Morgunblaðið - 30.03.1995, Side 40
40 FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AFMÆLI
VINUR minn Jón G.
Bjamason er 85 ára í
dag. Jón Guðmann er
fæddur 30. mars 1910
að Ásólfsskála undir
V estur-Eyj afjöllum.
Foreldrar hans voru
Bjami Eiríksson og
Þorgerður Hróbjarts-
dóttir, en þau höfðu
nýlega hafíð búskap á
Ásólfsskála þegar Jón
fæddist. Foreldrar
Bjama vora Eiríkur
Ólafsson og Geirlaug
Jónsdóttir en þau
bjuggu á Litlu-Lönd-
um, Hvalsnesi og síðar undir Eyja-
ijöllum. Foreldrar Þorgerðar vora
Hróbjartur Pétursson og Sólveig
Pálsdóttir er bjuggu á Rauðafelli
undir Austur-Eyjaíjöllum. Kona
Jóns var Guðbjörg Sveinbjamar-
dóttir, en hún lést árið 1959. Guð-
björg var dóttir hjónanna Svein-
bjamar Jónssonar og Önnu Einars-
dóttur en þau bjuggu á Ysta-Skála
undir Vestur-Eyjafjöllum.
Börn þeirra Jóns og Guðbjargar
era fjögur. 1) Anna Björg læknarit-
ari, var gift Guðm. G. Þórarinssyni
verkfræðingi. Böm þeirra era: a)
Kristín Björg, dýralæknir, sambýl-
ismaður Ámi Sigurðsson, jarðeðlis-
fræðingur, bam Sigurður Kári b)
Þorgerður skrifstofumaður, bam
Snorri Karl c) Jón Garðar viðskipta-
fræðingur, sambýliskona Margrét
Hlöðversdóttir laganemi. d) Ólafur
Gauti menntaskólanemi 2) Bjami
Þór hdl kvæntur Margréti Jörgen-
sen nudd- og snyrtifræðingi. Böm
þeirra era: a) Guðbjörg auglýsinga-
teiknari, gift Þormari Siguijónssyni
trésmiði, bam Orri Þór b) Jón Þór
nemi 3) Guðbjörn trésmíðameistari
kvæntur Fanný Clau-
sen húsmóður. Böm
Þeirra eru: a) Svan-
fríður Inga b) Guð-
björg Anna c) Jóhanna
Þóra d) Fyrir hjóna-
band eignaðist Guð-
bjöm Elvu Dögg sem
er nemi. 4) Margrét
flugfreyja gift Nikolai
Thim veitingamanni.
Barn Camilla Guð-
björg
Jón G. Bjamason er
maður sem hefur alla
tíð látið skyldustörfín
ganga fyrir. Traustur
og æðralaus hefur hann gengið að
starfí sínu. Vinnudagurinn hefur
alltaf verið langur. Ég held að hann
hafi aldrei hlíft sér. Frístundir og
afþreyingu hefur hann látið sitja á
hakanum þar tii ekkert annað kall-
aði á. Nú er hann nýfluttur á Hrafn-
istu, annir kalla ekki lengur að, þar
gefst tóm til þess að líta yfír farinn
veg og láta endurskin minninganna
lýsa upp liðna tíma.
Þegar Jón var aðeins tveggja ára
gamall fórst faðir hans, Bjami, með
Islendingi árið 1912. Bjami var þá
á vertíð í Eyjum eins og algengt
var með menn ofan af landi á þeim
áram. Foreldrar Jóns höfðu þá búið
aðeins stuttan tíma á Ásólfsskála
og Þorgerði varð fljótlega of erfítt
að halda þar uppi búskap einni.
Fregnin um fráfall Bjama kom að
vonum sem þrama úr heiðskíra
lofti. Mönnum hefur orðið minnis-
stætt þegar litli snáðinn var að
reyna að hugga móður sína. „Vertu
ekki að gráta mamma, sjáðu hvað
sólin er falleg." Mörgum lærdóms-
mönnum, reyndari og vitrari, hefði
reynst erfítt að fínna bjartari úr-
ræði við þessar aðstæður. Jón fylgdi
móður sinni í vinnumennsku á bæi
þarna í sveitinni. Þorgerður var lag-
hent og hjálpaði víða til við sauma-
skap.
