Morgunblaðið - 25.05.1995, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 25.05.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995 9 FRÉTTIR Greiðabílstjóri sekt- aður fyrir leiguakstur HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í síðustu viku mann til að greiða 50 þúsund króna sekt auk saksóknara- og málsvarnarlauna fyr- ir að aka farþegum gegn gjaldi í sendibifreið, svokallaðri greiðabifreið. Maðurinn var stöðvaður á sendi- bíl aðfaranótt 27. desember 1993. í bílnum voru fimm farþegar en hún er skráð fyrir 4. Maðurinn var ekki með ökuskírteini og hafði ekki at- vinnuleyfi fólksbifreiðastjóra. Mað- urinn viðurkenndi að hafa ekið fólk- inu gegn gjaldi en breytti fram- burði sínum síðar. í frumskýrslu lögreglu kom fram að gjaldmælir bílsins hefði verið í gangi og í dóms- orði segir að slá megi því föstu að svo hafí verið. Dómsins beðið lengi Sigfús Bjarnason, formaður leigubifreiðastjórafélagsins Frama, segir að lengi hafi verið beðið eftir þessum dómi því þessi ólöglega starfsemi hafi verið stunduð í lang- an tíma. Ekki hafí verið hægt að ákæra fyrir þetta brot fyrr en eftir breytingu á lögum um leigubifreið- ar sem gerð var sl. vetur. Með nýjum lögum hafi verið tek- in af öll tvímæli um það hveijir megi aka fólki gegn gjaldi og nú sé búið að kveða upp dóm um það að ólöglegt sé að flytja farþega í greiðabílum. Sigfús segir að nú megi greiðabíl- stjórar eiga von á því að verða sekt- aðir, verði þeir staðnir að fólksflutn- ingum. Á sama hátt megi leigubif- reiðastjórar vænta sekta aki þeir með pakka. Trygginga- félagi gert að greiða lögmanns- kostnað Stuttbuxur og stuttbuxnasett á telpur og drengi. Joggingallar frá kr. 1.795,- Frábœr tilboö í gangi! Bainctkot, Borgarkringlunni sími 881340. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt tryggingafélag til að greiða manni sem varð fyrir áverka í umferð- arslysi 29 þúsund krónur í þóknun vegna lögmannsaðstoðar. Maðurinn hlaut minniháttar örorku eftir slys sem tryggingafélagið bætti honum í mars sl. Ekki var þó fallist á kröfu um að auk bótanna yrðu greiddar 64 þúsund krónur vegna lög- mannsaðstoðar. Fyrir gildistöku skaðabótalaganna 1. júlí 1993 greiddu tryggingafélög lögmannskostnað tjón- þola en tryggingafélagið taldi að við gildistöku laganna hefði starf lög- manna að málum af þessu tagi minnk- að og því væri hæfíleg þóknun vegna lögmannsaðstoðar 25 þúsund krónur. Maðurinn veitti því viðtöku en síðan var tryggingafélaginu stefnt fyrir mis- muninum. í niðurstöðum Héraðsdóms segir að ekki verði fullyrt að vinna lögmanna vegna tjónauppgjöra hafí minnkað svo neinu nemi við gildistöku laganna og þvi var krafa mannsins tekin til greina. Ekki var þó fallist á að útreikningur þóknunarinnar tæki mið af vöxtum þeim sem legðust á bætur mannsins eins og krafíst hafði verið. Lögmaður mannsins lýsti því yfír að 5-10 klukkustundir hefðu farið í vinnu að máli mannsins og var trygg- ingafélagið dæmt til að greiða 29 þúsund krónur auk þeirra 25 þúsund króna sem þegar hafði verið veitt við- taka. ------♦---------- Skemmdar- verk við Nor- ræna húsið LÖGREGLUNNI í Reykjavík var á mánudagsmorgun tilkynnt um að skemmdarverk hefðu verið unnin við Norræna húsið. Skorið hafði verið á línur á átta flaggstöngum og hálsar brotnir á tveimur svanastyttum, sem eru við tjörn við húsið. Ekki er vitað hver þama var að verki. ------» ♦ ♦------ Leita stol- ins bíls LÖGREGLAN í Hafnarfirði lýsir eft- ir stolnum bíl af gerðinni Mazda 323 árgerð 1987, hvítum að lit. Bílnum var stolið frá Breiðvangi í Hafnarfirði aðfaranótt þriðjudags- ins. Þá um nóttina sást ungt par á ferðinni á bílnum á Elliðavatnsvegi. Lögreglan óskar eftir að heyra frá þeim sem síðar kunna að hafa orðið varir við ferðir bílsins eða vita hvar hann er nú að finna. Svartir skíðabogar eru á þaki bíls- ins. Fólk er alltaf að vinna í Gullnámunni: 67 milljónir Dagana 18. til 23. maí voru samtals 67.482.780 kr. greiddar út í happdrættisvélum um allt land. Þetta voru bæöi veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af öörum vinningum. Silfurpottar í vikunni: Dags. Staður: Upphæð kr.: 19. maí Ölver ... 409.549 21. maí Mónakó .TT.. ... 237.136 23. maí Mónakó ... 362.553 23. maí Háspenna, Hafnarstræti ... 52.753 Staöa Gullpottsins 24. maí, kl. 10:00 var 3.085.106 krónur. i < o Q 4>'*\ í í!f'V Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr. og hækka síðan jatnt og þétt þar til þeir detta. Hreinræktaðir Persar Hreinræktaðir persnerskir kettlingar með ættbók til sölu. Upplýsingar gefa Lára og Kristín í síma 5573623. Geymið auglýsinguna. Samkomutjölc 3 daga leiga. 15 fm. 9.800 mfysk. TialdaiBiga— 25 fm. 15.000m/vsk. tialdasala — 54 fm. 29.500m/vsk. tiaiaavi&gerSir Einniy staerri staerðir. S?03T W& L E I G A N I ÚTIVISTARBÚÐIN við Umferðarmiðstöðina, símar 5519800 og 5513072. Sœvar Karl Olason Bankastræti 9, sími 551-3470.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.