Morgunblaðið - 25.05.1995, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.05.1995, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Vinnsla í landi stöðvast að mestu í byijun næstu viku ef verkfall sjómanna skéllur á Fímm þúsund sjómenn leggja niður störf VERKFALL sjómanna hófst á mið- nætti í nótt en þá hafði samninga- fundur sjómanna og útvegsmanna staðið í allan gærdag. Viðræðufundur sjómanna og út- vegsmanna hjá ríkissáttasemjara stóð yfir í sextán tíma á þriðjudag og lauk klukkustund eftir miðnætti án þess að nær hefði þokast lausn. Mikið ber á milli samningsaðila um verðmyndun á sjávarafla og einnig mun ekki nást sátt um sk. hafnarfrí sjómanna og hvemig á að túlka ákvæði um þau, svo eitthvað sé nefnt. Fundir hófust aftur klukkan tíu í gærmorgun og stóðu fram yfir miðnætti. Öllum skipum yfír 12 tonnum var skylt að hætta veiðum strax og verkfall hófst og var áhöfnum þá óheimilt að vinna annað í þágu út- gerðar en að sigla skipi til hafnar, landa úr skipinu og undirbúa það að öðru leyti undir hafnarlegu. Þó var útgerð heimilt að landa afla utan heimahafnar, þar með talið í erlendri höfn, og skulu skipveijar þá sigla skipinu strax til heimahafn- ar að lokinni löndun. „Hrikalegasta aðför að verkalýðshreyfingunni" Verkfall sjómanna nær til allra sjómanna utan Vestfjarða á öllum skipum yfir 12 tonn að stærð, alls um 5.000 manns. Sjómannafélag ísfirðinga hefur boðað samúðar- verkfall sem á að taka gildi 11. júní nk. og myndi ná til tæplega 200 sjómanna, Verkalýðs- og sjó- mannafélag Bolungarvíkur hefur einnig boðað vinnustöðvun í samúð- arskyni frá og með 15. júní og sömu sögu er að segja af Verkalýðsfélagi Hólmavíkur og Vélstjórafélagi ísa- fjarðar. 18 félög eru í Alþýðusam- bandi Vestfjarða og 13-14 þeirra með sjómenn innan sinna vébanda að sögn Sigurðar Ólafssonar for- manns Sjómannafélags ísfirðinga. Sigurður kveðst telja æskilegt að sett verði afgreiðslubann á lönd- un úr þeim skipum sem hafa verið skráð eða leigð á Vestfjörðum vegna verkfallsboðunar sjómanna, þar til samúðarverkföll hefjast, og segir að með hliðsjón af þeim eld- móði sem hann hafi vitneskju um hjá verkalýðsfélögum, megi búast við hörku á þeim vettvangi. „Flutningur skipa til að skjóta sér undan löglega boðuðu verkfalli er sú hrikalegasta aðför sem hefur verið gerð að verkalýðshreyfingunni í heild sinni og við þurfum að sýna fyllstu hörku, því að ef ekki verður tekið á þessum málum nú, getum við lagt niður verkalýðshreyfinguna í heild. Boðaðar samúðaraðgerðir geta útgerðarmenn á Vestíjörðum þakkað Þorsteini Má Baldvinssyni hjá Samheija og öðrum þeim útgerð- armönnum sem ætla að leika sama leikinn og hann,“ segir Sigurður. Þijú skip sem talin eru vera að Verður ekki unað við ástandið GUÐMUNDUR Hallvarðssoií al- þingismaður sagði á Alþingi í gær að með kaupum og sölu á veiðiheim- ildum væru útgerðarmenn að stuðla að viðhorfsbreytingu meðal sjó- manna í átt til auðlindaskatts. Þor- steinn Pálsson sjávarútvegsráð- herra hafnaði lagasetningu á verk- fall sjómanna og sagðist telja óheppilegt að setja löggjöf sem skyldaði að allur