Morgunblaðið - 25.05.1995, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 25.05.1995, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Frændi okkar, ÓSKAR KJARTANSSON, Karlagötu 18, Reykjavík, lést í Landspítalanum 23. maí sl. Aðalheiður Jónsdóttir, Svava Jónsdóttir. t PÁLL PÁLSSON, frá Lambastöðum, Garði, Melholti 6, Hafnarfirði, andaðist ( Sólvangi í Hafnarfirði 23. maí. Vandamenn. t Hjartkær sonur okkar, ÞRÖSTUR BERGMANN INGASON, Álftamýri 8, Reykjavík, lést mánudaginn 22. maí. Rósa R. Frímannsdóttir, Ingi Bergmann. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNAJÓNSDÓTTIR frá Seljavöllum, sem andaðist hinn 16. maí sl., verður jarðsungin frá Eyvindarhólakirkju laugardaginn 27. maí nk. kl. 14.00. Grétar Óskarsson, Vigdís Jónsdóttir, Rútur Óskarsson, Sigríður Karlsdóttir, Jón Óskarsson, Áslaug Jónasdóttir, Ásbjörn Óskarsson, Inga Sveinsdóttir, Sigurður Óskarsson, Eygló Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma ANNA GUÐRÚN JÓHANNESDÓTTIR, Brúarlandi, Þistilfirði, verður jarðsungin frá Svalbarðskirkju laugardaginn 27. maí kl 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, að ósk hinnar látnu, en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið. Jónas Aðalsteinsson, Arnþrúður M. Jónasdóttir, Sólveig Þórðardóttir, Eðvarð Jónasson, Kristjana Benediktsdóttir, Jóhannes Jónasson, Svanhvft Kristjánsdóttir, Sigrún Lilja Jónasdóttir, Rúnar Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN GUÐBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR, Efri-Engidal, sem lést í Sjúkrahúsi ísafjarðar 19. maí, verður jarðsungin frá ísafjarðarkirkju laugardaginn 27. maí kl. 11.00. Sigurgeir Jónsson, Guðný Jónsdóttir, Jón Jónsson, Ásta Dóra Egilsdóttir, Halldór Jónsson, Guðný Indriðadóttir, Magnúsína Jónsdóttir, Magdalena Jónsdóttir, Ögmundur Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. GUÐMUNDUR BJARNASON + Guðmundur Bjarnason fæddist á Minni- borg á Akranesi 7. febrúar 1930. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 10. maí síðastliðinn. For- eldrar hans voru Bjarni Magnús Kristmannsson og Ásthildur Vilhelm- ína Guðmundsdótt- ir, sem bæði eru látin. Systir hans var Helga Krístín, f. 2. mars 1931, d. 27. maí 1990. 31. desember 1949 kvæntist Guðmundur fermingarsystur sinni Rósu Vilhjálmsdóttur, f. 23. mars 1930, d. 26. september 1994. Börn þeirra eru Margrét Arn- björg, f. 3. september 1949; Bjarni Magnús, f. 13. ágúst 1953; Vilhjálmur, f. 17. nóvem- ber 1956; og Guðríður, f. 29. júlí 1960. Barnabörnin eru 11 og barnabarnabömin tvö. Útför Guðmundar fór fram frá Akraneskirkju 19. maí. LÁTINN er móðurbróðir okkar Guðmundur Bjamason aðeins 65 ára að aldri, af okkur systkinunum alltaf kallaður Mummi. Þessa dag- ana togast á sár söknuður og fal- legar minningar um góðan frænda. Minningabrotin ná allt til þess tíma er Bjami afí og Ásta amma áttu heimili á Minniborginni. Sérstakur kærleikur ríkti á milli móður okkar heit- innar, Helgu Stínu, og Mumma. í hugum okkar stendur ofar- lega sú væntumþykja sem hann sýndi móður okkar alla tíð enda vora heimsóknir hans tíðar á Vesturgötuna. Heimsóknum hans fylgdi ávallt mikil glaðværð og vora um- ræðuefnin um allt á milli himins og jarðar. Minniborgarsystkinin eins og þau voru oft kölluð, vora tengd óijúfanlegum böndum, hafin upp yfír allar deilur eða misklíð. Þau vora fljót að taka upp hanskann hvort fyrir annað ef þeim fannst á hlut annars þeirra hallað. Mummi hafði mikið að gefa þó hann væri frekar dulur og væri ekki allra. Hann var alltaf boðinn og búinn hvenær sem var að liðsinna okkur systkinunum og skynjuðum við ríkulega þann góða hug sem hann bar til okkar. Mummi var stórhuga með stórt hjarta og glæsilegur svo eftir var tekið. Hann starfaði lengstum sem húsasmíðameistari á Akranesi. Og á Akranesi era íjölmargar bygg- ingar sem hann hannaði og byggði. Hann stundaði fimleika á sínum yngri áram. Hestamennska átti hug hans allan og var hann meðal annars formaður hestamannafé- lagsins á Akranesi um nokkurt skeið. Hann var einnig virkur í Bridgefélagi Akraness. Mummi varð fyrir því áfalli að RA GNHEIÐ UR REYKDAL HJARTARDÓTTIR + Ragnheiður Reykdal Hjart- ardóttir fæddist í Fremri- Vífilsdal í Dölum 20. apríl 1918. Hún lést á Borgarspítalanum 18. mai síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Langholts- kirkju 24. maí. FYRIR nokkram dögum lék ég mér að hugmyndinni um það hveija ég ætlaði að heimsækja í sumar, þegar ég kem til Islands, en ég