Morgunblaðið - 25.05.1995, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. MAÍ1995 33
Harold Wilson látinn í Bretlandi
Maður
lipurðar og1
hentistefnu
Ferill Harolds Wilsons, fyrrverandi leiðtoga
Verkamannaflokksins breska og forsætisráð-
herra um árabil, hefur verið umdeildur síðari
árin. Hann er sagður hafa verið tækifæris-
sinni en aðrir telja hann hafa sýnt mikla leið-
togahæfileika við erfíðar aðstæður
)
úið
*
leigu sem við erum að
greiða í dag heldur en
að eiga húsið sjálfir. Við
erum með 20 ára leigu-
samning um Hymuna
sem að framlengist um
10 ár í senn. Varðandi
stefnu KB þá er málið
þetta. Tími þessara
blönduðu kaupfélaga,
eins og þau hafa verið
rekin, er að mínu mati
liðinn. Það fara ekki al-
veg saman hagsmunir
framleiðenda, neytenda.
og starfsmanna í dag.
Þetta gekk allt mjög vel,
hér á áram áður meðan
þessi samkeppnishugsjón
var ekki eins mikið uppi eins og er í
dag. Samkeppnin og krafan um að
hver einasta grein standi undir sér
sjálfstætt gerir það að verkum að það
er ekki hægt að reka eina greinina
með tapi á kostnað annarrar eins og
gert var. Þetta leiðir það af sér að
hagsmunaaðilamir verða meira að
standa að sínum rekstri sjálfir. Mjólk-
urframleiðendurnir verða að beita sér
fyrir sínum hagsmunum og kjötfram-
leiðendurnir fyrir sínum. Það er að
verða stefnubreyting, KB mun beita
sér meira að beinni verslunar- og
þjónustustarfsemi og ferðamannaiðn-
aði. Síðan verður KB þátttakandi í
hlutafélögum, það er líka markmið
KB að efla atvinnurekstur í héraði
og gerir það m.a. með þvi að standa
myndarlega að Afurðasölunni hf. með
þeim sem þar eiga hagsmuna að gæta.
KB er meirihlutaeigandi í Afurða-
sölunni hf. og er ekkert á leiðinni
þaðan út. Ástæðan fyrir því að afurða-
sölunni var breytt í hlutafélag er ein-
göngu sú að fá þá sem hagsmuna
eiga að gæta til þess að leggja líka
fram áhættufjármagn til þess að gera
þá ábyrgari og meira meðvitandi um
hvaða þýðingu reksturinn hefur fyrir
þá. Samvinnufélagsformið er svolítið
gallað að því leyti til að það er erfitt
að ná inn áhættufjármagni í það með
eðlilegum hætti. Eftir þessa aðgerð
núna (úreldingu MSB) verður KB að
mínu mati gífurlega sterkt félag fjár-
hagslega. Hefur sterka eiginfjárstöðu,
litlar skuldir og er mjög sterkt fjár-
hagslega til að takast á við verslunar-
og þjónustustarfsemina þar sem sam-
keppnin er hörð. Við munum beita
okkur fyrir því að færa verslunina í
einfaldara og hagkvæmara form held-
ur en hefur verið. Við komum sterkt
út úr þessu, gagnstætt því sem heyrst
hefur í fjölmiðlunum.“
HAROLD Wilson, fyrrver-
andi forsætisráðherra
Breta, lést á sjúkrahúsi í
London í gær og minnt-
ust jafnt stuðningsmenn sem and-
stæðingar Verkamannaflokksins
hans með mikilli virðingu. „Hann
þjónaði landi sínu og Verkamanna-
flokknum af miklum dugnaði og
tryggð,“ sagði John Major, forsætis-
ráðherra og leiðtogi íhaldsflokksins.
Wilson var forsætisráðherra í nær
átta ár samanlagt, hann sýndi mikla
lipurð við að halda flokki sinum sam-
an og þótti leggja meiri áherslu á
raunhæfan árangur en kennisetning-
ar ákafra vinstrimanna. Á hinn bóg-
inn hafa margir, jafnt hægri- sem
vinstrimenn, gagnrýnt hann fyrir
hentistefnu og pólitískt siðleysi, m.a.
var hann sagður hygla óspart póli-
tískum samstarfsmönnum.
Hann var lítill og þéttvaxinn, silf-
urhærður á efri árum, orðheppinn,
með frábært minni og vel að sér,
stöðugt með pípuna milli varanna,
Yorkshire-hreimurinn ávallt greini-
legur. Harold Wilson varð á sjöunda
áratugnum sá stjórnmálamaður sem
allir Bretar þekktu. Margir hrifust
mjög í upphafi, hann þótti nútíma-
legur og alþýðlegur, þrátt fyrir Ox-
ford-menntun sína, framkoman
stakk í stúf við formfestuna og yfir-
stéttarbraginn á leiðtogum íhalds-
manna.
