Morgunblaðið - 04.07.1995, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.07.1995, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ISUMAR stendur Vinnuskóli Reykjavík- ur fyrir viðamiklu fræðslustarfi fyrir unglinga. Yfirskrift þess er „Reykja- vík-Borgin mín“ og er tilgangurinn að unglingamir kynnist borginni sinni og fái betri tilfinningu fyrir henni. Yfirumsjón með verkefninu hafa þau Ása Hauksdóttir og Guðmundur Guðmundsson hjá Vinnu- skóla Reykjavíkur. Markviss fræðsla Allir þátttakendur fara í fjórar mismun- andi fræðsluferðir á því sex vikna tímabili sem þeir eru í vinnuskólanum. Verkefninu er skipt í tvennt eftir aldri þátttakenda og kynnist eldri hópurinn m.a. umhverfisvemd og starfsemi Sorpu og Nesjavöllum þar sem Nesjavallavirkjun er skoðuð og fræðsla er um landvemd og uppgræðslu. Yngri hópur- inn kynnist til að mynda styttum bæjarins, útilistaverkum í Reykjavík og Öskjuhlíðinni með þeim minjum sem þar er að finna. Áð sögn Guðmundar Guðmundssonar hefur fræðslustarf verið fyrir hendi undan- farin ár en nú í sumar er það orðið skipu- lagðara og áhersla lögð á markvissa fræðslu þar sem krakkarnir verða að fylgjast vel með og lesa sér til því ferðimar enda allar á verkefni. Hann sagði alla skipulagningu hafa gengið vel og hinar ýmsu stofnanir sem koma við sögu hafi sýnt mikinn áhuga og skilning á mikilvægi fræðslustarfs af þessu tagi. Bygglingarsaga Reykjavíkur eftir 1930 Blaðamaður Morgunblaðsins slóst í hóp með eldri hópnum, 15 ára unglingum, á dögunum þar sem byggingarsaga Reykja- víkur eftir 1930 var skoðuð. Mætt var á Kjarvalsstaði stundvíslega kl. 9 árdegis og var þá sest inn í fyrirlestra- sal þar sem Hrefna Þorsteinsdóttir arkitekt hélt fyrirlestur. Ýmsir stílar og stefnur í byggingarlist vom skoðuð og kom þar margt athyglisvert í ljós eins og t.d. nota- gildisstefnan sem átti að tryggja íbúum Norðurmýrarinnar hámarksnýtingu sólar- innar með því að skipuleggja húsin þannig að öll hús hefðu garða sem sneru í suður. Fyrir neðan Skólavörðuholtið er Austurbæj- arskólinn sem var á sínum tíma sá nýtisku- legasti á Iandinu. Eins var áhugavert að sjá hugmyndir manna um Skólavörðuholtið en þar átti að rísa háborg íslenskrar menn- LISTIR Borgarævintýri Borgin er margslungin og býr yfir mörgum skemmtileg- um sögum, enda í örri þróun og vexti. Þóroddur Bjamason kynntist henni upp á nýtt með hópi úr Vinnu- skóla Reykjavíkur á dögunum. ÁHRIF borgarínnar færð í myndir fyrir framan hús ÍTR. VIÐ elsta steinsteypta íbúðarhús i Reykjavík, Ingólfsstræti 21. Morgunblaðið/Halldór í GARÐI Listasafns Einars Jónssonar. ingar með háskóla, listasöfnum og fleiri opinberum byggingum . Það eina sem varð úr þessu var bygging listasafns Einars Jóns- sonar. Þegar Einar hóf að byggja það hús sem einnig var heimili hans og vinnustofa undruðust menn hve langt utan þéttbýlis hann kaus að byggja. Einnig var gaman að sjá áætlun manna um járnbrautarstöð í skipulagi borgarinnar frá 1927. í lokin vék Hrefna að framtíðinni og áframhaldandi útþenslu borgarinnar sem er að stækka framar öllum áætlunum og ímyndunarafli manna fyrr á öldinni. Miðbæjarrölt Að loknum fyrirlestrinum voru allir fegn- ir að komast út í góða veðrið. Byijað var á byrjunarreit, Kjarvalsstöðum sjálfum og Miklatúni. Nakin steinsteypan er allsráð- andi í Kjarvalsstöðum. Kaldur og grár steinninn fær að njóta sín með spansk- grænu koparþakinu og Miklatúnið sem áður var kallað Klambratún á sér sögu sem mógröf. Gengið var um Norðurmýrina þar sem notagildisstefnan sást í raun og ljóst var að krakkamir höfðu fylgst með á fyrir- lestrinum, þegar Hrefna spurði þau útúr. Þannig var staldrað við ýmsar byggingar og svæði á leiðinni og á Skólavörðuholtinu reyndu krakkarnir að ímynda sér hvernig það hefði nú litið út með háborginni. Eftir heimsókn í garð Listasafns Einars Jónsson- ar var nestishlé sem þýddi hlaup út í næsta söluturn hjá mörgum en aðrir skoðuðu stytt- ur Einars af áhuga og m.a. voru