bíl-
anna og hefðu langflestir þegið
þá þjónustu. Það væri nýbreytni
en hins vegar yrði ekki vart við
aukningu í því að menn óskuðu
eftir því að láta athuga olíu og
rúðuvökva en sú þjónusta hefur
til þessa verið veitt endurgjalds-
laust á bensínstöðvum hér.
Bandarísk tollyfirvöld hafa afgreitt fyrstu íslensku nautakj ötssendinguna
Hæsta smásöluverð ís-
lensks kjöts erlendis
BANDARÍSK tollyfirvöld af-
greiddu nýlega 10 tonn af ís-
lensku nautakjöti, sem vottað er
sem ómengað af völdum vaxtar-
hvetjandi efna, lyfja, illgresiseyð-
isefna og skordýraeiturs og kall-
ast því hreint kjöt. Þetta'er fyrsta
kjötsendingin til Bandaríkjanna á
vegum Kjötframleiðenda hf. og
verður smásöluverðið 16,57 doll-
arar fyrir kílóið, eða um 1.050
krónur, og er þetta hæsta smá-
söluverð sem íslenskt kjöt hefur
selst á erlendis.
í þessari fyrstu sendingu til
Bandaríkjanna eru tvær tegundir
af nautasteikum, mjaðmasteik og
afturhryggjarsteik, en venjulegt
verð á steikum af þessu tagi í
Bandaríkjunum er á bilinu 5-12
dollarar kílóið, eða um 317-760
krónur. Kjötið verður selt í
verslunarkeðjunni Trader Joe’s,
sem rekur 65 sérverslanir með
gæðamatvöru á vesturströnd
Bandaríkjanna.
Sambærilegt verð
Að sögn aðstandenda Kjöt-
framleiðenda hf. eru bandarískir
neytendur að greiða sambærilegt
verð fyrir íslenska nautakjötið og
neytendur hér heima greiða fyrir
algenga neysluflokka nautakjöts,
að teknu tilliti til þess að virðis-
aukaskattur er 14% hér á landi
en , rúmlega 6% á vesturströnd
Bandaríkjanna. Skilaverð til
bænda fyrir útflutta kjötið er
einnig svipað og þeir fá á innan-
landsmarkaðinum, en raunskila-
verð í framtíðinni mun ráðast af
viðbrögðum bandarískra neyt-
enda og því hvernig til tekst með
markaðssetninguna í heild.
Kjötframleiðendur hf. er -að
stærstum hluta í eigu hautgripa-
kjötsframleiðenda og Kaupsýsl-
unnar hf., en auk þess veitti
Framleiðnisjóður styrk til undir-
búnings útflutningsins. Undir-
búningurinn hefur nú staðið hátt
á ijórða ár, og komst ekki veru-
legur skriður á fyrr en bandaríska
landbúnaðarráðuneytið viður-
kenndi í fyrra íslenskt gæðavott-
unarkerfi, sem framleiðendur
settu á stofn í samvinnu við emb-
ætti yfirdýralæknis.
Brot af framleiðslunni
Þau tæplega 10 tonn af nauta-
kjöti sem flutt hafa verið út til
Bandaríkjanna hafa að sögn að-
standenda Kjötframleiðenda hf.
engin áhrif á framboð nautakjöts
á innanlandsmarkaði. Heildar-
framieiðsia nautgripakjöts er tæp
3.500 tonn á ári og því aðeins um
lítið brot af henni að ræða. Vísa
þeir því á bug ásökunum sem fram
hafa komið um að með þessum
útflutningi sé verið að tappa af
innanlandsmarkaði offramleiðslu
til að halda uppi verði.
Binda framleiðendur hér heima
miklar vonir við þennan útflutn-
ing, og eru nú í undirbúningi til-
raunasendingar með fleiri gerðir
unninna nautakjötsvara. Kaupfé-
lag Þingeyinga hefur annast
vinnslu kjötsins í neytendaumbúðir
sem uppfylla sett skilyrði fyrir
bandarískan neytendamarkað.
Menntamálaráðherra um vandamál við einsetningu skóla
Kennarar eiga að geta
fengið fullt starf
Asfalt fyrir
Malbikunarstöðina
Rúmlega
83,5 millj.
tilboði tekið
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
taka 83.544.120 króna tilboði Skelj-
ungs hf., í asfalt fyrir Malbikunar-
stöð Reykjavíkurborgar. Þijú tilboð
bárust.
1 erindi Malbikunarstöðvarinnar
til Innkaupastofnunar Reykjavíkur-
borgar kemur fram að tilboð Skelj-
ungs hf. miðast við 97 dollara fyrir
tonnið. Olíufélagið hf. bauð 93 doll-
ara fyrir tonnið en tilboðið gerði
ekki ráð fyrir flutningi á efni til
landsins og ekki var hægt að út-
vega efnið fyrr en í júní. Þriðja til-
boðið var frá Smid & Hollander sem
bauð 101,5 dollara fyrir tonnið.
Lagt var til að tilboði Skeljungs
hf. yrði tekið og að pöntuð yrðu
9.000 tonn.
ÓLAFUR G. Einarsson mennta-
málaráðherra telur að einsetning
grunnskólans eigi ekki eftir að
leiða til mikillar kjararýrnunar
kennara eins og kennarar halda
fram. Hann segir að kennarar eigi
ekki að þurfa að óttast að þeir fái
ekki fullt starf við einsetna skóla.
