Morgunblaðið - 25.05.1995, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995 39
I
I
i
i
I
i
:
i
i
i
i
i
3
i
i
i
i
i
i
i
i
<
t
AÐSENDAR GREINAR
„Sökudólgar“
Olafs Schram
ÉG VIL í upphafí
byija á því að óska
HSI til hamingju með
heimsmeistarkeppn-
ina í handbolta sem
virðist hafa farið hið
besta fram.
Að kvöldi- 22. maí
ræddi Stöð 2 við Ólaf
Schram, formann
HSÍ, þar sem hann
ræddi framkvæmd
keppninnar, vænting-
ar og árangur enda
nauðsynlegt að slíkt
uppgjör fari fram þeg-
ar stórum verkefnum
lýkur. En því miður
var frásögn Ólafs langt frá því að
vera sannleikanum samkvæm.
Hann notaði tækifærið og réðst
enn einu sinni á ferðaþjónustufólk,
vegna vonbrigða sinna með lélega
þátttöku erlendra áhorfenda. Það
er því nauðsynlegt að stikla á því
helsta sem ferðaþjónustunni við-
kemur í þessu máli.
Þegar ákveðið var að HM’95
yrði haldið í maímánuði urðu ýms-
ir í ferðaþjónustu áhyggjufullir
vegna þess málflutnings HM-
manna að auk allra íþróttamanna,
dómara, liðsstjóra o.fl. væri von á
5-800 blaðamönnum og einhveij-
um þúsundum erlendra áhorfenda.
Áhyggjur manna stöfuðu af því
að í maímánuði 1994 var meðal-
herbergjanýting á SVG hótelunum
í Reykjavík rúmlega 81%. Það
voru því góð ráð dýr að gera hvort
tveggja í senn að taka á móti
gestum vegna HAJ!95 og halda
þeim viðskiptum sem búið er að
taka mörg ár að byggja upp.
Niðurstaða helstu stjómenda í
hótel- og ferðaskrifstofurekstri
var sú að fjórar stærstu ferðaskrif-
stofumar, þ.e. stærstu viðskipta-
vinir hótelanna í Reykjavík, myndu
setja á laggimar bókanamiðstöð
sem meðhöndlaði allar bókanir
SVG hótelanna í Reykjavík og á
Akureyri í maímánuði 1995. Var
framkvæmdastjóra HM’95 boðið
að taka þátt í þeim viðræðum sem
og hann gerði. Með bókanamið-
stöðinni yrði komið í veg fyrir tví-
bókanir og alls kyns rugl sem oft
skapast þegar stórar samkomur
eru skipulagðar og við höfum
reynslu af.
Það gátu allir hringt í bókana-
miðstöðina og pantað herbergi.
Það var því enginn munur á því
að hringja þangað og á einstök
hótel, nema 'annað símanúmer.
Þann 1. febrúar þurftu þeir sem
pantað höfðu herbergi að staðfesta
herbergin með innáborgunum. En
hvað gerðist? Þá hrundi stór hluti
bókananna, því alls kyns erlendar
ferðaskrifstofur pöntuðu herbergi
til vonar og vara vegna HM’95.
Það skal þó tekið fram að það er
mikill ijöldi gististaða í Reykjavík
og nágrenni sem ekki voru þátt-
takendur í bókanamiðstöðinni og
því nægt herbergjaval
fyrir þá sem annað
vildu leita.
Fullyrðing Ólafs að
erfitt hefði verið að
ná í fólk í ferðaþjón-
ustu er ekki svara-
verð. Fyrsti fundur
hótelmanna og HM-
manna var haldinn
árið 1993 að frum-
kvæði hótelmanna.
Að okkar mati voru
það mistök að setja
miðasölu í hendurnar
á einum manni sem
þar með fékk bæði
einokun á sölu og fullt
vald til að hefja sölu þegar honum
sýndist burtséð frá þörfum og ósk-
um annarra. Þeir aðilar sem í raun
voru hæfastir til að sjá um miða-
söluna voru stóru ferðaskrifstof-
umar, en þær höfðu ekkert með
málið að gera. Eftir á kemur í ljós
að sá aðili sem hafði einokunina
á miðasölunni á HM’95 hafði ekki
burði til að annast góða kynningu
á keppninni erlendis. Fullyrðing
Það gátu allir, segir
Ema Hauksdóttir,
hringt í bókunarstöðina
og pantað herbergi.
Ólafs um að aðrir í ferðaþjón-
ustunni hafi sett HM’95 stólinn
fyrir dymar em því ekki svara
verðar.