þarna drengir sem sáu ævintýraheima spunaspils- ins „Dungeons & dragons" ljúkast upp í styttunum. Þá var gengið niður vistgötuna, Þórsgötu og ýmis öngstræti Þingholtanna þrædd þar til komið var að gamla íshúsinu sem hýsir Listasafn íslands núna og endað var fram- an við hús ÍTR á Fríkirkjuvegi 11 sem at- hafnamaðurinn Thor Jensen byggði fyrr á öldinni. Þetta var endastöðin og tími kom- inn til að leysa verkefni sem fólst í því að teikna eitthvað sem bar fyrir augu í ferð- inni. Allir tóku til óspilltra málanna og teiknað var af miklum krafti. Eftir þetta skildu blaðamaður og Ijós- myndari við hópinn í glampandi sólskini eftir Iærdómsríkan dag, sannfærðir um það að þetta væri framtíðin í dagskrá vinnuskól- ans því hvað er betra en að virkja andann til jafns við líkamann eins og Grikkja var siður og vissa til forna? Sembal- orgia TÖNLIST Skálhoilskirkja KAMMERTÓNLEIKAR J.S. Bach: Konsertf. 3 sembala og strengjasveit í C-dúr BWV 1064. Vivaldi/Bach: Konsert f. 4 sembala og str.sv. í a-moll BWV 10651. Helga Ingólfsdóttir, Guð- rún Óskarsdóttir, Elín Guðmunds- dóttir og Málfríður Konráðsdóttir (í 1), sembalar, auk Bachsveitar- innar I Skálholti, að þessu sinni Rut Ingólfsdóttir og Lilja Hjalta- dóttir, fiðlur, Sara Buckley, víóla, Örnólfur Kristjánsson, selló og Páll Hannesson, kontrabassi. Skálholtskirkju, laugardaginn 1. júlí kl. 14. TUTTUGASTA vertíð Sumar- tónleika í Skálholti var sett á laug- ardaginn var í viðurvist mennta- málaráðherra, og flutti séra Guð- mundur Óli Ólafsson ræðu í til- efni afmælisins á fyrstu tónleik- unum af þremur þann merkisdag. Sumartónleikarnir í Skálholts- kirkju, sem einkum eru helgaðir barokktónlist og nýrri íslenzkri andlegri tónsköpun, hafa á undra- skömmum tíma orðið að einhverri fegurstu rós í blómabeði íslenzks tónlistarlífs, og hafa margir li- stelskir áheyrendur „gengið suð- ur“ í sveitarkyrrðina til að njóta fágaðs tónlistarflutnings í ein- stæðum hljómburði Skálholts- kirkju án endurgjalds. Afmælið gat einnig af sér veglegan bækl- ing, þar sem finna má allmörg fróðleg greinarkorn og viðtol. Fyrstu tvennu tónleikar laugar- dagsins hljóta að hafa glatt eyru sembalunnenda. Kl. 15 mætti franski clavecin-snillingurinn Fran?oise Lengellé til einleiks, en kl. 14 var boðið upp á hvorki meira né minna en þijá (og síðan fjóra) sembala í samleik við aðeins 5 girnisstrengd strokhljóðfæri, svo tryggt var, að hinn viðkvæmi niður af gásfiðruðu látúns- strengjaplokki næði eyrum tón- leikagesta ótruflaður. Bach samdi um 14 sembalkon- serta í Leipzig á ofanverðum 4. áratug 18. aldar, þar af 3 fyrir tvo sembala, 2 fyrir þijá og 1 (BWV 1065) fyrir fjóra, eflaust ætlaða sjálfum sér og nemendum sínum í samleik við Collegium Musicum sveitina á laugardags- tónleikum í Kaffihúsi Zimmer- manns. Því miður var ekki auka- tekið orð að finna um viðfangsefn- in í tónleikaskrá, en þar hefði t.d. mátt koma fram, að sembalkon- sertarnir eru flestir umritanir af öðrum konsertum (oftast fyrir fiðlu(r)), svo og, að BWV 1065 er útsetning á eldri konsert eftir Vivaldi (Op. 10 nr. 3) fyrir 4 fiðl- ur, víólu og fylgibassa, jafnvel þótt frumgerð Vivaldis sé allkunn og enn töluvert flutt. Þó að snilldartök Bachs láti ekki að sér hæða í þessum umrit- unum, hygg ég, að flestir hlust- endur sem eitt sinn hafa heyrt frumgerð þeirra - konsertinn fyr- ir óbó og fiðlu í c (endurvakinn í Neue Bach Ausgabe), sem síðar varð að BWV 1060 f. 2 sembala, er gott og nálganlegt dæmi - kjósi þá gerð í stað sembalútgáf- unnar, enda tónfjölbreytni strok- og blásturshljóðfæra ólíkt meiri en tveggja sembala. Þó kastar tólfum, þegar fjórir sembalar iða á fullu, og þyrftu áheyrendur þá eiginlega að sitja í miðju og hljóm- borðsleikararnir í sitt hveiju horni hússins, svo að uppbygging verks- ins nyti sín sem bezt í „4ra rása víðómi“, en því var ekki að heilsa. En hvað sem því líður, þá léku flytjendur vel og skörulega, utan hvað tutti-kaflar lokaþáttarins