Morgunblaðið - 25.05.1995, Síða 10
HELSTU sýningargripirnir á sýningu Toyota verða
Celica GT-Four sportbíllinn og RAV4 5 dyra.
Afmælissýning
hjá Toyota
30 ÁR eru liðin síðan fyrstu Toy-
ota bílamir komu til landsins og
af þessu tilefni efnir Toyota til
afmælissýningar þar sem kynntir
verða og sýndir í fyrsta sinn á Is-
landi nýi 5 dyra RAV4 jeppinn og
einn sigursælasti sportbíll verald-
ar, Celica GT-Four.
Celica GT-Four er sá bíll sem
rallílið Toyota keppir á í heims-
meistarakeppninni, en í fyrra vann
liðið báða heimsmeistaratitlana
annað árið í röð. P. Samúelsson
flutti inn fjóra bíla af þessari gerð
í tengslum við afmælishátíðina og
eru þeir allir seldir utan einn. Bíll-
inn kostar 3.950.000 kr. RAV4 5
dyra kostar 2.389.000 kr.
Margt annað verður í boði á
sýningunni, m.a. verða Corolla og
Hilux boðnir með veglegum af-
mælisafslætti, sýningargestir sem
reynsluaka RAV4 hafna í lukku-
potti_ og geta unnið ævintýraferð
um ísland.
Sýningarsalirnir Nýbýlavegi
verða opnir laugardag íd. 12-17
og sunnudag kl. 13-17.
Viðbrögð almennings
berast Skipulaginu seint
HJÁ Skipulagi ríkisins er unnið að
mati á umhverfisáhrifum stærri
framkvæmda um allt land og fer það
fram áður en til framkvæmda kem-
ur. Að sögn Halldóru Hreggviðsdótt-
ur, sviðsstjóra matssviðs, er sam-
vinna við framkvæmdaaðila góð en
nokkuð skortir á að viðbrögð al-
mennings við framkvæmdunum ber-
ist í tæka tíð.
Leitað eftir umsögn
„Mat á umhverfísáhrifum felst í
kynningu á þeim framkvæmdum
sem fyrir dyrum standa áður en
hafist er handa,“ sagði Halldóra.
Rúmt ár er síðan lög um mat á
umhverfisáhrifum voru sett og fer
matið þannig fram að framkvæmda-
raðili eða ráðgjafi á hans vegum
vinnur matsskýrslu, þar sem fram-
kvæmdum er lýst og hugsanlegum
áhrifum sem þær hafa á umhverfið.
Matsskýrslan er lögð fram til athug-
unar hjá Skipulagi ríkisins og er þá
jafnframt leitað eftir umsögn þeirra
aðila sem við á' í hvert sinn.
Aðgengileg almenningi
„Matsskýrslan verður að vera að-
gengileg almenningi," sagði Hall-
dóra. „Henni fylgir yfirlit ásamt
myndum og útdrætti og þegar
skýrslugerð líkur hefur verið reynt
að íjalla um flest þau atriði sem
gætu komið upp. Þá er framkvæmd-
in auglýst í dagblöðum, héraðstíma-
ritum og þá jafnvel í sjónvarpsvísi á
hverjum stað og þannig reynt að
kalla fram viðbrögð almennings. Það
er á þessum tímapunkti sem almenn-
FORSÝNING Á MORGUN FÖSTUDAG
WERE
EITT SINN STRIÐSMENN
STERK!
RÍFANDI!
SLAAEMDI
MAGNÞRUNGIN!
MISKUNNARLAUS!
DGLEYMANLEG
SÝND FÖSTUDAG KL. 9. B.i. 16 ára
ALMENN kynning vegna umhverfismats á breikkun Vestur-
landsvegar og Miklubrautar ásamt byggingu brúar yfir Elliðaár
verður í sýningarsal Ingvars Helgasonar, næstkomandi laugar-
dag. Það eru verkfræðingarnir Sigurður Ragnarsson, Línuhönn-
un, Ólafur Stefánsson frá gatnamálastjóra og Magnús Einarsson
frá Vegagerð rikisins, sem ásamt starfsfólki Matssviðs hjá Skipu-
lagi rikisins þeim Halldóru Hreggviðsdóttur, sviðsstjóra mats-
sviðs, Þóroddi F. Þóroddssyni jarðfræðingi og Ásdísi Hlökk
Theódórsdóttur skipulagsfræðingi, sem sjá um umhverfismat
vegna framkvæmdanna.
ingur fær tækifæri til að láta skoðun
sína í ljós og getur þá um leið haft
áhrif á fyrirhugaða framkvæmd.“
Ný og betri yfirsýn
Auk auglýsinga í blöðum er hægt
að kynna sér matsskýrsluna hjá yfir-
völdum á viðkomandi stöðum, hjá
Skipulagi ríkisins auk annarra að-
gengilegra staða fyrir almenning.
