Morgunblaðið - 30.03.1995, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Nýjar bækur
Hálfdán eftir Jón
Á hverfanda hveli
Signrð Evjólfsson
HÁLFDÁN nefnist ný
Ijóðabók eftir Jón Sig-
urð Eyjólfsson. Þetta
er fyrsta bók höfund-
ar. Jón Sigurður Ey-
jólfsson er fæddur á
Bíldudal 1972 og ólst
þar upp, en fluttist til
Reykjavíkur fimmtán
ára að aldri.
í kynningu segir:
„Fljótlega komst hann
að því að höfuð-
borgarsvæðið er ekki
eins og hann hélt það
vera. Sérstaklega var
Jón Sigurður
Eyjólfsson
honum í nöp við lífs-
gæðakapphlaupið og
hin miídu neikvæðu
áhrif þess.“
Hálfdán er 53
blaðsíður prentuð í
Ingólfsprenti og bund-
in hjá Flatey. Kápa,
teikningar, setning og
umbrot eru verk Olaf-
ar Jónu Guðmunds-
dóttur og Lindu Guð-
laugsdóttur. Bókin er
tileinkuð Hálfdáni
Pedersen og Sigríði
Maríu.
Ljóðablóð eftir
Stefán J. Fjólan
LJÓÐABLÓÐ nefnist
ný ljóðabók eftir Stef-
án J. Fjólan.
Stefán hefur áður
sent frá sér ljóðabæk-
ur.
í Ijóðunum sem eru
mörg og flest stutt
yrkir Stefán um ýmis
efni, fjallar um sam-
tímann eins og hann
horfír við honum, aðra
höfunda, ástir og
dregur upp sjálfs-
myndir.
Stefán J. Fjólan
í ljóði sem Stefán
kallar Lífsbaráttuna,
yrkir hann: „Tímans
tönn/ hefur bitið/ á
bátinn minn./ Ég sit
hljóður/ við kinnung-
inn.“
Ljóðablóð er 84
blaðsíður prentuð í
Bókamiðstöðinni.
Höfundur gerði
kápu. Hann er einnig
útgefandi bókarinn-
ar.
MYNPOST
Listhús 39 —
Hafnarfiröi
LJÓSMYNDIR
JEANYVES COURAGEUX
Opið daglega kl. 14-18 til 20. apríl.
Aðgangur ókeypis.
ÞRÁTT fyrir að vera aðeins smá-
þjóð samkvæmt öllum venjulegum
viðmiðum, örlítill dropi ^ í hafsjó
mannkyns, hefur okkur íslending-
um tekist furðu vel að fela þessa
staðreynd, og um leið blekkja okkur
sjálf til að halda að Við skiptum
einhveiju máli í þeim þungu
straumum, sem ólga um áðurnefnd-
an hafsjó.
Sú sjálfsblekking hefur að líkind-
um reynst okkur mikil blessun. Hún
hefur gefið okkur sjálfstraust til
að ^viðhalda, efla og vetja eigin
menningu, og djörfung til að
hreykja okkur hátt í samanburði
við milljónaþjóðir á þeim vettvangi.
Fjölmennari þjóðir hafa koðnað nið-
ur við betri aðstæður, og sakna
sumar sárt fyrri menningararfleifð-
ar.
Þessar hugrenningar um gildi
þjóðemis og menningar era til
komnar vegna þessarar ljósmynda-
sýningar, þar sem okkur er boðið
að kynnast lítillega tilveru öllu fjöl-
mennari en framandi þjóðar, sem
þrátt fyrir stærðina kann að vera
horfin í mannhafið innan fárra kyn-
slóða. Þau örlög eru henni búin sem
fórnarlambs pólitískra landamæra,
ókunnra siða og nýrra lifnaðarhátta
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
LEIKENDUM og leikstjóra var vel fagnað í lok sýningarinnar á íslandsklukkunni.
Frumsýningu Islandsklukkunnar
vel tekið á Selfossi
Selfossi. Leikfélag Selfoss frum-
sýndi íslandsklukkuna eftir Hall-
dór Kiljan Laxness í leiksljórn
Vigdisar Jakobsdóttur laugar-
daginn 19. mars síðastliðinn. Hús-
fyllir var á sýningunni í leikhúsi
félagsins við Sigtún á Selfossi og
Ieikurum mjög vel tekið. Þetta
er 45. leikverkið sem félagið setur
upp á Selfossi frá árinu 1958.
Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson
fer með hlutverk Jóns Hregg-
viðssonar á Rein, JúlíaÞorvalds-
dóttir leikur Snæfríði íslandssól
og Ólafur Jens Sigurðsson leikur
Arnas Arnæus. Frumsýningin
tókst nyög vel og aðalleikararnir
skiluðu sínum hlutverkum mjög
vel. Það gerðu og þeir aðrir sem
komu fram í sýningunni að und-
anskildum hnökrum sem nánast
óhjákvæmilegt er að upp komi í
svo ströngu verki sem Islands-
klukkan er.
Sigurgeir Hilmar var sem
sniðinn í hlutverk Jóns Hregg-
viðssonar og náði vel að túlka
allt hans fas. Júlía Þorvaldsdóttir
bar uppi hlutverk Snæfríðar af
mikilli reisn og heillandi fram-
komu á sviðinu. Ólafur Jens náði
vel að túlka virðuleik Arnasar
allt verkið og undirstrika fágun
heimsmannsins. Elín Arnolds-
dóttir lék móður Jóns og konu
Arnasar. Hún bar með sér í leik-
húsið nyög góða túlkun og tókst
mjög vel upp í hlutverkum sínum.
Hún hefur tekið þátt í fjölda
uppfærslna hjá félaginu á undan-
förnum áratugum en það er fé-
laginu fengur að eiga slíkt fólk
innan sinna vébanda. Kristinn
Pálsson fór nyög vel með hlut-
verk síra Sigurðar dómkirhju-
prests og Hjörtur Már Benedikts-
son náði fram ágætri túlkun á
Jóni Grinvicensis.
Aðrir sem komu fram í verk-
inu voru Kristín Steinþórsdóttir
í hlutverki virðulegrar staðar-
konu í Skálholti, einnig lék hún
sýkna konu og hirðmey. Bjarkar
Snorrason lék Eydalín lögmann,
séra Þorstein og glæpamann,
Þórólfur Sæmundsson lék Magn-
ús í Bræðratungu, etasráðið, að-
stoðarmann sýslumanns og
glæpamann, Benedikt Karl
Valdimarsson var í hlutverki
Jóns Marteinssonar, Sigurðar
böðuls, Gullinlós, glæpamanns og
flakkara. Sigtryggur Bjartur
Kristinsson lék Jón Jónsson varð-
mann, sýslumann, glæpamann,
þjón og von Úffelen, Kolbrún
Dögg Eggertsdóttir lék holds-
veika konu, frameiðslukonu og
hirðmey, Ingvar Brynjólfsson lék
aðstoðarmann sýslumanns og
glæpamann. Ögmundur Hrafn
Magnússon og Viktor Ingi Jóns-
son léku drengi á hlaupum.
Þáð er mikið afrek hjá Leikfé-
lagi Selfoss að setja upp íslands-
klukkuna og komast jafn vel frá
því og raun ber vitni. Sumir leik-
aranna voru undir miklu álagi,
þurftu að takast á við mörg hlut-
verk eins og þeir Benedikt Karl,
Þórólfur Sæmundsson og Sig-
tryggur Bjartur en þeir eru ung-
ir og upprennandi leikarar sem
ekki víla fyrir sér verkefnin.
Heildaryfirbragð sýningarinnar
var gott og fögnuður áhorfenda
sannur i lokin.
JEAN Yves Courageux:
Dóttir E1 Mouden.
sem nútíminn er að þröngva upp á
fólkið undir yfirskini framfara.
Nú undir lok tuttugustu aldar er
talið að Toureg-þjóðin telji ríflega
níu hundrað þúsund manns, en hún
hefur kynslóðum saman flakkað um
sunnanverða Sahara eyðimörkina,
frá Alsír og Lýbíu í norðri til Malí
og Nígeríu í suðri. Með aukinni
fastri búsetu hafa menningartengsl
þessarar fornu máraþjóðar tekið að
rofna, um leið og reglustrikuð
landamæri í sandinn hafa slitið
hana sundur þvert á fomar leiðir
um landið.
Jean Yves Courageux er fæddur
af frönsku foreldri í suðurhluta Als-
ír, og alinn upp fram á unglingsár
á slóðum þessarar glæstu eyðimerk-
urþjóðar; hann hefur búið hér á
landi og starfað um árabil, en jafn-
framt haldið að nokkra tengslum
æskuáranna sem þessar myndir
byggja á, m.a. sem leiðsögumaður
ferðamanna.
Við skoðun myndanna koma
óvænt í ljós viss tengsl hinnar fjar-
lægu þjóðar við okkar heim; í stað
sands er hér ís og haf, í stað hitans
höfum við kulda og vosbúð, en lífs-
baráttan er jafnerfið á báðum stöð-
um.
