Morgunblaðið - 25.05.1995, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 25.05.1995, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995 51 FRÉTTIR Allt fyrir garð- inn í Kringlunni UM helgina verður blóma- og garð- yrkjumarkaður í göngugötu Kringl- unnar. Nokkrir aðilar í garðyrkju- og gróðurrækt verða í Kringlunni. í Kringlunni verður mikið úrval af sumarblómum, fjölærum blómum, pottaplöntum, tijám og runnum. Ennfremur verða kynnt og seld garð- verkfæri, sláttuvélar, garðhúsgögn, grill og leiktæki fyrir börn. Verslunin Byggt og búið færir sig fram í göngugötuna og verður þar með garðáhöld, garðverkfæri, garð- húsgögn, grill, leiktæki og sumar- blóm. Skrúðgarðsarkitekinn Birgir Eiríksson veitir viðskiptavinum góð ráð. Verslunin Sólblóm verðpr með mikið úrval af sumarblómunvog fjö- lærum blómum og Gróðrarstöð Ingi- bjargar Sigmundsdóttur verður með Hveragerðisverð á sumarblómum. Hagkaup setur upp ávaxta- og græn- metismarkað fyrir framan matvöru- verslunina og einnig verður þar kynningu á grillum og garðhúsgögn- uih. Fossvogsstöðin selur tré og runna og veitir ráðgjöf varðandi tráp- löntur. Jóhann Helgi & Co. kynnir garðhúsgögn og leiktæki og Tækja- leigan Hörkutól kynnir sína starf- semi. Ennfremur verða kynningar á bókum fyrir framan Pennann á 2. hæð. Á föstudaginn er opið í Kringlunni frá kl. 10-19 og á laugardaginn kl. 10-16. Fj ölskyldudagnr um land allt HEILSUGÆSLAN og íþróttafulltrú- ar um land allt hafa undirbúið fjöl- skyldudag undir merkjum heilsuefl- ingar laugardaginn 27. maí. Við sundlaugar og íþróttastaði verða göngur, skokk og leikir auk þess sem starfsmenn heilsugæslu- stöðvanna bjóða fræðslu og ráðgjöf Um heilbrigða lífshætti og mæla blóð- þrýsting og fleira hjá þeim sem þess óska. A flestum stöðunum er frítt í sundlaugarnar. í Reykjavík hefur ÍTR flutt árleg- an íþróttadag sinn á þennan dag og allar heilsugæslustöðvarnar auk stöðvarinnar á Seltjarnarnesi taka þátt í dagskránni sem er við allar sundlaugar borgarinnar, í Laugar- dal, við verslunarmiðstöð í Grafar- vogi og í opnu húsi á Heilsugæslu- stöð Miðbæjar. íþróttir fyrir alla skokka og í Fjölskyldu- og húsdýra- garðinum verður boðið upp á íslenska heilsurétti. Á Akureyri er svipaða sögu að segja, sömuleiðis á Akranesi, Isafírði, Hvammstanga, Hafnarfirði, Húsa- vík, Þingeyri, Hveragerði, Horna- firði, Klaustri, Laugalandi í Holtum, Selfossi og víðar. Heilsugæsla Suðumesja hafði svipaða dagskrá vegna 20 ára af- mælis stöðvarinnar 6. maí sl. Tilgangur fjölskyldudagsins er að styðja og hvetja almenning til að lifa heilbrigðu lífi með fjölskyldunni. 6. áfangi náttúru- minjagöngu 6. ÁFANGI náttúruminj agöngu Perðafélags íslands verður farin fimmtudaginn 25. maí og verður gengið frá Kaldárseli í Vatnsskarð. Þetta er auðveld ganga í fylgd Sigmundar Einarssonar, jarðfræð- ings, m.a. skoðaðar eldstöðvar frá sögulegum tíma. í náttúrminja- göngunni sem farin er í tilefni nátt- úruvemdarárs Evrópu em þátttak- endur komnir á sjötta hundrað. Rrottför er kl. 13. Á laugardaginn 27. maí verður farin jarðfræðiferð um Reykjanes- skagann í samvinnu við Hið íslenska náttúrufræðifélag. Farið verður um Krýsuvík, Þorlákshöfn og Hvera- gerði. Leiðbeinendur í þeirri ferð verða jarðfræðingarnir Jón Jónsson °g Guttormur Sigurbjamarson. Brottför er kl. 10. Brottför í báðar ferðirnar eru frá BSÍ, austanmegin Málþing um heimilið á 21. öldinni HALDIÐ vérður málþing á vegum Búseta landssambands föstudaginn 26. maí undir nafninu Heimilið á 21. öldinni. Ætlunin er að ræða ■ á breiðum gmndvelli þær breytingar sem menn sjá fyrir í