Morgunblaðið - 11.08.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1995 15
ÚR VERIIMU
Kristján Jónsson fer með Óðin í Smuguna
Loðnuskipin hætta leit
Gott að
komast
í blíðuna
STEFNT er að því að Óðinn
haldi í Barentshaf þann 18. ág-
úst samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæslunni. Nú er unn-
ið að lagfæringum á skipinu og
undirbúningi fararinnar.
Ákveðið hefur verið að Krist-
ján Þ. Jónsson, skipherra, fari
með Óðin í Smuguna líkt og í
fyrra. Gert er ráð fyrir að skip-
ið verði í um tvo mánuði á svæð-
inu en það fer eftir veiði og hve
lengi íslensku togararnir dvelja
þar. Ekki liggur Ijóst fyrir hvort
úthaldinu verði skipt í tvo hluta.
í góða veðrið
Kristján Þ Jónsson, skipherra,
segir að það leggist vel í sig að
fara úr rokinu hér í blíðuna í
Smugunni og hann kvíði ekki
öðru jafn löngu úthaldi líkt og
í fyrra. Hann segir að nú sé
verið að vinna að smávægilegum
lagfæringum á Óðni, til dæmis
á sjúkraklefa og læknisaðstöðu,
því í fyrra hafi ýmislegt komið
í ljós sem betur mátti fara.
„Varðskipin eru orðnir hálfgerð-
ir öldungar þannig að það er
ýmislegt sem þarf að dytta að,“
sagði Kristján.
KRISTJÁN Þ. Jónsson í Smugunni í fyrrahaust.
Að sögn Einars H. Valssonar,
hjá Landhelgisgæslunni, hefur
ekki endanlega verið ákveðið
hvaða læknir verður með í för
en það er nú í athugun á Borg-
arspítalanum og skýrist vænt-
anlega á mánudag. Sigurður
Ágúst Kristinsson var læknir á
Óðni í Smugunni í fyrra.
Bíða eftir að
ísinn
LOÐNUSKIPIN hafa flest gefist upji
á loðnuleitinni og eru á heimleið. Is
hamlar enn leit á Kolbeinseyjar-
svæðinu og segja skipstjórnarmenn
að ekkert annað sé að gera en bíða
eftir að hann hopi.
Loðnuskipin hafa nú fínkembt
stórt svæði allt austur af Langanesi
og langleiðina vestur að Grænlandi
en ekki orðið vör við loðnu. Nokkur
austfirsk skip leita nú austur af land-
inu en menn hafa ekki trú á að það
beri mikinn árangur þar sem Norð-
menn og Færeyingar hafi undanfar-
ið leitað vel á þvi svæði.
Búið að fínkemba svæðið
Hjálmar Ingvarsson, skipstjóri á
Jóni Kjartanssyni SU, sagðist vera
að leita að loðnu austur af Langa-
nesi en líklega héldi hann fljótlega
heim á leið og nú væri ekkert annað
að gera en að bíða eftir að ísinn á
Kolbeinseyjarsvæðinu hopaði eða að
loðnan léti sjá sig annars staðar.
Hann sagði að búið væri að fín-
kemba allt svæðið meðfram ísnum,
bæði hafi verið farið austur fyrir
hann og vestur fyrir hann en hvergi
yrði vart við loðnu.
Hjálmar sagði að ísinn lokaði tals-
vert stóru svæði og væri mjög ná-
lægt Kolbeinsey og þeir hafi siglt
fram hjá lítilli ísspöng aðeins átta
mílum norður af eynni.
Mörg skip .hafa verið við leit vest-
hopi
ur af landinu og skilyrði til leitar
þar hafa verið mjög góð að sögn
Viðars Karlssonar, skipstjóra á Vík-
ingi AK, þegar Morgunblaðið hafði
tal af honum í gær. Skipið var þá á
reki í Isafjarðardjúpi, og var Viðar
að eigin sögn að átta sig á stöð-
unni, en reiknaði með að halda til
hafnar fljótlega og reiknaði hann
með að flest loðnuskipin gerðu slíkt
hið sama. Hann sagðist vera von-
svikinn en benti þó á að sjaldah
hefði verið loðnuveiði eftir miðjan
ágúst og fram í miðjan september
og menn því vanir erfiðum mánuði.
Júpíter fann loðnu á lokuðu svæði
út af Vestfjörðum og fékk leyfi ráðu-
neytisins til kasta í tilraunaskyni.
Ef þarna er smáloðna halda skipin
rakleiðis í land.
Strandgæslan sækir sjómann í Smuguna
„Samskiptin til
fyrirmyndar“
NORSKA strandgæslan sótti á
mánudag veikan sjómann um borð
í Stakfell ÞH frá Þórshöfn, sem er
að veiðum í Smugunni. Að sögn
skipstjóra Stakfellsins voru sam-
skiptin við Norðmennina góð.
Ágætis veiði er nú hjá íslensku
skipunum.
Stakfellið óskaði eftir neyðarað-
stoð við loftskeytastöðina í Vardö
og sendi strandæslan strax þyrlu
af stað eftir sjómanni sem kvartaði
undan verkjum neðarlega i kvið og
var hann fluttur á sjúkrahús í Nor-
egi. Dvaldi hann þar í sólarhring
en kom heim til íslands í gærkvöldi.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins er líðan sjómanns-
ins nú sæmileg en hann hefur þó
ennþá einhveija verki í kviðnum.
Guðmundur Kristjánsson, skip-
stjóri á Stakfelli, sagði að öll sam-
vinna við Norðmenn hafi verið til
fyrirmyndar og allt hafi gengið
hratt og vel fyrir sig eftir að leitað
var eftir þyrlunni. „Það hafa mörg
íslensk skip í Smugunni verið að
kvarta undan samskiptum við loft-
skeytastöðina í Vardö en við feng-
um jákvæð svör frá þeim um leið
og við báðum um neyðaraðstoð og
eftir það gekk allt eins og í sögu,“
sagði Guðmundur.
Góð veiði
Guðmundur segir að flest ís-
lensku skipin séu nú að veiðum
sunnarlega í Smugunni og þau hafi
verið að fá ágætis afla síðasta sólar-
hringinn, bæði stóru og litlu togar-
amir. Hann sagði veiðina þó vera
misgóða og skipin væru að fá mis-
stór höl. Sjálfur sagðist Guðmundur
vera nýbúinn að hífa fimmtán tonna
hal af góðum fiski.
Opnum aftur eftir breytingar
Full búð afnýjum vörutn - Mörg tilboð
Gjöftil hvers viðskiptavinar frá einhverjum
eftirtalinna
ESTEE LAUDER
LANCQME^
PARÍS ^ 'V
/ANOXSTER ARBEN
CLINIQUE
►RLANE
PARIS
SWITZERLAND
Ck
ristian _Lvior
Di<
H Y G E A
snyrtn-öru
ði, 30-70%
ÞOKPID
BORGARKRINGLUNNI