Morgunblaðið - 30.03.1995, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Yfirlýsing frá
stjórn Félags
íslenskra
heimilislækna
Morgunblaðið/Sigurður Ingi Sveinsson
Sækó veiðifélagið
FJÓRIR piltar sem alla jafna
stunda nám í MR og Kvenna-
skólanum hafa notað kenn-
araverkfallið til að stunda
dorgveiði á Tjörninni í Reykja-
vík.
Ekki fer neinum sögum af
aflabrögðum þeirra félaga.
Gert í fullu sam-
ráði við borg-
arminjavörð
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri, segir að fullt samráð
hafi verið haft við borgarminjavörð
þegar auglýst var eftir forstöðu-
manni fyrir Árbæjarsafn, borgar-
minjaverði, vegna bamsburðar-
leyfis núverandi borgarminjarvarð-
ar.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
menningarmálanefnd Reylq'avík-
urborgar gerðu bókun á fundi
nefndarinnar 22. mars þar sem
vinnubrögð borgarstjóra í máli
þessu em harðlega átalin, en í
bókuninni segir að auglýsing eftir
nýjum forstöðumanni vegi að
starfsheíðri núverandi borgar-
minjavarðar og feli í sér vantraust
á störf hans.
í Morgunblaðinu síðastliðinn
sunnudag var svo haft eftir Ingu
Jónu Þórðardóttur, sem situr í
menningarmálanefnd fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn, að greinilega sé
um að ræða mál sem eigi að ger-
ast á bakvið tjöldin og tilgangurinn
hljóti að vera sá að grafa undan
viðkomandi stjórnanda.
Sérkennileg uppákoma
„Mér finnst þetta mjög sérkenni-
leg uppákoma hjá þeim stöllum í
menningarmálanefndinni vegna
þess að ég ákvað það í samráði við
borgarminjavörð að hafa þennan
háttinn á að auglýsa þessa afleys-
ingastöðu," sagði borgarstjóri í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Að sjálfsögðu mun borgar-
minjavörður síðan gera menning-
armálanefnd grein fyrir þessu máli
þegar þar að kemur og ástæðu-
laust að það sé verið að fara með
það fyrir menningarmálanefnd fyr-
irfram hvort það sé auglýst afleys-
ingastaða eða ekki. Þetta var gert
í fullu samráði við borgarminjavörð
og mér sýnist bara að Inga Jóna
Þórðardóttir sé þjóna sinni lund
með þessari uppákomu og geri ekki
borgarminjaverði greiða né safninu
nema síður væri.“
Aðalsvið stofnað um fjarskiptarekstur P&S sem er í samkeppni við aðra
„Skref til einkavæðingar“
STOFNAÐ hefur verið nýtt aðalsvið hjá Pósti og síma utan um þann
ijarskiptarekstur sem er eða getur orðið í beinni samkeppni við aðrá aðila
á markaðinum, samkvæmt nýrri reglugerð um skipulag og verkefni P&S.
Undir hið nýja svið heyrirmeðal annars farsímadeild, þjónustudeild gagna-
flutnings og notendabúnaðardeild. „Þessi breyting á skipulagi P&S er
komin til vegna þess að óhjákvæmilegt er eins og nú er komið að stíga
skref til einkavæðingar, annaðhvort á Símanum í heild sinni eða einstök-
um þáttum hans,“ segir Halldór Blöndal samgönguráðherra.
Morgunblaðið/Rax
ÞÓRHALLUR Jósepsson deildarstjóri í samgöngxiráðuneytinu,
Guðmundur Björnsson aðstoðarpóst- og símamálastjóri, Ragn-
hildur Hjaltadóttir deildarstjóri, Halldór Blöndal og Jón Birg-
ir Jónsson ráðuneytisstjóri bera saman bækur sínar.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
yfirlýsing frá stjóm Félags ís-
lenskra heimilislækna, sem er svo-
hljóðandi:
„Undanfamar vikur hefur verið
háð hatrammt áróðursstríð af hálfu
Sérfræðingafélags íslenskra lækna
gegn tilvísanakerfi því sem heil-
brigðisráðherra hefur ákveðið að
koma á laggimar. Áróðri sínum
hefur Sérfræðingafélagið beint til
almennings en snúið honum gegn
heilbrigðisráðherra og einnig
starfssystkinum sínum, heimilis-
læknum og starfsvettvangi þeirra
á sviði heilsugæslu. Miklu hefur
verið til kostað bæði með auglýsing-
um í fjölmiðlum og útgáfu flugm-
iða. Auk þess hafa talsmenn Sér-
fræðingafélagsins verið iðnir sem
einstaklingar í blöðum og á ljósvak-
anum og verið tíðir gestir fjöimiðl-
unga með einhliða málflutning sinn
gegn tilvísunarkerfinu.
Við þetta væri ekki að athuga
ef rétt væri farið með staðreyndir
og Sérfræðingafélagið gætti hófs
og virðingar sinnar og annarra í
málflutningi sínum. ítrekað er far-
ið rangt með kostnað við læknis-
hjálp heimilislækna og þann kostn-
aðarauka sem kann að hljótast af
tilvísunarkerfinu í heilsugæslunni.