er búsett í Danmörku. Meðal þeirra fyrstu, sem komu upp í huga mér var gamla vinkona mín, Ragnheiður Hjartardóttir. Ekki hvarflaði að mér, að það yrði of seint - að skapa- dægur hennar væri svo nálægt. Þess vegna sendi ég þessa litlu kveðju til nánustu ættmenna henn- ar, sem hafa misst mikla stoð. Hún var systir mágkonu minnar, Erlu. Einnig kynntist ég systurinni Ásu. Ævinlega var ég velkomin á heim- ili þeirra systra og foreldra þeirra í Álfatröðum og á ég margar góðar minningar frá þeim ungu dögum. Þegar ég hugsa til baka til áranna 60 stendur Ragnheiður ljóslifandi fyrir hugskotssjónum mínum sem + Eiginkona mín, NANNA JÓNSDÓTTIR, Lyngholti, Stöðvarfirði, verður jarðsungin frá Stöðvarfjarðar- kirkju laugardaginn 27. maí kl. 16.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Reykjalund. Fyrir hönd aðstandenda. Þorsteinn Kristjánsson. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN GUÐNI GUÐJÓNSSON, Garðbraut 19, Garði, andaðist í Sjúkrahúsi Keflavíkur þann 23. maí. Jarðarförin fer fram frá Útskélakirkju laugardaginn 3. júní kl. 13.30. Guðlaug Sveinsdóttir, Sveinn Björnsson, Loftveig K. Sigurgeirsdóttir, Guðrún Erla Björnsdóttir, Júiius Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. slasast alvarlega á öðra auganu 1981 og olli það honum miklum erfíðleikum næstu árin. Aldrei heyrðum við hann kvarta enda var hann ekki einn af þeim sem bára tilfinningar sínar á torg. Á árinu 1990 virtist framtíðin blasa við þeim hjónum en þau höfðu þá fyr- ir nokkra fest kaup á notalegri íbúð við Sunnubraut. Á þessu sama ári kom stóra áfallið, sama dag og Mummi var að kynna sér nýjan starfsvettvang hjá slökkviliði Akraness. Hann fékk alvarlegt hjartaáfall þannig að um tíma var honum vart hugað líf og náði hann aldrei fullri heilsu eftir það. Það sannast að vegir Guðs era órannsakanlegir því í fyrra, 26. september 1994, missti Mummi Rósu úr krabbameini. Rósa hafði áður hjúkrað eiginmanni sínum eftir bestu getu. Það er svo nú tæpu ári eftir lát Rósu að Mummi fellur fyrir sama sjúkdómi. En nú þegar komið er að kveðju- stund munu minningarnar um góð- an frænda lifa áfram. Megi góður Guð styrkja ykkur systkinin, Oddu, Badda, Villa, Gurra og aðra ná- komna eftir þennan mikla missi. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvflast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. (Úr 23. Davíðssálmi) Ásthildur, Hjörtur og Margrét. ein sú hleypidómalausasta mann- eskja, sem ég hef kynnst á lífsleið- inni. Við leigðum okkur íbúð saman á Rauðarárstígnum og þar var oft glatt á hjalla. Við brölluðum margt saman. Eftir löglega mörg ár frá brottför okkar beggja úr þessu jarð- lífi, höfum við spennandi sögu að segja, sem ekki þolir dagsins ljós ennþá, því núlifandi fólk var með í spilinu. Við björguðum sálarheill manneskju, sem var í vanda. Óvinir hennar reyndu að bregða fyrir hana fæti, en við villtum þeim sýn, rétt eins og tröllin í fjöllunum. Eg mun sjá um, að þáttur Ragnheiðar í þeim sameiginlega hvítagaldri okkar komist á prent, þó síðar verði. Hann er nú þegar skráður í ævisögu minni, sem óútgefín vex og þrútnar eins og fífíll í túni. Þá mun mörgum verða Ijóst, að hún Ragna var eng- in mús, heldur mikill köttur, djörf, ráðsnjöll og gædd einstakri kímni- gáfu. Það var sem ékkert gæti rask- að ró hennar; þó var hún langt frá því að vera skaplaus. Hún hafði erft og lært ljúflyndi og jafnaðargeð foreldra sinna í Álfatröðum í Döl- um. Ekki minnist ég þess að hafa heyrt hana kvarta, enda þótt hún ynni löngum í þágu annarra og ekki alltaf fyrir háu kaupi. Hún var einstæð móðir Hjördísar, þar til hún hitti eiginmann sinn, Hannes Mar- teinsson. Þá skildu leiðir okkar, því íbúðin á Rauðarárstígnum var ekki nógu stór fyrir félagsbú giftra kvenna, sem eignuðust böm og bura. Ragnheiður og Hannes fluttu inn í Vpga og eignuðust soninn Kristin. Ég heimsótti þau oft og við áttum margar góðar stundir saman. Nú er hún Ragna mín ekki lengur í Strandaseli 5, þar sem hún bjó sín síðustu og bestu ár. Ég verð því að beina andlega loftnetinu í aðra átt og ég efast ekki um, að ef það er líf eftir dauðann, stillir hún inn á rétta bylgjulengd. Hún trúði mjög bjargfast á líf eftir dauð- ann og ef einhver á verðlaun skilin í næsta lífi fyrir góða hegðun hér á jörðu, þá er það hún Ragnheiður Hjartardóttir, sem ég hér með kveð með söknuði og þakklæti fyrir góðu, gömlu árin, sem við áttum saman. Inga Birna Jónsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.