Morgunblaðið - 25.05.1995, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 25.05.1995, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR I . M:" 1 1 Morgunblaðið/Þorkell „KARNAÐUR". Krossviður, járn. Af mararbotni MYNPLIST Listhúsið Fold SKÚLPTÚR Guðbjörg Hlíf Pálsdóttír. Opið frá 10-18 rúmhelga daga. Laugardaga 10-18, sunnudaga 14-18. Til 4. júní. STUNDUM hefur rýnirinn vakið athygli á því, að fyrstu sýningar myndlistarmanna séu á vissan hátt svo hnökralausar, að frekar mætti ætla að um gróna listamenn væri að ræða. Einfaldlega vegna þess, að það vantar einhver ungæðisleg slagsmál og baráttuhita í þau, að menn vinni út frá mottóinu að vogun vinnur og vogun tapar. Þá er eins og að þetta allt sé löngu að baki en gatan fram slétt og felld. Satt að segja læt ég slíkt fara dálítið í taugamar á mér, því ég skynja að hér er um að ræða eins konar „skólalist", að viðkomandi sitji fastir í ákveðnu afmörkuðu stíl- formi, sem þeir hafa tileinkað sér á skólaárum sfnum og mega sig hvergi hræra. í öllum tilvikum eru þetta áhrif einhvers staðar frá og síst skal það lastað, en farsælla hefur löngum talist að sanka að sér áhrifum úr öllum áttum og vinna svo úr þeim, og þá eru ýmsar slæmar byltur afs- akanlegar. Og það getur tekið suma áratugi að finna sitt sjálf, og minna má á að fæst heppnast í fyrstu til- raun. Það var svo ekki laust við að ég undraðist fáguð og slétt vinnubrögð- in á sýningu Guðbjargar Hlífar Páls- dóttur í listhúsinu Fold, og hefði meira en gjarnan viljað sjá hana sleppa lausu beislinu og grófkoma vinnubrögðin aðeins. Sem frumraun er sýningin athyglisverð og þá ekki síður fyrir þessi vinnubrögð sem ég er hér að deila svolítið á fyrir þá sök, að það er eins og sálin hafi orðið eftir, að hinar skynrænu gáfur og hugsæið séu enn í byijunarreit. Þetta, að gæða listaverk sál, er mesti vandinn og verður æ fátíðara í nútímalistum, væntanlega nefna menn það svo ekki framsækni. Óhætt er þó í sjálfu sér að gefa verkum eins og t.d. „Hvelja" (1), „Karnaður" (2) og „Styr“ (5) háar einkunnir. Einkum Kamaðinum fyrir vel úthugsað og lífrænt straumlínu- lagað formspil, þar sem nokkuð er dregið úr fáguðu ytra byrði trésins með stalli úr hráu smíðajárni. Auðséð er að Guðbjörg hefur leit- að 5 smiðju Brynhildar Þorgeirsdótt- ur o g formhugmyndir hennar tengd- um lífríki hafsins, en hún á sér fín- gerðari tón, sem hún má gjaman breikka til muna. Leitast við að fjar- lægjast handíðabraginn sem óneit- anlega er á sumum verka hennar, svo sem „Far“ (4) en þó einkum litlu lágmyndunum. Að sjálfsögðu eru hin fáguðu vinnubrögð mikill ávinningur og svo er bara að óska þess að listspíran auki við hugsæið og takist á við gáfur kenndanna. Bragi Ásgeirsson Fluxus MYNPOST Önnur hæð HUGMYNDAFLÆÐI FLUXUS Opið miðvikudaga frá 14-18 eða eftír samkomulagi. Maí, júní. Aðgangur ókeypis. ÞAÐ er ekki langt síðan haldin var viðamikil sýn- ing á verkum Fluxus-listamanna á Kjarvalsstöðum, sem er í samræmi við hina miklu markaðssetningu, sem verið hefur í heiminum á þessari listastefnu síð- ustu árin. Og nú eru menn enn á ferðinni og í þetta sinn í listhúsinu Önnur hæð á Laugaveg 37. Má segja að hér séu menn afskaplega vel með á nótunum. Hitt hefur svo síður komið fram, að nokkrar deilur hafa fylgt þessum ákafa talsmanna listastefnunnar, sem á sér hliðstæður í athafnalist og uppákomum. Einkum hafa þær verið svæsnar í Kaupmannahöfn, en þar lét nýr forstöðumaður Ríkislistasafnsins, Allis Helleland, sitt fyrsta verk vera að skila aftur varð- veislugjöf þýsks safnara, því hún taldi hlutverk þjóð- listasafns annað og meira en að taka við slíkum gjöf- um erlendis frá. Fór þá allt á háaloft og upphófust miklar ritdeilur, sem ekki sér enda á, og þegar síð- ast fréttist hafði hinn umdeildi ráðherra menningar- mála, Jytte Hilden, blandað sér