Wilson varð fyrstur breskra
stjórnmálamanna til að notfæra sér
sjónvarp með áhrifaríkum hætti,
hann átti einnig auðveldara en and-
stæðingarnir með að ná til unga
fólksins rótlausa sem flykktist á
rok'któnleika og slóst um plötur Bítl-
anna.
Ungur ráðherra
James Harold Wilson fæddist í
grennd við Huddersfield í Yorkshire
11. mars 1916, sonur efnafræðings.
Hann fékk styrk til að stunda nám
í Oxford þar sem hann lauk með
glæsibrag prófum í hagfræði, stjórn-
málafræði og heimspeki og varð
kennari 21 árs að aldri. Hann varð
yfirmaður hag- og tölfræðistofnunar
landsins 1943 og var kjörinn á þing
1945 er Verkmannaflokkurinn vann
stórsigur. Tveim árum síðar varð
Wilson viðskiptaráðherra aðeins 31
árs gamall, yngsti ráðherra Breta frá
því á átjándu öld.
Upp úr 1950 missti flokkurinn
völdin í hendur íhaldsflokknum og
var í stjórnarandstöðu næstu 13 ár-
in. Að Hugh Gaitskell látnum 1963
hreppti Wilson leiðtogaembættið og
var fyrsta verk hans að reyna að
sameina flokkinn en harðar deilur
voru milli hefðbundinna jafnaðar-
manna og róttækari vinstrimanna.
1964 vann Verkamannaflokkur-
inn nauman sigur á íhaldsflokknum
sem var undir stjóm Alecs Douglas-
Home. Wilson hét því að endurnýja
breskan iðnað með tæknibyltingu og
efndi á ný til kosninga tveim árum
síðar og fékk nú öflugan, 90 sæta
meirihluta.
Wilson verður lengi minnst fyrir
að koma á laggirnar „Opna háskól-
anum“ svonefnda, menntakerfi sem
roskið fólk getur notað til að auka
menntun sína. Sjálfur harmaði hann
ávallt mjög að sér skyldi mistakast
að leysa deiluna sem kom upp þegar
stjórn hvíta minnihlutans í Rhódesíu,
nú Zimbabwe, neitaði að veita
blökkumönnum lýðréttindi. Stjórn
Ians Smiths lýsti einhliða yfir sjálf-
stæði nýlendunnar 1965 og það var
ekki fyrr en um 1980 sem lausn
fannst.
Efnahagsmálin voru Wilson erfið
viðfangs, 1967 lækkaði hann gengi
pundsins um 14% en sagði þjóðinni
að gengislækkunin myndi ekki
breyta verðgildi „pundsins í vasanum
ykkar“. Þessi dæmalausa yfirlýsing
var oft notuð gegn honum næstu
árin og þótti ekki til fyrirmyndar um
sannsögli eða pólitískan heiðarleika.
Verðbólga, launafrysting, skatta-
hækkanir og takmarkanir á útlánum
fjármálastofnana urðu ekki til að
auka vinsældir Wilsons og Verka-
mannaflokksins sem tapaði kosning-
unum 1970 og Edward Heath varð
forsætisráðherra.
Átök á vinnumarkaðnum urðu
Heath þung í skauti. Hann efndi til
kosninga 1974 og sagði þjóðina
verða að ákveða hvort ríkisstjómin
eða verkalýðsfélögin ættu að stjóma
landinu. Kjósendur reyndust vera í
vafa, minnihlutastjórn Wilsons tók
við. í öðrum kosningum sama ár
fékk hann þriggja atkvæða meiri-
hluta á þingi og þar með varð Wil-
son fyrsti forsætisráðherrann frá því
á tímum Gladstone á nítjándu öld-
inni til að vinna fjórar þingkosningar.
Evrópumáladeilur
Bretland hafði gengið í Efna-
hagsbandalagið 1973 og Wilson
leysti deilur í Verkamannaflokknum
um aðildina með þvi að efna til þjóð-
aratkvæðis um hana 1975. Mikill
meirihluti kjósenda studdi aðild og
tókst Wilson þannig að þagga að
mestu leyti niður í róttækum vinstri-
mönnum sem vildu úrsögn úr banda-
laginu.
