Morgunblaðið - 30.03.1995, Síða 34
34 FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995
MIIMIMIIMGAR
MORGUNBLAÐIÐ
Sænsk gæöavara á góöu veröi
-8’ 7.600 kr.
-15’ 10.750 kr.
-25’ 14.250 kr.
Búðin er opin (rá kl. 13 -17 aila virka daga.
Drcifing: sími 568 9391
• Hljóðlát aðeins 41dba
• Tvöföld lekavörn
• Hægt að hækka og
lækka efri grind
• Tekur borðbúnað
fyrir 12 manns
• Breidd 60 cm
• Öryggislæsing á hurð
+ barnaöryggi
• Frí heimsending í Rvk.
og nágrenni
VISA - EURO - RAÐGREIÐSLUR
20
RAFVORUR
>RMÚLI 5 • 108 RVK • SÍMI 568 6411
BJÖRN JÓNSSON
+Björn Jónsson,
fyrrv. yfirflug-
umferðarstjóri og
fyrrv. fram-
kvæmdastjóri hjá
Flugmálastjóra,
fæddist á Akureyri
25. janúar 1915.
Hann andaðist í
Reykjavík 21. mars
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Jón Eyjólfur Berg-
sveinsson, f. 27.6.
1879, d. 17.12.1954,
skipstjóri, yfirsíld-
armatsmaður og
erindreki SVFÍ, og kona hans,
Ástríður María Eggertsdóttir
frá Fremri-Langey, húsmóðir.
Systkini Björns voru átta og
eru fjögur þeirra á lífi. Systkini
hans: Bergsveinn, f. í Reykjavík
18.12. 1908, d. 21.12. 1971, full-
trúi hjá varnarliðinu á Kefla-
víkurflugvelli, var kvæntur
Magnúsínu Bjarnleifsdóttur
húsmóður og átti hann tvö
börn; Eggert Thorberg, f. á
Akureyri 12. 8. 1911, d. 2.3.
1988, fulltrúi hjá Rafmagns-
veitu Reylgavíkur og síðar
dyravörður á Hótel Sögu, var
kvæntur Láru Petrínu Bjarna-
dóttur og eignuðust þau sjö
börn; Ingibjörg, f. á Ákureyri
2.1.1917, d. 11.9.1989, húsmóð-
ir í Reykjavík, var gift Sigurði
Kr. Þórðarsyni gjaldkera og
eignuðust þau þijú börn; Kjart-
an, f. á Akureyri 21.4. 1918,
bifreiðasljóri í Reykjavík,
kvæntur Gróu Þorleifsdóttur
húsmóður, og á hann fjögur
börn; Steinunn Ásta Elísabet
North, f. á Akureyri 13.6.1920,
húsmóðir í Englandi, gift dr.
James North lækni og eiga þau
eitt bara; Friðrik, f. á Akureyri
4.7. 1921, skipstjóri og síðar
deildarstjóri hjá Sementsverk-
smiðju ríkisins, kvæntur Körlu
Stefánsdóttur húsmóður og
eiga þau fimm böra; Kristbjörg
María, f. í Reykjavík 2.4. 1924,
húsmóðir og verslunarmaður í
Reykjavík, gift Guðmundi
Bjarnasyni, vélstjóra hjá ísal,
og eiga þau tvö böra, og Þórar-
inn Ottar Berg, f. í Reylgavík
24.7. 1925, d. 15.11. 1978, flug-
rekstrarstjóri Loftleiða og síð-
ar Flugleiða, búsettur í Kópa-
vogj, var kvæntur Borghildi
Edwald, húsmóður og starfs-
manni á iðnþjálfunardeild á
Kleppi, og eignaðist hann fimm
böra.
Björn kvæntist
23.4. 1941 Jóhönnu
Maríu Hafliðadótt-
ur, f. i Flatey á
Breiðafirði 6.1.
1920, húsmóður,
dóttur Hafliða Pét-
urssonar, bónda og
sjómanns og síðar
húsvarðar í flugt-
urninum á Reykja-
víkurflugvelli, og
Steinunnar Þórð-
ardóttur húsmóður.
Böra Björns og
Jóhönnu Maríu eru
Hafliði Örn, f. 2.6.
