Morgunblaðið - 25.05.1995, Side 22

Morgunblaðið - 25.05.1995, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ - - LISTIR VORSÝNING útskriftarnema í Myndlista- og handíðaskóla ís- Iands verður opnuð í dag í Lista- háskólahúsinu við Laugarnes- veg. Að þessu sinni útskrifast 30 nemendur frá myndlist- ardeild og 19 frá listiðna- og hönnunardeild. Að sögn Bryn- dísar Jóhannesdóttur, sem hef- ur numið skúlptúr, og Jóhönnu Hreinsdóttur, sem hefur lagt stund á málun, er sýningin mjög fjölbreytt og glæsileg að þessu sinni; „verkin á þessum sýning- um hafa oft borið keim hvert af öðru“, segir Jóhanna, „hug- myndir einstakra nemenda hafa þá smitað út frá sér. Marg- breytnin nú kann hins vegar að koma til af því að við erum í mjög rúmgóðu húsnæði þannig að hver og einh hefur haft góð- an vinnufrið." Aðspurðar hvort innihalds- leysi einkenni aftur á móti ekki samtímalist almennt séð segja Bryndís og Jóhanna að nokkuð hafi borið á þeirri gagnrýni undanfarin ár og að sennilega sé hún réttmæt en það sé hins vegar ekki heldur æskilegt að listin hverfist algerlega um ein- hvetja hugmyndafræði; „það verður auðvitað að vera einhver leikur í listinni líka“, segir Bryndís, „öðru hveiju verður maður að hvíla sig á þungum vangaveltum og sleppa fram af sér beislinu." Annars segja þær stöllur að kennslan í skólanum endurspegli mjög vel það sem er að gerast í listinni á hveijum tíma því starfandi listamenn eru oft fengnir til að kenna einstök námskeið við skólann. Reyndar segja þær að það mætti gera meira af þessu því þetta lista- fólk beri iðulega með sér nýja strauma inn í skólann og setji hann í lífræn tengsl við um- hverfi sitt. Morgunblaðið/Kristinn ÞAÐ er fjölbreytt sýning sem útskriftarnemar úr Myndlista- og handíðaskólanum opna í dag. Sjáðu eplið mitt! Jóhanna Hreinsdóttir Bryndís Jóhannesdóttir Verkefni Jóhönnu og Bryn- dísar eru ólík að gerð og efni. Jóhanna sýnir olíu- og vatnslita- málverk. „Eg sýni valdar mynd- ir úr vinnu minni frá því á liðn- um vetri. Verkin lýsa ákveðinni þróun frá fígúratívu málverki yfir í afstrakt verk en þótt þau séu unnin á nokkuð löngu tíma- bili eiga þau ýmislegt sameigin- legt; það má t.d. finna ákveðinn leik með liti og gagnsæi í þeim öllum.“ Málverk, ljósmyndir og tannburstar Verk Bryndísar eru tvö. Ann- ars vegar sýnir hún nútímaútg- áfu af sögunni um nýju fötin keisarans þar sem umfjöllunar- efnið er afstæði sannleikans. „Verkefnið fólst í því að ég fór í heimsókn til nokkurra krakka á leikskóla og sýndi þeim nokkra hluti sem ég kallaði öðr- um nöfnum en þau eiga að venj- ast, þannig sýndi ég þeim t.d. appelsínu og sagði „Sjáðu eplið mitt“, en það er einmitt heiti verksins. Ég tók síðan myndir af því hvernig þau brugðust við þessum augljósu ósannindum en verkið samanstendur af þessum myndum .“ Hins vegar sýnir Bryndís verk þar sem hún myndgerir eins og hálfs árs tímabil í lífi manns með því að safna á einn stað tannburstum hans frá tímabilinu. Segir Bryndís að hún vilji með þessu sýna persónulegar upplifanir tannburstaeigandans á tilteknu tímabili en um leið geta tann- burstarnir haft mun almennari skírskotanir til upplifunar á tím- anum í sjálfum sér. Sýningin í Listaháskólahúsinu stendur fram til sunnudagsins 28. maí og verður opin frá kl. 14.-19. Ennfremur stendur yfir sýning á sérvöldum verkum útskriftar- nemenda í Norræna húsinu. Agatha íCafé Læk NÚ stendur yfir sýning Agöthu Kristjánsdóttur á olíumálverkum í Café Læk, Lækjargötu 4. Allar myndirnar eru unnar með olíu á mesonit. Agatha hefur aflað sér þekking- ar í gegnum sjálfsnám og sótt námskeið hjá Tómstundaskólan- um, Námsflokkum Reykjavíkur og Kópavogs svo og Myndmennta- skóla Rýmis. Einnig hefur hún verið félagi í Myndlistarklúbbi áhugamanna. Þar hafa kunnir myndlistamenn leiðbeint. Þetta er 12. einkasýning Agöt- hu. Kaffístofan er opin alla virka daga frá kl. 8-19 og frá kl. 10-19 um helgar. Agatha Kristjánsdóttur L í [ ft l i i !