Morgunblaðið - 29.06.1995, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1995 9
Doktor í
hjúkrunarfræði
• HELGA Jónsdóttir varði 5. októ-
ber 1994 doktorsritgerð sína í hjúkr-
unarfræði við Min-
nesota háskóla í
Bandaríkjunum.
Ritgerðin nefnist
„Life Pattems of
People with Chronic
Obstructive
Pulmonary Disease;
Isolation and Being
Closed in“, sem í
íslenskri útgáfu
hefur fengið heitið: Lífsreynsla fólks
með langvinna lungnasjúkdóma.
Ritgerðin byggir á eiginlegri rann-
sókn sem höfundur gerði meðal ís-
lenskra lungnasjúklinga. Aðalleið-
beinandi var prófessor Margaret A.
Newman en rannsóknin byggir á
kenningu um heilbrigði sem prófess-
or Newman hefur þróað.
Rannsóknin var styrkt af Vísinda-
ráði íslands, Rannsóknasjóði Há-
skóla íslands, American Scandina-
vian Foundation, Alþjóðaheilbrigðis-
stofnuninni og Landspítalanum.
Helga ólst upp á Húsavík. Hún
lauk stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum á Akureyri árið 1977, BS prófi
í hjúkrunarfræði frá Háskóla íslands
árið 1981 og meistaragráðu frá Uni-
versity of Minnesota árið 1988.
Helga er lektor í námsbraut í hjúkr-
unarfræði í Háskóla íslands. Foreldr-
ar hennar eru Jón Sigurðsson og
Gerður Kristjánsdóttir. Hún er gift
dr. Arnóri Guðmyndssyni, þjóðfé-
lagsfræðingi og deildarsérfræðingi í
menntamálaráðuneytinu og eiga þau.
einn son.
Kaþólsk
prestvígsla í
Kristskirkju
• HR. EDWARD Kenny, Stokk-
hólmsbiskup, vígði laugardaginn 24.
júní John McKeon djákna til prests
í Kristskirkju á Landakoti. Þetta er
fyrsti kaþólski presturinn sem vígður
er til starfa hér um nokkurt skeið
en hann hefur starfað um tíma sem
djákni í biskupsdæminu.
Sr. John McKeon er enskur frá
norður Englandi. Við vígsluna komu
margir ættingja hans til að vera við-
staddir. Kirkjan var troðfull og stól-
um komið fyrir handa kirkjugestum.
Við athöfnina þjónuðu auk Kenny,
allir starfandi kaþólskir prestar á
landinu og auk þess tveir gestir,
annar ítalskur og hinn enskur. Mess-
an og vígslan fór fram á latínu en
lestrar á íslensku og ensku. Kenny
biskup predikaði á ensku en hann
er enskur að uppruna.
Sr. McKeon var boðinn velkomin
til starfa fyrir kaþólska biskupsdæm-
ið bæði í kirkju og utan, í samkvæmi
eftir vígsluna sem haldið var í safn-
aðarheimilinu. Að messu lokinni
veitti hinn nývígði prestur öllum þeim
er þess óskuðu sérstaka blessun sína
við gráturnar í kirkjunni.
Tveir prófess-
orarskipaðir
Á FUNDI ríkisráðs miðvikudaginn
28. júní voru skipaðir tveir prófess-
orar við Háskóla íslands.
Jón G. Friðjónsson var skipaður
prófessor í íslenskri málfræði við
heimspekideild Háskóla íslands frá
1. apríl 1994. Þóra Ellen Þórhalls-
dóttir var skipuð prófessor í grasa-
fræði við raunvísindadeild Háskólans
frá 1. júní 1995.
Ennfremur var Þór Vilhjálms-
syni hæstaréttardómara veitt lausn
frá embætti frá 1. júlí 1995.
FRÉTTIR
ÁRNI Þór Árnason með tvo 10 punda úr Norðurá í vikunni.
„Rjúkandi
ganga“ í
Norðurá
Stóri straumurinn er í dag og tals-
verðar göngur hafa verið víða í lax-
veiðiánum, sérstaklega þó í Borgar-
fírðinum þar sem veiði hefur verið
mjög lífleg að undanförnu, sérstak-
lega í Norðurá. Þá hefur það borið
til tíðinda, að fyrstu laxarnir hafa
komið á land úr Stóru Laxá i Hrepp-
um og Soginu.
er vaxandi. Þetta er enn þá mest
fyrir neðan Laxfoss, á svæðunum
þar fyrir neðan, og það er mikið
af laxi í fossinum og Myrkhyl. Það
hafa verið að koma góðar göngur
með vaxandi straum síðustu daga
,“ sagði Rúnar Marvinsson kokkur
í veiðihúsinu Fossási við Grímsá í
gærdag. Stærstu laxarnir í Grímsá
eru nokkrir 14 punda og einn 16
punda.
