Morgunblaðið - 25.05.1995, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 25.05.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995 21 Bandarískir repúblíkanar undirbúa forsetakosningar Frambjóðendur kveðast allir vera menn Nixons Washington. The Daily Telegraph. BARÁTTAN fyrir að hljóta útnefningu Repú- blíkanaflokksins fyrir forsetakosningamar í Bandaríkjunum á næsta ári þykir hafa tekið á sig æði sérkennilega mynd. Frambjóðendumir flestir leggja á áherslu á að þeir myndu njóta stuðnings látins forseta væri hann enn á meðal vor. Stuðn- ingur Richards Nixons, sem lést í fyrra, þykir þurfa að koma til ætli frambjóðandi sér að eiga raunverulega möguleika á að tak- ast á við Bill Clinton forseta næsta haust. Nú þegar er tekið að bera á barmmerkjum í Washington, höf- uðborg Bandaríkjanna, með svo- hljóðandi áletmn: „Dauðinn er engin afsökun - kjósum Nixon 1996“, Þetta þykir þeim mun merkilegra þar sem rúmt ár er liðið frá því Nixon safnaðist til feðra sinna og 21 ár er liðið var því hann var hrakinn frá völdum eftir að hafa orðið uppvís að lyg- um í tengslum við Watergate-mál- ið svonefnda. Syrgður sem stórmenni Nixon hlaut uppreisn æm á síðari ámm ævi sinnar og sú upp- Richard Bob Nixon. Dole. reisn var í raun fullkomnuð er bandarískir stjórnmálaleiðtogar komu saman til að minnast hans sem stórmennis er hann lést. Eft- irmenn Nixons, þ. á. m. Clinton, leituðu ráða hjá honum og þá ekki eingöngu á vettvangi utan- ríkismála en á því sviði þótti hann hafa sérgáfu. Nú lýsir. Bob Dole, leiðtogi flokksins í öldungadeildinni og trúlega sigurstranglegasti fram- bjóðandi repúblíkana, yfir því að hann sé maður Nixons. Þetta gerðist eftir að einkabréfum sem Nixons skrifaði Dole í gegnum árin var „lekið“ með „dularfullum hætti“ í dagblaðið Los Angeles Times á dögunum. í þessum bréfum Nixons kemur fram að hann sé þeirrar hyggju að Dole sé í senn „maður hug- rakkur, skarpur og hjartahlýr." Hann lætur þess einnig getið að Dole geti auðveldlega unnið þótt hann verði orðinn 71 árs er hann býður sig fram til forseta. „Stelpurnar sem vinna hjá mér sögðu allar að þú litir út fyrir að vera 15 árum yngri.“ Óttast Pete Wilson Þótt í bréfum þessum megi finna athugasemdir um Clinton- hjónin og spá þess efnis að banda- ríska þjóðin muni fá sig fullsadda af þeim var tilgangurinn með birt- ingu bréfanna annar en sá að koma höggi á núverandi íbúa Hvíta hússins. Skotmarkið er sýnilega Pete Wilson, ríkisstjóri Kaliforniu, sem hefur verulegan áhuga á að verða næsti forseti Bandaríkjanna. í herbúðum Dole líta menn svo á að Wilson sé erfið- asti andstæðingurinn. Hann er sum sé ríkisstjóri Kalifomíu en þar fæddist Richard Nixon og þar var hann jarðsettur fyrir rúmu ári. Höfðu sérfróðir raunar talið að Nixon vildi að Wilson yrði frambjóðandi flokksins í kosning- unum á næsta ári. Þeir Dole og Wilson héldu báð- ir ræðu í útför Nixons og sá fyrr- nefndi grét eins og barn er hann lýsti yfír því að seinni helmingur 20. aldarinnar yrði nefndur „Nix- on-tímabilið“. Þriðji frambjóðandinn, hinn málglaði Patrick Buchanan, hef- ur einnig haldið því fram að hann sé „maður Nixons.“ Buchanan sem talinn er til erkiíhalds í bandarískum stjórnmálum, starf- aði fyrir Nixon er hann var for- seti. Slægðin fer ekki dult Fengur þykir að bréfunum til Dole og þau þykja lýsa ágætlega hvers vegna Nixon hafði slíkt tangarhald á Repúblíkanaflokkn- um og hversu slægur stjómmála- maður hann var. í einu þeirra ráðleggur hann Dole að staðsetja sig í byijun kosningabaráttunnar lengst til hægri til að vinna á sitt band þá íhaldssömu, virku flokks- menn sem velja frambjóðandann. Þá, og þá fyrst, er óhætt að breyta um ímynd; „þá er hyggilegt að hlaupa eins hratt og fætur toga inn á miðjuna vegna þess að ein- ungis 4% kjósenda tilheyra þeim armi Repúblíkanaflokksins sem er lengst til hægri.