afli yrði seldur á fiskmörkuðum. „Ég hef ekki verið talsmaður auð- lindaskatts hingað til fremur en flest- ir sjómenn, en með kaupum og sölu veiðiheimilda þar sem 30 krónur af hveiju kílói kemur til skipta sjómanna í stað 130 króna við markaðsaðstæð- ur, stuðla útgerðarmenn að breyttu hugarfari sjómanna og fulltrúa þeirra í átt til auðlindaskatts. Við ríkjandi ástand verður ekki unað. Það er þá betra að fá 90-100 krónur til skipta af hveiju þorskkílói og í ríkiskassann renni 30-40 krónur af hveiju kílói. Leikreglumar verða þar með skýr- ari,“ sagði Guðmundur. Guðmundur sagði að það gæti aldrei orðið sátt um óbreytt ástand um verðmyndun á fiski. Það yrði með einum eða öðrum hætti að markaðstengja afla fiskiskipa. Hann sagði að sjómenn sættu sig við að- sniðganga verkfajl höfðu óskað eft- ir skráningu á ísafirði í gær að sögn Sigurðar, auk þess sem Sjó- mannasamband íslands hafði í gær fengið upplýsingar um að útgerð 250 tonna skips _ frá Reykjavík hygðist skrá það á ísafirði. Upplýs- ingar um skip sem leigð em á milli staða án lögskráningar em ekki handbærar. Sigurður segir að fjöldi skipa hafi verið leigður til ísafjarð- lögun í þá átt þannig að árið 1997 yrði afli að fuilu tengdur markaðs- verði. Veiða fyrir 160 milljónir króna á dag ÁGUST Einarsson, alþingismaður Þjóðvaka, hóf umræðuna í tilefni af verkfalli sjómanna. Hann sagði að alvarlegt ástand væri að skapast, fískvinnslufólk væri að missa vinn- una ög flotinn að stöðvast. Hann minnti á að úthafsveiðiflotinn veiddi um þessar mundir fyrir um 160 milljónir á dag. Þessi verðmæti myndu tapast. Ágúst hvatti til þess að allur afli yrði seldur á fiskmörkuðum. Það hefði marga kosti. „Verðmyndun á fiskmörkuðum er fyrir opnum tjöld- um, stuðlar að bættum gæðum, eyk- ur sérhæfingu, veitir aðgang að sameiginlegri auðlind og er viður- kennt form erlendis við fiskverðs- ákvörðun. Það er margt sem bendir til að þetta form verðmyndunar geti bæði leyst yfirstandandi kjaradeilu og stuðlað að hagkvæmni í veiðum og vinnslu þótt vitaskuld yrði að taka slíkt kerfi upp í áföngum," sagði Ágúst. Sjávarútvegsráðherra sagði að ríkisstjórnin hefði ekki uppi áform um að leysa kjaradeiluna með laga- setningu. Það væri réttur og skylda ar seinustu ár til rækjuveiða yfir sumartímann. Verði tæplega amast við þeim, en skip sem séu gagngert skráð á Vestfjörðum til að snið- ganga verkfall muni ekki njóta vægðar. 4.500-5.000 verkefnalausir eftir viku Arnar Sigurmundsson formaður Samtaka fiskvinnslustöðva segir samningsaðila að leysa deiluna með samningum. „Ég tel að fiskverð eigi að mótast á markaðinum, ýmist með samning- um aðila eða með sölu um fiskmark- aði. Ég teldi það óheppilegt að setja um það fortakslausa löggjöf að allur fiskur skyldi undantekningalaust fara um fiskmarkaði," sagði Þor- steinn. Utgerðar- menn gagíi- rýndir SIGHVATUR Björgvinsson sagði að lögin um stjórn fiskveiða væru grundvöllur deilunnar. Þar væri að finna það óréttlæti sem sjómenn væru að betjast gegn. Ólafur Ragn- ar Grímsson tók undir þetta og sagði að stjórnvöld gætu ekki staðið að- gerðarlaus þar sem