Þegar Jonni, en svo er Jón Guð-
mann ævinlega kallaður af vinum,
var á áttunda ári gerðist Þorgerður
bústýra á Mið-Grand undir Eyja-
fjöllum. Þar giftist hún síðar Jóni
Eyjólfssyni, syni Eyjólfs bónda á
Mið-Grand. Jón Eyjólfsson og Þor-
gerður eignuðust þijú böm. Þau eru
Jóhanna Bjamheiður og Hróbjartur
sem bæði era látin og Sigríður
Karólína sem lengi bjó á Mið-Grand
en nú starfar á Vífílsstöðum. Jonni
ólst upp á Mið-Grand, þama undir
fjöllunum liggja æskusporin og
minningar bemsku- og fyrstu full-
orðinsáranna era bundnar þessum
stað. Hann gekk í bamaskóla sem
þá var á Ásólfsskála. Skólaskylda
var frá 10 ára aldri og um það bil
3 mánuðir á ári í íjögur ár. Þá vora
ekki skólabílar og talsvert langt að
ösla daglega krapann yfir mýrar
og flóa að vetrinum til þess að kom-
ast í skólann. Síðan varð að sitja
blautur í fætuma í köldu skólahús-
inu meðan kennsla stóð yfír. Þann-
ig vora nú tímarnir þá.
Jón vann að bústörfum á Mið-
Grand sín uppvaxtarár. Sauðfé var
á þessum áram rekið á haustin til
slátranar til Reykjavíkur. Ferðin
tók 6 daga og var að mestu farið
fótgangandi, en þó var farið á hest-
um yfir vötnin upp til Fljótshlíðar.
Oft var reksturinn 800-1000 fjár
og stundum hrepptu menn svo mik-
il illviðri og ófærð á Hellisheiði að
óvíst hefði orðið um ferðalok ef
vörður hefðu ekki vísað veginn.
Þótt brú væri komin á Markarfljót
gátu hin vötnin, Affall, Álar og
Þverá, verið skæðir farartálmar.
Vora þá stundum farnar svaðilfarir
sem mestu mannraunir teldust nú.
Eins og aðrir ungir menn fór Jón
á vertíð í Eyjum. Samtals fór hann
á 6 eða 7 vertíðir. Eitt skiptið veikt-
ist hann svo illa af blóðeitrun að
honum var vart hugað líf.
Það var alltaf hugsun þeirra Jóns
og Guðbjargar að búa í sveit. Þau
sóttu um Ásólfsskálann þar sem
foreldrar Jóns höfðu hafíð búskap.
En þau fengu ekki jörðina. Það
varð til þess að þau fluttu til
Reykjavíkur. Hugmyndin var þó
alltaf að flytja austur við fyrsta
tækifæri. Ofá reiptöglin fléttaði
Jonni úr hrosshári fyrstu árin í
Reykjavík meðan hann var að búa
sig undir að flytja undir Fjöllin. En
lífsbrautin lá í aðra átt og þau ílent-
ust í Reykjavík. Þrátt fyrír mikið
atvinnuleysi á þessum áram tókst
Jonna alltaf að fá vinnu. Fyrst
stundaði hann sjó en síðan almenna
hafnarvinnu og eyrarvinnu. Síðar
fékk hann vinnu í smiðju og starf-
aði upp frá því við jámsmíðar og
suðuvinnu. Álveg fram á síðustu
árin hefur Jonni verið að vinna.
Líklega hefur hann unnið að bíla-
réttingum í liðuga fjóra áratugi.
Hann náði mikilli leikni við suðu-
vinnu og oft var ótrúlegt að sjá
hvemig beygluð bílhræ breyttust í
höndum hans í glæsivagna.
