Morgunblaðið - 30.07.1995, Qupperneq 20
20 SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/SAMBÍÓIN hafa tekið til sýninga stórmynd sumarsins í
Bandaríkjunum, Batman Forever. Val Kilmer leikur leðurblökumanninn, en
í hlutverki erkióvina hans eru stórstirnin Jim Carrey og Tommy Lee Jones.
BATMAN ENN
OG AFTUR
Á NÆTURNAR fer Bruce Wayne
(Val Kilmer) um Gotham-borg í
gervi Batmans og berst ásamt Rob-
in (Chris O’NichoIl) aðstoðarmanni
sínum gegn þjófum og ræningjum.
BARÁTTA Batmans við illu
öflin í Gotham City tekur
engan endi. Undanfarin ár hefur
verið fest á filmu barátta hans
við Jokerinn sem Jack Nicholson
lék, mörgæsarmanninn Danny
DeVito og kattarkonuna Michelle
Pfeiffer. Nú er komin þriðja
myndin, Batman Forever. Millj-
arðamæringurinn Bruce Wayne
tekur enn hamskiptum á hveiju
kvöldi og bregður sér í gerfi leð-
urblökumannsins og gerir sitt ít-
rasta til að fækka í hópi illmenn-
anna. Þrátt fyrir frækna sigra í
þeirri baráttu sér ekki högg á
vatni og enn er enginn skortur á
voðaverkum í Gotham-borg.
í Batman Forever, kljáist Bat-
man við tvo óvenju illskeytta
óvini. Two-Face (Tommy Lee
Jones) var áður saksóknari bæj-
arins og gekk þá undir nafninu
Harvey Dent. Hann varð hins
vegar fyrir slysi í réttarsalnum
og kennir Batman um slysið og
þau óhugnanlegu andlitslýti sem
hann hlaut við það. Two-Face
hefur svarið að ná sér niðri á
Batman og komast að því hver
það er sem gríman hans hylur.
Hann fær til liðs við sig The
Riddler, Gátumanninn (Jim Carr-
ey). Sá hét áður Edward Nygma
og var starfsmaður stórfyrir-
tækisins sem kennt er við Bruce
Wayne. Hann taldi sig hins vegar
sniðgenginn í starfí og hefur
umbreytt sér í skrautlegan en
leyndardómsfullan og stórhættu-
legan glæpamann sem hyggst
leita hefnda með vél að vopni sem
hann hefur fundið upp í því skyni
að ná allsherjartökum á hugs-
unargangi hinna góðu og grand-
vöru íbúa Gotham-borgar.
Þessir tveir stórglæpamenn,
sem að auki eru sundurgerðar-
menn í klæðarburði og uppá-
tækjasamir í meiralagi, taka
saman höndum og
heita að leggja
saman krafta
sína. Báðir vilja
steypa Gotham-
borg í glötun.
Markmið ann-
ars er að svipta Batman hulunni
og ærunni, hinn vill koma Bruce
Wayne á kné.
Það fer fram hjá báðum sem
hveijum manni ætti þó að vera
ljóst; Bruce Wayne og Batman
eru einn og sami maðurinn.
En að þessu sinni stendur
Batman ekki einn í baráttunni
því sér við hlið hefur hann ungan
félaga, Robin, öðru nafni loftfím-
leikamanninn Dick Grayson sem
líkt og Bruce Wayne hefur orðið
fyrir því áfalli að horfa upp á
læpamenn myrða foreldra sína.
því áfalli er að leita upphafsins
að því að Batman sagði glæpa-
lýðnum stríð á hendur og á sama
hátt heitir Dick Grayson því nú
að beijast hetjulega við hlið Bat-
mans.
Stríðið góða hefur hins vegar
ekki megnað að lina raunir Bruce
Wayne, sem enn er hijáður af
minningum um bemskuáföllin.