1941, radíóvirki og flugmaður
og nú fulltrúi hjá Flugmála-
stóra í kortagerðar- og aðflug-
tæknideild, búsettur í Reykja-
vík, kvæntur Maju Þuríði Guð-
mundsdóttur, aðstoðarstúlku
hjá tannlækni og eiga þau Haf-
liði Öra þijú böra; Hilmar Þór,
f. 28.8. 1945, arkitekt í Reykja-
vík, kvæntur Svanhildi Sigurð-
ardóttur, fulltrúa hjá Flugleið-
um, og eiga þau tvö börn; Stein-
unn Asta, f. 20.10. 1948, rítarí
hjá ísal, búsett í Reykjavík, gift
Jóni Frimanni Eiríkssyni kaup-
manni og eiga þau eitt barn,
og Sigríður Birna, f. 18.8.1956,
innanhússarkitekt í Kaup-
mannahöfn, gift Steen Hugaard
vélaverkfræðingi og eiga þau
tvö börn.
Bjöm lauk prófi frá VÍ 1933
og stundaði síðan svifflugnám
í Þýskalandi, sem hann lauk
1937, auk þess sem hann öðlað-
ist kennararéttindi í svifflugi.
Hann stundaði nám í fiugum-
ferðarstjóra á vegum RAF
1945- 46 og vélflugnám
1946- 47. Þá stundaði hann nám
í flugumsjón í New York 1950.
Bjöm stundaði verslunar-
störf hjá Mjólkurfélagi Reykja-
víkur, Liverpool og Silla og
Valda á árunum 1927-41, var
öryggisvörður vegna loftvarna
1941-43, vann við flugrekst*'"
ar- og skrifstofustörf hjá Flug-
félagi Islands 1944-45, var yfir-
flugumferðarsljóri 1946-55,
auk þess sem hann var flug-
rekstrarsljóri Keflavíkurflug-
vallar og sá um yfirsljórn fiug-
umsjónar, flugumferðarsljórn-
ar og hlaðstarfa 1951-52. Hann
var framkvæmdastjóri flugör-
yggisþjónustu 1955-63 og
tækniráðunautur hjá ICAO í
París 1961-66 þar sem hann
starfaði við flugnmferðarstjórn
og flugrekstrarmál i Evrópu
z'
Harðir diskar
fyrir flestar tölvnr 420 Mb og stærri
BOÐEIND
Austurströnd 12. Sími561-206l.Fax561-2081
J
Sjálfsbjörg - Landssamband fatlabra
Sjálfsbjargarádrepan
afhent í Hafnarfirði á morgun kl. 12
Föstudaginn 31. mars stendur Sjálfsbjörg fyrir mótmaelum við
Bæjarskrifstofuna í Hafnarfirði vegna lélegs aðgengis að flestum opinberum
stofnunum bæjarins. Afhent verður Sjálfsbjargarádrepan,
„Þrándur í götu nr. 2."
Með förinni veröa söngvarinn KK og sterkasta kona íslands, Sigrún
Hreiðarsdóttir. Okeypis sætaferðir verða frá Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12,
kl. 11.10, frá húsi Öryrkjabandalagsins í Hátúni 10 kl. 11.20 og frá Oddshúsi,
Sléttuvegi 7, kl. 11.30. Allir, sem vettlingi geta valdið, eru hvattir til að mæta
og krefjast þess, að tekið sé tillit til hreýfihamlaðra við innréttingu og hönnun
bygginga.
Mæting fyrir framan verslunarmiðstöðina Miðbæ kl. 12.
Kjörorðin eru „Bein leið, gatan liggurgreið" og „ Aðgengi alla leið".
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra.
og Afríku. Þá var Björn vara-
fiugrekstrarstj óri Loftleiða
1966- 72 og framkvæmdastjóri
alþjóðadeildar hjá Flugmála-
stjóra 1973-86. Björa var oft
staðgengill Agnars Kofoed
Hansen fiugmálastjóra í fjar-
veru hans.
Björn starfaði mikið i skáta-
hreyfingunni á árunum
1930-37 og var deildarforingi
í skátafélaginu Væringjum.