Það kunni hins vegar að vera rétt
hjá kennurum að yfírvinna þeirra
minnki.
„Einsetning grunnskólans er
búin að vera baráttumál flestra í
áraraðir. Þetta var í gildandi lögum
frá 1991. Þar sagði að það skuli
stefnt að einsetningu skólans og
að einsetning skuli vera komin á
alls staðar árið 2001. í þessum
nýju grunnskólalögum er sama
ákvæði nema þar er sagt að skóli
skuli einsetinn fyrir árið 2001.
Þetta á því ekki að þurfa að koma
neinum á óvart,“ sagði mennta-
málaráðherra.
Ólafur G. sagði að í nýjum
grunnskólalögum væri mörkuð sú
stefna að auka verulega við viku-
legan kennslutíma. Það þýddi
meira starf fyrir kennara.
„Ég sé þetta ekki sem svona
vandamál sem ég heyri að sumir
sjá og telja jafnvel að kennarar
verði ekki ráðnir nema í 70-80%
starf. Ég sé fram á lengri viðveru
kennara í skólunum, ekki eingöngu
við kennslu, heldur ýmis önnur
viðfangsefni sem eru vaxandi. Þar
á ég við ýmis önnur störf með
nemendum, viðtöl við þá og for-
eldra og fleira sem viðkemur skóla-
starfinu.
Það má hins vegar vera rétt hjá
kennurum að einsetningin leiði til
þess að yfirvinna hjá þeim minnki,
en erum við ekki líka að stefna
að því að launa menn þannig að
þeir þurfi ekki að byggja sína lífs-
afkomu á yfirvinnu? Það á ekki
bara við um kennara," sagði Ólaf-
ur G.
Að kröfu kennara var gerð bók-
un við kjarasamningana þar sem
segir að samningsaðilar muni fyrir
15. maí 1995 finna leiðir til að
tryggja að kennarar í einsetnum
skóium sem óska eftir fullu starfi
geti fengið fullt starf.
Samþykkt
bæjar-
stjórnar
verði ógilt
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYT-
INU hefur borist krafa um að
ráðuneytið ógiidi samþykkt
bæjarstjórnar sameinaðs sveit-
arfélags Keflavíkur, Njarðvíkur
og Hafna frá 9. mars síðastliðn-
um um atkvæðagreiðslu 8. apríl
næstkomandi þar sem kjósend-
um verður einungis heimilað að
velja milli nafnanna Suðumes-
bær og Reykjanesbær fyrir
sveitarfélagið.
Það er Einar Ingimundarson
í Keflavík sem sent hefur ráðu-
neytinu kröfuna, en hann telur
að enginn lagalegur grundvöll-
ur sé fyrir þeirri ákvörðun bæj-
arstjórnar að takmarka valrétt
kjósenda við fyrrnefnd tvö nöfn.
Sú ákvörðun eigi sér ekki stoð
í auglýsingu ráðuneytisins um
sameiningu Keflavíkur, Njarð-
víkur og Hafna, og takmörkun
af þessu tagi sé andstæð megin-
reglum kosningalaga og brot á
almennum mannréttindum.
Hitaveitan
Efni keypt
fyrir rúmar
76,3 milljónir
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
tillögu Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar um að taka
16.289.266 króna tilboði Nör
hf./Stjemerör í múffur fyrir
Hitaveitu Reykjavíkur og
60.080.859 króna tilboði Set
hf. í pípur og fittings. Heildar-
kaup Hitaveitunnar eru
76.370.125 krónur.
Átján tilboð bárust frá 11
fyrirtækjum og var útboðsregL
um EES fylgt við útboðið. í
erindi hitaveitunnar til inn-
kaupastofnunar kemur einnig
fram að í útboðsgögnum hafi
verið gert ráð fyrir að hluta
efnis mætti kaupa sérstaklega.
Auk þess sé heimilt að skipta
pöntuninni milli framleiðenda.
Leikskóli
Lægsta tilboð
65,5 milljónir
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að taka 65.581.846 króna til-
boði frá lægstbjóðanda, Byggð-
arseli hf., í byggingu leikskóla
við Laufrima, samkvæmt lok-
uðu útboði.
Tilboð Byggðarsels hf. er
89,23% af kostnaðaráætlun,
sem er 73.493.530 krónur. Tíu
tilboð bárust í verkið og átti
Framkvæmd hf. næst lægsta
boð, rúmar 65,8 millj. eða
89,60% af kostnaðaráætlun.
Þriðja lægsta boð átti Ármanns-
fell hf., rúmar 72,3 millj. eða
98,50% af kostnaðaráætlun.
Verðmætum
stolið úr skóla
MIKLUM verðmætum var stol-
ið í innbroti sem framið var í
Selásskóla í fyrrinótt.
Saknað var sjónvarps- og
myndbandstækja, auk tölvu-
búnaðar, telefaxtækis, kaffivél-
ar og hljómtækja með tveimur
hátölurum, sem hvor var um
það bil 1 'U metri á hæð.
Þjófarnir höfðu einnig unnið
talsverðar skemmdir á hurðum
og dyraumbúnaði í skólanum.