Morgunblaðið - 20.07.1995, Qupperneq 6
6 ” FIMMTUDAGUR120. JÍIU’ 1695
MORÖUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Norsk stjórnvöld segja mál Más óviðkomandi EES
Norðmenn kærðir
fáist ekki önnur svör
KÁRE Bryn, skrifstofustjóri í norska
utanríkisráðuneytinu, segir Islend-
inga hafa fengið þau svör, sem norsk
stjórnvöld muni gefa við mótmælum
þeim, sem sendiherra íslands í
Brussel setti fram á fundi sameigin-
legu EES-nefndarinnar á þriðjudag
vegna meðferðar norskra stjórn-
valda á togaranum Má SH 127.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra segir að fáist ekki önnur svör,
verði málinu vísað til EFTA-dóm-
stólsins í Genf.
Bryn segir að svör Norðmanna
hafi komið fram í rrtáli Eivinns Berg,
sendiherra Noregs í Brussel, á fundi
EES-nefndarinnar. Berg sagði í
norskum fjölmiðlum í gær að Noreg-
ur vísaði á bug þeim ásökunum Is-
lands að norsk löggjöf um leyfi til
að leita hafnar og framkvæmd reglu-
gerðarákvæða þar um bryti í bága
við samninginn um Evrópskt efna-
hagssvæði. ,,Þetta er mál á milli
Noregs og Islands, sem snýr að
norskum lögum, en ekki EES-sanin-
ingnurn," segir Berg í samtali við
Aftenposten. „Við teljum að EES-
samningurinn komi norskum reglum
um hafnir ekki við,“ segir Káre Bryn.
Eigum ekki annan kost en vísa
málinu til dómstólsins
„Ef engin breyting verður á, er
ekkert annað að gera en að óháður
úrskurðaraðili fjalli um málið,“ segir
Halldór Ásgrímsson. „Ef Norðmenn
vilja ekki fallast á þessi sjónarmið,
eigum við engan annan kost en að
vísa málinu áfram til EFTA-dóm-
stólsins og það verður gert. Við höf-
um ekki gefið Norðmönnum neinn
frest til að svara en við höfum held-
ur ekki ákveðið hvenær við vísum
málinu áfram.“
'msbrekki
Morgunblaðið/Marteinn Heiðarsson
Alhvít jörð á tjald-
stæðinu við Öskju
Mótmæla-
staða við
kínverska
sendiráðið
SAMBAND ungra sjálfstæðis-
manna, samband ungra jafnaðar-
manna, samband ungra framsókn-
armanna, Kvennalistinn, Þjóðvaki
og Verðandi munu efna til mót-
mælastöðu við kínverska sendiráðið
í dag kl. 17.30 og munu fulltrúar
hreyfinganna afhenda kínverska
sendiherranum ályktun við þetta
tækifæri.
Ástand mannréttindamála í Kína
er nú aftur í brennidepli í tilefni
af kvennaráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna í Kína og þáttarins Biðsal-
ir dauðans, sem var til sýningar í
Ríkissjónvarpinu í gærkvöldi.
Opinn fundur
Strax að lokinni mótmælastöðunni
gangast ungir jafnaðarmenn fyrir
opnum fundi um mannréttindabrot
Kínveija og viðbrögð við þeim.
Frummælendur á honum verða þau
Ágúst Þór Ámason, framkvæmda-
stjóri Mannréttindaskrifstofu ís-
lands, og Sigríður Lillý Baldursdótt-
ir, framkvæmdastjóri undirbún-
ingsnefndar Islands, fyrir kvenna-
ráðstefnu SÞ í Kína og tilvonandi
Kínafari. Fundurinn verður haldinn
á efri hæð Café Sólon íslandus og
hefst kl. 17.45, Fundarstjóri verður
Kjartan Emil Sigurðsson stjóm-
málafræðingur.
„MITT framboð er ekki í neinum
tengslum við vangaveltur um hugs-
anleg framboð annarra einstaklinga
til varaformannsembættis. Eg tel
óheppilegt ef gerðar verða tilraunir
til þess að fram komi blokkir eða
pör. Ég lít svo á að hér sé um alger-
lega aðskildar kosningar að ræða
og hvað mig sjálfan snertir er mitt
framboð ekki í neinum tengslum við
vangaveltur um slíkt," segir Stein-
grímur J. Sigfússon, varaformaður
Alþýðubandalagsins, sem afhenti í
gær Sigríði Jóhannesdóttur, for-
manni framkvæmdastjórnar flokks-
ins, formlega tilkynningu um fram-
boð sitt til formennsku í Alþýðu-
bandalaginu.
Listi með 100 meðmælendum
Steingrímur lagði einnig fram
lista til yfirkjörstjórnar með nöfnum
Forsætisráð-
herrar funda
FORSÆTISRÁÐHERRAR Norður-
landanna munu halda reglubundinn
fund í bænum Iluissat eða Jakobs-
havn á Grænlandi 14-16. ágústnæst-
komandi. Davíð Oddsson mun sækja
fundinn. Þar verða einnig forsætis-
ráðherrar Svíþjóðar, Noregs og Dan-
merkur, en Paavo Lipponen, forsæt-
isráðherra Finnlands, kemst ekki á
fundinn og mun Ole Norrback, Evr-
ópu- og Norðurlandamálaráðherra,
koma í hans stað.