búsetuháttum landsmanna næstu áratugi. Málþingið verður haldið að Hótel Sögu, A-sal og hefst kl. 13.30 og lýkur um kl. 16.30. Eftirtaldir einstaklingar munu hafa framsögu á fundinum: Guðrún Jónsdóttir, arkitekt og formaður menningarmálanefndar Reykjavíkur, Hörður Bergmann, fræðslufulltrúi, Jón Ólafur Ólafsson, arkitekt, Jón Rúnar Sveinsson, félagsfræðingur, Ragnar Aðalsteinsson, hæstaréttar- lögmaður, Trausti Valsson, arkitekt og Þórunn Pálsdóttir, verkfræðingur. Stjórnandi málþingsins verður Heim- ir Ingimarsson, bæjarfulltrúi Akur- eyri. °g Mörkinni 6. Skagfirðingafélagið Lok á starfsemi í vor LóK á starfsemi Skagfirðingafé- lagsins nú í vor verða í dag, fimmtu- fiag 25. maí. Þá heldur félagið og kvennadeild þess kaffiboð fyrir eldri félaga og eldri Skagfirðinga búsetta sunnan heiða. Húsið að Stakkahlíð 17 verð- ur opnað klukkan 14 og verður þar ýmislegt til gamans gert ásamt kaffihlaðborði. íþróttadagur aldraðra ÍÞRÓTTADAGUR aldraðra verður á morgun föstudag kl. 14 í íþrótta- húsi Austurbergs sem er á milli Pellaskóla og sundlaugarinnar. Fólk sem fer á eigin vegum er beðið að athuga sérstaklega stað- setningu þar sem auglýst hefur verið að dagurinn fari fram i Laug- ardalshöll. Akstur frá félagsmið- Stöðvum og kaffi í boði. Fermingar á uppstign- ingardag FERMING í Haukadalskirkju í Skálhoitsprestakalli kl. 14. Prestur sr. Guðmundur Óli Ólafsson. Fermdir verða: Ólafur Óskar Egilsson, Holtakotum, Biskupstungum. Ólafur Jóhann Sigurðarson, Rauðaskógi, Biskupstungum. MESSUR Á UPPSTIGMIMGARPAG Kirkju- dagur aldraðra Guðspjall dagsins: Hann er upp risinn. (Mark. 16.) ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Svala Nielsen syngur einsöng. Að lokinni guðsþjónustu býður Safnað- arfélag Ásprestakalls eldri borgur- um til kaffisamsætis í safnaðar- heimili kirkjunnar. Svala Nielsen syngur og Kvennakórinn Seljur. Kirkjubíllinn ekur. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BUSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Fjölbreyttur söngur og tón- list. Fermd verður Berglind íris Flansdóttir, Aðallandi 4. Kirkjukaffi aldraðra eftir messu og sýning á munum úr vetrarstarfinu. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Anglikönsk guðs- þjónusta kl. 10. Altarisganga. Prestur sr. Steven Mason. Organ- leikari Kjartan Sigurjónsson. Guðs- þjónusta kl. 14 í tilefni dags aldr- aðra. Ræðumaður Helgi Seljan fyrr- um alþingismaður. Prestursr. Hjalti Guðmundsson. Dómkórinn syngur. Einsöngur Bergþór Pálsson, óperu- söngvari. Organleikari Marteinn H. Friðriksson. Kaffiveitingar á Hótel Borg eftir messuna og mun Berg- þór Pálsson skemmta gestum þar með söng. GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Org- anisti Árni Arinbjarnarson. Einar Th. Magnússon prédikar. Tvísöngur Ingibjörg Ólafsdóttir og Hellen Helgadóttir. Boðið upp á hádegis- verð eftir messu. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11 á degi aldraðra. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Ferð aldraðra í Njarðvík kl. 12.30. KIRKJA HEYRNARLAUSRA: Messa í Vídalínskirkju kl. 14. Miyako Þórð- arson. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 14. Ath. breyttan messutíma. Kvöld- vökukórinn syngur undir stjórn Jónu K. Bjarnadóttur. Organisti Pavel Manasek. Kaffiveitingar að messu lokinni í nýja safnaðarheimilinu. Tómas Sveinsson. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð- brands biskups. