Morgunblaðið - 25.05.1995, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995 55
BBIPS
Umsjön Guömundur Fáil
Arnarson
ÞEGAR menn og dýr kom-
ast í þrönga stöðu eru tvenns
konar viðbrögð algengust:
uppgjöf eða æðiskast. Á
spilakvöldi hjá BR í síðustu
viku voru keppendur í sæti
suðurs settir upp að vegg
með þessi líka faliegu spil:
Vestur gefur; allir á
hættu.
Suður
*ÁD9
▼ÁK86432
♦ .
+ÁDG
Vestur Norður Austur Suður
3 tlglar Pass 4 tíglar ?
Hvaða myndi lesandinn
segja í þessari erfiðu stöðu?
Einhverra hluta vegna
koma mönnum fyrst og
fremst tvær sagnir í hug:
fjögur hjörtu og sex hjörtu.
Fyrmefnda sögnin ber vott
um uppgjöf, sú síðamefnda
um offors. Hvor um sig gæti
heppnast vel eða illa, en það
er tilviljunin ein, en ekki spiia-
gáfa viðkomandi, sem rseður
því. Gefi menn sér tíma til
að hugsa, sjá þeir fljótlega
að þriðji möguleikinn er til.
Það er hægt að segja fímm
hjörtu. Eða dobla til úttektar
og segja síðan 5 hjörtu við 4
spöðum makkers.
iiiil
Vestur Austur
♦ G 4 K1074
♦ 975 IIIIH
♦ ÁDG10543 llllll ♦ 762
♦ 76 ♦ K8432
Suður
♦ ÁD9
♦ ÁK86432
♦ -
♦ ÁDG
Norður myndi auðvitað
passa 5 hjörtu, þrátt fyrir
hjartadrottningu, því hann á
ekkert annað bitastætt.
Úrslitin réðust þó ekki
bara í sögnum. Þar sem
vestur freistaðist til að
leggja niður tigulás í byijun
fengust tólf slagir.
LEIÐRÉTT
Frú Sigríður
Fjallkonan hávaxna, sem
prýddi baksíðu Morgun-
biaðsins í gær, heitir í raun
Frú Sigríður, „húsmóðirin á
heimilinu“, og stendur á
vagni við Höfðabakka í
Reykjavík til að minna á
stóra handíðasýningu sem
verður í borginni 8.-11. júní.
Rangt föðurnafn
I minningargrein Gunnlaugs
Stefánssonar um Sigurgeir
Sigurðsson á blaðsíðu 32 í
Morgunblaðinu í gær misrit-
aðist föðumafn fyrrverandi
eiginkonu Sigurgeirs, Hólm-
fríðar Sigfúsdóttur. Hlutað-
eigendur em innilega beðnir
afsökunar á þessum mistök-
um.
Gjöf til Sjúkrahússins
á Seyðisfirði
í frétt sl. laugardag um gjöf
til Sjúkrahússins á Seyðis-
fírði var farið rangt með
heiti gefanda. Sagt var að
Félagar í Austurlandsdeild
Hjartavemdar hafi gefíð
gjöfina en það er ekki rétt
því það var Félag hjarta-
sjúklinga á Austurlandi.
Heðist er velvirðingar á mis-
tökunum.
Aðalfundur Norræna
skólasetursins
í frétt í Mbl. í gær var fjallað
um aðalfund Norræna skóla-
setursins. í fréttinni datt út
lína og kemur hún-rétt nú:
Hlutafé samkvæmt félags-
samþykktum er 40.000.000
kr. og er óselt hlutafé í árslok
1994 10.250.000. Ileildar-
skuldir í árslok 1994 voru
89.108.366 kr.
ÍDAG
DEMANTSBRÚÐKAUP. í dag, fimmtudaginn 25.
maí, eiga 60 ára brúðkaupsafmæli hjónin Auður Magn-
úsdóttir og Ólafur Ásmundsson, Langagerði 78,
Reylgavík. Þau eru að heiman.
Árnað heilla
^/\ÁRA afmæli. Á
I I/morgun, föstudaginn
26. maí, verður sjötugur
Ragnar Ingólfsson. Hann
verður að heiman.
Q /\ÁRA afmæli. í dag,
Ov|f>mmtudaginn 25.
maí, er áttræður Skafti
Fanndal Jónasson,
Skagaströnd. Kona hans
er Jóna Guðrún Vil-
hjálmsdóttir. Þau taka á
móti gestum laugardaginn
27. maí nk. kl. 15-19 í Fé-
lagsheimilinu Fellsborg.