“ Nixon virðist hafa hlotið fulla uppreisn æm. Eignarhald fjölmiðla Nýjar regl- ur byggjast á markaðs- hlutfalli London. Reuter. BRESKA stjórnin greindi frá því á þriðjudag að hún hygðist breyta regl- um sem takmarka eignarhald á fjöl- miðlum. Verður hið nýja kerfi byggt á markaðshiutfalli fjölmiðla. Stephen Dorell, sem fer með mál- efni fjölmiðla í stjórninni, sagði að hann hygðist leggja fram frumvarp er myndi heimila eigendum dag- blaða, með allt að 20% markaðshlut- fall, að kaupa allt að tvær sjónvarps- stöðvar er hefðu samtals í hæsta lagi 15% markaðshlutfall. Kaup- sýslumaður er réði yfir allt að 15% af sjónvarpsmarkaðnum mætti að sama skapi ekki eignast meira en 20% af dagblaðamarkaðnum. Þá yrði óháðu sjónvarpsnefndinni (ITC), sem útdeilir sjónvarpsleyfum, veittur réttur til að stöðva innbyrðis kaup fjölmiðlafyrirtækja ef hún teldi einhver tiltekin viðskipti stríða gegn almannahagsmunum. Eru þetta nokkuð strangari reglur en búist hafði verið við en samkvæmt núgildandi reglum er eigendum dag- blaðs einungis heimilt að eiga 20% hluti í sjónvarpsstöð og öfugt óháð markaðshlutdeild. Embættismenn sögðu að fyrirtæk- in Mirror Group og News Intemat- ional, fjölmiðlafyrirtæki Ruperts Murdochs, réðu yfir meira en 20% dagblaðamarkaðarins og að sam- kvæmt nýju reglunum mættu þau því ekki eiga meira en 20% hlut í einni sjónvarpsstöð. Reglurnar ná ekki til gervihnattastöðva. Reuter Deilt um bílbelti í rútum HÖRMULEGT rútuslys skammt frá Bristol í Suðvestur-Englandi í fyrradag, þar sem 10 aldraðir Bretar biðu bana, hefur orðið til þess að blása lífi í umræðuna um bílbelti í rútum. Breskur þingmað- ur á Evrópusambandsþinginu, Anne Maclntosh, sagði í gær, að þó svo ekki væri hægt að stað- hæfa, að bilbelti hefðu getað kom- ið í veg fyrir dauðsföll, væri skyn- samlegt að leiða notkun bílbelta í langferðabílum og smárútum í lög. Til stæði að samþykkja lög þar að lútandi á þessu ári, en fram væru komnar athugasemdir og breyt- ingatillögur frá hagsmunaaðilum í bílaiðnaði. Næðu þær fram að ganga fengju rútuverksmiðjur margra ára aðlögunartíma til þess að setja bílbelti i hvert farþega- sæti. Myndin var tekin er fórnar- lamba rútuslyssins var minnst í Christchurch í Englandi í gær. Eiturgashemaður í seinni heimsstyijöld Nýjar heimildir um framferði Japana Tókýó. Reuter. ÞEKKTUR, japanskur sagnfræðing- ur, Keiichi Tsuneishi, við Kanagawa- háskóla hefur komist yfir skjöl sem hann segir sýna að japanski herinn hafi framleitt meira en fimm milljón sprengjur með eiturgasi í heimsstyij- öldinni síðari. Skjölin, sem hann fékk hjá fyrrverandi liðsforingja, geta einn- ig komið að gagni við að finna og eyða gassprengjubirgðum sem Japan- ar skildu eftir í Kína að loknu stríðinu. Japanar undirrituðu nýlega al- þjóðasamning um bann við efna- og sýklavopnum og samkvæmt ákvæð- um hans ber þeim skylda til að eyða birgðunum sem eru í Jilin-héraði. Viðræður eru hafnar milli stjómvalda í Tókýó og Peking um málið. Hvergi er minnst á gasframleiðsl- una í opinberri heimsstyijaldarsögu vamarmálaráðuneytisins í Tókýó, eina heimildin er stutt skýrsla í bandarískum skjölum, að sögn Tsu- neishis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.