Sálarkvalimar útskýra hvílíkt
aðdráttarafl afbrotasálfræðing-
urinn ægifagri, dr. Chase Meri-
dian (Nicole Kidman) hefur á
Bruce Wayne en hún er hins veg-
ar tvístígandi gagnvart því að
játast milljarðamæringnum
myndarlega af því að það er í
raun annar sem á hug hennar
og hjarta. Og það er enginn ann-
ar en Batman.
Rétt eins og glæpamennimir
er afbrotasálfræðingurinn stór-
gáfaður en þó ekki nógu skarpur
til að sjá að Bruce Wayne hefur
ekki aðeins mótífíð heldur einn
íbúa Gotham næg efni til að hafa
ráð á öllum tækninýjungunum
sem Batman grípur til í barátt-
unni við glæpalýðinn, auk þess
sem munnsvipur beggja er alveg
eins.
Þess vegna bætist enn eitt
hugarangrið við í flækjuna hjá
Bruce Wayne, sem nú er orðinn
þátttakandi í tveggja manna ást-
arþríhyrningi og veit ekki hvort
hann á að treysta
konunni
GÁTUMAÐURINN (Jim
Carrey) hefur fundið upp
stórkostlega vél sem ætlað
er að heilaþvo ibúa Gotham-
borgar og aðstoða hann
þannig við að ná hefndum á
Bruce Wayne.
Batman Forever er þriðja
myndin sem gerð er um leður-
blökumanninn síðastliðin sex ár.
Hinum fyrri tveimur leikstýrði
Tim Burton og þá var Michael
Keaton í titilhlutverkinu. Þar
fékk Robin ekki að vera með.
í myndum Burtons var lögð
áhersla á drunga og sálarflækjur
söguhetjunnar en samt slógu þær
hressilega í gegn og hlutu metað-
sókn. Engu að síður ákváðu
framleiðendur myndarinnar,
Wamer-kvikmyndaverið, að
söðla um og fá Joel Schumacher
til að taka við stjórnartaumunum
þegar ákveðið var að gera þriðju
myndina.
Schumacher hefur áður m.a.
gert The Client með Susan
Sarandon og Tommy Lee Jones
í aðalhlutverkum og Falling
Down með Michael Douglas. Til
þess var ætlast af honum að
hann Iegði meiri áherslu en fyrir-
rennarinn á gamansemi, léttleika
og ævintýri við frásagnir af hetj-
unni og það hefur hann gert því
yfírbragð Batman Forever er allt
léttarra en fyrri myndanna
tveggja.
Tim Burton fór hins vegar
ekki langt þegar hann stóð upp
úr leikstjórastólnum því í þess-
ari mynd er hann í hlutverki
framleiðanda.
Það fer tvennum sögum
af því hvers vegna Michael
Keaton hvarf úr titilhlut-
verkinu en ljóst er að kröf-
ur hans um 15 milljóna
dollara, u.þ.b. 1 milljarður
króna, laun hafa ekki orðið
til að auka áhuga-aðstand-
enda myndarinnar á að
hafa hann með.
í staðinn var fenginn í
hlutverkið Val Kilmer, sem
lék Jim Morrison í The
Doors eftir Oliver Stone og
GÁTUMAÐURINN (Jim Carrey) og Two-Face (Tommy Lee
Jones) leggjast á eitt um að klekkja á Bruce Wayne, Batman
og Gotham City.
Á DAGINN nýtur milljarðamæringurinn Bruce Wayne (Val
Kilmer) lifsins með afbrotasálfræðingnum Chase Meridian
(Nicole Kidman).
Doc Holliday í Tombstone, og tók
hann það feginn að sér fyrir „að-
eins“ 6 milljónir dollara að sagt
er.
En 25 kílóa þungur leður-
blökubúningur Batmans gefur
ekki tilefni til mikilla leiktilþrifa.
