Morgunblaðið - 25.05.1995, Page 49

Morgunblaðið - 25.05.1995, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995 49 GARÐYRKJU- FÉLAGIÐ 110 ÁRA GARÐYRKJUFÉLAG íslands á 110 ára afmæli 26. maí. Því verð- ur þetta blóm vikunnar helgað félaginu og starfsemi þess. Þegar Garðyrkjufélagið var stofnað, var Reykjavík í raun bara þorp og byggðin nær eingöngu bundin við Kvosina. Ræktun var mjög lítil og trú manna á möguleika til ræktunar á Islandi sömuleiðis, enda leið- beiningar og uppörv- un hvergi að fá. Það er tímanna tákn að það voru 18 „heldri borgarar" í Reykja- vík — engin kona — sem stofnuðu Garð: yrkjufélag íslands. I fylkingarbijósti voru Daninn Schierbeck, sem þá var land- læknir og Árni Thor- steinsson landfógeti. Schierbeck varð fyrsti formaðurinn. Hann var mjög merkur brautryðjandi, enda hafði hann starfað sem garðyrkju- maður á unga aldri. Á jörðinni Rauðará, sem hann keypti, var hann með mikla tilraunastarf- semi, einkum í matjurtarækt, en einnig í garði sínum á horni Aðal- strætis og Kirkjustrætis, þar sem áður var fyrsti kirkjugarður Reykjavíkur. Þarna prófaði Schi- erbeck mörg hundruð tegundir, bæði matjurtir, blómplöntur, tré og runna. Þessi garður gekk lengi undir nafninu Landlæknisgarður- inn, en eftir að styttan af Skúla fógeta var reist þar, hefur hann gjarnan verið kallaður Fógeta- garðurinn. Enn sjást þó handverk Schierbecks í garðinum, þar sem enn stendur glæstur silfurreynir, en gulvíðirinn, sem hann gróður- setti, má muna sinn fífil fegri. Bijóstmynd Schierbecks, sem Gísli Sigurbjörnsson gaf GÍ á 100 ára afmæli félagsins, er einnig í garðinum. félagsins hefur frá upphafi verið að fræða íslendinga um ræktun og efla trú á gróðurmátt landsins. Þannig hófst félagið strax handa um að gefa út upplýs- ingabæklinga og fræðslurit og útveg- aði félögum bæði fræ og verkfæri. Á þess- um 110 árum hafa áhersluatriðin í fé- lagsstarfinu verið breytileg, eins og eðli- legt er. Fyrst í stáð var mikil áhersla lögð á matjurtarækt, enda mikil þörf á að auka fjölbreytni í mataræði landsmanna. Á tímabili var mikið flallað um ylrækt, en síðan stofn- uðu garðyrkjumenn eigið fagfé- lag. Síðustu áratugi hefur mest verið fjallað um skrúðgarðyrkju á vegum félagsins, ræktun blóma, runna og tijáa, þótt matjurta- og ylræktin hafi alls ekki gleymst. Árgjaldi er ætíð mjög stillt I hóf, það er 1.800 kr. fyrir árið 1995. Innifalið í árgjaldinu er Garð- yrkjuritið, um 200 síðna ársrit, sem kemur út um mánaðamótin maí-júní. Þar birtast fjölmargar greinar um hin ýmsu svið garð- yrkjunnar. Fréttabréf kemur út 5-8 sinnum á ári með árstíða- bundnar fréttir. Félagar fá pönt- unarlista með ódýrum vor- og haustlaukum. Þar eru oft tegund- ir, sem ekki hafa sést í verslunum. Eins fá félagar frælista með 800- 1.000 tegundum. Ýmsar verslanir veita góðan staðgreiðsluafslátt gegn framvísun félagsskírteinis. í Reykjavík eru haldnir 4-5 fræðslufundir á vetri. Skoðunar- ferðir innanlands og utan eru mjög vinsælar, en alls hafa fjórar utanlandsferðir verið farnar. Há- punktur sumarstarfsins er garða- skoðun á höfuðborgarsvæðinu. Á skrifstofu félagsins er gott bóka- safn. 110 ára afmælis félagsins er minnst með útgáfu bókarinnar Garðurinn — Hugmynd að skipu- lagi og efnisvali. Höfundar eru Anna Fjóla Gísladóttir ljósmynd- ari og landslagsarkitektarnir Áuð- ur Sveinsdóttir og Fríða Björg Eðvarðsdóttir, en Gísli B. Björns- son annaðist útlitshönnun bókar- innar. Þetta er fyrsta íslenska bókin sem fjallar fyrst og fremst um hönnun garðsins og fjölbreytni í skipulagi og efnisvali, en segja má að um gróðurinn sé meira rætt sem nokkurs konar bygging- arefni. Bókin er mjög vegleg. í henni eru 340 litmyndir úr ís- lenskum görðum, allmargar ljós- myndir í svart/hvítu og um 80 skýringarteikningar. í henni er m.a. að finna ýmsar hugmyndir að skipulagi garða við ólíkar að- stæður og skipulagsuppdrætti eft- ir um 20 íslenska landslagsarki- tekta. Að baki bókar sem þessar- ar liggur margra ára vinna, bæði við öflun fróðleiks og reynslu og söfnun ljósmynda, en það er ómet- anlegt áhugafólki að sjá hvað unnt er að gera við íslenskar að- stæður. Bókin skiptist í 17 kafla og fjölmarga undirkafla sem spanna mjög breytt svið. Þar má nefna sögu garðsins, helstu ákvæði skipulagslaga, garðstíl, garðhönnun, hæðamun, girðingar og skjólveggi, tjamir, potta og gosbrunna, leiktæki, lýsingu, gamla garða o.m.fl. I bókinni haldast í hendur góð efnistök og frábærar myndir. Hún er ómetanlegur hugmyndabanki, sem hægt er að leita til aftur og aftur. Bókin höfðar til allra sem hafa gaman af ræktun, eigenda gamalla, nýrra eða óhannaðra garða, eigenda svala sem sumar- bústaða, líka til þeirra sem hafa eingöngu gaman af að skoða fal- legar myndir. Skrifstofa félagsins er á Frakkastíg 9. Hún er opin mánu- daga og fimmtudaga frá 2-6 og á fimmtudagskvöldum, en svarað er i síma flesta daga utan opnun- artíma. S. Hj. BLOM VIKUNNAR 307. þáttur Urasjón Ágústa Björnsdóttir R AD AUGL YSINGAR Til leigu í verslunarmið- stöðinni Garðabæ Húsnæði á 2. hæð, 800 fm, fyrir ofan Garða- kaup. Góð lofthæð. Tilvalið fyrir félagasam- tök „gallerí", líkamsræktarstöð, danskennslu eða skylda starfsemi. Einnig húsnæði á jarðhæð, ca 400 fm, fyrir kjötvinnslu með kælum, frystum og 250 fm lagerrými, ásamt starfsmannaaðstöðu og skrif- stofum. Góð aðkoma, stórar innkeyrsludyr. Upplýsingar í síma 553-9373, Karl, í dag og næstu daga. Húsbyggjendur - Gler Er heitt inni í sterku sólskini? Höfum rétta glerið til að verjast ofhitun, tært gler með góðri hitavörn. Tæknisalan, sími 565 6900, Kirkjulundi 13, v/Vífilsstaðaveg, Garðabæ. Spennandi sérverslun Til sölu sérverslun vel staðsett í eigin hús- næði. Að miklum hluta selur verslunin eigin framleiðslu. Til greina kemur að selja rekstur og leigja húsnæði. Nánari upplýsingar ekki gefnar í síma. Fasteignamiðlun, Suðurlandsbraut 12. fjölbrautaskóunn BREIÐH0LTI Upprifjun fyrir sveinspróf Námskeið til undirbúnings sveinsprófs í húsasmíði verður haldið í Fjölbrautaskólan- um Breiðholti í maí og júní. Námskeiðið hefst mánudaginn 29. maí kl. 18. Innritað er á skrifstofutíma í síma 557 5600. Tréiðnadeild FB. Langholtskirkja Aðalsafnaðarfundur Langholtskirkju verður haldinn þriðjudaginn 30. maí kl. 20.00 í safn- aðarheimilinu. Venjuleg aðalfundarstörf. Sóknarnefndin. Aðalfundur Aðalfundur í Landeigendafélagi Sléttu- og Grunnavíkurhrepps verður haldinn laugard. 27. maí nk. kl. 13.30 í Félagsheimili Seltjarnarness. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar 2. Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar 3. Stjórnarkjör 4. Kjör tveggja endurskoðenda og tveggja til vara 5. Ákvörðun um árgjöld 5. Skipulagsmál Sléttu-, Grunnavíkur- og Snæfjallahrepps. 7. Framtíðarstjórnun Sléttuhrepps 8. Önnur mál Við vonum að sem flestir félagsmenn mæti á aðalfundinn og hvetji rétthafa (jarða, lóða eða húsa) til þess að gerast félagsmenn. Stjórnin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.