málið varðaði lög sem Alþingi hefði sett. Margir þingmenn fordæmdu að útgerðarmenn væru að leigja skip sín úr landi eða til Vestfjarða til að komast hjá því að þau stöðvuðust í verkfallinu. Með þessu væru þeir að gera deiluna harðari. Nokkrir þing- menn kröfðust þess að félagsmála- ráðherra beitti sér í þessu máli þar sem verið væri að bijóta anda vinnu- löggjafarinnar. Sjávarútvegsráð- herra sagðist skilja vel óánægju sjó- manna með þessar aðgerðir útgerð- armanna. menn meta ástandið svo að starf- semi lunga fiskvinnslufyrirtækja hérlendis utan Vestfjarða muni stöðvast í byijun næstu viku vegna hráefnisskorts, verði boðað verkfall sjómanna að veruleika. Hér á landi eru um 70-100 atkvæðamikil fyrir- tæki í fiskvinnslu að sögn Amars og um 300 smærri fyrirtæki. Ein- hver fyrirtæki eigi Rússa-fisk -í frystiklefum sínum og rækju- vinnslufyrirtæki hugsanlega rækju, þannig að vinnsla geti haldið áfram ögn lengur hjá þeim, en aðrir verði hráefnislausir fljótlega upp úr helgi. Á einstaka stöðum þar sem afli smábáta skiptir máli fýrir vinnsl- una, mun hún halda áfram að éin- hveiju leyti. Verði verkfall lang- vinnt geta hins vegar fá ef nokkur fyrirtæki haldið uppi fullri starf- semi. „Við reiknum með að 6.500 manns vinni í fiskvinnslu og það er ekki ótrúlegt að ætla að áhrif verkfalls nái til 4.500-5.000 manns, sem verða verkefnalausir strax i næstu viku. í kjarasamningum er gert ráð fyrir að hægt sé að til- kynna með fjögurra vikna fyrirvara um fyrirsjáanlega vinnslustöðvun. Þegar sjómenn boðuðu verkfall sitt með þriggja vikna fyrirvara beind- um við þeim skilaboðum til fisk- vinnslufyrirtækja að tilkynna starfsfólki sínu að kæmi til verk- falls sjómanna yrði vinnslustöðvun er tæki gildi frá. og með 2. júní. Sum fyrirtækin fóru þessa leið en önnur ætluðu að sjá til og eiga þá heimild í lögum frá 1979 að taka fólk fyrirvaralaust af launaskrám, verði þau hráefnislaus af völdum verkfalls. í báðum tilvikum færi fískvinnslufólkið strax á atvinnu- leysisbætur,“ segir Arnar. Hann kveðst telja erfitt að meta fjárhagslegt tjón, stöðvist vinnslan, en ljóst sé þó að afkoma fyrirtækja í greininni sé misgóð og komi til stöðvunar geti hún valdið sumum fyrirtækjum verulegum vandræðum á að hefja rekstur aftur. Einnig sé tímasetning verkfalls óheppileg fyr- ir vinnsluna. „Menn óttast að komi til verk- falls sé deilan komin í þann hnút að lítið gerist næstu daga á eftir, ekki síst þar sem hún er óvenju snúin. Ég held að afdrif hennar ráðist fyrst og fremst hjá samn- ingsaðilum og sé ekki að Alþingi geti komið neitt að henni,“ segir Arnar. Sjómannaverkfall var rætt utandagskrár á Alþingi í gær Sveitarstjórinn í Súðavík Seinkun en enginn efi um nýja Súðavík ísafirði. Morgunbladið. JÓN Gauti Jónsson, sveitarstjóri í Súðavík, sagði á almennum fundi í Súðavík í fyrradag að alls staðar í kerfinu væri verið að leita lausna á þeim vanda Súðvíkinga sem skap- aðist eftir snjóflóðið í vetur. En þótt allir væru af vilja gerðir tækju málin mikinn tíma. Súðvíkingar eru orðnir áhyggjufullir um að ef ekki takist að hefja framkvæmdir í sum- ar, þannig