Morgunblaðið - 04.07.1995, Síða 48

Morgunblaðið - 04.07.1995, Síða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ UNGLINGAR Langaði alltaf að verða söng- og leikkona EIN skærasta stjarnan í poppheiminum á íslandi í dag er án efa Heiðrún Anna Bjömsdóttir. Hún tók þátt í uppsetningu söngleiksins Hárs- ins sem sýndur var í fyrra og hefur síðan leikið í kvik- myndum, verið fyrirsæta á Ítalíu og svo hefur hún auðvitað sungið. Hún er núna söngkona hljómsveitar- innar Cigarette og segir okkur hér frá æsku sinni á Seltjarnamesinu. Ég var frekar stillt og prúð þegar ég var unglingur og ég var ekkert rosalega ömgg með mig. Ég man þegar ég byrjaði í Valhúsaskóla; við stóðum nokkrar stelpur saman og mér leið svo ilia að önnur löppin á mér byijaði að titra alveg á fullu og ég hafði enga stjórn á henni. Ég var semsagt frekar óörugg. Ég reykti ekki og drakk ekki og byijaði frekar seint að drekka miðað við vinkonur mínar, ég mátti ekki fara í partí og þurfti alltaf að vera komin heim klukkan eitt og það var haldið vel utan um mig þannig. Einu sinni kom það fyrir að mamma sótti mig þegar ég var ekki komin heim á réttum tíma. Þá var ég eitthvað skotin í strák og fór með honum heim eftir ball, við vorum í áttunda bekk og ballið búið eitthvað um eitt- leytið. Ég átti náttúrlega að koma heim um leið og ballið var búið en ég fór með honum í staðinn, við vorum að horfa á vídeó, voða gaman, allt í einu kom mamma með úfið hárið á náttfötunum og bankaði uppá, ég fór alveg í klessu. Ég gerði þetta ekki aftur því mamma sagðist bara sækja mig ef ég kæmi ekki heim á réttum tíma. Ég var ágæt í skólanum þangað til í tólf ára bekk, þá fór námið að dala hjá mér og ég varð bara meðal námsmanneskja, ég reddaði þessu alltaf en það var aðallega stærðfræðin sem var eitthvað að vefjast fyrir mér. Ég skellti mér af fullum krafti í fé- lagslífið, fór í nemendaráðið og var í leikritunum í skólanum og tók þátt í öllu sem hægt var að taka þátt í. Lærði á píanó, var að æfa sund, var að æfa hand- bolta en svo hætti ég því reyndar öllu ' einu af öðru þegar félagslífið í skólanum varð meira og meira. Ég var líka í kór Mýrarhúsaskóla og við fórum m.a. í söngferðalag til Ítalíu og sungum þar í nokkrum kirkjum. Eftirminnilegt sumarfrí Ég man eftir svo mörgum sum- arfríum, það er kannski eftir- minnilegast þegar mamma og pabbi fóru í sumarbú- stað og ég var ein heima. Ég var í níunda bekk þegar þetta var, þau voru búin að ákveða að vera í þriggja vikna fríi en voru allt- af að hringja í mig og segjast vera á leiðinni heim svo ég færi ekki að halda partí. Ég bauð samt nokkrum krökkum heim, það var auðvitað líf og ljör, en ekkert villt partí. Minnimáttarkennd og komplexar Ég var með alveg fullt af komplexum, ég var alltaf rosalega mjó og það var svosem allt í lagi, en einu sinni var ég úti að Iabba með vinkonum mínum og þá sagði ein þeirra að ég væri ekki með neinn rass og ég tók það frekar nærri mér og fannst það leiðinlegt. Svo fannst mér ég bara vera Ijót á tímabili, ég var með spangir á tönnunum og fannst ekkert varið í mig. Svo allt í einu, þegar spangirnar voru farnar og svoleiðis og ég komin með nokkur kíló utan á mig, þá varð sætasti strákurinn í skólanum skotinn í mér, og það var svolítið skrítið fannst mér. Ég þorði líka ósköp lítið að opna munninn og tjá mig á þessum árum án þess að fara hjá mér, sérstáklega ef ég var innan- um fólk sem var eldra en ég, en ég var allt í lagi innanum jafnaldra mína. Söngkona og leikkona Ég var alltaf ákveðin í því að verða söngkona og leikkona alveg frá því ég var pínulítil. Ég var náttúrlega alltaf í skólaleikritunum og fólk tók vel í það sem ég var að gera. Það kom einu sinni í skólablaðinu eitthvað háð um mig og ég tók það mjög nærri mér af því ég er svo viðkvæm fyrir gagnrýni. En ég ákvað líka þá að ég skyldi sýna þessu fólki að ég gæti gert það sem ég vildi og mér finnst ég vera búin að því. Ég var að leika í myndinni „Nei er ekkert svar“ sem Jón Tryggvason gerði og svo er ég að fara að leika í stuttmynd sem fyrirtækið Kjól og Anderson framleiðir og heitir sú mynd „Smá nautn“. Allir sem leika í myndinni eru söngvarar og við erum að vinna sameiginlega að plötu, Daníel Ágúst er mjög duglegur við að semja og við erum í stúdíói að taka upp. Við erum með eitt til tvö lög hvert en það er alls óvíst hvort tónlistin verður líka notuð í myndinni. Að lokum ég er svolítið stressuð með nafnið á hljómsveitinni Cigarette, og ég vil að það komi fram að ég reyki ekki og hef aldrei gert. Reykingar eyðileggja röddina Hvar eru þau og hvað eru þau að gera? Útvarp í Hafnarfirði í FÉLAGSMIÐSTÖÐINNI Vitanum er um þessar mund- ir rekin útvarpsstöð sem næst því miður ekki nema í Hafn- arfirði og Garðabæ. Allir starfsmenn stöðvarinnar eru unglingar og sjá þeir að öllu leyti um dagskrárgerð. Einn af þeim sem er þarna að störfum er Valur Grettisson, 15 ára. „Þetta er Radíó Vitinn, út- varp Hafnarfjarðar á bylgju- lengd Fm 91,7 en næst bara hér í næsta nágrenni. Við erum að kenna krökkum sem er hér á námskeiði, krökkum sem ekki fengu neina vinnu, að verða útvarpsmenn. Nám- skeiðið er búið að vera í viku og á að vera aðra viku og þá hættum við útsendingum. Dagskráin er allavega. Það fera bara eftir hveijum og einum útvarpsmanni, þeir búa til skipulag og oft eru þeir með viðtöl við fræga menn, ef hægt er að ná í þá. Stund- um er bara tónlist og svo eru rabbþættir, það er líka hægt að hringja inn og biðja um óskalög eða bera fram spurn- ingar. Eins og ég segi, fer dagskráin bara eftir hverjum og einum útvarpsmanni. Ég get alveg hugsað mér að vinna við útvarp þegar ég er orðinn eldri ef mér býðst það,“ sagði útvarpsmaður framtíðarinnar að lokum. Hvernig finnst þér stelpur/strákar? Erna Geirsdóttir 13 ára Strákar eru skemmtilegir og sumir eru sætir og þeir eru bara ágætir. Erik Sverrisson 18 ára Þær eru það yndislegasta sem Guð gerði. HH Það er spurning? SllgHHHBHH Hvemig leggst sumarið í þig? * Jpstudagin ■ ********$>* ýJKrpí IStíQ |4 Æn ■ j/éEgftM. Forlctí y| íris, 15 ára Það leggst bara ágætlega í mig. Magnús, 13 ára Ágætlega. Haukur, 13 ára Alveg ágætlega. Laugi, 14 ára Æðislega

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.