■ i Í NEMENDUR málunardeildar að störfum. Myndlistarskóli Akureyrar lltskrlftarncmar K a u p v a n g s s t r æ ti 16. Opin frá 11-18. Til 28. maí. Aðgangur ókeypis. FLEIRI sýningar voru á Akureyri m.a. á verkum tveggja annarra norskra veflistar- kvenna, en henni lauk sl. sunnudag og var lokuð er mig bar að garði á þriðjudegi þótt verkin væru ennþá uppi. Hins vegar skoðaði ég sýningu útskriftarnema Myndlistarskólans vel og lengi. Það er mikill hugur í þeim Norðanmönnum um framgang sjónmennta, og þannig voru kennarar skólans á faraldsfæti víða um byggðir með kynningu á fornámsdeildum og jafnframt tilgangi hans og markmiðum. Það er mikilsverð starfsemi sem fram fer á vegum skólans, og hefur án nokkurs vafa átt sinn þátt í auknum myndlistaráhuga i bænum og nágrenni hans, -sem kemur m.a. fram í drjúgri aðsókn að listasafninu og almennum sýningum. Það var tvennt sem stakk í augun við skoðun sýningar útskriftarnema, sem var hve almenn notkun tölvutækn- innar er, einkum hvað snert- ir grafíska hönnun, og hitt er eftirsókn eftir frumleika. Ekki ber að hafa áhyggjur af frumleikanum, því hann kemur alltaf fram áreynslu- laust og eðlilega hafi við- komandi til að bera neista af honum. Þá er einnig áber- andi hve fríhenditeikning og skynræn þjálfun línunnar á undir högg að sækja. Þetta á einnig við um skólann í Reykjavík, en tölvan getur einfaldlega aldrei komið í stað lífrænnar teikningar handarinnar. Þetta verður svo til að góðir teiknarar eriK- að verða fágætir á landinu og hér erum við miklir eftirbátar frænd- þjóða okkar, sem berlega kemur fram í sam- anburði við dagblöð á Norðurlöndum. Raun- ar skortir teiknara hér jafnan verðug verk- efni, því skilningur á gildi góðrar teikningar í blaði og myndlýsingar í bók er harla tak- markaður og hefur löngum verið. Ekki tel ég rétt að rýna í einstaka mynd- ir, en vildi öðru fremur vekja athygli á sýn- ingunni, óska skólanum aukins sjálfstæðis og velfarnaðar. Bragi Ásgeirsson Norskir vefir MYNDIISI Listasafn Akureyrar MYNDVEFNAÐUR Else Marie Jakobsen. Opið frá 14-18 alla daga nema mánudaga. Til 28. maí. Aðgangur ókeyp- is. Sýningarskrá 200 krónur. NORÐMENN hafa af ríkri hefð að miðla þar sem er sígildur myndvefnaður, og þeim hefur tekist að brúa bilið frá fornum veftum til nútímans. Hugnast að rækta arfinn og miðla honum til sam- tímans, - tendra af þessu tvennu gró- mögn lífs og sköpun- ar. Þessa sér stað í voldugum vefti Synnöve Anker Aurdal í Þjóðarbók- hlöðunni, enneigin í margslungnum verk- um Else Marie Jacobsen í miðsal og austurrými Lista- safns Akureyrar fram til sunnudags. Listakonan, sem- er fædd í Kristiansand 1927 er óþekkt stærð á íslandi, en mun „HUNDRUÐ fiðla“ vera ein af nafnkenndustu veflistarkonum Norðmanna af eldri kynslóð, einmitt þeirri er aðlagaði vend og ívaf fortíðar að mynd- hugsun samtímans. Hún nam í fimm ár í málunarskólum (1941-46), og önnur fimm í listíðaskóla ríkisins í Osló. Þá stundaði hún einnig um skeið gobelinvefnað í Hol- landi, svo víða kom hún við áður en hún sneri til heimabyggðar sinnar, þar sem hún hafði komið upp vinnustofu árið 1951. Kenndi teikningu í rúman áratug, en hóf þá að hanna mynstur og fleiri hluti fyrir iðnaðinn. Það er mikilvægt að vísa til ofanskráðs bakgrunns í ljósi hinnar margbrotnu sýning- ar, og þess hvað sum teppanna eru merki- lega nálægt myndhugsun málara. Það er stundum líkast því sem listakonan máli í vefinn og raunar grípur hún til pentskúfs- ins er hún vinnur í ætingum, sem hún hand- málar af slíkri virkt og næmi að minnir sterklega á gagnsæa vefi! Undirtónn verkanna er mjög upphafinn, enda hefur listakonan unnið mikið fyrir kirkjur og m.a. gert allmörg altaristeppi heima sem erlendis. Hún hefur samtals útfært á þriðja tug opinberra verkefna, haldið fjölda einkasýninga og verk hennar hafa verið keypt til margra safna víðs veg- ar um Noreg. Málarinn á bak við vefina er ótvírætt sterkasta hlið Elsu Marie Jakobsen, og þeim betur sem hann nýtur sín á myndflet- inum, því samræmd- ari og hrifmeiri verð- ur útkoman. Lista- konan fer einfaldlega svo vel með blæ- brigðastígandinn og litrænan hrynjandinn að þegar ekkert rífur hann, fer hún á kost- um, eins og t.d. í verkinu „Brúnt teppi“, sem á að marka strandlengju með mörgum skipsflökum, þó í raun virki það alveg óhlutbundið. Ryðgaðar járnplöt- ur, veröld í andlegri upplausn. Þessi sérs- taíri hrynjandi, sem oftast er rauðleitur kemur svo víða fram í einstökum verkum, en listakonunni hættir til að hlaða myndflöt- inn frásagnarlegum táknum og mynstrum, sem geta verið full sundurlaus og þung. Þá er flöturinn stundum rofinn af fígúrum sem eins og falla ekki alveg að heildinni. Hér er á ferð mjög virðingarvert framtak af hálfu listasafnsins og því til mikils sóma, þannig á þetta einmitt að vera og það á síður að vera útibú og bergmál listviðburð- anna í höfuðborginni. Þakka ber norskum stjórnvöldum sem styrktu sýninguna. I i ft s , 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.