Hann var meðal stofnenda Svif-
flugfélags íslands og Flugmála-
félags íslands 1936. Þá kenndi
hann svifflug frá 1937-49, var
fyrsti yfirkennari Svifflugfé-
lagsins og um árabil í stjórn
þess. Hann var varaformaður
og síðar formaður í fyrstu
stjórn Félags flugmálastarfs-
manna rikisins og formaður
þar aftur síðar. Þá var Björn
forseti Flugmálafélags íslands
1967- 79.
Björa hefur hlotið „Diplome
Tissandier" frá Fédération
Aéronautique Internationale
fyrir brautryðjendastörf í flug-
málum. Hann hefur verið
sæmdur ríddarakrossi hinnar
íslensku fálkaorðu, riddara-
krossi hinnar konunglegu
sænsku norðurstjörnu, heiðurs-
peningi úr gulli 1. fl. frá Dan-
mörku, heiðurspeningi með
kórónu úr silfri frá Svíþjóð og
gullmerki Flugmálafélags ís-
lands. Þá er hann heiðursfélagi
Félags íslenskra einkaflug-
manna.
Björa verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin kl. 13.30. Jarðsett
verður í Gufuneskirkjugarði.
ÁSTKÆR afí minn, Bjöm Jónsson,
er látinn. Enda þótt ég hafí gert
mér grein fyrir að hverju stefndi
var mér brugðið þegar mér bámst
tíðindin. Ég var óviðbúin dauða afa
þrátt fyrir að hafa talið mig undir-
búna komu hans. Margs er að minn-
ast og margt kemur upp í hugann
á þessari stundu. Hver minningin
af annarri rifjast upp fyrir mér og
í huganum geymi ég mynd af elsku
afa mínum. En efst í huga mér er
þakklæti fyrir að hafa fengið að
njóta návistar hans. Mig langar í
stuttu máli að minnast hans.
Þegar ég fletti gömlum myndum
heima hjá afa og ömmu fyrir nokkr-
um árum varð mér það ljóst að afi
hefur fylgt flugi nánast frá því að
saga þess hófst hér á landi. Hann
var virkur í framþróun þess á öllum
sviðum í tæplega sex áratugi, hvort
heldur var á sviði flugsins sjálfs,
eða flugrekstrar, opinberri umfjöll-
un þess, stjórnun hérlendis sem og
á alþjóðavettvangi. Þetta fékk ég
síðan staðfest í fyrrasumar þegar
ég sjálf hóf nám í svifflugi, en afi
og amma gáfu mér í fermingargjöf
þá fjármuni sem til þarf til þess að
öðlast einkaflugmannspróf á svif-
flugu.
Ég hef nú lokið fyrsta áfanga
mínum í svifflugi og meðan ég
stundaði námið varð ég hvað eftir
annað vör við hversu vel afi minn
hefur greitt götu flugs og flugmála
hér á íslandi. Jafnvel nú um 60
árum etir að hann byijaði göngu
sína um athafnasvæði flugáhuga-
manna er ég stöðugt minnt á spor
hans þar. Ég geri mér alltaf betur
og betur grein fyrir hversu mikið
og erfitt starf hann og félagar hans
unnu á upphafsárum flugsins. Starf-
andi flugáhugamenn á öllum aldri
minnast hans hvarvetna með stolti
og sæmd. Þegar ég heyri þotugný
eða sé flugvél fara á loft minnist
ég hans.
Uppi á vegg í herbergi afa hang-
ir skjal sem vottar að hann hefur
hlotið „Diplome Tissandier" frá Féd-
ération Aéronautique Internationale
fyrir brautryðjendastörf í flugmál-
um. Hann fór leynt með það, en í
hirslum afa og ömmu var að finna
margar orður og medalíur, sem
hann hefur verið sæmdur um ævina.
Einu sinni sýndi amma mér þær
allar og sagði mér frá hverri og
einni. Þá varð ég þess vís að hann
hefur fengið riddarakross hinnar
íslensku fálkaorðu úr hendi forseta
íslands og samsvarandi heiðurspen-
inga frá konungum Danmerkur og
Svíþjóðar fyrir störf í þágu Norður-
landanna á alþjóðavettvangi. Auk
þess hefur hann hlotið gullmerki
Flugmálafélags íslands.
Afí minn, Björn Jónsson, lést á
jafndægri að vori, einmitt þann dag
ársins sem dagurinn sigrar nóttina
á eilífri hringrás daganna. Ég mun
ávallt minnast hans og samskipta
minna við hann með miklum hlýhug.
