Morgunblaðið - 30.03.1995, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995 43
ÍDAG
Siðfræðistofnun HÍ
Morgunblaðið/Kristinn
Borgaraleg ferming
29 ungmenna
BORGARALEG ferming var í
Ráðhúsi Reykjavíkur á sunnu-
dag og voru fermingarbömin
29. Við athöfnina fluttu ferm-
ingarbörn og foreldrar ávörp,
lásu upp ljóð og sungu. Þá
ávörpuðu þau Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri og
Magnús Scheving þolfimi-
meistari unglingana á þessum
tímamótum. Á annarri með-
fylgjandi mynda má sjá ferm-
ingarsysturnar Söm Sigur-
björnsdóttur og Melkorku Ósk-
arsdóttur flytja ávarp, en á
hinni afhendir Sigurður Hjalti
Sigurðarson, foreldri ferming-
arbarns, Eyrúnu Ósk Jónsdótt-
ur skírteini til staðfestingar
áfanganum.
Ráðstefna
um fjöl-
skylduna og
réttlætið
SIÐFRÆÐISTOFNUN Háskóla ís-
lands gengst fyrir ráðstefnu undir
yfirskriftinni Fjölskyldan og rétt-
lætið helgina 31. mars og 2. apríl
nk.^
Á ráðstefnunni verður fjallað um
stöðu, skipulag og aðbúnað fjöl-
skyldunnar í ljósi hugmynda um
réttlæti. Ráðstefnan hefst föstu-
daginn 31. mars kl. 17 í Odda, stofu
101. Þar mun Rannveig Guðmuns-
dóttir, félagsmálaráðherra, flytja
setningarávarp og þýski heimspek-
ingurinn Axel Honneth flytur erindi
er hann nefnir „Between Justice
and Affections: The Family as a
Field of Moral Disputes".
Ráðstefnunni verður síðan fram
haldið á laugardag og sunnudag
milli kl. 9 og 16 í Háskólabíói, sal
4 og 5. Þar mun fræða- og fagfólk
af ólíkum toga halda alls 18 er-
indi. Erindin eru öll á íslensku utan
eitt.
Ráðstefna er öllum opin og að-
gangur er ókeypis.
Fyrirlestur
um matvæli
HERBERT 0. Hultin, sem er pró-
fessor í matvælafræði við Massac-
husetts háskóla, verður gestur
Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins
dagana 31. mars til 2. apríl.
Hultin hefur birt um 130 greinar
um matvælarannsóknir í vísinda-
tímaritum. Auk þess hefur hann
leiðbeint yfir 50 doktors- og mast-
ersnemendum.
Föstudaginn 31. mars kl. 9.30
flytuí Hultin erindi á Rf um leysan-
leika vöðvapróteina á lágum salt-
styrk og eru allir velkomnir.
Hernáms-
andstæðingar
með fund
SAMTÖK herstöðvaandstæðinga
boða til fundar fímmtudaginn 30.
mars til að vekja athygli á baráttu-
málum sínum. Fundurinn verður í
Risinu, Hverfisgötu 105, og hefst
dagskráin kl. 20.30.
A fundinum stýrir Silja Aðal-
steinsdóttir dagskrá um ættjarðar-
ljóð Guðmundar Böðvarssonar
skálds á Kirkjubóli.
Meðal ræðumanna á fundinum
eru Soffía Sigurðardóttir, formaður
Samtaka herstöðvaandstæðinga,
Guðrún Halldórsdóttir alþingismað-
ur, Mörður Ámason íslenskufræð-
ingur og Svavar Gestsson alþingis-
maður. Einar Kristján Einarsson
leikur á gítar og loks mun Þorvald-
ur Öm Arnason stýra fjöldasöng.
Fundurinn er opinn öllum og að-
gangur ókeypis.
Þrándur 2
afhentur í
Hafnarfirði
SJÁLFSBJARGARÁDREPAN
Þrándur í götu nr. 2 verður afhent
föstudaginn 31. mars í Hafnarfirði.
„Allir vita hvað bærinn er falleg-
ur, en færri vita hve margvíslega
opinbera starfsemi Hafnarfjörður
hýsir í óaðgengilegu húsnæði, t.d.
bæjarskrifstofur, félagsmiðstöðina
Vitann og félagsmálastofnun svo
eitthvað sé nefnt. Aðaltilgangurinn
með þessari ádrepu er að vekja at-
hygli almennings á aðgengismálum
fatlaðra,“ segir í fréttatilkynningu
frá Sjálfsbjörg.
Farið verður í mótmælagöngu frá
skiptistöðinni við Fjarðargötu kl.