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Ingólfur Guðmunds- son. Organisti Jón Stefánsson. Aldraðir lesa ritningargreinar. Ræðumaður Stefán E. Sigurðsson. Kór aldraðra syngur. Einsöngur: Daisy Johannessen. Handavinnu- sýning. Kaffiveitingar í boði Kvenfé- lagsins fyrir aldraða í sókninni og Bæjarleiðabílstjóra. LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 14. Eldri borgurum sérstak- lega boðið. Sr. Gísli H. Kolbeins prédikar. Snæfellingakórinn í Reykjavík syngur undir stjórn Frið- riks S. Kristinssonar. Organisti Jón- as Þórir. Boðið til kaffidrykkju að guðsþjónustu lokinni. Tónleikar Snæfellingakórsins kl. 17. Ólafur Jóhannsson. NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. „Litli kórinn" syngur. Frank M. Hall- dórsson. SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 14. Sólveig Eggertz prédikar. Prestur sr. Solveig Lára Guð- mundsdóttir. Organisti Vera Gul- asciova. Veislukaffi í safnaðarheim- ilinu þar sem börn úr Tónlistarskól- anum leika á hljóðfæri og leikið verður undir almennan söng. Allir aldraðir Seltirningar eru hvattir til að mæta til kirkjunnar þennan dag og taka með sér fjölskyldu sína og gesti, en messan er um leið loka- þáttur í vetrarstarfi safnaðarins fyr- ir aldraða. ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14 á degi aldraðra. Sveinbjörg Arnmundsdóttir flytur stólræðu. Prestar safnaðarins þjóna fyrir alt- / ari. Halla Jónasdóttir syngur ein- söng. Organleikari Sigrún Stein- grímsdóttir. Samvera eldra fólks í safnaðarheimilinu eftir guðsþjón- Á ÁRI aldraðra 1982 var upp- stigningadagur valinn kirkju- dagur aldraðra í landinu í sam- ráði við Ellimálanefnd þjóð- kirkjunnar, en hún vinnur að eflingu kirkjustarfs aldraðra á vegum þjóðkirkjunnar. Aldraðir hafa á þessum degi tekið virkan þátt í guðsþjón- ustum, flutt ræður og lesið texta. Kórar aldraðra syngja víða við guðsþjónustur. Margir söfnuðir bjóða m.a. að aka fólki til og frá kirkju og bjóða í kirkjukaffi þennan dag. Kirkjustarf aldraðra fer vax- ustu. Veislukaffi í boði kvenna úr Soroptimistaklúbbi Reykjavíkur II. Ávarp, Reynir Jónasson leikur á harmoniku, ,almennur söngur. Sýn- ing á handavinnu eldra fólks úr Opnu húsi kirkjunnar. DIGRANESKIRKJA: Sameiginleg guðsþjónusta Kópavogssafnaða kl. 14. Að lokinni guðsþjónustu verður boðið til kaffidrykkju í Félagsheimili Kópavogs. Þorbergur Kristjánsson. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 14. Aldraðir taka þátt í guðsþjónustunni. Sigurgeir Magn- ússon og Sigurborg Skúladóttir lesa ritningartexta. Gyða Sigvaldadóttir flytur hugleiðingu. Sóknarprestar þjóna fyrri altari. Kór aldraðra í Gerðubergi syngur, stjórnandi Kári Friðriksson. Eftir guðsþjónustuna verða veitingar í safnaðarheimilinu. GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 14. Sr. Pétur Sigurgeirsson biskup prédikar. Prestar sr. Sigurð- ur Arnarson og sr. Vigfús Þór Arna- son. Kvartettinn „Út í vorið“ og barnakórinn syngja í guðsþjónsut- unni og í kaffisamsæti að lokinni guðsþjónustu. Stjórnendur Bjarni Þór Jónatansson organisti og Ás- laug Bergsteinsdóttir. HJALLAKIRKJA: Sameiginleg guðsþjónusta allra safnaða í Kópa- vogi verður í Digraneskirkju kl. 14. Kristján Einar Þorvarðarson. KÓPAVOGSKIRKJA: Sameiginleg guðsþjónusta safnaðanna í Kópa- vogi verður í Digraneskirkju kl. 14. Ægir Fr. Sigurgeirsson. SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup prédikar. Prestar safnaðarins þjóna fyrir altari. Kirkjukór Seljakirkju syngur. Organisti Kjartan Sigur- jónsson. Að lokinni guðsþjónustu býður kvenfélag safnaðarins til veit- inga í safnaðarsalnum og mun kirkjukórinn syngja þar. Séð verður fyrir því að aka fólki til guðsþjón- ustunnar, og þarf þá að hafa sam- band við skrifstofu kirkjunnar. FRÍKIRKJAN, Rvík: Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Pavel Smid. Sam- verustund í safnaðarheimilinu á eft- ir. Hrönn Hafliðadóttir syngur við undirleik Hafliða Jónssonar, píanó- leikara. Cecil Haraldsson. HJÁLPRÆÐISHERINN: Lofgjörða- samkoma kl. 20.30. Elsabet Daní- elsdóttir talar. KRISTSKIRKJA, Landakoti: Há- messa kl. 10.30. Messa kl. 14. Ensk messa kl. 20. MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa kl. 11. FÆR. sjómannaheimilið: Sam- koma sunnudag kl. 17. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 14. Kaffisamsæti á eft- ir í ÁlfafelhV Rúta kemur að Höfn andi í landinu, einkum í þétt- býli. Kirkjan býður í vaxandi mæli öldruðum upp á biblíu- lestra, fyrirbænir og fræðslu svo og þátttöku í guðsþjón- ustum. Margir aldraðir búa við þannig aðstæður að þeir geta ekki komið til kirkju sinnar og þiggja því margir boð kirkjunn- ar um heimsóknaþjónustu. Tilgangur kirkjudags aldraðra er fyrst og fremst að beina at- hygli fólks að kirkjustarfi aldr- aðra og efla þátttöku þeirra í kirkjustarfi. um kl. 13.30, Sólvangi kl. 13.35 og Sólvangshúsum kl. 13.45 og ekur þaðan að kirkju og þangað aftur síðar. Guðmundur Óli Ólafsson, s. 51001 annast bílferðir fyrir aldraða til og frá kirkju, ef óskað er og tek- ur við pöntunum kl. 10-12 á upp- stigningardag. Sr. Þórhildur Ólafs prédikar við guðsþjónustuna og báðir prestarnir þjóna fyrir altari. Sigurður Skagfjörð Steingrímsson syngur einsöng og einnig í kaff- isamsætinu. Organisti Helgi Braga- son. Gunnþór Ingason. KAPELLA St. Jósefssystra, Garðabæ: Þýsk messa kl. 10. JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði: Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga messa kl. 18. KARMELKLAUSTUR: Messa sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl. 8. Allir velkomnir. INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Bíll fer frá Ólafslundi kl. 10.30. Kaffi og kleinur í safnaðarheimili að athöfn lokinni. Baldur Rafn Sigurðsson. KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjón- usta í sjúkrahúsi Suðurnesja kl. 10.30. Prestur Ólafur Oddur Jóns- son. Guðsþjónusta kl. 14. Ath. breyttan messutíma. PresturSigfús Baldvin Ingvason. Kór Keflavíkur- kirkju syngur við báðar athafnirnar. Organisti Einar Örn Einarsson. Systra- og bræðrafélagið býður til kaffidrykkju í Kirkjulundi að lokinni messu og kórfélagar syngja nokkur vor- og sumarlög. Rútubifreið fer frá Suðurgötu kl. 13.30, stopparvið Hlévang og fer sömu leið til baka eftir kaffidrykkjuna í Kirkjulundi. KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík: Messur falla niður fyrst um sinn. HVERAGERÐISKIRKJA: Messa kl. 13.30. Skólakór grunnskólans flytur söngleik og auk þess tónlist og söngur undir stjórn Kristínar Sigfús- dóttur og Malcolm Holloway. Org- anisti Björg Hilmisdóttir. Eldri borg- arar úr Þorlákshöfn koma í heim- sókn. Tómas Guðmundsson. STÓRA-NÚSPRESTAKALL: Guðs- þjónusta verður í Stóra-Núpskirkju fimmtudagskvöldið 25. maí nk. kl. 21 ítilefni uppstigningarog himnaf- arar Jesú. Hugleidd verður merking þessa á skilningi kristins manns á lífinu, já og dauðanum. Axel Árna- son. LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum: Almenn guðsþjónusta kl. 14. Félag- ar úr Félagi eldri borgara lesa ritn- ingartexta. Kvenfélag Landakirkju býður og annast messukaffi á eftir. AKRANESKIRKJA: Hátiðarguðs- þiónusta kl. 14, dagur aldraðra. Sóknarnefnd býður upp á veitingar í safnaðarheimilinu Vinaminni eftir messu. Björn Jónsson. ÁRBÆJARKIRKJA Kirkjudagur aldraðra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.