Morgunblaðið - 30.03.1995, Síða 46
46 FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
\ * »»-* » * >» **»**»» JTOBa®
mmmvimx
IVetkort BNC/10BT
ásamtPersonal Netware
Verð lo: 5.900,-
*BGÐEIND-
Austurströnd 12. Sími 561 -2061. Fax 561 -2081
Ásmundur Gunnlaugsson
SJALFSTYRKING
Námskeið í Kripalujóga
kripalujóga stuðlar að m.a.:
Vekja andlegan og líkamlegan styrk.
Ná árangri í námi og starfi.
Losna undan spennu og áhyggjum.
NÆSTU NÁMSKEK):
Jóga gegn kvíða
18. apríl-16. maí þri./fim. kl. 20.00-22.00
(8 skipti).
Leiðb. Ásmundur Gunnlaugsson.
Byrjendanámskeið
5. apríl- 8. maí kl. 20.00-21.30 (8 skipti)
Leiðb. Ásmundur Gunnlaugsson,
__________jógakennari._______
Lærið aðferðir kripalujóga til að takast á við kvíða og ótta í daglegu lífi. Námskeiðin
henta fólki á öllum aldri, engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg.
YOGA STUPIO, Bæjarhrauni 22, Hafnarfirði, sími 651441
Sími: 651441 milli kl. 10.00 -12.00 og 18.00 -20.00 Einnig símsvari.
Unga fólkið á sér framtíð!
HP litaprentari
á fermingartilboði!
HP DeskJet 320 litaprentarinn
Staðgreiðsluverð m/vsk kr.
Listaverð kr. 35.556
naiækni til framfara
T æknilegar upplýsingar
• Vandaður HP litaprentari
• Handhægur og fyrirferðal ítill
• Hljóðlátur
• Litaútprentun 300 dpi
• Svört útprentun 600x300 dpi
■ Innifalið litahylki og arkamatari
• 1 árs ábyrgð
Hewlett-Packard er
trygging fyrir gæðum
endingu og
endalausri ánægju .
með útprentun f lit.
pp.C’
Tæknival
Skeifunni 17 • Sími 568-1665 • Fax 568-0664
boöið á fund
ídag
ídagkl. 17.30mun Ari
Edwald svarar spumingunni
„Hvarliggja tækifæri imgs
fólks?“ Fundurinn veróur í
kosningamióstöðinni
við Lækjartorg,
Hafnarstræti 20,2. hæð.
BETRA
ÍSLAND
KOSNING A FUNDIR I REYKJA VIK
I DAG
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Hneyksluð á
flugfreyjuverk-
falli
MÉR FINNST það alveg
fádæma frekja af flug-
freyjum að fara fram á
kauphækkun þar sem
þær eru nú þegar með
mjög góð laun, eða langt
á annað hundrað þúsund
á mánuði. Það er fyrir
utan dagpeninga. Mér
finnst það rangt að
nokkrar stéttir í þessu
fámenna landi hafí meiri
tekjur en aðrir. Ég hef
unnið sem flugfreyja og
veit því vel um hvað er
að ræða.
Fyrrum flugfreyja.
Matarverð í
Svíþjóð hefur
ekki lækkað
EGILL Hjálmarsson
hringdi frá Helsingjaborg
í Svíþjóð og segir það al-
rangt, sem hann las f
Alþýðublaðinu fyrir
nokkru, að verð á mat-
vöru hafí lækkað um allt
að 40% í Svíþjðð við inn-
göngu þeirra í Evrópu-
bandálagið. Hið rétta er
að verð á ýmissi matvöru
hækkaði og fínnst honum
ósvífni að halda öðru
fram.
Einnig benti hann á að
unnið væri að því að
semja lög þess efnis að
riki geti sagt sig úr áður-
nefndu bandalagi líki
þeim ekki fyrirkomulag-
ið. Eins og málum er hátt-
að nú virðist vera auð-
veldara að komast í
bandalagið en ganga úr
því.
Tapað/fundið
Kápa tapaðist
STUTT svört og víð kápa,
með svörtum víðum
loðkraga og loðkanti á
ermum, hneppt með einni
tölu efst tapaðist úr fata-
hengi í Skuggabamum.
Kápan er sú eina sinnar
tegundar hér á landi og
mjög auðþekkjanleg. Viti
einhver hvar þessi kápa
er niðurkomin er hann
vinsamlega beðinn að
hringja í síma 623426 eða
skila henni aftur á
Skuggabarinn.
Skíðaskór
töpuðust
LJÓSIR Alpina skíðaskór
með rauðu fóðri í græn-
um og gráum poka, K-2,
töpuðust í ferð Bláijall-
arútunnar kl. 18 sl.
sunnudag. Skópokinn var
merktur Margréti eða
Hannesi, Kjalarlandi 21.
Annar skópoki var skilinn
eftir í staðinn. Viti ein-
hver um skóna er hann
vinsamlega beðinn að láta
vita í síma 685976.
Jakkar og lyklar
á Gauknum
Tveir leðutjakkar sem
héngu a stólbaki voru
teknir í misgripum á
Gauki á Stöng aðfaranótt
sl. sunnudags. Á sama
stað fannst lyklakippa
með húslyklum o.fl. Viti
einhver um jakkana er
hann vinsamlega beðinn
að hringja í síma 658030.