100 meðmælenda úr félögum AI-
þýðubandalagsins. „Þama er um að
ræða nöfn úr öllum kördæmum og
velflestum flokksfélögum, nokkuð
jafn dreift milli kynja og aldurshópa
og talsvert af ungu fólki, forystu-
mönnum úr verkalýðshreyfíngu og
fleiri nöfn,“ sagði Steingrímur. Að-
spurður sagði hann að þingmenn
væru meðal meðmælenda en vildi
ekki greina frá því hverjir væru á
listanum.
Skrifleg allsheijaratkvæða-
greiðsla um formann Alþýðubanda-
lagsins sem nær til allra flokksbund-
inna félagsmanna hefst í lok septem-
ber og standa kosningarnar yfir í
tvær vikur og lýkur á landsfundi í
október. Auk Steingríms hefur Mar-
grét Frímannsdóttir alþingismaður
lýst yfir að hún muni bjóða sig fram
til formanns en hún hefur ekki enn
JÖRÐ var alhvít á tjaldstæðinu
við Öskju sl. sunnudagsmorgun,
tjöld þakin snjó og hiti var und-
ir frostmarki.
Að sögn Kára Kristjánssonar
landvarðar eru slík kuldaköst
ekki óalgeng á sumrin. Askja
sjálf er í 1100 metra hæð yfir
tilkynnt framboð sitt formlega. Eng-
in framboð hafa hins vegar komið
fram til varaformennsku í flokknum.
Framboðsfrestur rennur út 27. júlí.
Steingrímur vill að Alþýðubanda-
lagið standi fyrir sameiginlegum
fundum á næstu tveimur mánuðum
þar sem frambjóðendur kynna við-
, horf sín. Hefur hann dreift bréfi til
sjávarmáli og þar snjóaði enn
í gær. Tjaldstæðin við Öskju eru
í 900 metra hæð og snjó tekur
yfirleitt fljótt upp þar ef snjóar
á annað borð. Þar er nú um
þriggja til fjögurra stiga hiti á
daginn, en hiti fer stundum nið-
ur fyrir frostmark á næturnar.
flokkssystkina sinna þar sem hann
gerir grein fyrir framboði sínu. Þar
segir hann m.a. að afar mikilvægt
sé að forðast flokkadrætti í kosning-
unum og að reynt verði að afstýra
því að skýrt afmarkaðar fylkingar
myndist í flokknum um einstaka
frambjóðendur.
Morgunblaðið/Golli
Drög Borgarskipulags að
deiliskipulagi fyrir íbúahverf-
ið í Elliðaárdal.
Nýtt deili-
skipulag
kynnt fyrir
Elliðaárdal
TILLAGA að nýju deiliskipulagi
fyrir Elliðaárdal var kynnt á fundi
borgarráðs á þriðjudaginn var.
Gert er ráð fyrir þrernur nýbygg-
ingum auk bílskúra en samþykki
skipulagsnefnd tillögurnar munu
þær liklega leiða til þess að erfða-
festu á þremur Ióðum í dalnum
verður sagt upp.
Borgarskipulag skilaði drögum
að nýju deiliskipulagi fyrir dalinn
í vor og hafa tillögurnar verið til
meðferðar hjá skipulagsnefnd,
menningarmálanefnd, umhverfis-
málaráði og stjórn veitustofnana
að undanförnu. Verða þær síðan
afgreiddar-á fundi skipulagsnefnd-
ar sem næst kemur saman í lok
mánaðar að sögn Guðrúnar Ág-
ústsdóttur formanns nefndarinn-
ar.
Forsaga málsins er fyrirhuguð
sala á þremur húsum í hverfinu
sem Rafmagnsveitur ríkisins eiga
en salan gerir að verkum að af-
marka þarf lóðir umhverfis húsin
og taka ákvörðun um hvort leyfa
eigi byggingu bílskúra við þau, eða
annars konar breytingar. Segir
Guðrún að í framhaldi af því hafi
sjálfstæðismenn í skipulagsnefnd
lagt til að allt íbúðahverfið yrði
tekið og deiliskipulagt.
Víkur sæti
Guðrún mun víkja sæti á fundi
nefndarinnar um tillögur borgar-
skipulags því hún er íbúi á erfða-
festu landi í dalnum sem er 0,4
hektarar að stærð. Ef skipulagið
hlýtur samþykki þyrftu borgaryf-
irvöld liklega að taka til sín 800
mz af lóð hennar gegn greiðslu,
sem miðast við hversu gróið land-
ið er. Gert er ráð fyrir einu húsi
á hennar lóð og segir hún að
skaðabætur fyrir það séu óveru-
legar enda sé kartöflugarður á því
svæði.
Guðrún segir ennfremur að á
stærstu lóðinni liggi fyrir merki-
legt ævistarf í ræktun, þar séu
hæstu tré í Reykjavík, og nokkrar
tijátegundir sem hvergi vaxi
hærra á landinu öllu. Ekki er geit
ráð fyrir nýbyggingu á þeirri lóð,
sem er 3 hektarar, en verði erfða-
festunni aflétt verður húsinu sem
fyrir er afmörkuð hefðbundin lóð-
arstærð.
„Það væri meiriháttar slys ef
hróflað yrði við þeim merka garði,“
segir Guðrún að lokum.
Steingrímur J. Sigfússon tilkynnir framboð til formennsku
Mikilvægt að forð-
ast flokkadrætti
Morgunblaðið/Sverr
STEINGRÍMUR J. Sigfússon afhenti Sigríði Jóhannesdóttur,
formanni framkvæmdastjórnar Alþýðubandalagsins, tilkynn-
ingu um framboð sitt til formennsku í flokknum í gær.
I
)
)
I
\
í
i
I
i
\
i
\
i
i
i
l