að vandi næsta vetrar verði leystur muni þeim hugsanlega fara fækkandi sem vilja vera þar annan vetur. Gylfi Guðjónsson arkitekt, einn af hönnuðum nýja þorpsins, kynnti deiliskipulagið, sem á að fara að vinna eftir, en nú er renna út sá tími sem menn hafa til að gera athugasemdir við tillöguna. Fjöru- tíu og níu Súðvíkingar hafa sent hreppnum athugasemdir þar sem mótmælt er svokölluðum smábýla- hugmyndum, sem gerðu ráð fyrir að yst í nýju byggðinni og umhverf- is Eyrardalsbæinn gætu menn byggt sér kinda- og hesthús við íbúðarhúsin. Menn sögðu slæma reynslu af dýrahaldi í þéttbýli, auk þess sem ríkjandi vindátt myndi bera dauninn frá gripahúsunum inn yfir byggðina. Að öðru leyti virtist fólk ánægt og bíður spennt eftir að geta sótt um lóðir. Aætlað er að flytja þau hús sem enn eru uppistandandi í Súðavík og flutningshæf í nýja bæinn og von- ast menn til að geta komið þeim áfanga vel áleiðis í sumar auk þess sem Jón Gauti sagði að sér virtist að leyfi fengist fyrir byggingu 8 félagslegra íbúða. Áætlað er að þær byggingar sem fyrirhugað er að reisa og flytja, kosti um 500 milljónir, um 130 milljónir fara í holræsi og gatna- gerð, auk 12 milljóna í hönnunar- kostnað. Bágborinn fjárhagur Fjárhagur Súðavíkurhrepps var mjög bágborinn fyrir slysið, þar sem farið hafði verið út í byggingu glæsilegs íþróttahúss, sem bindur að mestu framkvæmdafé Súðvík- inga um langa framtíð og því verða Súðvíkingar að treysta því að vil- yrði ráðamanna um fjárframlög til að byggja nýja Súðavík standi og reyndar sagði sveitarstjórinn að það Morgunblaðiö/Úlfar Ágústsson i HJÓNIN Berglind Kristjánsdóttir og Hafsteinn Númason, sem misstu öll þrjú börn sín í snjóflóðinu sem féll í Súðavík 16. janúar, skoða svæðið á Langeyri þangað sem húsarústirnar voru fluttar. I Persónulegir munir eins og leikföng, fatnaður og bækur liggja eins og hráviði í haugunum. | væri enginn vafi í hans huga að staðið yrði við öll þau fyrirheit ssem gefín voru í vetur, aðeins þyrfti að bíða eftir að málin fengju sína meðferð í hinu opinbera stjórnsýslu- kerfi, sem er mjög flókið og margar úrlausnir sem hafa fordæmisgildi. Opin sár Nokkur óánægja kom fram á fundinum með hve seint gengi að hreinsa svæðið við Langeyri þar sem snjóflóðinu og rústum húsanna var komið fyrir í vetur. Ennþá eru þama margra metra þykkir haugar, þar sem öllu ægir saman og blasir við ferðamönnum við þjóðveginn milli ísafjarðar og Reylq'avíkur. Svæðið er opið og getur hver sem er vaðið um það að vild, að sögn eins sem um sárt á að binda eftir slysið. Sveit- arstjórinn sagði að reynt hefði verið að hreinsa eftir því sem snjórinn bráðnaði, því erfitt væri að koma við vinnuvélum. Björgunarsveitimar á norðanverðum Vestfjörðum, Bif- hjólasamtök lýðveldisins og fleiri aðilar hafa komið að þessu. Sóknarpresturinn, séra Magnús Erlingsson, lagði fram tillögu um að unnið yrði með meiri krafti að því að hreinsa svæðið, líkt og gert var í Tungudal í fyrra því sannar- lega skæri það í hjartað að aka þarna framhjá, en tillagan fékk ekki afgreiðslu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.