Morgunblaðið - 01.08.1995, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1995 15
Sæluhelgi haldin
á Suðureyri
Suðureyri - Marhnútavinir
stóðu fyrir tveggja daga
skemmtihaldi á Suðureyri í júlí
í tengslum við hina árlegu
„mansakeppni" sem haldin hefur
verið þar síðustu átta ár. Veitt
var í klukkutíma og ríkti mikil
spenna á meðal keppenda og for-
eldra á meðan á keppninni stóð.
Petra Dröfn Guðmundsdóttir,
12 ára, var með mestan aflan,
21 marhnút og viktaði afli henn-
ar 5,2 kg.
Að lokinni mansakeppni var
farið í skemmtisiglingu á 15 bát-
um út á Súgandafjörð. Um kvöld-
ið var svo dansleikur fram eftir
nóttu.
Sunnudagurinn hófst með
göngu út Fjörur fyrir Spilli. Sið-
an hófst útiskemmtun kl. 14 með
ýmsum þrautum, leikjum og
uppákomum. Súgfirskir lista-
menn voru með opið hús í félags-
heimilinu og sýndu handverk sitt.
Botninn var síðan sleginn í sælu-
helgina um kvöldið með varðeldi
og grillveislu og var harmonikk-
an þanin og gitarstrengirnir
slegnir.
ÍBpýVl Hn St
i
„ Morgunblaðið/Sturla.
ÞÁTTTAKENDUR í mansakeppninni voru 57 krakkar á aldrinum 2-12 ára.
Tálknafjörður
og Vesturbyggð
Handbolta-
hátíð
LAUGARDAGINN 12. ágúst koma
handboltakapparnir Guðmundur
Hrafnkelsson, Gunnar Gunnarsson
og Sigurður Sveinsson ásamt Óskari
Þorsteinssyni handboltaþjálfara til
Tálknafjarðar og verða þar í íþrótta-
húsinu með handboltahátíð sem hefst
kl. 13.30 og stendur til kl. 17.30.
Hátíðin er undir yfirskriftinni:
Handbolti heima hjá okkur og er
fyrir alla hressa krakka í Vestur-
byggð og Tálknafirði, auk gestkom-
andi. I fréttatilkynningu segir að
krakkarnir geti reynt að skora hjá
landsliðsmarkverðinum Guðmundi
Hrafnkelssyni eða að mynda óijúfan-
legan vamarmúr gegn skotum Sigga
Sveins. Þá má reyna að kenna Gunn-
ari Gunnarssyni ný leikkerfí. Einnig
verður haldin pylsugrillveisla þar sem
Siggi Sveins grillar og Gunnar og
Guðmundur sjá um sinnepið og tóm-
atsósuna.
Þessi hátíð er þátttakendum að
kostnaðarlausu. Handboltamennirnir
gefa vinnu sína og kostunaraðilar
boli og veitingar.
Skráning á handboltahátíðina er
fram að verslunarmannahelgi hjá
Kristjáni í Nýja bakaríi á Patreks-
firði.
k Nýgerð
mfiaggstanga
I*
t
v Trefjaplast - toppur snýst -
lína inn í - sveir.
v Álbrunastigi á stærð við síma-
skrá. Verð 4.900 kr., ódýr
lífsbjörg.
v Innbrots-,vatns-oggaslekavið-
vörun.
v Armorcoat öryggisfilma sem
breytir gleri í öryggisgler, 300%
sterkara.
Skemmtilegt hf.
Bíldshöfða 8, s. 587 6777
Staðgreiðslureiknings heimilisins
HUSASMIÐIAN
0 - 200.000 kr. 8%
200.000 - 500.000 kr. 9%
Allt yfir 500.000 kr. 10%
Engin plastkort nauðsynleg.
Allir fjölskyldumeðlimir geta
nýtt sér kosti reikningsins.
4% af afslættinum greiðist strax út,
afgangurinn er inneign í lok árs.
Aukin viðskipti bæta kjör þín.
Síðastliöin 10 úr hefur Húsasmiðjan tryggt viðskiptavinum sínum betri kjör með
Staðgreiðslureikningi heimilisins
Komdu í Húsasmiðjuna og nœldu þér í umsóknareyðublað
og við tryggjum þér betri kjör.
í kaupbœti er fyrsta flokks þjónusta, mikið vöruúrval og sterk vörumerki.
Úttektarupphæð
Afsláttur