Morgunblaðið - 04.07.1995, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 04.07.1995, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ1995 25 AÐSENDAR GREINAR Sífelldar hótanir og látlaust sérhagsmunapot MARGIR dyggir sjálfstæðismenn í Hafn- arfirði og víðar hugleiða vafalaust þessa dagana hvort ekki hefði verið hægt að koma í veg fyrir það uppgjör sem fer fram innan Sjálf- stæðisflokksins.. í Hafn- arfirði. I mínum huga var það því miður óumf- lýjanlegt. Hér á eftir mun ég nefna opinskátt nokkur dæmi um þau vandamál sem fylgt hafa samstarfinu við Jóhann G. Bergþórsson, sem urðu á endanum til þess að hann og Ellert Magnús Gunnarsson ugri stjómarandstöðu á sama tíma. Hefði Jó- hann þama með réttu átt að láta af setu í bæjarstjórn, en hann kaus að sitja sem fastast. Síðar kom í ljós að Jóhann hafði um svipað leyti verið ein- dreginn talsmaður þess að Sjálfstæðisflokkurinn styddi óraunhæfa ijár- hagsáætlun sem Al- þýðuflokkurinn lagði fram fyrir árið 1993, en sú hugmynd Jóhanns fékk ekki hljómgmnn innan Sjálfstæðisflokks- ins. Borgar Þorvaldsson kusu að fara sín- ar eigin leiðir, gegn vilja mikils meiri- hluta sjálfstæðismanna. Persónulegir hagsmunir í fyrirrúmi Glöggir menn hafa fyrir löngu séð að í öllum deilumálum innan Sjálf- stæðisflokksins í Hafnarfirði síðustu Bæjarfulltrúi hefur ítrekað, segir Magnús Gunnarsson, blandað saman persónulegum hagsmunum og bæjarins. ár, er einn samnefnari. Hann er að bæjarfulltrúinn Jóhann G. Bergþórs- son hefur ítrekað blandað saman per- sónulegum hagsmunum sínum og fyrirtækja sinna annars vegar og hagsmunum Sjálfstæðisflokksins og bæjarfélagsins hins vegar. Alvarlegir brestir komu fram í samskiptum Jó- hanns G. Bergþórssonar við flokks- bræður sína innan Sjálfstæðisflokks- ins árið 1993. Þá kom í ljós að Jó- hann hafði fyrir hönd fyrirtækis síns, Hagvirki-Kletts, gert nauðarsamn- inga við Hafnarfjarðarbæ nokkrum mánuðum áður. Jóhann, sem þá var oddviti flokksins, gerði þessa samn- inga við þáverandi bæjarstjóra, Guð- mund Áma Stefánsson, Alþýðuflokki, án vitundar flokkssystkina sinna. Hér var því um alvarlegt trúnaðarbrot að ræða, þar sem Jóhann varð um leið óhæfur til að gegna forystu í trúverð- Nýjung á Islandi Ekens „hvíldargreinir" sem aðstoðar þig við að velja dýnu sem hentar þér. Þú leggst á sérstaka mælidýnu, sem nemur þyngdardreifingu líkama þíns og prentar út ráðleggingar um þá dýnugerð sem hentar þér. Natur deluxe dýnurnar tryggja þér góðan nætursvefn. Dýnurnar eru búnar til úr náttúruefnum að öllu leyti eins og nafnið gefur til kynna og fást í fjórum mismunandi stífleikum. Ekens Natur deluxe SUÐURLANDSBRAUT 22 • SÍMI 5 53 60 I Eigum höfðagafla við dýnurnar iMn handa fyrirtækinu Hagvirki - Kletti tóku að berast meirihlutanum frá Jóhanni. Fyrirtækið var að komast í þrot og gekk Jóhann því afar hreint til verks í þeirri viðleitni sinni að bjarga því á kostnað bæjarsjóðs. Til dæmis sótti hann það stíft að Hag- virki - Klettur fengi 31 milljón krónu viðbótargreiðslu frá bæjarsjóði vegna byggingar safnaðarheimilis og Tón- listarskóla. f það verk hafði fyrirtæk- ið boðið lægst allra í Qpnu útboði og á niðurstöðu þess fengið verkið. Þess- ari kröfu hans var vitaskuld ekki svarað. Þá fór hann fram á að verk- takafyrirtæki sem er að hluta í hans eigu, Hagtak hf., fengi hina umdeildu útrásarsamninga sem Hagvirki - Klettur hafði áður fengið án útboðs frá fyrrum meirihluta Alþýðuflokks- ins. Er hér úm að ræða verk upp á rúmar 200 milljóna króna sem mikl- ar deilur spunnust út af á sínum tíma. Mótmælti þá meðal annars bæjarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins, Þorgils Ótt- ar Mathiesen, því harðlega að svo stórt verk skyldi ekki vera boðið út. Jóhann hafði greinileg lítið lært og vildi nú fá verkið á nýjan leik án útboðs. Þessari kröfu var ekki svar- að. Öllum er kunnug sú mikla um- ræða um skýrslu Löggiltra endur- skoðenda hf., sem lögð var fram í byrjun árs 1995, um viðskipti Hag- virkis - Kletts hf. við bæjarsjóð á síðasta kjörtímabili. Þar komu m.a. fram fyrirframgreiðslur og ábyrgðir sem ekki voru heimildir fyrir og eru það skýr brot á sveitarstjómarlögum. Fleiri dæmi mætti nefna en hér !