Morgunblaðið - 20.07.1995, Qupperneq 1
72 SÍÐUR B/C/D
162. TBL. 83. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Alan Greerispan,
seðlabankastj óri
Bandaríkjanna
Góðar
horfur í
efnahags-
lífinu
Washington. Reuter.
ALAN Greenspan, seðlabanka-
stjóri Bandaríkjanna, sagði í
gær að efnahagshorfur í land-
inu væru góðar og spáði aukn-
um hagvexti á síðara misseri
þessa árs. Kvað hann þó ekki
unnt að útiloka einhvern aftur-
kipp en taldi líkur á honum
mjög litlar.
Kom þetta fram í misseris-
skýrslu seðlabankans til
bankanefndar fulltrúadeildar-
innar en margt bendir til að
bandarískt efnahagslíf sé að
hrista af sér slenið á öðrum
ársfjórðungi og farið að sækja
í sig veðrið á ný. Ytti seðla-
bankinn undir þá þróun fyrr í
mánuðinum með því að lækka
skammtímavexti í fyrsta sinn
í þrjú ár.
Greenspan taldi, að hag-
vöxtur hefði enginn verið á
öðrum ársfjórðungi en hann
var 2,7% á þeim fyrsta og 5,1%
á síðustu þremur mánuðum
fyrra árs. Nú er því spáð, að
hann verði 1,5 til 2% á þessu
ári og 2,25 til 2,75% 1996.
Atvinnuleysi var 5,6% í júní
en talið er, að það verði aðeins
meira það sem eftir er ársins.
Gengi dollara hækkaði veru-
lega á fjármálamörkuðum í
kjölfar ræðu Greenspans og
hefur ekki verið hærra gagn-
vart japönsku jeni í þrjú ár.
Hins vegar lækkaði Dow Jon-
es-hlutabréfavísitalan töluvert.
Er ein helsta skýringin sögð
sú að spákaupmenn hafi
ákveðið að ná inn hagnaði af
bréfum, þar sem frekari vaxta-
lækkanir eru ekki líklegar.
Serbar segjast hafa
náð Zepa á sitt vald
Pale, París. Reuter, The Daily Telegraph.
BOSNÍU-Serbar lýstu því yfir í
gærkvöldi að þeir hefðu náð bænum
Zepa á sitt vald og að fulitrúar íbúa
bæjarins, sem flestir eru múslimar,
hefðu gefist upp á fundi með Ratko
Mladic hershöfðingja. Zepa er annað
griðasvæði múslima í Bosníu, sem
Serbar hertaka, en þeir hafa sótt
að bænum frá því á föstudag. Talið
er að á bilinu 10-16 þúsund óbreytt-
ir borgarar séu í Zepa.
í yfirlýsingu Serba sagði að 30
særðir stjórnarhermenn yrðu fluttir
til Sarajevo, höfuðborgar Bosníu.
Þeir íbúar Zepa, er vildu yfirgefa
bæinn, yrðu fluttir til Kladanj, sem
er á yfirráðasvæði Bosníustjórnar.
Þúsundir flúðu frá Srebrenica eftir
að Serbar náðu bænum á sitt vald
í byrjun síðustu viku.
79 úkraínskir skæruliðar áttu að
gæta griðasvæðisins Zepa en síð-
degis í gær var greint frá því að
þeir yrðu fluttir á brott.
Sameinuðu þjóðirnar sögðust í
gærkvöldi ekki geta staðfest að
Zepa hefði fallið og sagði breska
útvarpið, BBC, að fulltrúar Bosníu-
stjórnar vísuðu slíkum fregnum á
bug.
Radovan Karadzic, leiðtogi Bos-
níu-Serba, sagði í gær að múslimar
í bænum Gorazde, sem Sameinuðu
þjóðirnar hafa einnig lýst griða-
svæði, ættu að gefast upp ella yrði
á þá ráðist. Þá yrðu vestrænar her-
þotur er reyndu að skipta sér af
málum skotnar niður.
Beita þarf herafii
Alain Juppé, forsætisráðherra
Frakklands, sagði að ekki væri
hægt að ná málamiðlun um griða-
svæðin. Nauðsynlegt væri að vernda
þau með herafli. I sjónvarpsviðtali
í gærkvöldi sagði hann að senda
ætti um þúsund manna herlið til
Frakkar vilja eitt þúsund manna
herlið til Gorazde
TVEIR breskir hermenn úr hinum nýstofnuðu hraðsveitum SÞ
stíga á land í hafnarborginni Ploce í Króatíu. Skipið kom með
3.000 tonn af hergögnum fyrir hraðsveitirnar.
Gorazde er væri nægilega vel vopn-
um búið til að veija bæinn. Frakkar
þyrftu hins vegar á aðstoð Banda-
ríkjamanna, Breta og íjóðveija að
halda.