12 og gengið og rúllað að bæjar-
skrifstofum Hafnarfjarðar, Strand-
götu 6. Þar munu nokkrir einstakl-
ingar hlekkja sig við útidyrnar í
hádeginu svo fólk komist hvorki inn
eða út. Einnig mun Sterkasta kona
íslands, Sigrún Hreiðarsdóttir,
veita aðstoð við að afhenda bæjar-
stjóranum, Magnúsi Jóni Árnasyni,
Sjálfsbjargarádrepuna.
Islandsmeist-
aramót
í Svarta Pétri
ÍSLANDSMEISTARAMÓT í
Svarta Pétri fer fram á Sólheimum
í Grímsnesi í 7. sinn laugardaginn
1. apríl. Keppnin hefst kl. 15 og
lýkur um kl. 18.
Keppt er um Svarta Pétur stytt-
una, sem er farandbikar en einnig
verður veittur fjöldi aukaverðlauna.
Allir þátttakendur fá viðurkenning-
arskjöld. Stjórnandi dagskrárinnar
er Haraldur Sigurðsson.
Mótið er fyrst og fremst hugsað
fyrir þroskahefta en er opið öllum
sem áhuga hafa. Aðstoðarfólk verð-
ur við hvert spilaborð. Þátttöku-
gjald er 300 kr. á mann. Sætaferð-
ir verða frá Umferðarmiðstöðinni í
Reykjavík kl. 13 og frá Árnesti á
Selfossi ki. 14.15.
Heilsusýning
í Perlunni
SÝNINGIN Heilsa og heilbrigði
1995 stendur yfir í Perlunni dagana
30. mars til 2. apríl.
Sýningin verður sett af Sighvati
Björgvinssyni heilbrigðisráðherra,
sem jafnframt verður verndari sýn-
ingarinnar, fimmtudaginn 30. mars
kl. 17.
Opnunartími verður sem hér seg-
ir: Fimmtudag 30. mars kl. 17-21,
föstudag 31. mars kl. 16-20, laug-
ardag 1. apríl kl. 13-18 og sunnu-
dag 2. apríl kl. 13-18.
■ FYRRVERANDI starfsmenn
Ríkisskipa halda árshátíð föstu-
daginn 31. mars nk. Nú eru liðin
þrjú ár síðan Skipaútgerð ríkisins
var lögð niður og á þessum tíma
hefur óformleg skemmtinefnd
starfað. Fyrrverandi starfsmenn
útgerðarinnar hafa því þann sið að
hittast einu sinni á ári og minnast
gamalla tíma. Árshátíðin verður að
þessu sinni haldin í Ásbyrgi á
Hótel íslandi og hefst kl. 20. Að-
gangseyrir er 400 kr. en mat er
hægt að fá sérstaklega.
Kaffisölu-
dagur í Dóm-
kirkjunni
HINN árlegi kaffisöludagur
Kirkjunefndar kvenna Dómkirkj-
unnar verður á sunnudaginn kem-
ur, 2. apríl.
Dagskráin hefst með guðsþjón-
ustu í Dómkirkjunni kl. 14 þar sem
Sigurður A. Magnússon rithöfund-
ur heldur ræðu og Elín Ósk Ósk-
arsdóttir óperusöngkona og Dóm-
kórinn syngja. Dómkirkjuprestam-
ir sr. Hjalti Guðmundsson og sr.
Jakob Agúst Hjálmarsson þjóna
fyrir altari.
Kaffisalan er í Safnaðarheimil-
inu, Lækjargötu 14a, eftir guð-
þjónustuna og stendur fram eftir
degi. Þar syngur Elín Ósk einnig
nokkur lög við undirleik dómorgan-
istans, Marteins H. Friðrikssonar.
Einnig bjóða kirkjunefndarkonur
smáhluti og skraut til sölu í basar-
homi í Safnaðarheimilinu.
í HÁDEGINU
ALLA YliRJKA
P E R L A N
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
BERGÞÓRA JÓELSDÓTTIR,
Grettisgötu 2, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 31. mars kl. 13.30.
Arngrímur Ingimundarson,
Ingileif Arngrímsdóttir, Sigmar Ægir Björgvinsson,
Jóhanna Arngrfmsdóttir, Snorri B. Ingason,
Sigríður Arngrímsdóttir, Grettir Jóhannesson,
Gíslunn Arngrímsdóttir, Gunnlaugur S. Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Endurruisn licimilanna
Við viljum:
► setja lög um greibsluaölögun sem gefi einstaklingum í alvarlegum
greiösluerfiöleikum möguleika á því aö ná aftur stjórn á fjármálum sínum,
► lengja húsnæöislán Húsnæöisstofnunar úr 25 árum í 40 ár og létta
þannig greiöslubyröina um 25%,
► fá Húsnæöisstofnun nýtt og breytt hlutverk sem ráögjafar- og
endurreisnarstöö heimilanna sem aöstoöi fólk viö aö greiöa úr
skuldavanda sínum.
Finnur Ingólfsson
>