Keppnin var í raun aldrei al-
mennilega markaðssett. Þegar
tvær af mikilvægustu kaupstefn-
um sem íslendingar taka þátt í
árlega fóm fram á síðasta ári,
þ.e. Vest-Norden kaupstefnan í
september og World Travel Mart
í London í nóvember, þá var ekki
enn komið verð á aðgöngumiðana
og því ekki hægt að verðleggja
neinar pakkaferðir. Það var ekki
búið að verðleggja miðana fyrr en
í desember.
Ég er þeirrar skoðunar að vænt-
ingar HM-manna um stóra hópa
erlendra áhorfenda hafi verið gróft
ofmat á áhuga umheimsins á
handbolta.
Með framangreint í huga ráð-
legg ég Ólafi að njóta gleðinnar
yfir vel skipulögðu móti og láta
af þeim leiða sið að leita að söku-
dólgum vegna alls þess sem ekki
uppfyllti væntingar hans.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Sambands veitinga- oggistihúsa.
- kjarni málsins!
Erna
Hauksdóttir
SNYRTIVÖRUVERSLUNIN
KÓPAVOGI
Kynning á vor -
og sumarlitum
Dior
Föstudag kl. 13 -18.
Gjöf fylgir kaupum!
Hvað þurfa
börn að þola
og hvemig er bmgðist við því?
NÝLEGA var haldin
ráðstefna í Ósló um
bamavemd. Var hún
haldin á vegum al-
þjóðasamtaka sem
beijast gegn misnotk-
un og vanrækslu
bama, en þau heita
ISPCAN (Intemational
society for prevention
of child abuse and
neglect).
A ráðstefnunni kom
fram að alvarlegustu
brot gegn börnum em
ofbeldi, líkamlegar og
andlegar misþyrming-
ar, kynferðisleg mis-
notkun og vanræksla.
Á Vesturlöndum er
Sigríður
Ingvarsdóttir
sé að grípa þá þegar
til aðgerða. Éinnig er
brýnt, að allir þeir sem
geta og eiga að koma
baminu til hjálpar,
þekki þær skyldur sem
á þeim hvíla í þessu
efni.
Þeir aðilar sem
koma að þessu málum
eru oft læknar, hjúkr-
unarfræðingar, félags-
ráðgjafar og lögreglu-
menn. í störfum sínum
fá þeir einmitt vitn-
eskju um aðstæður
sem eru skaðlegar
börnum. Einnig getur
verið um að ræða vís-
vanræksla
bama vaxandi vandamál og verður
stöðugt meira áhyggjuefni þeirra
sem beijast fyrir því að böm fái
að alast upp og þroskast við þannig
aðstæður að þau verði heilbrigðir
einstaklingar.
Alvarlegt vandamál
bendingar um að barn hafí sætt
ofbeldi eins og t.d. þegar áverkar
em á barni sem foreldrar geta ekki
gefið viðhlítandi skýringar á. Verð-
ur að brýna fyrir þeim sem fá vitn-
eskju um slíkt að grípa til viðeig-
andi aðgerða til að vemda bamið
gegn frekari líkamsmeiðingum.
Börn sem verða fyrir líkamsmeið-
ingum, kynferðislegri misnotkun
eða vanrækslu eiga á hættu að
skaddast alvarlega, líkamlega og
andlega. Þau börn þurfa fyrst og
fremst öryggi svo og læknishjálp
og aðra viðeigandi meðhöndlun.
Dæmi em um að böm þurfí að
sæta ofbeidi ámm saman án þess
að nokkur komi þeim til hjálpar.
Einnig em dæmi um að böm hafí
dáið af völdum hrottalegra líkams-
meiðinga.
Brýnt er að stöðva strax allt at;
ferli sem veldur bömum skaða. í
því sambandi er nauðysnlegt að
fylgj'ast vel með öllum vísbending-
um sem gefa til kynna að böm
geti verið í hættu. Foreldrar og
aðrir sem annast böm eru oft á tíð-
um í bestri aðstöðu til að meta þær
hættur sem steðja að börnum. En
stundum em það foreldramir sjálfir
sem era hættulegir bömum sínum.
Í þeim tilfelium verða aðrir að grípa
inn í og koma börnunum til hjálpar.
Hvað ber að gera?
Á ráðstefnunni var m.a. fjallað
um það hve mikilvægt er að bregð-
ast rétt við þegar barn er í hættu.
Meta þarf hvort um er að ræða
bráða hættu og hvort nauðsynlegt
Lögmenn og dómarar
Aðrir sem íjalla um málefni
bama í hættu em lögmenn og dóm-
arar. Þeirra hlutverk snýst fyrst og
fremst að hinni lagalegu hlið mála
en þar er um að ræða réttarreglur
sem gilda á hveijum tíma um máls-
meðferð og efnislega úrlausn mála.
Gildir það hvort heldur í málum sem
flalla um tilteknar aðgerðir sem
unnt er að grípa til í þeim tilgangi
að vemda böm svo og t refsimálum
þar sem böm em fómarlömb af-
brotamanna.