Þau Jón og Guðbjörg reistu sér
ágætt einbýlishús í Efstasundi í
Reykjavík Þangað lá ævinlega
straumur vina og vandamanna að
austan sem erindi þurftu að reka í
bænum. Og austur undir Fjöllin lá
leiðin þeirra hjóna ef færi gafst.
Þegar Jonni missti konu sína frá
yngstu dótturinni Margréti á fyrsta
ári og Guðbjöm var ekki nema 7
ára, breyttist margt í Efstasundinu.
Hann vann langan vinnudag og
tókst að halda heimilinu saman,
lengi með hjálp ráðskonu.
Ollum bömum sínum kom hann
til mennta og sparaði hvorki fé né
fyrirhöfn við að koma þeim áhuga-
málum sínum áfram.
Jón G. Bjamason var þrekmaður,
sterkbyggður og ötull við allt sem
hann tók sér fyrir hendur. Nú era
hendumar ekki jafnstyrkar og forð-
um þegar glímt var við fljótin eða
heyfengur dreginn heim í hús. Elli
kerling hefur sín áhrif, fæturnir
stirðna en höfuðið er gott. Jonni
er minnugur vel og fróður. Hann
kann mikið af ljóðum og þjóðlegum
fróðleik og gaman er oft að heyra
hann segja barnabörnum sínum og
bamabarnabömum sögur. Við
sögðum oft bæði í gamni og alvöra
að þessar sögur þyrfti að skrá.
Á yngri áram hygg ég að honum
hafí ekki verið gefíð um að láta
hlut sinn og alltaf átti hann erfítt
með að þola iðjuleysi og leti. Jonni
hlaut ekki ianga skólagöngu en
hann náði mikilli hæfni í öllu sem
hann tók sér fyrir hendur. Mér kem-
ur oft í hug vísa Stephans G. þegar
ég velti fyrir mér lífshlaupi Jóns
Bjamasonar.
Þitt er menntað afl og önd
eigirðu fram að bjóða
hvassan skilning, haga hönd
hjartað sanna og góða.
Þá eiginleika sem skáldið nefnir
hefur Jonni hlotið í vöggugjöf. Við
Jonni höfum þekkst í 36 ár og allan
þann tíma hefur hann reynst mér
hinn besti vinur, jafnvel þegar ég
hef átt það síst skilið.
Á 85 ára afmæli hans sendi ég
honum og fjölskyldu hans mínar
innilegustu ámaðaróskir. Vissulega
getur hann horft sáttur yfír farinn
veg. Lengst af ævinnar hefur svit-
inn merlað á enni hans, verk féll
aldrei úr hendi. Nú er tóm til þess
að líta yfir farinn veg og meta
hversu til hefur tekist. Nú horfum
við öll til hans með hlýhug og þakk-
læti. Fáir hygg ég meti afa sinn
meira en bömin mín meta Jón G.
Bjarnason.
Það vildi ég að sá sem stýrir
gangi himintungla, sá sem „batt
niður fjallanna rætur og hagvandi
skúrir og skin“ færi honum milt og
bjart ævikveld.
Guðm. G. Þórarinsson.
JÓN G.
BJARNASON
RAÐAUGí YSINGAR
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Skýrsla um samfélag,
bók Tómasar Gunnarssonar, um leyndarbréf
Hæstaréttar íslands, meint lögbrot hátt-
settra réttarkerfismanna og aðgerðaleysi
valdhafa, fæst í bókabúðum.
Verð kr. 1.980,-.
Til sölu
nú þegar trésmiðja Byggðaverks hf., Hellu-
hrauni 8 í Hafnarfriði. Hér er um að ræða
ca 500 fm fullbúið trésmíðaverkstæði með
viðskiptasamböndum. Þetta er kjörið tæki-
færi fyrir útsjónarsama aðila.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður Sig-
urjónsson í síma 565-5261 eða Albert
Sveinsson hjá íslandsbanka hf., Hafnarfirði,
í síma 555-0980.
Sumarbústaður
til sölu
Reykjavíkurborg óskar eftir kauptilboðum í
ca. 95 fm sumarbústað, sem stendur á lóð
nr. 15 við l-götu við Rauðavatn. Sumar-
bústaðurinn verður seldur til brottflutnings.