í málið. Og hvort sem menn eru andstæðingar eða aðdáend- ur listastefnunnar, verða menn að viðurkenna, að sitthvað er skrítið við þessa miklu endurreisn, þó hún sé mjög í samræmi við annað á núlistamarkaði. Menn eru að róta í núliðinni fortíð, jafnvel á þann veg, að þeir endurgera gamla hluti, svipað og átti sér t.d. stað um hurðina hans Hreins Friðfinnssonar. Það sem fyrrum hafði yfir sér svip tímalegrar, úr sér genginnar fyllingar, er þannig orðið að nýsmíði og alveg í skjön við upprunalega hugsun og stefnu- mörk frumheijanna! Þeir áttu nefnilega til að vísa til fegurðarinnar að baki eyðileggingarinnar og að rusl og ódýrir hlutir byggju einnig yfir sjónrænni fegurð. Þetta hafði reyndar Markús Árelíus keisari í Róm bent á all- nokkru áður (!) og sömuleiðis töfra rotnunarinnar og myglunnar. Og hvað Fluxus áhrærir er ekki átt við neitt ákveð- ið og skilgreint listform, og því síður er mögulegt að vísa til afmarkaðs kjama og listhóps, einungis ýmsra áhrifavalda. Nafnið FIux bendir til opins flæði hugmynda og sækir uppruna sinn í tilrauna- og rann- sóknaskóla Johns Cage í New York seint á sjötta áratugnum. Um er að ræða marga laustengda hópa og meðal nafnkenndra í þeim má nefna einkavin HIN fræga ljósmynd af listhúseigandanum Ge- orge Maeiunas og félögum á fullu í Wiesbaden 1962. Fluxus-listamennirnir eru Emmett Will- iams, George Maciunas, Dick Higgins og Benj- amin Patterson. Errós til margra ára, Jean Jaques Lebel, og Robert Filliou í París, Wolf Vostell og Joseph Beuys í Dússeldorf, Allan Kaprow og Claes Oldenburg í New York og Murakami, Tanaka og Kanayama í Tokyo. Blómatími Fluxus-hreyfingarinnar telst ótvírætt sjötti áratugurinn, en á því tímabili frömdu menn ýmsa ögrandi gjörninga í öllum stærri borgum Evr- ópu, eyðilögðu t.d. hljóðfæri og aðra dýra hluti, kveiktu í og vísuðu á margan hátt til eyðingar og niðurbrots. Ymsir sem þar voru fremstir í flokki tóku seinna upp aðrar og sígildari aðferðir, en þetta tíma- bil hafði losað um nýjar og ferskar hugmyndir og það var höfuðtilgangurinn, en ekki varðveislugildið, sem þeir einmitt höfnuðu. Á seinni árum hafa menn eins og fyrr segir endur- reist þetta tímabil, einkum er það vinsælt í listaskól- um og meðal ungs fólks, sem skiljanlega er ekki inni í réttri atburðarás samtímalistar fyrir 1970. Sýningin í listhúsinu Önnur hæð er ágætt dæmi um það óhefta flæði hugmynda, sem er grunnur list- stefnunnar og hún er minni og aðgengilegri en sýn- ingin á Kjarvalsstöðum. Hið vistlega húsnæði gerir það að verkum að þessir velktu gripir eins og öðlast nýja sál. Þannig séð hefur hún margt að segja þeim sem uppnumdir eru af þessum geira samtímalistar, svo og þeim sem kynna vilja sér inntak listastefnunn- ar. Bragi Ásgeirsson NÝÚTSKRIFAÐIR nemendur Tónmenntaskólans. Karla- magnús í Reykjavík 43. STARFSÁRI Tónmenntaskóla Reykjavíkur er nú lokið. Alls voru tæplega 500 nemendur í skólan- um og 45 kennarar störfuðu við hann Úr almennum deildum og fram- haldsdeildum skólans útskrifuð- ust alls 36 nemendur. Af þeim fara 12 í framhaldsnám í Tónlist- arskólann í Reykjavík og nokkrir í aðra tónlistarskóla. Vetuiinn var viðburðarríkur og haldinn var fjöldi tónleika. Meðal annars var frumflutt verk sem Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld hafði samið fyrir skólann í sam- vinnu við nokkra nemendahópa að hluta. Heitir verkið Aachen- kappar og tengist lífi Karlamagn- úsar keisara. Verkið var flutt i íslensku óperunni 29. apríl sl. ÆVISÖGUR þekktra manna eru vinsælt lesefni í Banda- ríkjunum og þar eru gefin út ógrynnin öll af slíkum bókmenntum. Ekki er vitað hvað aðalsöguhetju einnar nýjustu ævisögunnar á mark- aðnum finnst um skrifin um sig en því verður ekki neitað að verkið er metnaðarfullt. Bók Jack Miles heitir „Guð - ævisaga“ og hefur fengið ágæta dóma