Morgunblaðið - 30.03.1995, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VERKFALL FLUGFREYJA
Yerkfallsvarsla flugfreyja
stöðvaði innanlandsflug
FLUGFREYJUR stöðvuðu innanlandsflug Flugleiða í gær, með því
að fara inn á flugbraut á Reykjavíkurflugvelli og hindra aðgang að
flugvélum. Flugfreyjur töldu sig í fullum rétti, þar sem Flugleiðir hefðu
ekki heimild til að láta marga yfírmenn félagsins ganga í störf þeirra.
Flugfreyjur hættu verkfallsvörslu kl. 16.30 og hófst þá flug að nýju.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
LÖGREGLUÞJÓNN ræðir við flugfreyjur, sem
sögðu að þær myndu ekki fara frá flugvélinni
á brautinni nema þær yrðu beittar valdi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SVERRIR Halldórsson og Magnús Theódórsson voru
búnir að bíða í þrjá tíma eftir flugi til Akureyrar.
Fámennir hópar stöðva flug
Framkvæmda-
stjóri VSÍ
Eðlilegt
að málið
fari fyrir
dómstóla
ÞÓRARINN V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri Vinnu-
veitendasambands íslands,
segir það valda vonbrigðum
rétt einn ganginn að verka-
lýðsfélögin kjósi að fram-
fylgja með ofbeldi sínum
skilningi á því hvað séu lög
í landinu og sneiða hjá dóm-
stólum.
„Við teljum eðlilegt að
þetta mál fari fyrir dóm af
því að bæði urðu flugfarþegar
fyrir skakkaföllum vegna að-
gerða flugfreyja, og eiga þeir
tvímælalaust beinar fjárkröf-
ur á hendur Flugfreyjufélag-
inu, og eins eiga Flugleiðir
án alls vafa skaðabótakröfu
á hendur flugfreyjufélaginu.
Reynslan sýnir okkur hins
vegar að stéttarfélög leita
jafnan allra leiða til að koma
í veg fyrir að slík mál sæti
úrlausn dómstóla og setja það
sem úrslitakröfu við gerð kja-
rasamninga að ekki sé látið
reyna á slíka hluti fyrir
dómi,“ sagði hann.
Óskiljanleg
afstaða
Þórarinn sagði að Vinnu-
veitendasambandinu kæmi
það mjög á óvart ef aðildarfé-
lög Alþýðusambandsins styðji
mjög heilshugar kröfur og
verkfallsaðgerðir annarra
stéttarfélaga, hálaunafélaga,
sem miði að því að knýja fram
allt aðra launastefnu heldur
en sámningamir við lands-
sambönd Alþýðusambandsins
fólu í sér.
„Það fínnst mér óskiljanleg
afstaða þessara félaga gagn-
vart eigin félagsmönnum,"
sagði Þórarinn.
Sigríður Ásta Árnadóttir, for-
maður samninganefndar Flug-
freyjufélagsins, sagði í gær að flug-
freyjur hefðu haldið uppi verkfalls-
vörslu á Reykjavíkurflugvelli frá
því snemma í gærmorgun og fram
til kl. 16.30. Aðspurð um hugsan-
legar aðgerðir vegna_ millilanda-
flugs sagði Sigríður Ásta að þar
væri flugfreyjum gert erfiðara fyr-
ir að sinna verkfallsvörslu. „Við
þurfum að fá heimild lögreglustjór-
ans á Keflavíkurflugvelli til að fara
inn í flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Við höfum aðeins fengið þijá slíka
flugstöðvárpassa. “
Samkvæmt upplýsingum Þóru
Sen á skrifstofu Flugfreyjufélagsins
síðdegis í gær hafði enginn nýr sátta-
fundur verið boðaður í deilunni. Þá
sagði hún ekki hægt að segja til um
til hvaða aðgerða flugfreyjur myndu
grípa í dag, fímmtudag.