Húsið er byggt í tvennu lagi og er hægt að
skilja húshlutana í sundur.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð,
sími 563-2310.
Tilboðum skal skila til skrifstofustjóra borgar-
verkfræðings í síðasta lagi fimmtudaginn
6. apríl nk. kl. 16.15.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
Uppboð
Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp á Ólafs-
braut 34, lögregluvarðstofunni, Snæfellsbæ,
föstudaginn 7. apríl 1995 kl. 11.00:
DZ-347 EL-023 FT-585 G-13162 GY-971 HK-626
HM-818HM-943 HS-228 HÞ-264 IB-576 IF-835
IR-661 IT-900 IZ015 JR-016 KU-357 MY-151
P-357.
Einnig verður boðið upp eftirtalið lausafé:
Vb. Drífa SH-31, vb. Glaður SH-246, vb. Þórunn
SH-183, vb. Óli Sveins SH-65, Coolcraft kælipressa
og blásari ásamt fylgihlutum, Thompson sjónvarps-
sendir ásamt skúr.
Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp á
Grundargötu 33, lögregluvarðstofunni, Grund-
arfirði, föstudaginn 7. apríl 1995 kl. 13.00:
IE-263 ID-102 OK-307 FG-843.
Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp á Nes-
vegi 3, lögregluvarðstofunni, Stykkishólmi,
föstudaginn 7. apríl 1995 kl. 15.00:
R- DX-693 GM-
79497 540.
Vænta má að greiðsla verði áskilin við ham-
arshögg.
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi,
29. mars 1995.
Sjálfstæðisfólk Garðabæ
Aðalfundur Sjálfstæðisfólagsins verður haldinn í kosningamiðstöð-
inni, Kirkjulundi 13, ( kvöld, 30. mars, kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosningabaráttan.
Önnur mál.
Stjórnin.
Sma auglysingar
I.O.O.F. 11 = 17603308 =
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Almenn samkoma kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
I.O.O.F. 5 = 1763308'* = Br.
St. St. 5995033019 VII
□ HLlN 5995033019 VI 2 FRL.
Skíðamenn 30 ára
og eldri
Munið Islandsmeistaramótið í
Bláfjöllum og Skálafelli um helg-
ina.
Nefndin.
SAMBAND ÍSLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60
Samkoma í kristniboðssalnum,
Háaleitisbraut 58-60, í kvöld
kl. 20.30.
Hlutdeild í Krlstl.
Ræðumaður Guðmundur Karl
Brynjarsson. Boðað á bylgjum,
Friðrik Hilmarsson sér um efnið.
Myndin - Ingibjörg Gísladóttir.
Þú ert (velkomin(n).
Grensásvegi 8
Almenn samkoma kl. 20.30.
Allir velkomnir! *
§Hjálpræðis-
herinn
y Kirkjustrætí 2
Tónlistarvaka - kaffihús
með lifandi tónlist
Kór og lofgjörðarhópur frá Fíla-
delfíu. Hafliði Kristinsson talar.
Húsið opnað kl. 20.00.
Allir velkomnir.
FERÐAFELAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 682533
Ferðir F.í.
1.-2. apríl: Geysir - Hlöðuvelllr
- Þingvellir á gönguskíðum.
Brottför kl. 9.00.
Ath.: Aukaferð um bænadaga
og páska 12.-17. apríl: Göngu-
skfðaferð um „Laugaveginn".
Brottför miðvikudag kl. 18.00.
Ekið tll Landmannalauga, en
þar hefst skíðagönguferðin á
skírdag og síðan sem leið liggur
um Álftavatn, Emstrur og til
Þórsmerkur. Spennandi ferð -
þægilegar dagleiðir.
Á skírdag kl. 8.00 hefst skíða-
gönguferð til Landmannalauga.
Gengið í Hrafntinnusker næsta
dag, gist eina til tvær nætur f
nýja skálanum og farnar dags-
göngur um stórbrotið svæði.
Ferðafélag Islands.