Dauft í Dölunum
Fyrsta hollið í Laxá í Dölum fékk
17 laxa, harðsnúinn flokkur sem
veiddi í þrjá daga og lauk veiðum
á hádegi í gær. Áttu menn von á
meiri afla, en það gekk ekki eftir.
Þetta voru stórir laxar, allt að 17
punda og eitthvað töldu menn vera
af laxi í ánni. Opnunin var færð
aftur um fimm daga að þessu sinni,
en það skilaði sér ekki í meiri veiði.
í Haukadalsá hefur verið afar
dræm veiði, aðeins 24 laxar hafa
veiðst frá 15. júní, þar af 21 í sama
hylnum, Horninu. „Þetta er mjög
lélegt og sama sagan og í fyrra,
Hraunsfjörðurinn er að loka á
Hvammsfjarðarárnar aftur. Það
verður eitthvað að gera. Það er að
hætta hjá mér hópur sem hefur
veitt í tvær vikur og veiðin hefur
verið svo dræm að fólkið tók sér
frí frá veiðiskap í einn dag og fór
í skoðunarferð norður í Skagafjörð
um daginn!,“sagði Torfí Ásgeirsson
umsjónarmaður Háukadalsár í gær-
dag. Stærsti laxinn er 15 pund.
Þokkalegt
í Miðfjarðará
Veiðin hefur minnkað nokkuð í
Miðfjarðará eftir hressilega byrjun.
Fyrsti hópurinn veiddi 29 laxa við
slæm skilyrði og en þeir sem á eft-
ir komu veiddu 18 laxa. Nú er fá-
mennt við ána og lítil veiði, en skil-
yrði hafa þó batnað verulega. Alls
voru í gærdag komnir 48 laxar á
land.
Hér og þar...
Fyrstu laxarnir eru komnir úr
Soginu. Á sunnudaginn voru komn-
ir 4 úr Alviðru, 3 úr Ásgarði og
einn úr Bíldsfelli. Síðan hafa nokkr-
ir bæst við og líf hefur einnig verið
í Syðri Brú.
Stóra Laxá hefur einnig verið að
nudda stýrurnar úr augunum síð-
ustu daga, í gær voru komnir um
10 laxar á land, flestir á neðstu
tveimur neðstu svæðunum. Allt
boltafískar.
Talsverðar göngur hafa verið að
koma í Laxá í Kjós síðustu daga
með vaxandi straum, en vestanáttin
sem hefur verið ríkjandi hefur vald-
ið tregari tökum en ella. Þó voru
komnir um 90 laxar á land í gær-
dag.
PARTAR
Norðurá leiðir hjörðina
Veiðiri í Norðurá er all miklu
meiri heldur en fram kom í Morgun-
blaðinu í gær. Á hádegi í gær voru
komnir 380 laxar á land og hefur
verið bullandi veiði á öllum svæðum
frá Laxfossi og niður í Munaðar-
nes. „Það er ijúkandi ganga og fisk-
ur á lofti um allt,“ sagði Þór Jóns-
son fréttamaður í samtali við Morg-
unblaðið, en hann var ásamt félög-
um sínum í Stekknum á þriðjudag-
inn og lágu sex laxar í valnum.
„Við hefðum ekki haft á móti því
að vera lengur,“ bætti Þór við. Enn
er mikill stórlax í göngunum.
Mikill lax í Grímsá
„Veiðin er í ágætislagi, það eru
komnir 90 laxar á land og veiðin
Kaplahrauni 11, s. 565 3323
Eigum nýja og notaða boddýhluti í japanska og evrópska bíla:
Húdd, bretti, stuðara, grill, hurðir, hlera, skottlok, rúður.
Góðir hlutir - gott verð.
ESTEE LAUDER
Verslunin Gullbrá hefur fengið „andlitslyftingu“.
Af því tilefni bjóöum við til kynningar á Estée Lauder
í dag og föstudag frá kl. 12-18.
Glæsilegur kaupauki.
Vertu velkomin!
Gullbrá snyrtivöruverslun,
Nóatúni 17, sími 562-4217.
KitchenAid
Draumavél
heimilanna!
5 gerðir
Margir litir
Fæst um land allt.
50 lírn frAbær reynsla.
BP Borgartúni Einar Farestveit & Co. hf. 28 * 562 2901 og 562 2900
fff» • jfi
FAILEGRI * FLjÓTARI » HIJÓÐLÁTARI » ÖRUCGARI » SPARNEYTNARI « ÓDÝRARI
m ASKO flokks iFOnix
Sænskar og sérstakar frá hátúni6a reykjavík sImi 552 4420
Hitachil
Kraftur
örvggi
Hitad
HUSASMIÐJAN