Brotið gegn reglum
um öryggi
„Þegar starfsfólk hér á Reykja-
víkurflugvelli kom til starfa í morg-
un voru flugfreyjur þegar komnar
inn á flugbrautina í leyfísleysi. Það
svæði er lokað öllum nema starfs-
niönnum Flugleiða og farþegum á
leið í flug, en lögreglan telur sig
ekki geta haft afskipti af vinnudeil-
um og veitt okkur liðsinni við að
rýma flugbrautina, þrátt fyrir að
aðgerðir flugfreyja bijóti í bága við
öryggisreglur Flugmálastjórnar,"
sagði Páll Halldórsson, stöðvar-
stjóri Flugleiða á Reykjavíkurflug-
velli, í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Páll sagði að fyrst hefði verið
leitað til slökkviliðsins, sem færi
með öryggisgæslu á Reykjavíkur-
flugvelli. Flugfreyjur hefðu neitað
að hlýða boðum slökkviliðsins um
að rýma flugbrautina og þá hefði
verið leitað liðsinnis lögreglu. Lög-
reglan hefði farið fram á að flug-
freyjur hættu aðgerðum, en þær
svarað því til að þær yrðu aðeins
ijarlægðar með valdi. Þá hefði lög-
reglan tilkynnt að hún gæti ekki
blandað sér frekar í málið. „Við
getum ekkert gert, því flugfreyjur
hafa stöðvað allt flug um eina braut
vallarins,“ sagði Páll. „Þessar að-
gerðir þeirra hafa því ekki aðeins
áhrif á áætlunarflug Flugleiða,
heldur aðra óviðkomandi starfsemi
félagsins og alla aðra umferð um
völlinn. Það væri ábyrgðarleysi að
leyfa einhveija starfsemi á þessu
svæði þegar ekki er hægt að upp-
fylla öryggiskröfur."
Stuðningur við flugfreyjur
Bandalag starfsmanna ríkis og
' bæja sendi frá sér fréttatilkynningu
í gær, þar sem lýst er eindregnum
stuðningi við aðgerðir flugfreyja.
BSRB segir m.a., að það sé verk-
fallsbrot þegar yfírmenn Flugleiða
gangi í störf flugfreyja. Þá segir:
„Þessi framkoma Flugleiða í garð
Flugfreyjufélagsins sýnir enn og
aftur að atvinnurekendur svífast
einskis til að grafa undan lög-
bundnum réttindum félaga launa-
fólks.“
Fundur formanna landssam-
banda innan ASÍ lýsti yfir fullum
stuðningi við aðgerðir Flugfreyju-
félagsins í gær til að koma í veg
fyrir verkfallsbrot yfírmanna og í
ályktun fundarins eru stéttarfélög-
in í landinu hvött til að standa
vörð um grundvallarrétt launa-
fólks.
Verslunarmannafélag Reykja-
víkur sendi einnig frá sér ályktun,
þar sem átalin eru þau vinnubrögð
stjórnenda Flugleiða að láta ófé-
lagsbundna aðila ganga í störf flug-
freyja og gera þannig aðför að
samnings- og verkfallsrétti launa-
fólks í landinu.
ÞEIR Magnús Theódórsson og
Sverrir Halldórsson biðu eftir
flugp til Akureyrar og voru að
velta fyrir sér hvort þeir ættu
að reyna að bíða áfram úti á
velli, eða hætta við flugið. Sverr-
ir sagði að hann hefði fulla sam-
úð með flugfreyjum. „Mér skilst
að kröfur þeirra hafi verið mjög
mistúlkaðar," sagði hann. Sverr-
ir tók þó undir þau orð Magnús-
ar, að það væri slæmt þegar fá-
mennir hópar gætu stöðvað flug-
samgöngur. „Það er út í hött að
í fluginu sé að finna 20-30 stétt-
arfélög," sagði Magnús.
Morgunblaðiö/Ámi Sæberg
GUÐRÚN Sigurjónsdóttir og Árdís Inga Höskulds-
dóttir biðu eftir flugi til Raufarhafnar.
Margir hafa lægra kaup
„VIÐ mættum í flug kl. 7.15 í
morgun, en þá voru flugfreyjur
þegar komnar til að hindra
flugið,“ sagði Guðrún Sigur-
jónsdóttir frá Raufarhöfn, sem
var á heimleið ásamt dóttur
sinni, Árdísi Ingu Höskulds-
dóttur.
Guðrún sagði að sér litist
mjög illa á aðgerðir flugfreyja
og hefði litla samúð með þeim,
enda hefðu margir lægra kaup
en þær. „Mér finnst líka að það
þurfi ekki endilega flugfreyjur
í innanlandsfluginu. Einn ör-
yggisvörður um borð ætti að
nægja,“ sagði hún.
Guðrún sagði að þær mæðg-
ur myndu bíða áfram, enda
hefðu þær ekki um annað að
velja. „Ég lifi í voninni um að
við komumst heim í dag.“
Formaður samninganefndar Flugfreyjufélagsins
Komið að okkur að njóta
góðs af hagræðingu
FORMAÐUR samninganefndar
Flugfreyjufélags íslands segir að
flugfreyjur hafi á margan hátt tekið
þátt í spamaðaraðgerðum á vegum
Flugleiða og vilji nú njóta góðs af,
líkt og flugmenn og flugvirkjar. Hins
vegar ætlist Flugleiðir til að flug-
freyjur bæti enn á sig störfum, en
það vilji þær ekki fallast á. Aðalmál-
ið í samningunum sé samt sú krafa
flugfreyja að þeim verði gert kleift
að láta af störfum fyrr en nú er,
með þeim hætti að þær fái mismun
hæstu og lægstu launataxta flug-
freyja greiddan.
Sigríður Ásta Ámadóttir, formað-
ur samninganefndar flugfreyja,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að flugfreyjur hefðu fyrst og
fremst farið fram á aðstoð við að
hætta störfum í 5 ár á tímabilinu
63-70 ára. „Þá gæti flugfreyja hætt
63 ára gömul, tekið skertan lífeyri
67 ára, eða hætt 65 ára og tekið
fullan lífeyri við sjötugsaldur. Við
höfum talað um að þessi aðstoð yrði
þannig, að við fengjum greiddan
mismun hæstu og lægstu launa flug-
freyja. Rök okkar eru þau, að þegar
manneskja á hæstu launum hættir
störfum, þá er ráðin ný, á lægstu
launum. Jafnframt er ráðin ný í
stjórnunarstöðu, en hún er einnig á
lægri launum en sú sem hættir, enda
með skemmri starfsaldur."
Flugleiðir bjóða
önnur störf
Sigríður Ásta sagði að hún hefði
ekki handbærar tölur um upphæðir
í þessu sambandi. „Þetta hefur hins
vegar ekki verið til umræðu af hálfu
Flugleiða. Boð fyrirtækisins stendur
enn um að flugfreyjur fái vinnu hjá
fyrirtækinu á jörðu niðri, þegar þær
hætta flugfreyjustarfinu. Þar er talað
um þjónustustörf, störf í gestamót-
töku á hótelunum, sölu- og kynning-
arstörf. Þá myndum við fá greitt
samkvæmt þeim launataxta sem við
ætti, t.d. taxta VR, sem væri vissu-
lega skref niður á við. Þetta er ekki
spuming um að við fengjum að halda
okkar launum, en færðumst í störf
á jörðu niðri. Slíkt hefur ekki verið
rætt, enda höfum við ekki viljað
færa okkur í önnur störf.“
Sigríður Ásta sagði að annar liður
í samningaviðræðum lyti að hagræð-
ingu. „Fyrir tveimur árum hófust
sparnaðaraðgerðir hjá fyrirtækinu.
Flugfreyjur tóku þátt í þessu starfí
og lögðu sitt af mörkum, en það er
ekki metið. Flugmenn og flugvirkjar
hafa notið góðs af ábata fyrirtækis-
ins og við töldum komið að okkur.
Þá kom í ljós að okkar vinna virðist
lítils virði og þeir fara fram á meiri
hagræðingu hjá okkur. Tillaga þeirra
er að við göngum í störf starfsfólks
í Keflavík, við að rífa af miðum við
innritun í hliði í flugstöð. Við erum
hræddar um að einhveijir myndu
missa starf sitt við þá breytingu og
viljum ekki taka þátt í því.“
Aðspurð hvort hagræðingarað-
gerðir hjá félaginu hingað til hefðu
ekki kostað einhveija starfið svaraði
Sigríður Ásta, að hún vissi ekki til
að svo væri. Þjónustuaðilar erlendis
hefðu að vísu misst samning, þegar
Flugleiðir hættu að kaupa þjónustu
flugvirkja erlendis.
Sigríður Ásta sagði að hún vildi
ekki gefa upp neinar tölur um hug-
myndir flugfreyja um launahækkanir
vegna hagræðingar. Flugleiðir hafa
nefnt að kröfur flugfreyja þýði 60%
kostnaðarauka fyrir félagið. Sigríður
Asta sagði að Flugleiðir hefðu sína
reiknimeistara, sem væru algjörlega
á öndverðum meiði við reiknimeist-
ara flugfreyja.