Morgunblaðið - 11.08.1995, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 11.08.1995, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1995 MINNIGAR MORGUNBLAÐIÐ JÓHANNA KRISTÍN GUNNLA UGSDÓTTIR + Jóhanna Krist- ín Gunnlaugs- dóttir var fædd 3. mars 1915 á Þor- steinsstöðum í Svarfaðardal. Hún lést í Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri 4. ágúst. Jóhanna var dóttir hjónanna Stein- unnar Sigtryggs- dóttur, fædd 2. • ágúst 1881 á Klaufabrekkum, dáin 30. janúar 1923, og Gunn- laugs Daníelssonar, fæddur 20. júlí 1868 í Tjamargarðshomi, dáinn 12. júlí 1952. Jóhanna átti 5 alsystkin og 2 hálfsystkin samfeðra. 21. nóvember 1936 giftist hún Guðmundi Jónssyni deiidarstjóra Olíu- söludeildar KEA á Akureyri. Börn þeirra em: Steinunn Axelma, f. 9.8. 1937, kaupmaður, gift Birni Baldurssyni, Gunnlaugur Viðar, f. 10.5. 1941, skrif- stofumaður, kvænt- ur Guðlaugu Stef- ánsdóttur, Margrét Jónheiður, f. 1.3. 1948, bókavörður, gift Kristni Hólm, Guðrún Svala, f. 13.3. 1951, gift Hannesi Haraldssyni. Barna- börnin eru 14 og bamabarna- börnin 8. Jóhanna verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. „TIL eru þeir, sem eiga lítið og gefa það allt. Þetta eru þeir, sem trúa á lífið og nægtir lífsins, og þeirra sjóður verður aldrei tómur.“ (Kahlil Gibran: Spámaðurinn.) „Er það ekki amma þín sem kún- •%,-stoppar?" Jú, það var amma okkar og hún var líka sú sem hélt „ætt- inni“ saman, þjappaði okkur bama- börnunum saman í samstilltan systkinahóp, með tíðum veislum og graut á laugardögum í 20 ár. Það var alltaf gott að koma til ömmu í Hlíðargötuna því að hún var með hlýtt hjarta og ekki sakaði að svo virtist sem hún væri með sérsamning við súkkulaðiverksmiðj- una Lindu. Á jólunum flaut allt í Macintosh-molum og mandarínum. Ekki bara það að amma sæi um stórveislur og að öllum liði vel, held- ur lék hún líka jólasveininn íklædd stórum stígvélum, eldgamalli grárri ullarkápu, með skegg, gleraugu og gervinef og á bakinu var dularfullur strigapoki. Verst var að amma missti alltaf af jólasveininum. Snemma hausts byijaði amma að huga að jólagjöfum enda hópur- inn stór og vel var hugsað fyrir hverri gjöf. Ekki var spenningurinn minni þegar afi og amma komu úr utanlandsferðum með úttroðnar ferðatöskur. Á síðari árum eyddi amma mörg- um stundum í handunnar gjafir og t Innilegar þakkir til þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar og tengdamóður, KRISTÍNAR EINARSDÓTTUR, áðurtil heimilis ■ Yrsufelli 13. EinarGuðbjartsson, Bára Guðmundsdóttir, Ása Þorkelsdóttir, Jóhann Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, UNNAR ÞÓRDÍSAR SÆMUNDSDÓTTUR, Garðabraut 10, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkra- húss Akranes. Víglundur Elísson, Sæmundur Viglundsson, