Morgunblaðið - 30.03.1995, Side 41

Morgunblaðið - 30.03.1995, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ öeei ssaíí .08 HUOAauTMMn 0£ FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995 41 Alltíhönk ALLT í hönk kemur frá Stykkishólmi og leikur „bara rokk“. Hljómsveitina skipa Birkir Pálsson trommuleikari, Þorsteinn Eyþórsson bassaleikari, Kári Bergsson Hjaltalín söngvari og Svanur Már Gíslason gitarleikari. Meðalaldur þeirra er tæp sextán ár. Jelly Belly JELLY Belly er ísfirsk og leikur Se- attle-þungarokk. Hana skipa Páll Bryngeirsson söngvari, Andri G. Árnason trymbill, Páll J. Hilmarsson og Gunnar Þór Helgason gítarleikar- ar og Þorri Gestsson bassaleikari. Meðalaldur þeirra er rúm átján ár. Blunt BLUNT ER af Snæfellsnesi. Hana skipa Hans Guðmundsson gítarleikari og söngvari, Hjalti Baldursson bassa- leikari og Sævar Rúnarsson trommu- leikari. Þeir félagar segjast leika sitt- lítið af hveiju, aðallega þó rokk, en meðalaldur þeirra er sextán ár. 200.000 naglbítar 200.000 naglbítar heitir hljómsveit frá Akureyri, og leikur nýbylgjurokk. Sveitina skipa Vilhelm Jónsson gítar- leikari og söngvari, Kári Jónsson bassaleikari og söngvari og Axel Árnason trommuleikari. Meðalaldur þeirra félaga er rúm sextán ár. Músíktilraunir Tónabæjar Músíktilraunir, hljómsveitakeppni Tónabæjar, hafa staðið undanfarnar vikur og þegar hafa 23 hljómsveitir keppt um sæti í úrslitum. Árni Matthíasson kynnti sér hvaða níu hljóm- sveitir keppa í kvöld, síðasta undanúrslitakvöldið. í KVÖLD er loka undanúrslitakvöld Músíktilraunanna. Þegar hafa tuttugu og þrjár hljómsveitir keppt um sæti í úrslitun- um, sem fram fara á morgun, og í kvöld keppa síðustu níu hljómsveitimar um tvö úrslitasæti til viðbótar. Tilraunirnar ganga þannig fyrir sig að hver hljómsveit flytur þrjú frumsamin lög og áheyrendur greiða síðan atkvæði um frammistöðu hennar. Dómnefnd sem gríp- ur síðan inní ef þörf krefur. Úrslitakvöld- ið, annað kvöld, er vægi dómnefndar öllu meira, eða 70% á móti 30% úr sal. Hefðbundin verðlaun í Músíktilraunum eru hljóðverstímar og að þessu sinni eru fyrstu verðlaun 25 tímar í Sýrlandi, sem Skífan gefur, 2. verðlaun eru 25 tímar í Gijótnámunni sem Spor gefur, 3. verðlaun eru einnig 20 hljóðverstímar, frá Hljóð- hamri, en einnig fær athyglisverðasta hljómsveitin 20 hljóðverstíma frá Stúdíói Stef. Til viðbótar við þetta fær svo sigur- sveit hvers kvölds 10 hljóðverstíma að launum í Hellinum, hljóðveri Fellahellis. Að auki fær besti gítarleikari gítar frá Hljóðfæraverslun Steina, besti söngvarinn fær Shure hljóðnema frá Tónabúðinni Akureyri, besti bassaleikari vöruúttekt frá Skífunni í Hljóðfærahúsi Reykjavíkur, besti trommuleikarinn fær vöruúttekt frá Samspili og Paul Bernburg og besti hljóm- borðsleikarinn verður einnig verðlaunaður. Einnig gefur Japís geisladiska, en styrkta- raðilar er einmitt Japís, Skífan, Hard Rock Café, Coca Cola, Pizzahúsið og Jón Bakan, að ógleymdu Hljóðkerfi Reykjavík- ur,_ sem leggur til allan tækjabúnað. í kvöld verður gestahljómsveit Unun, sem leikur fyrir tilraunirnar og síðan á meðan atkvæði eru talin í lokin, en annað kvöld leikur Jet Black Joe. i ' IPy :: '1' Kuffs KUFFS ER að meirihluta skipuð Hvammstangabúum. Liðsmenn eru Guðmundur Jónsson gítarleikari, Friðbjörg Jónsdóttir söngkona, Sonja K. Marinósdóttir söngkona og hljóm- borðsleikari, Gunnar Æ. Björnsson bassaleikari og Hinrik Þ. Oliversson trommuleikari. Meðalaldur Kuffs- liða er tæp sextán ár, en sveitin leik- ur bara rokk. Morð FRÁ Seyðisfirði, er hljómsveitin Morð. Liðsmenn eru Páll Jónasson gítarleikari, Gísli Þrastarson bassa- leikari og söngvari, Kári Kolbeinsson trommuleikari, Ólafur Örn Pétursson söngvari og Logi Hallsson bassaleik- ari og söngvari. Þeir leika óskilgreint pönkrokk, „hrátt og gott“, en meðal- aldur þeirra er rúm sextán ár. Border FRÁ AKUREYRI kemur Border og leikur milt rokk. Liðsmenn Border eru Karl H. Hákonarson bassaleikari og söngvari, Friðrik Flosason gítarleik- ari, Ingi Þór Tryggvason gítarleikari og söngvari, Guðmundur Rúnar Brynjarsson trommuleikari og Hildi- gunnur Árnadóttir söngkona. Meðal- aldur sveitarmanna er tæp átján ár. 3 CityFlavours HLJÓMSVEITIN 3 City Flavours kemur frá Hvammstanga líkt og Kuffs. Hljómsveitina skipa Vilhelm Vilhelmsson bassaleikari, Kristín Guðmundsdóttir söngkona, Kjartan ÓIi Ólafsson gítarleikari og Baldur Ingvar Sigurðsson trommuleikari. Meðalaldur er tæp fimmtán ár, en sveitin leikur Seattlerokk. Tartarus EINA dauðarokksveitin í Músíktil- raunum að þessu sinni er Tartarus, sem kemur úr Eyjafirði. Sveitina skipa Stefán Ásgeir Ómarsson og Vincent G, Pálsson gítarleikarar, Lúðvík A. Þorsteinsson bassaleikari, Bragi Bragason söngvari og Helgi Jónsson trommuleikari. Meðalaldur þeirra félaga er rúm tuttugu ár. Úrslitin ráðin á NM? skAk Hótcl Loftlciöir: SKÁKÞING NORÐUR- LANDA OG SVÆÐAMÓT 21. mars — 2. apríl DANINN Curt Hansen er óstöðv- andi á Norðurlandamótinu. í gær sigraði hann núverandi Norður- landameistara, Simen Agdestein frá Noregi, og er kominn með sex vinn- ing og vinningsforskot á næstu menn. Það er hins vegar orðið næst- um útilokað að Agdestein nái að veija titilinn eftir tapið í gær, en hann hefur þtjá og hálfan vinning. En þótt Curt Hansen sé kominn með aðra höndina á titilinn ríkir samt ennþá mikil spenna um það hveijir hreppi hin sætin tvö á milli- svæðamótinu. Athygli vekur að Daninn hefur unnið allar skákir sín- ar með svörtu á mótinu. Það var óvenju mikil lognmolla yfir skákum íslensku keppendanna í sjöundu umferð. Þeir gerðu allir jafntefli nema Helgi Ólafsson sem sigraði sænska stórmeistarann Thomas Ernst. Úrslit í 