Morgunblaðið - 30.03.1995, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995
ERLENT
Hörkutólið
Emma Bonino
Brussel. The Daily Telegraph.
EMMA Bonino, sem fer með
sjávarútvegsmál í fram-
kvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins, á um margt litríkan
feril og er vön því að heyja
vonlausa baráttu.
Bonino er ítölsk, 47 ára göm-
ul og tók við sjávarútvegsmál-
unum eftir að ljóst var að
Norðmenn höfðu hafnað aðild
að ESB í þjóðaratkvæða-
greiðslu en búið var að ákveða
að Thorvald Stoltenberg, fyrr-
um utanríkisráðherra, færi
með sjávarútvegsmálin. Auk
þeirra sér hún um neytenda-
mál og mannúðaraðstoð innan
framkvæmdastjórnarinnar.
í heimalandi sínu Ítalíu hef-
ur hún það orð á sér að vera
einstaklega viljasterk. Á átt-
unda áratugnum sat hún í
fangelsi í þijár vikur vegna
þátttöku sinnar í herferð fyrir
fóstureyðingum og hún hefur
einnig farið í hungurverkföll
í tengslum við baráttu sína
fyrir mannréttindamálum.
Þegar Bonino voru afhent
sjávarútvegsmálin viður-
kenndi hún að hafa lítið vit á
þeim og raunar einnig tak-
markaða vitneskju um málefni
neytenda. Hún hét því aftur á
móti að bæta það upp með því
að fara að ráðum sérfróðra
manna.
Líkt og í öðrum málum fyrr
á ferli sínum hefur hún sýnt
af sér makalausa hörku í grá-
lúðudeilu ESB og Kanada og
hefur frá upphafið sakað
Kanadastjórn um „skipulagða
sjóræningjastarfsemi".
Það vakti töluverða undrun
er hún ákvað að fara i áform-
aða ferð til AfríkurQganna
Búrúndi og Rúanda einungis
nokkrum klukkustundum eftir
að Kanadamenn tóku spænska
togarann Estai á Miklabanka.
Þegar hún sneri til baka réðst
hún hins vegar þegar í stað
harkalega að Kanadamönnum,
sakaði þá um að halda uppi
„ógnarstjórn" og „ræna bátum
okkar og halda borgurum okk-
ar þar til gjald verður greitt“.
Leon Brittan, sem sér um
samskipti við Kanada innan
framkvæmdastjórnarinnar,
reyndi að ná tökum á málinu
og lýsa því yfir að „almenn
skynsemi myndi ná yfirhönd-
inni“. Skaðinn var hins vegar
skeður.
Bonino fæddist í bænum Bra
skammt frá Torino árið 1948
og ólst hún upp í harðgerðu,
lágstéttarumhverfi. Hún út-
skrifaðist frá Boccino-háskó-
lanurn í MBanó en sýndi að
eigin sögn stúdentapólitík lít-
inn áhuga.
Árið 1975 varð hún ófrísk,
27 ára að aldri, og ákvað að
eyða fóstrinu, en fóstureyðing-
ar voru ólöglegar á Italíu. Þeg-
ar hún losnaði úr fangelsi tók
hún að starfa fyrir Róttæka
flokkinn og var kjörinn á þing
ári síðar.
Hún sat á Evrópuþinginu
árin 1979-1984 og 1986-1989
og þekkir því vel til starfa
þess. Nýtur hún einnig mikilla
vinsælda í röðum Evrópuþing-
manna.
Bonino hefur mjög líflega
framkomu og hefur það hjálp-
að henni að skera sig úr hópi
gráu jakkafatamannanna, sem
ráða ríkjum í embættismanna-
kerfinu í Brussel.
Vestur-
landabúar
flýja
Búrundi
RÚMLEGA þijú hundruð Vest-
urlandabúar, aðallega Belgíu-
menn, fiýðu Búrundi í gær
vegna átaka hútúa og tútsa.
Myndin var tekin í gær á flug-
velli höfuðborgarinnar
Bujumbura er bandarískir
þegnar biðu þess að komast út
í flugvélar, þ. á m. 20 ástvinir
bandarískra sendiráðsmanna.
Ástandið í landinu hefur farið
hriðversnandi undanfarið og
óttast margir að svipaðs blóð-
baðs sé að vænta þar og í
Rúanda í fyrra.
Reuter
Þjóðveijar reiðir vegna hernaðaraðgerðanna í N-írak
Fyrirhuguð aðstoð við
Tyrkjaher afturkölluð
Bonn, Bag'dad. Reuter.
ÞÝSKA stjómin hefur ákveðið að
hætta við fyrirhugaða aðstoð við
her Tyrklands vegna óánægju með
hernaðaraðgerðirnar gegn Kúrd-
um í norðurhluta íraks. Klaus Kin-
kel, utanríkisráðherra Þýskalands,
sagði í gær að Sameinuðu þjóðim-
ar yrðu að láta málið til sín taka
„af miklum þunga“. Tyrkneska
innrásarliðið hefur meinað her-
mönnum á vegum Sameinuðu
þjóðanna að fara í þorp á svæðinu
og hindrað eftirlitsstörf þeirra.