Þess vegna hefur það jafnan orð-
ið raunin að glæpalýðurinn hefur
ekki aðeins rænt íbúa Gotham-
borgar verðmætum, svefnró og
örygistilfinningu í myndunum
heldur hafa leikarar þeir sem
fara með hlutverk illþýðisins
jafnan stolið senunni af leður-
blökumanninum sjálfum.
Þessi mynd er þar engin
undantekning og senuþjófurinn
er nýjasta og skærasta stórstim-
ið í Hollywood, sjálfur Jim Carrey
úr Ace Ventura, Mask og Dumb,
Dumber. Flestir gagnrýnendur
eru sammála um að enn einu
sinni glansi hann í þessari mynd.
Það er ekki nýtt að öðru leyti en
því að hingað til hefur hann ekki
náð að yfirskyggja mótleikara
sem af fer viðlíka orðspor og
þeim sem leika í þessari mynd
en Val Kilmer og Tommy Lee
Jones eru engir aukvisar.
Tommy Lee Jones leikur Two-
Face og oftar en ekki er það
hann sem stelur senum frá með-
leikurum sínum. Það gerði hann
t.a.m. í Flóttamanninum á kostn-
að Harrison Ford og í Under Si-
ege á kostnað Steven Siegel. Hér
ber því nýrra við að hann standi
í skugganum af Jim Carrey.
í hlutverki afbrotasálfræð-
ingsins dr. Chase Meridian er
Nicole Kidman, sem auk þess að
vera eiginkona Tom Cruise er
þekktust fyrir leik í myndunum
Far and Away, My Life og Dead
Calm.
Chris O’Donnell, sem lék á
móti A1 Pacino í Scent of a Wo-
man leikur Robin. Drew Barry-
more, sem varð fræg sem litla
stelpan í E.T. og nýlega hefur
leikið í Boys on the Side og Debi
Mazar, sem fór með hlutverk í
mynd Woodys Allen, Bullets over
Broadway, leika svo lagskonur
Two-Face. Einu leikararnir sem
komu við sögu í fyrri myndunum
tveimur og bregður jafnframt
fyrir í þessari eru Michael Go-
ugh, sem leikur Alfred, bryta og
trúnaðarvin Bruce Wayne, og Pat
Hingle, en hann leikur manninn
sem gegnir hinu lítt öfundsverða
hlutverki lögreglustjóra í glæpa-
borginni Gotham.
Ævintýrin um Batman virðist
skipa sérstakan sess í hugum
bandarískra kvikmyndahúsa-
gesta enda hefur hver kynslóðin
af annarri þar í landi alist upp
við kappann allt frá því honum
brá fyrst fyrir í teiknimyndahefti
árið 1939.
Auk sjónvarpsþáttanna sem
gengu árum saman með Adam
West og Bruce Ward í hlutverk-
um Batmans og Robins (en þeir
voru sýndir í sjónvarpi hér fyrir
ekki löngu) hafa verið gerðar sex
kvikmyndir um leðurblökumann-
inn en engar hafa þó náð viðlíka
vinsældum og myndirnar Batman
og Batman Returns, þær sem
Tim Burton gerði og eru undanf-
arar Batman Forever. Myndir
Burtons slógu hressilega í gegn
og tóku samtals inn 700 millljón-
ir bandaríkjadala, eða um 45
milljarða króna.
Sú þriðja fór ekki síður glæsi-
lega af stað vestanhafs. Hún var
frumsýnd í sumar í 3.800 sýning-
arsölum vítt og breitt um Banda-
ríkin og tók fyrstu sýningarhelg-
ina inn meiri aðgangseyri en
nokkur önnur kvikmynd, þar með
talin Jurassic Park. Þegar þetta
er skrifað hefur myndin Batman
Forever þegar tekið inn 170 millj-
ónir dala í aðgangseyri, um 11
milljarða króna, eða rúmlega tvö-
falt, meira en sem nam kostnaði
við gerð myndarinnar.