Morgunblaðið - 25.05.1995, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Utgerðarfélag Ak-
ureyringa 50 ára
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyrar
fagnar hálfrar aldar afmæli sínu
á morgun, föstudaginn 26. maí.
Af því tilefni verður efnt til hátíð-
ardagskrár í frystihúsi félagsins.
Jón Hjaltason sagnfræðingur
hefur ritað sögu Útgerðarfélags
Akureyringa og kemur bókin sem
ber nafnið „Steinn undir framtíð-
arhöll" út á afmælisdaginn. Jón
kynnir sögu ÚA frá 1945-1995 í
afmælishófinu.
Meðal dagskráratriða má nefna
að verður leikin tónlist, verðlaun
verða afhent í afmælisgetraun ÚA
sem efnt var til fyrr á árinu, Út-
gerðarfélaginu verða afhent
gæðaverðlaun Coldwater, dóttur-
fyrirtækisis Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna og loks mun félagið
veita styrki til menningarmála.
1200 manna veisla
Tímamótanna verður einnig
minnst síðar eða þann 9. júní
næstkomandi með veglegri veislu
í íþróttahöllinni á Akureyri. Sá
dagur er valinn til að allt starfs-
fólk ÚA eigi kost á að taka þátt
í 50 ára afmæli félagins, en þá
var gert ráð fyrir að skipin væru
kominn inn vegna sjómannadags-
ins. Búist er við að um 1.200
manns, starfsfólk félagsins, makar
og gestir taka þátt í veislunni.
DALVÍ KURSKD Ll
Kennarar
Lausar eru kennarastöður við Dalvíkurskóla.
Kennslugreinar: Enska, danska, samfélagsfræði og
myndmennt.
Upplýsingar gefa:
Skólastjóri, símar 96-61380 og 96-61162.
Aðstoðarskólastjóri, símar 96-61381 og 61812.
Glæsileg raðhús
á Akureyri
Trésmíðaverkstæði Sveins Heiðars hf. er með í byggingu 16 raðhúsa-
íbúðir við Huldugil í Giljahverfi á Akureyri, en það hverfi er verið að byggja
upp. í næsta nágrenni verða verslanir, grunnskóli og leikskóli.
íbúðirnar eru seldar allt frá pví að vera tilbúnar undir málningu og upp í það
að vera fullbúnar. Stærð íbúða er frá 123 til 140 fm fyrir utan bílskúr en
áföst bifreiðageymsla fylgir hverri íbúð. Auk þess er um 20 fm herbergi yfir
bílskúr. Hægt er að gera ýmsar breytingar á innra skipulagi íbúða, s.s.
stærð herbergja, í samráði við seljanda, sem hefur lítinn eða engan
kostnaðarauka í för með sér.
íbúðimar eru afhentar eftir óskum hvers og eins allt
frá nokkrum vikum upp í Vh ár.
Hafið samband og við sýnum ykkur íbúðirnar.
Trygg'ð ykkur vandaða eign á góðu verði.
§r
Trésmíðaverkstæði
Sveins Heiðars hf.
Skipagötu 16, 600 Akureyri.
Símar 96-12366 og 985-27066. Fax 96-12368
Skrifstofan er opin frá kl. 14-17, mánudaga - föstudaga
Sveinn Heiðar Jónsson, framkvæmdastjóri, Bæjarsíðu 5,603 Akureyri sími 96-21589
Grímseyingar síga þó enn sé mikill snjór í björgnnum
Fullt af fugli og „hús-
næðisskortur“ í bjarginu
Grímsey. Morgunblaðið.
ÞESSA dagana eru Grímseyingar
margir hveijir að sinna sínum ár-
legu vorverkum, það er að síga
eftir eggjum. Vegna þess hve
snjóa hefur leyst hægt og seint
voru bakkarnir blautir og hálir og
ekki hægt að fara á bjarg þótt
vitað væri að svartfuglinn væri
farinn að verpa.