Klaus Kinkel sagði að ákvörðun
þýsku stjómarinnar næði til tækja
til brúargerðar og fleiri fram-
kvæmda sem hún hafði lofað tyrk-
nesku stjóminni. Áður höfðu Þjóð-
veijar frestað fjárhagsaðstoð við
Tyrki upp á 150 milljónir marka,
6,9 milljarða króna, vegna fyrir-
hugaðra kaupa þeirra á tveimur
freigátum, smíðuðum í Þýskalandi.
Tyrkneska utanríkisráðuneytið
sagði í gær að þessi ákvörðun
gæti orðið til þess að Tyrkir hættu
við kaupin.
Spenna meðal inn-
flytjenda í Þýskalandi
Kinkel sagði að Tyrkir yrðu að
kalla innrásarliðið heim þegar í
stað. Hann sagði að Sameinuðu
þjóðirnar yrðu að hlutast til um
lausn málsins og kanna þyrfti
hvaða ríki væm reiðubúin að senda
herlið til að halda uppi eftirliti í
norðurhluta íraks.
Þýska stjómin hefur einnig
áhyggjur af spennunni meðal inn-
flytjenda frá Tyrklandi í Þýska-
landi, en þeir em 1,8 milljónir, þar
af 400.000 af kúrdískum ættum.
Danski herforinginn Poul Dahl,
sem stjórnar 65 manna hersveit á
vegum Sameinuðu þjóðanna á
„griðasvæðinu" í Norður-írak,
kvaðst hafa miklar áhyggjur af
örlögum Kúrda á svæðinu. Hann
sagði að tyrkneska innrásarliðið
hefði nokkmm sinnum hindrað eft-
irlit hersveitarinnar og hún hefði
ekki fengið að kanna ástandið í
afskekktum fjallaþorpum, sem
Tyrkir em sagðir hafa heijað á.
Hermenn Sameinuðu þjóðanna
og heimildarmenn í Bagdad segja
að þorpsbúamir hafi kvartað yfir
því að tyrknesku hersveitirnar hafi
rænt og ruplað i þorpunum, um-
turnað heimilum í leit að vopnum
og skilið áð karla og konur.
Rýmingarsala
Nýir og notaðir samkvœmiskjólar til sölu.
20-50% afsláttur
Brúðarkjólaleiga Dóru,
Suðurlandsbraut 46 v/Faxafen,
sími 682560.
MORGUNBLAÐIÐ
Gríska
skatta-
stríðið
harðnar
SKATTASTRÍÐIÐ í Grikk-
landi harðnar enn og nú hafa
þúsundir verslunareigenda
gengið í lið með bændum í
baráttunni gegn nýjum skatt-
lögum. Skattsvik eru gfurleg
í Grikklandi og áætlað er, að
neðanjarðarhagkerfíð þar velti
hvorki meira né minna en
3.000 milljörðum ísl. kr. á ári.
Nú hafa stjórnvöld ákveðið,
að allir verði að telja fram ein-
hveijar lágmarkstekjur og er
þá t.d. miðað við umsvif versl-
unar, stærð býla, bílaeign og
fleira. Á þetta vilja bændur
og verlsunareigendur ekki fall-
ast.
Skæruliðafor-
ingi felldur
TALIÐ er, að Djamel Zitouni,
einn helsti foringi skæruliða
bókstafstrúarmanna í Alsír,
hafi fallið í átökum við stjórn-
arherinn í síðustu tíu daga.
Var skýrt frá því í dagblaðinu
E1 Watan, sem sagði, að um
1.300 bókstafstrúarmenn
hefðu legið í valnum eftir bar-
dagana. Zitouni tók við stjórn
skæruliðanna á síðasta ári en
þeir hafa meðal annars staðið
fyrir morðum á útlendingum,
blaðamönnum og kunnu fólki
í Alsír.
Færeyjar
lamaðar
ENGINN árangur varð af
fundi landsstjómarinnar,
sáttasemjara og fulltrúum op-
inberra starfsmanna í Færeyj-
um í gær og verður verkfall
þeirra síðastnefndu æ víðtæk-
ara. Má búast við, að síma-
kerfið verði brátt óvirkt vegna
bilana, sem ekki verður gert
við, og verkfallsverðir koma í
veg fyrir feijusiglingar á milli
eyja. Níu félög opinberra
starfsmanna bætast við um
aðra helgi verði ekki búið að
semja og þá mun fæeyskt sam-
félag stöðvast að mestu.
Leyniskýrslur
opnaðar
STJÓRNVÖLD í Tékklandi
hafa samþykkt að opna að-
gang að skjalasafni leynilög-
reglu kommúnista. Þá verður
einnig skýrt frá nöfnum fyrr-
verandi útsendara lögreglunn-
ar og nöfnum þeirra, sem
veittu þeim upplýsingar en
voru skráðir undir dulnefni.
Mikið er enn til af gögnum
þótt leynilögregla kommúnista
hafi reynt að eyðileggja sem
mest eftir byltinguna í nóvem-
ber 1989.
Fer Shanghai
undir sjó?
HÆKKI sjávarmál um einn
metra fram til miðrar næstu
aldar vegna gróðurhúsaáhrifa
mun það eyðileggja 48 borgir
í Kína, þar á meðal Shanghai.
Kemur þetta fram í skýrslu,
sem unnin hefur verið fyrir
kínversk stjórnvöld, og þar
segir, að 76 milljónir manna
a.m.k. muni flosna upp.