Hvernig virkar kerfíð?
Spyija má hvort við búum við
fullnægjandi lagareglur þannig að
þær tryggi bömum öragga vemd.
Em læknar og aðrir sem vita um
böm í hættu nægjanlega á verði í
þeim efnum? Vita þeir um skyldur
sínar við bömin?
Veit almenningur hve brýnt er
að koma bömum í neyð til hjálpar?
Geta íjölmiðlar verið gagnlegir í
baráttunni gegn bamaofbeldi?
Bregst réttarkerfið nægjanlega
fljótt við? Getur það tryggt að börn
njóti viðhlítandi vemdar? Taka
lagareglurnar nægjanlegt tillit til
barna?
Hafa sérfræðingar fullnægjandi
Stundum eru það for-
eldrarnir sjálfír, segir
Sigríður Ingvarsdótt-
ir, sem eru hættulegir r -
bömum sínum.
menntun, þjálfun og reynslu til að
veita börnum sem hafa þolað mis-
þyrmingar nægjanlega hjálp?
Allt era þetta brennandi spurn-
ingar sem brýnt er að fá svör við.
Hvað vilja börn?
Ráðstefnan var lærdómsrík enda
var þar fjallað um mikilvæg og
vandasöm viðfangsefni af mjög
fæm fólki sem hefur víðtæka fræði-
lega þekkingu og áratugalanga
reynslu í málefnum bama. Ráð-
stéfnan var líka áhrifamikil vegna
þess hve mikill samhugur ríkti með-
al þátttakenda. Allitthöfðu það sam-
eiginlega markmið að vemda börn
gegn hættum og bæta líf þeirra
bama sem hafa orðið fyrir líkamleg-
um eða andlegum misþyrmingum.
Á opnunarhátíð fengu ráðstefnu-
gestir að sjá leiksýningu nokkurra
bama frá ýmsum löndum en sum
þeirra höfðu flúið sitt heimaland
og búa nú í Noregi. Bömin vora
frá sama skóla og sýndu á táknræn-
an hátt hvað böm vilja. Ljóst er
að þau vilja frið í heiminum, vin-
áttu hvers annars og vemd frá fíill-
orðna fólkinu gegn öllum hættum
sem bömum em almennt búnar.
Þótt flestir geti verið sammála
um að öll böm séu falleg þá vora
bömin í þessari leiksýningu sérstak-
lega falleg. Þau bám þess greini-
lega merki að þau bjuggu við bestu
aðstæður og að vel var um þau
hugsað. En leikur þeirra sýndi að
þau voru ekki áhyggjulaus. Á áhri-
faríkan hátt var því komið til skila
að mörg böm em fómarlömb alvar-
legrar misnotkunar, kúgunar og
vanrækslu. Hvort unnt er að koma
því til leiðar að öll börn í þessum
heimi fái að búa við jafn góðar
aðstæður og þessi fallegu böm í
Ósló, því verður fullorðna fólkið að
svara.
Höfundur er formaður
Harna vcrn darráðs.
FASTEIGN ER FRAMTÍD
FASTEIGNA
Suðurlandsbraut 12, 108 Reykjavík, Sverrir Kristjánsson
fax 568 7072 lögg. fasteignasali
Palmi Almarsson, solustj.. Þór Þorgeirsson. sölum. Kristin Benediktsdottir, ritari
SIMI 568 77 68
MIÐLUN
íf
HÓLAGARÐUR
Yerslunarmidstöd þar sem koma 12-14.000 manns á viku
Verslunarmenn - byggingameistarar ofl., ofl.: Til sölu eða leigu ca 1500 fm verslunarhæð og ca 500
fm skrifstofu eða þjónustuhæð (2. hæð) í þessu þekkta verslunarhúsi. í verslunarmiðstöðinni Hóla-
garði er Hagkaup með stóraverslun, þar er einnigbanki, pósthús o.fl. Samtals em um 14 rekstrarað-
ilar þama undir sama þaki. í húsið koma 12-14.000 manns á viku, næg bílastæði verða við húsið.
Húsnæðið selst fokhelt innan en fullklárað utan. í þessum nýja áfanga sem er til sölu eða ieigu er gert
ráð fyrir m.a. verslunum, veitingastað o.fl., allt frá 20 fm upp í nokkur hundurð fm. Á efri hæðinni
er mjög auðvelt að hafa 8x40 fm skrifsfstofur ásamt miðjurými.
Góð áhvílandi lán. Byggingamenn! seljandi er tilbúinn til þess að taka húsnæði, jafnvcl á byggingar-
stigi uppí hluta kaupverðs, jafnvel minni séreignir í smíðum. Upplýsingar um þessa eign em ekki gefnar
í síma.