æt ég staðar numið að sinni. Oumflýjanlegt uppgjör Sem oddviti Sjálfstæðisflokksins gat ég ekki liðið vinnubrögð Jóhanns Gunnars Bergþórssonar, sem ítrekað og vísvitandi lagði stein í götu meiri- hlutasamstarfsins með því að blanda saman persónulegum hagsmunum sínum og bæjarsjóðs. Það uppgjör sem nú á sér stað innan flokksins er því óumflýjanlegt. Reynt var til þrautar að ná sáttum en án árangurs. Það á að vera eitt helsta markmið Sjálfstæð- isflokksins að beijast gegn spillingu og sérhagsmunapoti af öllum toga. í mínum huga eru heiðarleg vinnu- brögð og heilindi meira virði en þrá- seta í meirihluta við þær aðstæður sem ríkt hafa. - Og ég er þess fuli- viss að mikill meirihluti Hafnfírðinga er mér sammála í þessu máli. Höfundur er oddviti sjáifstæðismanna í Hafnarfirði Andstaða nema gegn gjaldi Frá upphafi var Jóhann G. Berg- þórsson mjög andvígur því að Sjálf- stæðisflokkur og Alþýðubandalag mynduðu meirihluta í bæjarstjórn, enda gerði hann tillögu um að fyrst yrði rætt við Alþýðuflokkinn. Má til sanns vegar færa að Jóhann hafí verið kröftugri i stjórnarandstöð- unni, loksins þegar flokkur hans, það er Sjálfstæðisflokkurinn, komst í meirihluta heldur en þau íjögur ár sem hann átti að heita leiðtogi stjórn- arandstöðunnar. Þrátt fyrir það sam- þykkti hann að lokum að styðja hinn nýja meirihluta. Á síðustu stigum samningaviðræðna kom fram ósk um að hann yrði ráðinn í stöðu bæjar- verkfræðings. Á þessum tíma gátu sjálfstæðismenn samþykkt það, enda hafði Jóhann menntun og reynslu til starfans. - En það var einnig tekið skýrt fram, að Jóhann gæti ekki setið áfram í bæjarstjórn ef hann tæki starfið. Um það geta fjölmargir vitnað. Á þessari stundu töldu menn þetta svo sjálfsagt að það væri óþarft að taka það sérstaklega fram í samn- ingnum. Um leið og Jóhann lýsti því hins vegar yfir að hann hygðist ekki hætta í bæjarstjórn þegar hann tæki við stöðu bæjarverkfræðings, var ljóst að fyrra samkomulag var brost- ið. Hann vissi vel frá byijun að aldr- ei yrði samþykkt að hann sæti beggja megin borðs innan bæjarkerfisins. Allt tal hans um brot á samningum á því ekki við rök að styðjast. Sífelldar hótanir Blekið var vart þornað á hinum nýja meirihlutasamningi þegar ýmiss konar kröfur um fyrirgreiðslu til c Um síðustu áramót stóðu kæliefnanotendur á krossgötum. Hefur þú áttað þig? Suva MP39 (R40IA):Á gömul kerfi, ein olíuskipti, alhliða notkun. Suva MP66 (R401B): Á gömul kerfi, ein olíuskipti, fyrir frystigáma o.fl. Suva 134a (R134a): Á ný og gömul kerfi, alhliða notkun. dSSEESZÞ----------- Suva HP80 (R402A): Á gömul kerfi, ein olíuskipti, alhliða notkun. Suva HP8I (R402B):Á gömul kerfi, ein olíuskipti, td. fyrir ísvélar o.fl. Suva HP62 (R404A):Á ný og gömul kerfi, alhliða notkun. Lekaleit Við bjóðum nú sporefni og lampa til lekaleitar. Þú setur sporefni á kerfið og lekinn kemur strax í Ijós. Ath! Aðeins þarf eitt sporefni fyrir allar olíur og kæliefni, sem er mun hagkvæmara í notkun en sporefni annarra framleiðenda. kæliefni Lekaleitartæki og sporefni HcÍA^ón O.dLLaAonF Sími 552-0000.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.