Alhvít jörð í austanhríð
Þann 20. maí síðastlinn gerði
svo austanhríð svo jörð varð al-
hvít en sá snjór hvarf því betur
fljótt. Þann 21. maí dreif sig á
bjarg Bjarni Magnússon ásamt
tveimur öðrum og var þá ljóst að
það var fullorpið. Menn hafa því
sigið núna eftir því sem þeir hafa
getað og hreinsað sátrin til að
geta síðan sigið eftir nýjum eggj-
um, þó til sé fólk sem fúlsar ekki
við unguðum eggjum.
Þrátt fyrir að tíðarfar hafi verið
leiðinlegt hófst varpið ekki seinna
en venjulega og er til dæmis skegl-
an (rytan) að byrja að verpa núna
sem^ er alls ekki seinna en vant
er. Á mánudag var sigið í þrjú eða
fjögur björg og þar á meðal i Borg-
arbjarg. Það voru Haraldur Jó-
hannsson og synir hans þrír, Guð-
mundur, Haraldur og Erlendur.
Sagði Haraldur að ekki hefði verið
hægt að fara fyrr, björgin hefðu
verið of blaut fram að þessu. Áður
fyrr þegar eggjataka var Grímsey-
ingum mikilvægari var farið upp
á bjarg áður en byrjað var að síga,
bakkarnir hreinsaðir og hrint fram
af því sem hætta var talin af.
Lautin full af snjó
Svo háttar til á þeim stað sem
Haraldur sígur hvað mest, að
nokkra metra frá brúninni er lítil
laut þar sem setið er þegar hvílt
er og etið nestið. Nú vill svo til
að lautin er fuil af snjó og sagðist
hefst klukkustund fyrr og skömmu
síðar upphitun.
Á Olafsfirði er hlaupið frá
íþróttahúsinu og hefst innritun kl.
11.00, klukkustund áður en hlaup-
ið er ræst og þar er einnig boðið
upg á upphitun nokkru fyrir hlaup.
Á Grenivík er byijað á kaupfé-
lagsplaninu, innritun hefst kl.
12.00 en hlaupið þar er ræst kl.
13.00.
Allur ferðamáti er leyfilegur,
hlaup, ganga, hjólreiðar, línu-
skautar, hjólabretti eða hvað það
sem ímyndunaraflið býður.
HANDVERKSDAGUR verður í
Deiglunni í Grófargili næstkom-
andi laugardag, 27. maí.
Dagskráin hefst kl. 10.30 með
fyrirlestri Elsu E. Guðjónsdóttur
um íslenska búninga. í framhaldi
af því verður farið á Minjasafnið á
Akureyri þar sem sýndir verða ís-
lenskir búningar í eigu safnsins og
verðlaunagripir úr samkeppni
Handverks-reynsluverkefnis.
Eftir hádegi verða fluttir tveir
fyrirlestrar, Guðrún Gunnarsdóttir
talar um list og listhönnun og
Áslaug Sverrisdóttir um jurtalitun.
Síðast á dagskránni eru pallborðs-
umræður um samstarf lista og
handverks sem Arnar Páll Hauks-
son stjómar.
Galleríin í Gilinu verða opin.
Café Karðlína verður með tilboð á
léttum hádegisverði og kaffí. Nán-
ari upplýsingar og skráning hjá
Gilfélaginu.
Handverksdag-
ur í Deiglunni
Kolbrún
Kjarval í
Gallerí
AllraHanda
KOLBRÚN Kjarval leirlistakona
opnar sýningu á verkum sínum í
Gallerí AllraHanda í Grófargili,
Kaupvangsstræti á Akureyri á
laugardag, 27. maí.
Kolbrún stundaði m.a. nám á
verkstæði í Kaupmannahöfn, var
við teikninám í Oxford í Englandi
og við nám í leirkerasmíði í Edin-
borg og þá stundaði hún nám við
Konunglegu postulínsverksmiðj-
una í Kaupmannahöfn árin 1969-
1971.
Kolbrún hefur haldið einkasýn-
ingar m.a. ‘í Reykjavík og Kaup-
mannahöfn og tekið þátt í fjölda
samsýninga heima og erlendis.
