Morgunblaðið - 25.05.1995, Page 24

Morgunblaðið - 25.05.1995, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR NÝBAKAÐIR söngvarar úr Söngskólanum. Aftari röð, f.v. 8._stigs nemendur: Kristin Guðmundsdótt- ir, Hulda Björk Garðarsdóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Örn Arnarson, Kristbjörg Glausen, Þóra Björnsdóttir og Hrafnhildur Björnsdóttir. Fremri röð f.v., burtfararpróf: Kristján Helgason, Sigríður Aðalsteinsdóttir, Gréta Þ. Jónsdóttir og Kristján F. Valgarðsson. Sýningn Evuað ljúka SÝNINGU Evu Benjamínsdóttur, Á Flæði & Fræhús lýkur nú á sunnudag, í Listhúsi 39, Strand- götu 39 Hafnarfirði. Á sýningunni eru þijátíu lítil verk, Flæði - nítján verk, unnin með akríl/olíu, og ellefu Fræhús, unnin með akríl/collage blandaðri tækni. Þetta er þriðja einkasýning Evu og er hún opin frá kl. 10-18 virka daga, laugardag 12-18 og sunnu- dag 14-18. ------------ Blásarasveit og barnakór VORTÓNLEIKAR Blásarasveitar Tónlistarskólans í Grindavík og Bamakórs Grindavíkurkirkju verða haldnir á uppstigningardag í Grindavíkurkirkju kl. 14. Eftir tónleikana mundu for- eldrafélög hópanna sjá um kaffi- sölu og renur ágóðinn í ferðasjóð bamanna sem stefna að því að fara í tónleikaferð til Danmerkur næsta vor. Veitingar em á 300 kr. fyrir fullorðna og 150 kr. fyrir börn. Ailir era velkomnir. Ákveðið hefur verið að bjóða afnot af Grindavíkurkirkju til tón- leikahalds í sumar, þ.e. í júní, júlí og ágúst. TONLIST Fella- og Hólakirkja EINLEIKUR Á PÍ ANÓ Miklós Dalmay lék verk eftir Moz- art og Mússorgskí. Þriðjudaginn 23. maí 1995. STOFNAÐ hefur verið til tónlist- ardaga, sem fara eiga fram í Fella- og Hólakirkju, með röð af fimm tónleikum, er hófust sl. sunnudag með tónleikum, er Tríó Reykjavíkur stóð fyrir. Því miður misfórst eitt- hvað í kynningu tónlistardaganna, svo undirritaður missti af fyrstu tónleikunum. Píanóleikarinn Mikós Dalmay stóð fyrir öðrum tónleikun- um, en næstu tónleikar verða föstu- daginn 26. maí og mun Elín Ósk Óskarsdóttir óperasöngkona og Jónas Ingimundarson píanóleikari flytja söngverk eftir íslenska og erlenda höfunda. Miklós Dalmay hóf tónleikana með sex tiibrigðum, KV 398, er Mozart samdi yfir kórlagið Salve TUTTUGASTA og öðru starfsári Söngskólans í Reykjavík er nú að ljúka og hafa um 170 nemendur stund- að nám við skólann í vetur, um 135 í dagskóla og 35 á kvöldnámskeiðum. Nemendur luku í vetur samtals 135 stig- prófum í söng og/eða píanó- leik. Innritun fyrir næsta vet- ur stendur yfir og verða inntö- kupróf þriðjudaginn 30. maí næstkomandi. 32 kennarar, þ.e. söng- kennarar, píanóleikarar og kjarnagreinakennarar eru starfandi við skólann, þar af 12 í fullu starfi. Skólastjóri er Garðar Cortes. Prófdómar- tu, Domine, úr óperunni I filosofi immaginarii eftir Paisiello. Þessi skemmtilegu og frjálslegu tilbrigði vora mjög vel flutt og sama má segja um C-dúr sónötuna, KV 309 og sérstaklega fantasíuna í d-moll Kv 397, sem var mjög fallega leikin. Deilt er um síðustu 10 taktana í þessari fallega fantasíu, sem finnast ekki í fyrstu útgáfu verksins og er talið að einhver útgefandinn hafi talið upprunalegt niðurlag of snubbótt og reynt að betrambæta Mozart, með endurtekningu á „Allgretto-stefinu" og bætt við stuttu „Beethoven-niðurlagi“. Dalmay lék verkin með mjög sterk- um andstæðum í styrk og þrátt fyrir mikinn hraða í einstaka köflum var flutningur frábærlega skýr og hreinn. Það má deila um hvaða hraði og andstæður í styrkleika eigi best við tónmál Mozarts, en túlkun Lokatón- leikar Söngskól- ans ar í vetur voru Dorothy Allin o g Elizabeth Brazier. Skólinn útskrifar að þessu sinni fjóra nemendur með burtfararpróf, Grétu Þ. Jóns- dóttur, Kristján Helgason, Krislján F. Valgarðsson og Dalmay gekk eins langt og frekast má í þeim sökum, með þeirri undan- tekningu er varðar túlkun hans á hinni elskulegu fantasíu í d-moll, sem var einstaklega fallega leikin. Á seinni hluta tónleikanna lék Dalmay Myndir á sýningu eftir Mússorgskí og þar var leikur hans hreint frábær en við ystu mörk hraðans og þá vaknar spurningin, hvort of mikill hraði geti ekki rænt tónferlið sinni lagrænu heild og í stað tónrænnar upplifunar veki hin tæknilega útfærsla aðeins undrun og hrifningu yfir snilld flytjandans. Hvað um það og þó flutningurinn í heild væri stórkostlegur má hug- leiða ýmislegt varðandi