Morgunblaðið - 30.03.1995, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Að nýta sér nefíð
AÐ LOKNU vetramámskeiði
Björgunarhundasveitar íslands
sem fram hefur farið við Fálka-
fell ofan Akureyrar síðustu daga
verða til útkallshæfir björgunar-
hundar f öllum landshlutum, en
13 nýir hundar ásamt eigendum
sínum tóku þátt í námskeiðinu
sem er það viðamésta sem efnt
hefur verið til. Alls tóku 25 hund-
ar og eigendur þeirra þátt í nám-
skeiðinu.
Sveitin tvístruð um landið
Ingimundur Magnússon nám-
skeiðsstjóri og leiðbeinandi sagði
að námskeiðið fælist í að þjálfa
hundana í leit að mönnum undir
snjó og ganga þeir undir hæfnis-
próf að því loknu. Æfingar standa
yfír allan daginn, menn eru grafn-
ir niður í snjóinn við mismunandi
aðstæður og síðan hefst leit, en
á kvöldin hlýða þátttakendur á
fyrirlestra. Björgunarhundasveit
íslands er eina björgunarsveitin
sem er tvístruð um land allt og
vetramámskeiðið því mikilvægt
þar sem það er nánast eina tæki-
færi eigenda hundanna að hittast
og bera saman bækur sínar.
Hundamir koma af Reykjavík-
ursvæðinu, ísafírði, Bolungarvík,
Sauðárkróki, Akureyri, Egilsstöð-
um og Neskaupstað og em alls
25, eigendur þeirra og þjálfarar
taka að sjálfsögðu fullan þátt í
námskeiðinu og þá hafa auka-
menn einnig fýlgst með því sem
fram fer.
Leiðbeinendur em fímm talsins,
þar af einn frá Noregi, Arve Aas-
heim, sem áður hefur liðsinnt ís-
lenskum hundaeigendum við
þjálfun.
„Við fömm í gegnum ákveðnar
æfíngar sem miða að því að ná
fram ákveðnum þáttum í eðli
hundsins, fá hann til að hegða sér
ÞÓRIR Sigurhansson, Garðabæ, Kristinn Hannesson, Neskaupstað, Hermann Þorsteinsson,
ísafirði, og Þórbergur Þórðarson, Akranesi, hressa sig á kaffisopa milli æfinga.
í samræmi við óskir okkar. í raun-
inni emm við að nýta okkur nef
hans, þefskynið sem er innbyggt
í hundinn og þjálfa hann í að
nýta það samkvæmt okkar ósk-
um,“ sagði Ingimundur. „Þetta
er langviðamesta æfíngin sem við
höfum haldið, en það má segja að
í kjölfar atburðanna í vetur og
tíðra snjóflóða hafí menn vaknað
upp og tekið hressilega við sér.
Fólk sá hversu gífurlega mikil-
vægt björgunartæki hundurinn er
og það hefur orðið til þess að fleiri
eru tilbúnir að leggja þessu máli
lið en áður. Þetta er mikið starf
og því afar ánægjulegt að fólk
út um allt land er tilbúið að leggja
á sig ómælda vinnu og erfíði við
þjálfun, en allt er þetta unnið í
sjálfboðavinnu," sagði Ingimund-
ur.
Hann sagðist vera ánægður
með árangurinn, eftir námskeiðið
Morgunblaðið/Rúnar Þór
ARVE Aasheim, Siv dóttir hans og Ingimundur Magnússon á
Fálkafellssvæðinu þar sem vetrarnámskeið björgunarhunda-
sveitar Islands hefur farið fram síðustu daga.
yrðu til útkallshæfir björgunar-
hundar á öllum landssvæðum, en
nýliðunin er einkar góð, alls bætt-
ust 13 nýir hundar dreifðir um
land allt í hópinn fyrir námskeiðið.
Veit aldrei hvenær
kallið kemur
Ingimundur sagði að flestir
þeirra hunda sem þjálfaðir væru
við leit í snjóflóðum lifðu sínu lífí
án þess nokkurn tíma vera kallað-
ir út til leitar. „Vitanlega vona
eigendur hundanna að þeir þurfi
ekki að standa í þeim sporum að
fara í leit að fólki í snjóflóði, en
menn vita aldrei hvenær kallið
kemur.“ Reynslan sýndi að á um
það bil 10 ára fresti yrðu stórslys
af völdum snjóflóða og því þyrftu
þeir að vera til staðar. Það væri
ánægjulegt að sérþjálfaðir hundar
væru nú til um land allt, tíminn
skipti miklu máli því hann réði
mestu um lífslíkur manna sem
lentu í snjóflóðum og því erfiðara
um vik ef flytja þarf hunda um
langan veg.