Hann stendur mér ljóslifandi fyrir
hugskotssjónum, reistur, snyrtilega
og smekklega klæddur með sína
hógværu og ákaflega kurteislegu
framkomu. Hans blíða og milda bros
en ákveðna augnaráð gerði hann að
verðugri fyrirmynd. Það eru forrétt-
indi að hafa fengið að umgangast
hann.
Það er sárt að kveðja mann sem
hefur haft svona mikil áhrif á líf
mitt, en hin sterka minning um hann
mun ávallt lifa í hjarta mínu.
Guð styrki elsku ömmu mína á
þessari erfiðu stundu og hjálpi henni
í veikindum hennar. Hún veit að hún
á vísa þá umhyggju sem eiginmaður
hennar var umvafinn.
Guð geymi þig, elsku afi minn.
María Sigrún Hilmarsdóttir.
Með Birni Jónssyni er genginn
einn af frumheijum íslenskra flug-
mála. Hann var í hópi þeirra ungu
manna sem stofnuðu Flugmálafélag
íslands og Svifflugfélag Islands árið
1936 undir forystu Agnars Kofoed-
Hansens, síðar flugmálastjóra. En
eins og kunnugt er var með þessu
félagsstarfi lagður grunnur að end-
urreisn flugs á íslandi eftir að önn-
ur tilraun til flugreksturs hér á landi
hafði rurinið út í sandinn.
Bjöm var virkur í félagsstarfinu
og hélt fljótlega til Þýskalands þar
sem hann lagði stund á svifflug og
lauk prófi sem svifflugkennari árið
1937. Sem einn af kennurum Svif-
flugfélagsins tók Björn þátt í að
kynna mörgum verðandi flugmönn-
um undirstöðuatriði flugsins og
skipulagði síðar fjölda námskeiða
fyrir próf í einkaflugi og atvinnu-
flugi.
I árslok 1945 réðst Björn til starfa
hjá Flugmálastjórn sem flugumferð-
arstjóri og var því einn af fyrstu
starfsmönnum stofnunarinnar.
Hann var valinn til forystu fyrir
þeirri litlu sveit íslendinga sem tók
við flugumferðarstjórn á Reykjavík-
urflugvelli úr hendi breska flughers-
ins árið 1946 og hóf að byggja upp
íslenska flugumferðarþjónustu. Síð-
ar varð hann framkvæmdastjóri flu-
göryggisþjónustunnar og lauk
starfsferli sínum sem framkvæmda-
stjóri alþjóðadeildar Flugmála-
stjórnar.
Ég kynntist Birni árið 1960 þeg-
ar hann var fararstjóri fyrir hópi
svifflugmanna, sem fóru til að taka
þátt í heimsmeistaramótinu i Köln.
Sú ferð varð ógleymanleg og
ánægjuleg lífsreynsla fyrir alla
þátttakendur og var það ekki síst
fararstjórn Björns að þakka hve
góður andi ríkti í hópnum. Björn
var afar glaðvær maður og áhugi
hans og þekking á öllum greinum
flugsins voru vel til þess fallin að
hvetja unga menn tii dáða á sviði
flugmála hvort sem var í leik eða
starfi. Þessi mikli áhugi hans á flugi
entist honum alla ævi og einkenndi
öll störf hans í þágu íslenskra flug-
mála.
Bjöm hlaut margvíslega viður-
kenningu bæði hér á landi og erlend-
is. Um fímm ára skeið starfaði hann
sem sérfræðingur hjá Alþjóðaflug-
málastofnuninni á sviði flugleiðsögu
og flugumferðarþjónustu. Hann var
sæmdur riddarakrossi hinnar ís-
lensku fálkaorðu fyrir störf sín að
flugmálum og er þá aðeins fátt tal-
ið. Mér er því ljúft og skylt að þakka
sérstaklega störf hans í þágu Flug-
málastjómar, stofnunar sem hann
átti stóran þátt í að móta á fjörutíu
ára viðburðaríku tímabili í íslenskri
flugsögu.
Fjölskyldu Bjöms sendi ég inni-
legar samúðarkveðjur á þessum
tímamótum þegar við kveðjum hann
að loknum farsælum lífsferli.
Þorgeir Pálsson
fiugmálastjóri.