í C-dúr konsertnum skjögruðu lítil- lega. Eftirminnilegustu konsert- þættirnir voru Adagióið þar á undan (þar sem stefið var nauða- líkt velþekktu angurværu finn- landssænsku þjóðlagi), 1. þáttur- inn í Vivaldi, sem Bach gerði að umgjörð gríðarmikillar sembal- akadenzu, og hinn hraði lokaþátt- ur sama verks, sem leikinn var af smitandi spilagleði. Ríkarður Ö. Pálsson Franskt skapgerð- arbarokk TÖNLIST S káIh oItskí rkj a EINLEIKSTÓNLEIKAR Louis Coupperin: Svita í d-moll. Frangoís Couperin: Þættir úr De- uxime Ordre. Armand-Louis Cou- perin: La Turpin; Menuet I/II; La Chéron; L’Affigée; La Du Breuil. Frangoise Lengellé, semball. Skálholtskirkju, laugardaginn 1. júlíkl.15. TÓNLEIKAR nr. 2 sl. Iaugar- dag í Skálholtskirkju státuðu af góðum gesti, franska semballeik- aranum Francoise Lengellé, kenn- ara í kammertónlist og fylgibassa- leik (basso continuo) við ríkistón- listarhákólann í Lyon. Madame Lengellé mun einnig hafa fengizt við franska endurreisnartónlist auk barokkmeistaranna, enda bar túlkun hennar vissulega þess merki, að hér fór saman mikil þekking, tækni og innlifun í tón- menningu sem á íslandi hefur staðið nokkuð í skugga þýzka síð- barokksins; alltjent hefur fremur lítið borið á franskri tónlist frá 16. og 17. öld hér um slóðir á undanförnum árum. En vera kann, að áhuginn sé að aukast. Kvikmyndin „Allir heimsins morgnar" vakti tölu- verða forvitni fyrir gömbutónlist þeirra Marin Marais og Sainte Colombe frá yngri árum Loðvíks XIV, og þýðing Couperin-ættar- innar fyrir tónsögu Vésturlanda hefur ætíð verið óumdeilanleg. Couperinar voru sambærilegir við Bachana í Þýzkalandi á sama tíma, nema hvað þeir komust til meiri metorða á veraldarvísu í skjóli einveldiskonungdæmis Frakka en Bachættin, því smáfur- stadæmin austan Rínar gáfu ekki sömu möguleika til tónlistar- umsvifa og stórveldið fyrir vestan, og voru þar á ofan í sárum eftir 30 ára stríðið. Elztur hinna kunnustu tón- skálda af Couperin-ætt var Louis (1626-61). Hann' var nemandi hirðtónskáldsins Chambonnires og einn af frumkvöðlum hljóm- borðssvítunnar. Madame Lengellé lék eftir hann Svítu í d-moll, þar sem annað slagið mátti greina rætur svítunnar í eldri lútutónlist með tilheyrandi fijálsröddun, til- kominni vegna tæknilegra tak- markana Iútuleiks, enda þótt fúg- un kæmi einnig við sögu stöku sinni, t.a.m. í Prelúdíunni, sem var nokkurs konar Fantasía og fúga í ABA-formi franska óperu- forleiksins. Þættir úr Annarri svítu eftir Francois „Le Grand“ Couperin (1668-1733), bróðurson Louis, voru næstir á skrá. Þessi heillandi litlu skapgerðarstykki um lands- lag, stemningar, persónur og álíka báru titla, er stundum gátu minnt á skens Eriks Saties. Hver veit nema sá hafi fengið eina og eina hugmynd að láni frá Frans mikla. Þættirnir voru fluttir af miklu öryggi og tilfinningu fyrir þeim ávæningi af skringikímni sem felst í upprunamerkingu orðsins barokk. Sú tilfinning, að upphaf hins „galanta“ stíls hafi sprottið nærri þessum lindum, fékk byr undir báða vængi, þegar kom að yngsta Couperininum, Armand-Louis (1727-1789), hafi hún ekki verið fullfleyg þegar hjá Frangois. Mme Lengellé tulkaði Le Turpin hressi- lega, og sýndi eftirtektarverða fingralipurð í La Chéron og enn ineiri í hinu leifturhraða gigue- kennda La Du Breuil, er leiddi hugann að veiðimennsku með caccia-hrynjandi sinni. í L’Affl- igée (Hin sorgmædda), glitti í angurværð fyrir-rómantíkur, svo að Empfindsamkeit C.P.E. Bachs kom upp í innra eyrað. Leikur Francoise Lengellé var einkar sannfærandi, innlifaður og svo rennisléttur í útfærslu skraut- nótna, sem hættir til að sliga hljómborðsverk einkum Francois Couperins í höndum meðalsembal- leikara, að við lá, að maður tæki ekki eftir skrautinu. Líkt og til- sniðnu runnarnir í hallargörðum Versala kæmu allt i einu fyrir sjónir sem hrein og óspillt náttúra. Slíkur er máttur góðrar spila- mennsku. Ríkarður Ö. Pálsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.