í The New York Times Review ofBooks. Hun er 446 blaðsíður og kostar tæpa 30 dali. DOUGLAS Coupland, Bandarikjamaðurinn sem fyrstur skrifaði um X-kyn- slóðina svokölluðu, hefur fengið sig fullsaddan af fyr- irbrigðinu. Segist hann fá gæsahúð er hann heyri X- kynslóðina nefnda og kýs fremur að kalla hana „Kyn- slóðina-sem-ekki-vill-kallast- neitt“. Coupland, sem nú er 33 ára, hefur nú gefið út nýja bók sem nefnist „Lífið eftir Guð“ en þar fjallar hann um hvemig það er að fara halloka í lífinu. BANDARÍSKI rithöfundur- inn Norman Mailer, sem dvaldi m.a. i marga mánuði í Rússlandi til að safna efni í nýjustu bók sína er fjallar um Lee Harvey Oswald, hef- ur neyðst til að setja loka- punktinn við verkið mun fyrr en hann ætlaði. Útgefandi hans, Random House, hefur aðeins fallist á að að gefa út 828 síðna doðrant en Mail- er hugðist hafa bókina mun lengri. Lýkur sögu Oswalds, sem myrti John F. Kennedy Bandaríkjaforseta árið 1963 í Dallas, í þann mund er hann tekur í gikkinn. Síðasta bók Mailers, Harlot’s Ghost, var um 1.300 síður. Yarð einstaklingur- inn til á miðöldum? „HUGMYNDIR okkar um hvað það merkir að vera einstaklingur, hvort heldur sem siðgæðisvera, samfé- lagsvera eða sjálfsvera, eru afurð langrar og flókinnar sögulegrar þróunar, allt frá því á tímum Gamla testamentisins og Forn-Grikkja og fram til vorra daga,“ segir í frétt frá Háskóla íslands. Jafnframt segir: „Miðaldirnar, einkum 12. og 13. öldin, eru sérlega mikilvægt skeið í þessari þróunar- sögu, því þá mótast mörg þau fyrir- bæri sem munu hafa úrslitaáhrif á sjálfsskilning Vesturlandabúa, þar til á þessari öld: hið evrópska kon- ungsríki með sterku miðstýrðu valdi, borgin og markaðskerfið, trú- arleg viðhorf þar sem lögð er áhersla á sjálfsskoðun og sjálfsmat einstaklingsins, ásamt tilheyrandi fræðum um ólíkt eðli einstaklinga. Samfara þessu á sér stað mikil endurreisn andlegs lífs um gervalla Evrópu og - síðast en ekki síst - verða til bókmenntir á mörgum af helstu þjóðtungum álfunnar: frönsku, þýsku, spænsku og ... ís- lensku. Á undanförnum árum og áratugum hafa fræðimenn leitast við að skýra þessi menningarfyrir- bæri og hafa sumir haldið því fram að einstaklingurinn, eins og við skiljum hann T dag, hafi orðið til á 12. og 13. öld, og hafa orðið um þetta talsverðar umræður meðal sagnfræðinga, sem hafa hleypt nýju blóði í miðaldarannsóknir.“ Laugardaginn 27. maí nk. gefst íslenskum áhugamönnum um sagn- fræði og miðaldir tækifæri til að kynna sér þessa umræðu, því þá munu sagnfræðingarnir Jacques Le Goff frá Frakklandi og Sverre Bagge frá Noregi flytja opinbera fyrirlestra sem báðir fjalla um hug- myndir miðaldamanna um einstak- linginn; Le Goff út frá því hvemig þær birtast í ævisögum Frakklands- konunga á 13. öld og Bagge í kong- ungasögum sem samdar voru hér á landi á sama tíma. Fyrirlestur Le Goff nefnit Saint Louis entre le modéle et l’individu d’aprés les biographies et les chroniques du.XIIIe siécle (Heilagur Lúðvík sem einstaklingur og fyrir- mynd í meðförum ævisagnaritara 13. aldar). Hann verður haldinn á frönsku en íslenskri þýðingu verður dreift til þeirra áheyrenda sem þess óska. Fyrirlestur Sverre Bagge nefnist The Conception of Human Charact- er in the King’s Sagas og verður haldinn á ensku. Bagge hefur um nokkurra ára .skeið stýrt norsku rannsóknarverkefni um sögu ein- staklingshugmyndarinnar í evr- ópskri menningu og m.a. stuðst við íslenskar fomsögur, einkum kon- ungasögur. í fyrirlestri sínum mun hann fjalla um þær hugmyndir um manninn sem lesa má úr Heims- kringlu, Sverris sögu og Hákonar sögu. Fyrirlestramir eru öllum opnir og verða haldnir laugardaginn 27. maí í stofu 101 í Lögbergi og hefj- ast kl. 14. J : i. I í i I 1 I I L I I I L I I I I I i I \ I i I \ 1 I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.