Öllum að óvörum sagði Wilson af
sér embætti árið 1976. „Það er aug-
ljós skylda mín við landið og flokkinn
að vera ekki svo lengi hér að öðrum
gefist ekki færi á að keppa um emb-
ættið,“ sagði hann í yfirlýsingu til
ríkisstjórnarinnar 16, mars. Heimild-
armenn telja að ástæðan hafi einfald-
lega verið sú að Wilson hafi verið
búinn að fá nóg af stjórnmálum.
Hann var nú aðlaður, ritaði nokkrar
bækur um stjórnmál en hætti á þingi
1983. Um 1980 fékk hann krabba-
mein, var skorinn upp en sjúkdómur-
inn dró hann til dauða 15 árum síðar.
Wilson var við völd á erfiðum
umbrotatímum. Bretar voru með
Reuter
HAROLD Wilson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands,
var stöðugt með pipuna milli varanna.
Langir fundir um jjorskveiðideiluna 1976
VIÐ upphaf viðræðna í Downingstræti 10. James Callaghan utan-
ríkisráðherra er íbygginn á svip er forsætisráðherrarnir Geir
Hallgrímsson og Harold Wilson takast í hendur.
Geir o g Wilson reyndu að finna
samkomulagsgrundvöll
HAROLD Wilson var forsætis-
ráðherra þegar þorskastríð ís-
lendinga og Breta stóðu sem
hæst vegna útfærslu landhelg-
innar í 200 mílur í október 1975.
Stríðinu lauk með samningum í
Ósló í júní 1976.
Geir Hallgrímsson forsætis-
ráðherra þáði boð bresku sljórn-
arinnar og fór til fundar við
Wilson í London 24.-27. janúar
1976 þar sem þess var freistað
að leysa þorskveiðideiluna.
Viðræður Geirs og Wilsons
vöktu mikla athygli fjölmiðla í
Bretlandi, ekki síst lengd fund-
anna. Var það annars vegar tal-
ið til marks um að Bretar vildu
leggja sig fram um að ná sam-
komulagi við Islendinga en hins
vegar til marks um hversu erfitt
væri að finna samkomulags-
grundvöll.
Hittust Harold Wilson og Geir
Hallgrímsson fyrst á laugardegi
á sveitarsetri breska forsætis-
ráðherrans, Chequers, og rædd-
ust við í nokkrar stundir. Á
sunnudeginum ræddust þeir
Geir og James Callaghan utan-
ríkisráðherra við um fiskveiði-
deiluna á heimili Callaghans.
Forsætisráðherrarnir hittust
síðan í embættisbústað Wilsons
í Downingstræti 10 á mánudegi
og ræddust þar við frá klukkan
10 til 17.30.
Héldu þeir áfram viðræðum á
þriðjudag, fyrst í embættis-
bústaðnum og síðar í breska
þinghúsinu.
Samkvæmt frásögn Morgun-
blaðsins ræddu Geir og Wilson
þorskveiðideiluna frá grunni en
fundunum lauk án samkomu-
lags. Þorskastríðinu lauk með
samkomulagi íslcndinga og
Breta í Ósló í júní 1976.
tregðu að reyna að sætta sig við
missi heimsveldisins, dvínandi áhrif
á alþjóðavettvangi og í efnahagsmál-
um. Er vegur Wilsons var sem mest-
ur var hann talinn snjall stjórnandi
en bent á ýmsa skapgerðargalla,
hann var sagður einstakur tækifær-
issinni. Hann var orðlagður fyrir
refshátt í stjórnmálum og hæfileika
sína í baktjaldamakki. Stundum var
sagt að nokkrir nánir ráðgjafar í
„eldhúsráðuneyti“ hans hefðu meiri
völd en sjálfir ráðherrarnir; hann
hafi treyst hinum fyrrnefndu betur.
„Ég hygg að hans verði minnst í
sögunni, ekki sem eins af mestu for-
sætisráðherrum okkar en mjög fram-
arlega í röð þeirra sem skipa aðra
deild, mann sem vissulega hafði áhrif
á bresk stjórnmál," sagði Roy Jenk-
ins, fyrrverandi ráðherra Verka-
mannaflokksins er síðar sagði skilið
við flokkinn, um Wilson. Ævisögu-
ritari hans, Philip Ziegler, segir að
Wilson hafi átt sér eitt takmark öðru
fremur, að sætta stríðandi öfl í
Verkamannaflokknum og gera
flokkinn öflugan. „Þetta var ef til
vill ekkert mjög göfug stefna en
þegar vandamálin eru höfð í huga
og sjálf niðurstaðan er varla hægt
að neita því að hann fylgdi henni
eftir af miklum dugnaði og ein-
beitni," sagði Ziegler.