Hjól fannst
LJÓSBLÁTT 10 gíra hjól
fannst við Hlégerði 10 í
Kópavogi. Hjólið gæti
hafa legið úti um nokkum
tíma. Upplýsingar í síma
40826.
Jakki tapaðist
SVARBRÚNN þykkur
leðuijakki tapaðist á L.A.
Café sl. laugardagskvöld.
Jakkans og lyklanna sem
í honum voru er sárt
saknað. Finnandi vinsam-
lega hringi í síma 29549.
Fundarlaun. Ásdís.
Sjal tapaðist
RAUTT ullarsjal „trefill “
með ísaumuðu blóma-
munstri tapaðist á
skiptistöðinni í Kópavogi
eða á leiðinni í Hamra-
borgina sl.
laugardagskvöld.
Finnandi vinsamlega
hringi í Helgu í síma
621617 eða Guðrúnu í
síma 44302.
HÖGNIIIREKKVÍSI
■i
Farsi
Pennauinir
FRÁ Ghana skrifar tví-
tug stúlka með margvís-
leg áhugamál:
Jocy O. Manuh,
Box 367,
Agona Swedru,
Ghana.
ÞRÍTUG fínnsk kona með
áhuga á útivist, dýrum,
tónlist, kvikmyndum,
bókmenntum o.fl.:
Ritva Tolonen,
Porokyl&nkatu 15A7,
75530 Numers,
Finland.
FRÁ Rússlandi skrifar 35
ára Rússi sem vill komast
í bréfasamband við kon-
ur. Hefur lært íslensku
upp á eigin spýtur og vill
nota það mál í bréfum
sínum:
Gleb Teröhin,
Russia,
Obl. Moscow 143404,
Krasnogorsk-4,
VI. Lenin, 29
Tvítug Ghanastúlka með
áhuga á íþróttum, ferða-
lögum og tónlist:
Rita Iddrida,
Box 467,
Agona Swedru,
Ghana.
OIW3 F»cut CflOQfnÆlrttiutBú by UrtvOTal Ptbm Syntfcala
922
LUAIS6lASS/c60<-TIO14-T
Víkveiji skrifar...
KUNNINGI Víkveija vakti at-
hygli hans á því að sama
stafsetningarvillan birtist á skján-
um í lok hvers einasta Dagsljóss-
þáttar í ríkissjónvarpinu, þegar
birtur er listi yfír þá, sem komið
hafa nálægt gerð þáttarins. Villan
er farin að fara svo í taugamar á
eiginkonu kunningjans að heimilis-
friðurinn er nánast í hættu og á
kunninginn sér þá ósk því heitasta,
að Dagsljóssmenn lagi villuna. Vill-
an er sú að það stendur: Ritsjóm
Sigurður Valgeirsson.
XXX
AÐ er ókostur við þá annars
ágætu þjónustu sumra benz-
ínstöðva að hafa greiðslukortasjálf-
sala, að þar er ekki hægt að fá
kvittun fyrir viðskiptunum þegar
greitt er með korti. Fyrir þá, sem
fá til dæmis aksturskostnað endur-
greiddan frá atvinnurekanda sín-
um, er mikilvægt að halda saman
kvittunum fyrir útlögðum benzín-
kqstnaði. Er ekki hægt að ráða bót
á þessu með einföldum hætti?
xxx
EKKI er hægt annað en gleðj-
ast yfír stóraukinni sam-
keppni olíufélaganna í landinu. Til
margra ára höguðu þessi þijú fyrir-
tæki sér eins og ríki í ríkinu. ÖIl
höfðu þau sömu verð og sömu tak-
mörkuðu þjónustuna. Þegar boðið
var upp á greiðslukortaþjónustu
var það t.d. þegjandi samkomulag
félaganna þriggja að bíleigendur
skyldu ekki njóta hennar. Núna era
breyttir tímar sem betur fer. Það
nýjasta er að þjóða fólki ódýrara
benzín ef það dælir sjálft á bflana.
Hinir sem kjósa að láta dæla á bíl-
ana fyrir hærra verð fá að auki
framrúðuþvott, athugun á olíu,
rúðuvökva o.s.frv. Áfram með sam-
keppnina!
xxx
EITT fyrirtæki er það íslenzkt
sem var alræmt fyrir lélega
þjónustu en hefur verið að bæta
hana síðustu misseri. Er hér átt
við Áfengis- og tóbaksverzlun ríkis-
ins. Margir muna gömlu vínbúðirn-
ar þegar menn þurftu að beijast
um á hæl og hnakka í kös fyrir
framan afgreiðsluborð þegar nálg-
aðist helgar. Sem betur fer hefur
þessu fyrirkomulagi verið breytt í
sjálfsafgreiðslu, þar sem viðskipta-
vinurinn getur valið sitt vín í ró
og næði. Þá hefur úrval vína verið
stóraukið. Hins vegar er ótækt að
þessi ríkisstofnun skuli ekki bjóða
uppá greiðslukortaþjónustu. Vík-
veiji hefur séð fólk í standandi
vandræðum við afgreiðslukassana
því það hafði ekki hugmynd um
að ekki væri hægt að greiða með
greiðslukorti. Hvenær verður þessu
kippt í liðinn?
x x x
OSNINGABARÁTTAN virðist
loksins komin á skrið. Og
Víkveiji tekur eftir því að fólk er
strax farið að kvarta! Era stjórn-
málamenn dottnir úr tízku?