túlkun Dal- amy, t.d. eins og hraðann á próm- enade-stefinu, sem vantaði þann hægláta og íhugandi virðuleika hljóðlátra gesta á myndlistarsýn- ingu. Það er oft deilt um styrkleika- Sigríði Aðalsteinsdóttur, en þau eiga þó öll eftir lokaá- fanga prófsins, einsöngstón- -leika. Átta nemendur luku 8. stigi, lokaprófi úr almennri deild, og hafa þeir nemendur þegar sungið á lokatónleikum í Is- lensku óperunni. Skólaslit og afhending próf- skírteina er laugardaginn 27. maí í Islensku óperunni. Hefj- ast skólaslitin kl. 14. Að þeim loknum kl. 15 eru lokatónleik- ar skólans, þar sem fram koma nemendur frá 3. stigi og uppúr. Efnisskráin er fjöl- breytt, aðgangur ókeypis og öllum heimill. skipanina á Bydlo-kaflanum, sem samkvæmt útgáfu Peters hefst með litlum styrk er magnast upp í mesta styrk en deyr svo út í lokin og er músíklega áhrifameiri en að heíja kaflann á tvöföldu forte, þó framút- gáfa verksins geri ráð fyrir því. „Kontrapunktinn“ í 6. þættinum, sem fjallar um samskipti Samuels Goldenberg og Schmuýle, vantaði það sérkennilega samspil er ein- kennir þóttalega framkomu Gold- bergs og annars vegar smjaðrið hjá Schmuýle. Hvað sem þessum vanga- veltum líður og snerta aðallega túlk- un, var leikur Dalmay glæsilega útfærður og með þeirri tækni, sem aðeins vitúósar geta státað af. En listin er meira en tækni, hún er skáldskapur er sækir afl sitt í djúp- ar duldir tilfínninganna og flytur mönnum boðskap, er stendur ofar .jarðlegum skilningi“ þeirra. Og þá fyrst er galdurinn algjör, þegar tæknin hættir að vera markmið en er beitt til þess að nálgast hið óskil- greinalega, fegurðina. Jón Ásgeirsson Héraðsvaka Rangæinga haldin á Hellu Hellu. Morgunblaðið. ÁRLEG Héraðsvaka Rangæ- inga verður haldin nk. sunnu- dag, að þessu sinni í Hellubíói, kl. 21. Fjölbreytt dagskrá verður í boði. M.a. munu Elín Ósk Ósk- arsdóttir og Kjartan Ólafsson syngja við undirleik Jónasar Ingimundarsonar, Lúðrasveit Tónlistarskóla Rangæinga leik- ur, Samkór Oddakirkju syngur, ásamt fleiri tónlistaratriðum heimamanna. Þá má nefna hag- yrðingaþátt, glímusýningu og upplestur svo fátt eitt sé nefnt. I tengslum við Héraðsvökuna verður haldin myndlistar- og handverkssýning ýmissa alþýðu- listamanna úr sýslunni í nýbygg- ingu Grunnskólans á Hellu en hún verður opin sama dag kl. 13-20. Á staðnum verða blóð- þrýstings- og þolmælingar, ráð- gjöf og fræðsla um hreyfíngu, mataræði og líkamsbeitingu. Þar munu einnig böm úr grunn- skólanum syngja fyrir gesti, á útisvæði við skólann verða hjól- reiðar, þrautir og leikir og Mó- kollur kemur í heimsókn. Sýnaí Hollandi UM helgina opna fjórir íslenskir myndlistarmenn tvær sýningar í Hollandi, annarsvegar er það í gallerí Neptunus í Rotterdam og hinsvegar í gallerí Archedae í Den Haag. Myndlistannennimir eru; Finnur Amar, G.R. Lúðviksson, Jón Garðar Henryson og Þórar- inn Blöndal. Báðar sýningámar standa fram í júní. Húsfyllir á tónleikum Sinfóníunnar Kirkjubœjarklaustri. Morgunblaðið. SINFÓNÍUHUÓMSVEIT ís- lands hélt tónleika í Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri síðastlið- inn laugardag. Þessir tónleikar voru frábrugðnir ýmsum öðrum vegna þess að börnum var boðið að taka þátt í flutningi á hluta dagskrárinnar. Nemendur 1. og 2. bekkjar Kirkjubæjarskóla sungu við undirleik hljómsveitarinnar og einn nemandi úr 4. bekk, Páll Jónsson, söng einsöng. Þá tóku nemendur í 3. og 4. bekk þátt í tónleikunum með því að leika á flautur með hljómsveitinni. Tækni og túlkun Hannes Friðriksson rekur verslunarstaðinn Vegamót ó Bíldudal og hefur nýtt sér sendingaþjónustuna Selt og Sent hjó Gripið og Greitt. Hann hefur þetta að segja; “Nú versla ég allt á einum staB í gegnum Selt og sent, því þar er þægileg og hröð þjónusta og mikið vöruúrval. Þar get ég tekið það magn sem ég þarf hverju sinni á hagkvæmu verði og get þannig selt ódýrt til minna viðskiptavina. Flutningskostnaður hefur stórlækkað og er orðinn hverfandi. Auk þess er mikill vinnusparnaður að versla aðeins við einn innkaupaaðila. Eg tel smærri verslanir úti á landi veraá uppleið. Með því að versla við Selt og Sent er hægt að hafa mun meira vöruúrval án þess að vera með nokkurn lager og geta samt boðið vörur á sanngjörnu verði". SÍMI: 68 89 70 FAX: 68 95 57 SÍMI:68 95 35 FAX: 68 95 57

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.