Sýningin í Gallerí AllraHanda
stendur yfir frá 27. maí til 12.
júní næstkomandi. Allir eru vel-
komnir að vera viðstaddir opnun
sýningarinnar.
Fræðslufundur
SAMHJÁLP kvenna, félags-
skapur kvenna sem fengið hafa
krabbamein í bijóst, heldur
fræðslufund í húsnæði Krabba-
meinsfélags Akureyrar og ná-
grennis, Glerárgötu 24, kl. 14.00
á laugardag, 27. maí.
Björg Bjamadóttir sálfræðingur
fjallar þar um upplifun kvenna
vegna aðgerðar á bijóstum.
Heilsuhlaup
Krabbameins-
félagsins
HEILSUHLAUP Krabbameinsfé-
lagsins verður haldið á Akureyri,
Dalvík, Ólafsfirði og Grenivík á
laugardaginn, 27. maí.
Á Akureyri byijar innritun við
Dynheima kl. 10.30 og leikur
Lúðrasveit Akureyrar þar undir
stjórn Atla Guðlaugssonar, en
klukkustund síðar hefst upphitun
sem kennarar í Stúdíó Púls
stjórna. Hlaupið er ræst kl. 12.00.
Á Dalvík hefst hlaupið einnig
kl. 12.00 við sundlaugina, innritun
íbúð á Akureyri til sölu
Til sölu á Brekkunni (Ásvegur 17) 5 herbergja neöri hæö i
tvíbýlishúsi um 170 fm. Stutt í sundíaug, skólana og
bæinn. Mikið endurnýjuð. Nýjar innréttingar og tæki.
íbúðin verður laus frá 1. ágúst. Bein sala.
Upplýsingar í síma 96-26428 eftir kl. 18.00.
Morgunblaðið/Hólmfríður
FEÐGARNIR, frá vinstri: Guðmundur, Haraldur Arni, Haraldur
Jóhannsson og Erlendur.
Haraldur ekki muna eftir að svo
hafi verið fyrr, en hann hefur sig-
ið þarna í fjöldamörg vor. Hann
sagði gríðarlega mikið af fugli og
engu líkara en það væri „hús-
næðisskortur“ og ekki veitti af að
fara að veiða eitthvað af þessum
fugli.
Þeir feðgar tóku 1.400 egg
þennan dag og eiga eftir að fara
aftur, en þeir taka að jafnaði nokk-
ur þúsund egg hvert vor. Eggin
þykja ómissandi á borðum fjöl-
skyldunnar eins og Grímseyinga
allra að vorlagi, en líka er mikið
um að Grímseyingar gefi vinum
og kunningjum vítt og breitt um
landið egg.
Dráttarvélin sparar mannskap
Bjarni Magnússson, Héðinn
Jónsson og Kjartan Kolbeinsson
voru á Miðgarðabjargi sama dag
og tóku 900 egg. Bjarni hefur
farið á bjarg hvert vor frá 1943
og þá var hann látinn teyma hest.
Hestar voru þá ekki mikið notað-
ir, þótt þeir spöruðu tvo til þijá
menn, af ótta við að þeir fældust
og man Bjarni eftir slíku atviki.
Árið 1952 keypti Bjarni sér
dráttarvél af Deutz gerð og hefur
alla tíð síðan notað dráttarvél því
það sparar mannskap. Áður fyrr
þurfti 7-8 menn þegar verið var
að síga en nú er nóg að hafa þijá
menn og dráttarvél. Bjarni tekur
aldrei minna en 3-4.000 egg hvert
vor og hefur tekið allt upp í 15.000
og eru þá talin bæði svartfugls-
og skegluegg, en skeglueggin
sagði hann að hafi ekki verið tek-
in þegar hann var strákur. Þá var
sigið eftir skeglu- og fílsungum
sem voru saltaðir og þóttu herra-
mannsmatur, en um 1950 var
hætt að taka ungana, þegar lög
þess efnis voru sett. Þá var byijað
að taka eggin.