Einnig er hægt að hafa sambandi
við Skipulag ríkisins sem sendir þá
ljósrit af útdrætti úr skýrslunni. Áð
sjö viknum liðnum frá því tilkynning
um famkvæmd hefur borist skipu-
laginu ásamt matsskýrslum, rennur
fresturinn út sem almenningur og
aðrir hafa tií að skila inn athuga-
semdum.
„Við förum síðan yfir þessar um-
sagnir og samræmum og leggjum
niðurstöðuna fyrir skipulagsstjóra
ríkisins til úrskurðar," sagði Hall-
dóra. „Reynslan hefur sýnt að matið
gefur nýja og betri yfirsýn yfir fram-
kvæmdina og lækkar jafnvel kostn-
aðinn. Um leið skipuleggja menn
verkið betur sem einnig hefur sparn-
að í för með sér fyrir framkvæmdar-
aðila.“
Lögum samkvæmt eru matsskyld-
ar framkvæmdir; vatnsorkuvirkjanir
og vatnsmiðlanir, jarðvarmavirkjan-
ir, lagning háspennulínu, efnistaka
á landi, þjónustumiðstöðvar fyrir
ferðamenn, förgunarstaðir fyrir eitr-
aðan og hættulegan úrgang ásamt
sorpeyðingarstöðvum, verksmiðjur
þar sem unnið er steypujárn, stál
og ál, efnaverksmiðjur, lagning
nýrra vega, járnbrauta og flugvalla
og loks stærri hafnir.
Nýir formenn þing-
nefnda á Alþingi
NEFNDIR Alþingis hafa lokið við
að skipta með sér verkum. Sólveig
Pétursdóttir, Sjálfstæðisflokki, hef-
ur verið kosin formaður allsheijar-
nefndar og Valgerður Sverrisdóttir,
Framsóknarflokki, varaformaður.
Vilhjálmur Egilsson, Sjálfstæðis-
flokki, var kosinn formaður efna-
hags- og viðskiptanefndar og Ágúst
Einarsson, Þjóðvaka, var kosinn
varaformaður.
Kristín Ástgeirsdóttir, Kvenna-
lista, var kjörin formaður félags-
málanefndar og Siv Friðleifsdóttir,
Framsóknarflokki, var kjörin vara-
formaður nefndarinnar. Stefán
Guðmundsson, Framsóknarflokki,
var kjörinn formaður iðnaðarnefnd-
ar og Guðjón Guðmundsson, Sjálf-
stæðisflokki, var kosinn varafor-
maður. Guðni Ágústsson, Fram-
sóknarflokki, er nýr formaður land-
búnaðamefndar, en Egill Jónsson,
Sjálfstæðisflokki, verður varafor-
maður nefndarinnar. Sigríður Anna
Þórðardóttir, Sjálfstæðisflokki, var
kosin formaður menntamálanefnd-
ar og Hjálmar Ámason, Framsókn-
arflokki, varaformaður. Formaður
sjávarútvegsnefndar var kjörinn
Steingrímur J. Sigfússon, Alþýðu-
bandalagi og Ámi Ragnar Ámason
er varaformaður nefndarinnar. Þá
var Ólafur Örn Haraldsson, Fram-
sóknarflokki, kosinn formaður um-
hverfisnefndar og Gísli S. Einars-
son, Alþýðuflokki, var kosinn vara-
formaður.
Andlát
KRISTIN GUÐBJÖRG
M AGNÚ SDÓTTIR
ísafirði. Morgunblaðið
ELSTI borgari ísa-
fj arðarkaupstaðar,
Kristín Guðbjörg
Magnúsdóttir frá
Efri-Engidal, lést á
Fjórðungssjúkrahús-
inu á Isafirði föstu-
daginn 19. maí síðast-
liðinn.
Kristín Guðbjörg
var fædd 5. nóvember
1892 og var því á
103. aldursári þegar
hún lést. Kristín Guð-
björg bjó að Efri-
Engidal þar til í árs-
byijun 1990, en síðan
þá hefur hún dvalist á
Fjórðungssjúkrahús-
inu á ísafirði. Kristínu
Guðbjörgu Magnús-
dóttur varð sex barna
auðið og eru þau öll á
lífi.
10 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Mat á umhverfisáhrifum vegna framkvæmda