7. umferð: Agdestein-CurtHansen 0-1 Margeir—Pia Cramling 'li-'h SuneBergHansen-Hector 0-1 Jóhann-Gausel 'h-'h Hannes—Tisdall 'h-'h Lars Bo Hansen - Sammalvuo 1 -0 Manninen - Djurhuus 0-1 Helgi Ól. — Emst 1-0 Þröstur—Degerman 'h-'h Mortensen-Akesson 1-0 Staðan á mótinu: 1. CurtHansen 6 v. 2. Pia Cramling 5 v. 3-4. MargeirogHector 4'h v. 5-9. Jóhann, Lars Bo Hansen, Tisdall, GauselogDjurhuus _ 4 v. 10—13. Agdestein, Hannes, Helgi Ól., SuneBergHansen 3Ví v. 14-15. Sammalvuo og Mortensen 3 v. 16-18. Þröstur.DegermanogManninen 2'h v. 19. Ernst 2 v. 20. Ákesson 'h v. Við skulum líta á mikilvæga við- ureign Agdesteins og Curts Hans- ens: Hvítt: Agdestein Svart: Curt Hansen Slavnesk vörn 1. d4 - d5 2. c4 - c6 3. Rc3 - Rf6 4. Rf3 - dxc4 5. a4 - Bf5 6. Re5 - e6 7. f3 - Bb4 8. e4 - Bxe4 9. fxe4 — Rxe4 10. Bd2 — Dxd4 11. Rxe4 — Dxe4+ 12. De2 - Bxd2+ 13. Kxd2 - Dd5+ 14. Kc2 - Ra6 15. Rxc4 - 0-0-0 16. De3!? Þetta er síðasta orðið í vinsælu mannsfórnarafbrigði Slavnesku varnarinnar. Áður var venjulega leikið 16. De5 — f6 og þá fyrst 17. De3, en Kramnik beitti þessum leik gegn Kiril Georgiev á Ólympíumót- inu og sigraði. Búigarinn lék nú 16. — Kb8, en Kramnik hefur sagt í skýringum við skákina að 16. — Rc5 sé besta svarið og 16. De3 sé lakari en 16. De5 vegna þess. 16. - Rc5 17. Be2 - Df5+ 18. Kc3 - Df6+ 19. Kb4 - Hd5 20. Ka3 - Hhd8 21. Hadl - Dg5 22. Dxg5 - Hxg5 23. Hxd8+ - Ekki 23. Rd6+ - Kc7 24. Rxf7 - Hxdl 25. Hxdl — Hxg2. Nú kemur upp dæmigert endatafl fyrir þetta afbrigði þar sem Agdestein má nokkuð vel við una, stendur lík- lega ívið betur. En það var farið að saxast á tímann og hann finnur ekki áætlun á meðan svörtu peðin geysast fram. 23. - Kxd8 24. Bf3 - Kc7 25. Hdl - Rd7 26. h4 - Hg6 27. a5 - f5 28. Kb4 - Hh6 29. h5?! - e5! 30. Kc3 - g5! 31. Be2?! - g4 32. Re3 - Hxh5 33. Rxg4 - Hg5 34. Re3 - f4 35. Rc4 - Hxg2 36. Bd3 — h5 37. b4 - Hg5?! Hér virðist 37. — Hg3 eða 37. — h4 vera sterkara, en þetta tímatap kemur ekki að sök. 38. Rd2 - Rf6! 39. Rf3 - Rd5+ 40. Kb3 - Hg3 41. Rxe5 Sjá stöðumynd Tímaroörkunum er náð og línurn- ar hafa skýrst. Hvítur hefur ennþá mann fyrir þijú peð, en menn hans vinna svo itla saman að ekki er hægt að virkja þá gegn svörtu frí- peðunum á kóngsvæng. 41. - h4 42. Hel - h3 43. Kc4 - f3 44. Kd4 - h2 45. Hhl - f2 a b c d a f g.h 46. b5 - Rb4 47. Bc4 - Rc2+ 48. Ke4 - Re3 49. b6+ Alger örvænting, en 49. Bd3 — fl=D 50. Bxfl - Rxfl 51. Hxfl - Hgl var ekki síður vonlaust. 49. — axb6 50. axb6+ — Kxb6 51. Hxh2 - fl=D 52. Bxfl - Rxfl 53. Rd7+ - Kc7 54. Hh7 - b§! 55. Re5+ - Kb6 56. Rd7+ - Ka5 57. Kd4 - Rd2 58. Hh6 - Rb3+ 59. Ke5 - c5 60. Kd5 - c4 61. Re5 - Kb4 62. Rc6+ - Ka3 63. Ra7 - Hg5+ 64. Ke4 - c3 65. Hh2 - Hc5 66. Hc2 - b4 67. Kd3 — Ral og hvítur gafst upp. Margeir Pétursson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.