Eyðimörkin er aldrei auð, þó
okkur kunni að finnast nafnið bera
það með sér. Hér er að finna mót
menningarheima, þar sem þróast
hefur ríkuleg menning í aldanna
rás; steinristur og klettamálverk
eru órækustu vitnisburðir mynd-
anna um þetta. Hér er fólkið, líf
þess og hugsanir, næst ljósmyndar-
anum, en auk myndanna hefur hann
valið og sett upp með myndunum
ýmsa orðskviði, sem lýsa eðli þjóð-
arinnar og þeirri lífsspeki, sem
Toureg-menn fylgja: „í stað þess
að breyta heiminum í sífellu í þeim
tilgangi að móta sér vafasama
framtíðarsýn nota Touregar orku
sína til að varðveita heiminn eins
og hann er. - Slík fastheldni á forna
siði kann að þykja aðdáunarverð
við fyrstu sýn; en hún ber feigðina
með sér í samtímanum, þar sem
„það er svo erfitt að standa í stað ...
Landið sjálft er í aðalhlutverki í
ljósmyndunum, og þó ýmislegt sé
framandi fyrir íslendinga, er ægi-
fegurð vindsorfinna tinda og reisu-
legra fjalla upp úr sandauðninni
ekki fjarri okkar landsýn, sem fyrr
segir. Þetta eru smáar myndir, sem
fara ágætlega í þessu litla rými og
nýta það vel.
Hér er á ferðinni þakklátt fram-
tak sem hefur m.a. notið stuðnings
franska sendiráðsins og fleiri aðila.
Sýningin, sem er tileinkuð eskimó-
um, er góð áminning um nauðsyn
þess að viðhalda og veija hina lit-
ríku flóru þjóðanna, sem allar tengj-
ast með einhveijum hætti og allar
hafa sínu hlutverki að gegna -
hvort sem þær er að finna við heim-
skautsbaug eða í hitum Sahara.
Eiríkur Þorláksson
Norræn menningarhátíð hafin á Spáni
Sýning á verkum
Magnúsar
Kjartanssonar
Madríd. Morgunblaðið
í GÆR var opnuð sýning á verk-
um Magnúsar Kjartanssonar
listmálara í Madríd, að viðstödd-
um forseta íslands, frú Vigdísi
Finnbogadóttur, sendiherra ís-
lands á Spáni, Sverri Hauk
Gunnlaugssyni, og rúmlega eitt
hundrað boðsgestum. Sýningin
er hluti af þátttöku íslands í
norrænu menningarhátíðinni
„Undir Pólstjörnu", sem er ný-
hafin.
Guðríður Sigurðardóttir,
ráðuneytisstjóri í menntamála-
ráðuneytinu, flutti ávarp og
listamaðurinn, Magnús Kjart-
ansson, ræddi við ýmsa spænska
fjölmiðla, sem sýndu sýningunni
töluverðan áhuga. Magnús tjáði
blaðamanni Morgunblaðsins að
hann væri mjög ánægður með
opnunarathöfnina og sýningar-
salinn. Sýningin er haldin í Car-
los Amberes stofnuninni, 400
ára byggingu. Hluti hennar er
gömul kapella, prýdd mynd eftir
Rubens. En málverk Magnúsar
líta vel út við hlið gamla meistar-
ans.
16 myndir eru á sýningunni,
trúarlegs eðlis, og sagði lista-
maðurinn spænskum fjölmiðlum
að slíkt umfjöllunarefni væri
óalgengt á íslandi. Hann kom
hérlendum fréttamönnum á
óvart með þekkingu sinni á
spænskri list, og sagðist vona
að þessi sýning mætti verða til
að efla samstarf milli íslenskra
og spænskra listamanna.
Sýningin stendur til 7. maí,
en fer þá til Barcelona og verður
þar frá 20. júní til 20. júlí.
Um kvöldið var forseti íslands
viðstaddur tónleika Caput Ens-
amble í tónleikahöll _ Madríd og
mótttöku á vegum Útflutnings-
ráðs.
Harmonikutónlist
íRáðhúsinu
NOKKRIR félagar úr Harmoniku- endur á öllum aldri.
félagi Reykjavíkur flytja skand- Meðal annarra koma fram Karl
íhavíska tónlist og létta sveiflu í Jónatansson, Sveinn Rúnar
Ráðhúsi Reykjavíkur næstkom- Björnsson og Léttsveit Harmon-
andi sunnudag kl. 15 og eru flytj- ikufélags Reykjavíkur.