Morgunblaðið - 20.07.1995, Qupperneq 7
MORGUNBIAÐIÐ
FIMMT.UÐAGUR 20. JÚLÍ 1995 7 )
FRÉTTIR
Skútustaða-
skóli verði
náttúru-
fræðslusetur
Akureyri, Morgunblaðið
HUGMYNDIR eru uppi hjá
sveitarstjórn Skútustaða-
hrepps að þegar Skútustaða-
skóli verði ekki lengur notaður
til reglulegs grunnskólahalds
og allt skólastarf verði flutt í
Reykjahlíðarskóla verði skóla-
húsið að Skútustöðum notað til
nýrrar atvinnustarfsemi.
Að sögn Sigurðar Rúnars
Ragnarssonar hefur komið til
tals að Skútustaðaskóli verði í
framtíðinni nýttur sem nátt-
úrufræðslusetur, bæði fyrir
erlenda og innlenda stúdenta,
ferðamenn og jafnvel grunn-
skólanema. Þar verði auk fæð-
is og húsnæðis boðið upp á
skipulega fræðslu um náttúru
Mývatns, jarðfræði Mývatns-
sveitar, landgræðslu og fleira
á því sviði.
Eftirspurn frá útlöndum
Sigurður Rúnar sagði að
nokkur ásókn væri í það, eink-
um frá útlöndum, að koma á
fræðsluferðum þar sem náms-
hópar fari sér til fróðleiks og
skemmtunar til staða sem hafa
magvísleg tækifæri í boði sem
tengjast náminu heimafyrir.
Einnig væri þetta álitlegur
kostur fyrir framhaldsskólana
á íslandi, en að vísu virðist
áfangakerfi skólanna ekki
gefa mikið svigrúm til svona
námsferða, en þó verði von-
andi hægt að koma því við og
glæða kennsluna þannig lífi
með því meðal annars að kom-
ast í snertingu við þá fjöl-
breytilegu náttúru sem Mý-
vatnssveit hefur að bjóða.
Sigurður Rúnar sagði að
þessar hugmyndir væru mjög
á frumstigi, enda hafi menn
haldið að sér höndum hvað
þetta varðar þar sem því hafi
verið haldið opnu að skólasel
yrði áfram að Skútustöðum.
Aðstæður í Mývatnssveit séu
góðar til að koma á starfsemi
af þessu tagi, einstætt lífríki,
fjölbreytileg jarðfræði og fjöl-
skrúðug atvinnustarfsemi af
ekki stærra sveitarfélagi að
vera.
------».--------
Fangelsi fyr-
ir að skjóta á
mann á kamri
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hef-
ur dæmt 24 ára gamlan mann í 9
mánaða fangelsi, þar af 6 mánuði
skilorðsbundna, fyrir að hafa skotið
úr haglabyssu í hurð á kamri við
gangnamannakofa á Skeiðaafrétti
í ágúst í fyrra.
A kamrinum sat þá jafnaldri
mannsins og fékk hann nokkur
högl í andlitið. Sagðist skotmaður-
inn hafa viljað hrekkja þennan fé-
laga sinn.
Augnlæknir fjarlægði högl úr
andliti og auga mannsins og var
ekki talið að hann verði fyrir varan-
legu heilsutjóni.
í dóminum segir að atferli skot-
mannsins hafi verið háskalegt og
hefði hæglega getað leitt til frekari
líkamsmeiðsla en raun varð á. Mað-
urinn var því sakfelldur fyrir að
hafa stefnt lífi eða heilsu félaga
síns í augijósan háska á ófyrirleitinn
hátt og dæmdur til 9 mánaða fang-
elsisvistar en afplánun 6 mánaða
fellur niður haldi maðurinn almennt
skilorð í 3 ár.
SKÚTUSTAÐIR við Mývatn. Ljósmynd: Björn Rúriksson
Fundur um
Kínaráð-
stefnuna
HINGAÐ til lands er komin Gertrud
Mongella, framkvæmdastjóri
Kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna í Peking, sem fram fer í haust.
Kvenréttindafélagið og undirbún-
ingsnefnd ráðstefnunnar hér á landi
hafa ákveðið að efna til fundar með
henni í kjallara Hallveigarstaðar
laugardaginn 22. júlí kl. 11-12. Á
fundinum gefst tækifæri til að spyija
Gertrude Mongella um ráðstefnuna
og framkvæmd hennar. Fundurinn
er ætlaður væntanlegum Kínaförum
og öðru áhugafólki um ráðstefnuna.
3 dyra HYUNDAI VW TOYOTA OPEL
ACCENT GOLF COROILA ASTRA
HYunoni
...til framtidar
Rúmtak vélar 1341 cc 1391 cc 1331 cc 1389 cc
Hestöfl 84 60 88 60
Lengd/Breidd cm 410/162 402/169 409/168 405/169
Farangursrými lítr. 380 370 309 360
Útvarp + segulb. Imgblið Ekki innifalið Ekki innifalið Innifalið
Þyngd 1075 1050 950
Verð 1.180.000 1.079.000 1.167.000
ve
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: S68 1200
BEINN SfMI: 553 1236
HYUNDAI ACCENT
84 hestöfl með beinni innspýtingu,
vökvastýri, vönduðum hljómflutningstækjum,
samlituðum stuðara
og lituðu gleri.
Aukabúnaöur á mynd,
álfelgur og vlndskeið.