Morgunblaðið - 30.07.1995, Page 40
iO SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ELASTICA er í forystuhlutverki þegar kemur
að breskum hljómsveitum í Bandaríkjunum
og sló rækilega í gegn í vetur.
SOUL Asylum hefur á að skipa mjög góðum tónlistarmönnum og er í
miklu uppáhaldi í Bandaríkjunum en átti síst erindi á þessa tónleika því
að tónlist þeirra er poppaðri en flestra annarra sem fram komu.
GÍTARLEIKARI White Zombie sem lék gífur-
lega öflugt og hrátt rokk. Söngvarinn hóf
tónleikana meðal áhorfenda.
SÖNGVARI Rancid sem leikur
mjög kröftugt pönk með óað-
finnanlega sviðsframkomu.
voru haldnir í Los Angeles
borg stórtónleikar, þar sem
fram komu margar efnilegustu
hljómsveitir Breta og Banda-
ríkjamanna. Kristinn Þórðar-
son var þar staddur og mynd-
aði helstu hljómsveitimar.
SÖNGVARI Rage Against the Machine
var í miklum ham á tónleikunum og
hélt athygli áhorfenda óskiptri.
BUSH er hægt og bítandi að vinna
hugi bandarískra ungmenna; verulega
kröftugir tónlistarmenn.
COURTNEY Love söngkona Hole,
einnar efnilegustu hljómsveit Banda-
ríkjamanna í dag.
Á þjóðhátíðardag íslendinga
Los Angeles 17. júní 1995.
LLS TÓKU þrettán flytjendur
þátt í tónleikunum og léku þeir
í u.þ.b. 35 mínútur hver. Að-
stæður voru hinar bestu fyrir
þá 20.000 áhorfendur sem
mættu á þessa löngu uppseldu
tónleika, sól var í heiði og hit-
inn um 35 gráður. Það er
nokkuð áberandi að pönkið er í miklum
uppgangi í Bandaríkjunum, Rancid sem
er ein af hljómsveitunum sem fram komu
minnti óneitanlega á Sex Pistols sálugu.
Nokkrir flytjendur báru af og voru í
miklu uppáhaldi meðal áhorfenda, þar á
meðal breska hljómsveitin Bush sem
nýtur nú vaxandi vinsælda vestan hafs
þó svo lítið hafi borið á þeim vinsældum
í Bretlandi. Rage Against the Machine
er gífurlega vinsæl meðal unglinga í
Bandaríkjunum og var eina hljómsveitin sem
var klöppuð upp þó svo að skipulag tónleik-
anna leyfði það ekki. Hole, hljómsveit Courtn-
ey Love, er hægt og bítandi að vinna hugi
manna vestan hafs þó svo hún hafi ennþá
á brattann að sækja eftir dauða Kurt
Cobain. Courtney Love sagði nýlega
í viðtali við bandarískt tímarit að
sér virtist sem Bandaríkjamenn
hefðu helst viljað hana feiga
og kennt henni um dauða
Kurt. Bæði Elastica og
Spounge komu vel
fram og eru greini-
lega mjög efni-
legar hljóm-
sveitir.
MATTHEW Sweet hóf tónleikana
mjög góður að vanda.
og var