Viðamesta vetrarnámskeið Björgunarhundasveitar íslands í Fálkafelli
Bj örgnnarhund-
ar nú til í öll-
um landshlutum
Stakk mann með hnífi
Mánaðar-
gæsluvarð-
halds krafist
DÓMARI Héraðsdóms Norður-
lands eystra tók sér frest til kl.
15.30 í dag, fimmtudag, til að
úrskurða um kröfu rannsóknarlög-
reglu um gæsluvarðhald yfír hálf
þrítugum manni sem í fyrrakvöld
stakk mann á Akureyri með hnífí.
Atburðurinn var við heimili
mannsins sem stunginn var.
Maðurinn sem á við geðræn
vandamál að stríða fór að heimili
þess síðarnefnda, hringdi þar
dyrabjöllu og stakk manninn um-
svifalaust í kviðinn er hann kom
til dyra. Gekkst hann undir aðgerð
á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri, en litlu munaði að illa færi
og hnífurinn lenti í slagæð.
Krafa var lögð fram um eins
mánaðar gæsluvarðhald yfir
hnífsstungumanninum og að hon-
um verði gert að sæta geðrann-
sókn. Dómari við Héraðsdóm
Norðurlands eystra tók sér frest
þar til síðdegis í dag til að úr-
skurða í málinu.
-----» ♦ ♦-----
Fjöregg og
Framtak-Ona fá
greiðslustöðvun
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur veitt tveimur félögum
þriggja vikna greiðslustöðvun.
Þetta eru annars vegar kjúkl-
ingabúið Fjöregg í Sveinbjarnar-
gerði á Svalbarðsströnd og hins
vegar pípulagningarfyrirtækið
Framtak-ONA. Báðum þessum
félögum var veitt heimild til
greiðslustöðvunar til 18. apríl
næstkomandi.
Eigendur beggja félaganna
lögðu fram beiðni til Héraðsdóms
Norðurlands eystra um greiðslu-
stöðvun á meðan fjárhagur þeirra
verður endurskipulagður.
Ingólfur Hauksson hefur verið
ráðinn aðstoðarmaður Fjöreggs-
manna við endurskipulagningu
fjárhagsins en Jón Kr. Sólnes er
aðstoðarmaður Framtaks-ONA á
greiðslustöðvunartímabilinu.
Háskólinn á Akureyri
Fyrirlestur
Efni: Kynning á þjónustu Strengs. Sérstaklega verður
kynntur upplýsingabankinn Hafsjór, einnlg
viðskiptahugbúnaðurinn Fjölnir, Útvegsbankinn
og leitarkerfi Morgunblaðsins.
Fyrirlesarar: Haukur Garðarsson og
Jón Heiðar Pálsson.
Staður: Stofa 203, Glerárgötu 36.
Tími: Föstudagur 31. mars 1995, kl. 14.15 til 16.00.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
HÁBKÚUNN
A AKUREYHI
Framkvæmdir við brim-
varnarg'arð langt komnar
Dalvik. Morgunblaðið.
FRAMKVÆMDIR við nýjan brim-
vamargarð á Dalvík eru nú langt
komnar en vinna við garðinn hófst
{ september á síðasta ári.
Verktaki er Völur hf. í Reykjavík
sem bauð rúmar 79.003.915 milljón-
ir en það er 59% af kostnaðaráætlun
Vita- og hafnarmálastofnunar sem
hljóðaði upp á 133.005.585 milljónir
króna.
Mikið mannvirki
Brimvamargarðurinn er mikið
mannvirki en hann er 320 metra
langur, mesta botnbreidd er 48,5
metrar og mesta hæð 14 metrar. í
garðinn fara rúmlega 100.000 rúm-
metrar af efni þar af 30.000 rúm-
metrar af sjávarmöl sem dælt var
undir sjálfan gijótgarðinn og 70.000
rúmmetrar af gijóti sem tekið er úr
námu í Hálshomi, í 9 kílómetra fjar-
lægð frá hafnarsvæðinu.
Vegna aukins umferðarþunga í
gegnum bæinn voru gerðar sérstakar
skipulagsbreytingar á umferð og
m.a. var hámarkshraði lækkaður í
35 kílómetra á klukkustund.
Vamargarðurinn liggur norðan við
ytri garð hafnarsvæðisins og er hon-
um ætlað að veija höfnina fyrir
ágangi sjávar. Nú þegar er áhrifa
hans farið að gæta í þeirri ótíð sem
verið hefur undanfama daga og skip
og bátar hafa getað legið við norður-
garðinn sem áður var ógerlegt í slík-
um veðrum.
Vinna við garðinn hefur gengið
vel, þrátt fyrir rysjótta tíð, og sam-
kvæmt áætlun em verklok fyrirhuguð
í október en fyrirséð er að þau muni
verða fyrr, jafnvel í vor eða sumar.