Hann sagðist hafa rætt við John
Major, forsætisráðherra Bretlands,
síðdegis í gær og hvatt til að þegar
í stað yrði komið á fundi hemaðar-
sérfræðinga til að gera áætlun um
hvernig stöðva mætti sókn Serba.
Um 300 breskir og úkraínskir
friðargæsluliðar em nú á griða-
svæðinu. Breskir fjölmiðlar sögðu
þarlenda hemaðarsérfræðinga í
auknum mæli hallast að því að beita
hótunum um loftárásir til að stöðva
átökin. Þeir hafi hins vegar varað
ráðherra við því að verði sú leið
farin verði alvara að liggja að baki.
Þingmenn í öldungadeild Banda-
ríkjaþings ræddu í gærkvöldi, tillögu
Bob Doles forseta öldungadeildar-
innar, um að aflétta vopnasölubann-
inu á Bosníu. Bill Clinton Banda-
ríkjaforseti hefur lagst hart gegn
tillögunni og segir samþykkt hennar
þýða endalok aðgerða SÞ.
Ráðast á Bihac
Króatíu-Serbar og múslimskir
bandamenn þeirra, réðust í gær á
vígi Bosníustjórnar í Bihac. Fulltru-
ar SÞ sögðu Króatíu-Serba hafa
ráðist á héraðið úr vestri en sveitir
múslimska uppreisnarmannsins
Fikret Abdic úr norðri. Enn væri
þó of snemmt að segja til um hvort
markmið Serba væri að ná griða-
svæðinu á sitt vald. Alls búa um
180 þúsund manns í Bihac en griða-
svæði SÞ nær einungis til sjálfrar
borgarinnar Bihac en ekki svæðisins
í heild.
■ Afstaða Úkraínu/16
Tsjetsjníju-deilan
Ekki vilja
allir frið
VIKTOR Tsjernómyrdín, forsætis-
ráðherra Rússlands, sagði í viðtali
við rússneska ríkissjónvarpið í gær
að hann hefði ástæðu til að ætla
að öfl í Rússlandi vildu ekki binda
enda á deiluna um Tsjetsjníju.
Forsætisráðherrann nefndi engin
nöfn en talið er ljóst að hann hafi
átt við harðlínumenn er vilja halda
stríðsrekstrinum áfram. Pavel Grac-
hev vamarmálaráðherra gagnrýndi
Tsjernómyrdín og tilraunir hans til
að stilla til friðar harðlega fyrr í
mánuðinum.
„Sumir vilja halda áfram. Þeir
hugsa ekki um blóðsúthellingarnar.
Þessir menn eru of viljugir að fórna
lífum annarra," sagði Tsjernómyrd-
ín og tók fram að friðarviðræðum
yrði haldið áfram.
^ Reuter
ítölsk tíska
HELSTU tískukóngar Ítalíu efndu unum í Róm í gærkvöldi. Var það
til glæsilegrar sýningar á sköpun- gert í tilefni af tískusýningunni
arverkum sínum á spænsku tröpp- Alta Moda, en henni lauk í gær.
Veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum
ESB vill fund um
löndunarbannið
Brussel. Reuter.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu-
sambandsins, ESB, hefur farið fram
á fund fljótlega um veiðar úr norsk-
íslenska síldarstofninum en sam-
bandið hefur harðlega mótmælt
því, að síldarskipum frá ESB-ríkjum
skuli vera bannað að Ianda í Noregi
og á íslandi. Er litið á það sem
brot á samningunum um Evrópska
efnahagssvæðið, EES.
Fulltrúi framkvæmdastjórnar-
innar sagði í gær, að þetta mál
hefði verið rætt á fundi sameigin-
legu EES-nefndarinnar á þriðjudag
og væri stefnt að formlegum fundi
um það eins fljótt og auðið yrði.
Haft er eftir heimildum í Brussel,
að hvorir tveggju vilji finna lausn
á þessu máli en í síðustu viku sagði
talsmaður framkvæmdastjórnar-
innar, að hugsanlega yrði því vísað
til úrskurðar Evrópudómstólsins.
Þeirri hótun hefur þó ekki verið
haldið á lofti síðan.
Kannast ekki við ágreining
Stjórnvöld í Noregi og á íslandi
líta svo á, að þeim sé heimilt að
banna landanir á fiski úr stofnum,
sem „mikill ágreiningur" sé um, en
talsmenn ESB segjast ekki þekkja
til neins ágreinings. Veiðar á alþjóð-
legu hafsvæði séu öllum heimilar
og menn verði fyrst að koma saman
til að ræða málin áður en unnt sé
að tala um ágreining.