Q /\ÁRA afmæli. Átt-
Ovfræður verður laugar-
daginn 27. maí nk. Þórir
Benedikt Siguijónsson,
fv. deildarstjóri, Vestur-
bergi 8, Reyigavík. Eigin-
kona hans er Asta Sigríður
Þorkelsdóttir. Þau taka á
móti ættingjum og vinum á
afmælisdaginn í samkomu-
sal Félagsstarfs aldraðra í
Hraunbæ 105 frá kl. 17-18.
/»/\ÁRA afmæli. í dag,
ÖPfinimtudaginn 25.
maí, er sextug Rannveig
Pálsdóttir, frá Stóru-
Sandvík í Flóa. Eiginmað-
ur hennar er Kristinn
Kristmundsson, frá Kald-
bak i Hrunamannahreppi.
Þau hjón taka á móti gest-
um í dag, uppstigningadag
í sal Menntaskólans á Laug-
arvatni kl. 15-18.
Farsi
nf' fabbL, nÍL hztoLur bénswxrinn,
t>u þur-fír cL secstaJrrv QthuqU,
(&> hoddoL *
STJÖRNUSPÁ
cftir Frances Drake
*
TVÍBURAR
Afmælisbam dagsins:
Þú anar ekki að neinu og
íhugar málin vel áður en
þú tekur ákvörðun.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Misstu ekki móðinn þótt á
móti blási. Ef þú leggur þig
fram leysast málin farsæl-
lega. Slakaðu á með vinum
i kvöld.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nú er rétti tíminn til að ræða
ágreiningsmál við vin. Nið-
urstaðan getur komið þér
ánægjulega á óvart. Kvöldið
verður rólegt.
Tviburar
(21.maí-20.júní)
Nú er ekki rétti tíminn til
að verða við bón kunningja
um peningalán. Þú munt sjá
eftir því síðar ef þú segir
ekki nei.
Krabbi
(21. júní — 22. júlí) HI6
Taktu það ekki alvarlega
þótt einhver gefi þér óum-
beðin ráð. Þótt viðkomandi
vilji þér vel reynast ráðin
haldlítil.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ef þú ert í ferðahugleiðing-
um ættir þú að útvega þér
bæklinga og kynna þér ferð-
ir á ókunnar slóðir. Félagi
færir góðar fréttir.______
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Vegna nýlegs ágreinings við
ástvin ertu í slæmu skapi í
dag. Þú getur bætt úr því
með rétta fram sáttarhönd.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú getur ekki reiknað með
að hafa svör við öllu, og
ættir ekki að hika við að leita
ráða hjá vinum eða vanda-
mönnum.___________________
Sþorödreki
(23.okt.-21.nóvember)
Þótt þú leggir.þig fram reyn-
ist erfitt að koma hugmynd-
um þínum til skila í dag.
Hafðu ekki áhyggjur, því
þetta lagast.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Heimili og flölskylda eru í
fyrirrúmi í dag, og þú nýtur
þess að umgangast böm. En
þú hefur einnig skyldum að
gegna.________________
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Einhver nákominn ætlast til
að þú getir leyst vandamál
sem upp hefur komið. Og ef
þú einbeitir þér finnur þú
réttu svörin.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Vertu ekki með óþarfa pen-
ingaáhyggjur og reyndu að
njóta dagsins. Samstaða rík-
ir hjá fjölskyldunni og kvöld-
ið verður gott.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þótt þú hafir ekki mikinn
áhuga á að blanda geði við
aðra í dag, ættir þú samt
að reyna. Fjölskyldan metur
það mikils.
Stjörnuspána á aó lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ckki á traustum
grunni vxsindalegra stað-
reynda.
Nú borgar sig að sauma
Mikið úrval af sumarefnum á góðu verði.
Saumum og gerum við.
Vefnaðarvöruverslunin
textillme
Faxafeni 12 Sími 588 1160
OPIÐ í DAG TIL KL, 9-17
Einstakt tilbr* “■
Alaskavíöir, brúnn og
gænn, á gjafveröi:
10 stk. á kr.
490
beinvaxið birki, kr. 390
Fyrir helgina:
Nlagnús Nlagnússon,
garðyrkjufræðingur.
Auður Jónsdóttir,
sölustjóri.
Hólmfríður Geirsdóttir,
garðyrkjufræðingur,
stöðvarstjóri.
Opið kl. 8-19, um helgar kl. 9-17, sími 564-1777
- kjarni málsins!