Einnig er veist að störfum heimilis-
lækna og m.a. fullyrt í auglýsing-
um að sjúklingar beri ekki traust
til heimilislækna sinna og að þeir
njóti ekki læknishjálpar hjá þeim
læknum sem gefa út tilvísanir fyr-
ir þá. Sérfræðingafélagið hefur
gengið svo langt að leggja til, að
uppbyggingu í heilsugæslu í
Reykjavík verði hætt og að sér-
fræðingar taki að sér þá þjónustu
sem á vantar.
Stjórn Félags íslenskra heimilis-
lækna fordæmir málflutning af
þessu tagi og telur að hann sé ein-
ungis til þess fallinn að drepa á
dreif málefnalegri umræðu um til-
vísunarkerfíð og sá ótta og tor-
tryggni í brjóst sjúklinga sem
læknar ættu með réttu að hlífa.
Stjóm Félags íslenskra heimilis-
Iækna telur að Sérfræðingafélag
íslenskra lækna hafi með fram-
göngu sinni orðið sér til minnkunn-
ar og skaðað heiður og virðingu
íslenskra lækna með þeim hætti
að seint verði úr bætt. Lýsir stjóm
Félags íslenskra heimilislækna
fullri ábyrgð á hendur þeim lækn-
um sem leiða þessa baráttu vegna
þeirra afleiðinga sem af henni
kunni að hljótast."
Hann kvaðst vera þeirrar skoð-
unar að rétt sé að einkavæða Sím-
ann, hann verði hlutafélag í eigu
ríkisins og þurfi heimild Alþingis
til að selja hlutabréf í því.
Ástæðan sé tvenns konar að
hans viti; í fyrsta lagi sé of þungt
í vöfum fyrir jafn stórt fyrirtæki
á sviði nútímafjarskipta að þurfa
að leita eftir heimildum til fjárveit-
ingavaldsins til athafna. í öðru
lagi sé slík einkavæðing nauðsyn-
leg, þar sem íslendingar þurfi að
starfa í samræmi við þróun annars
staðar í heiminum og innan hins
Evrópska efnahagssvæðis muni á
næstu áram einstakir þættir póst-
þjónustu og annarrar opinberrar
starfsemi verða einkavæddir. P&S
standi vel og telji hann að einka-
væðing muni hvorki stofna framtíð
þess í hættu né draga úr atvinnuör-
yggi og kjöram starfsmanna þegar
þar að kemur.
Veltan 1.300
milljónir kr.
Nýja sviðið verður aðskilið fjár-
hagslega og stjómsýslulega frá
P&S, en undir yfirstjóm póst- og
símamálastjóra, auk þess sem
deildir á borð við starfsmannahald,
íjármálasvið og bókhald P&S veita
því þjónustu. Áætlað er að um 90
starfsmenn flytjist á hið nýja svið
við þessar breytingar, en þessi
starfsemi P&S velti 1.300 milljón-
um króna á seinasta ári. Undir hið
nýja svið heyrir rekstur NMT-far-
símakerfisins, GSM-farsímakerfis-
ins, boðkerfisins, kaup og sala
notendabúnaðar ásamt rekstri til-
heyrandi verkstæða, markaðsmál
og fjölþjóðsamskipti tengd þessari
starfsemi svo og ýmis virðisauk-
andi þjónusta.
Haraldur Sigurðsson sem gegnt
hefur starfí aðstoðarframkvæmda-
stjóra fjarskiptasviðs P&S hefur
verið skipaður framkvæmdastjóri
hins nýja sviðs, ásamt rekstri til-
heyrandi verkstæða.
Úrskurður réð
ekki úrslitum
Síðastliðið haust óskaði Sam-
keppnisráð eftir aðskilnaði sölu-
deildar P&S frá annarri starfsemi
sem nýtur einkaleyfísverndar, til
að taka af allan vafa um að P&S
greiði ekki niður viðskipti með
notendabúnað pneð einkaleyfis-
vemdaðri starfsemi sinni. Æski-
legt væri að stofna sérstakt fyrir-
tæki um þá hluta rekstrar P&S sem
eru í samkeppnisumhverfi. Ráð-
herra sagði að úrskurður Sam-
keppnisráðs hefði ekki ráðið úrslit-
um um stofnun hins nýja sviðs,
heldur aðeins verið í samræmi við
undirbúning sem þegar hefði verið
kominn af stað þegar úrskurður
féll.
Hef opnað hárgreiðslustofu í Baðhúsinu
Gamlir og nýir viðskiptavinir eru velkomnir.
Opnunartilboð:
s 20% afsláttur af permanenti fram að páskum.
I
HÁRSTOFAN BAÐHÚSINU,
Ármúla 30, sími 588 2770
Uelga Jóliannsdóltir. háigieiðsliimeislai-i (áður :i Salon Nes).
Framsókn '95_________________________
Halldór Asgrímsson
verður á ferS um Reykjaneskjördæmi í dag og á sameiginlegum fundi
flokksformanna á Stöð 2 kl. 21:45 í kvöld. Föstudaginn 31. mars
og laugardaginn 1. apríl verður hann á Austfjörðum.
B Framsóknarflokkurinn
©
$
»
l
1
I
r
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
\
i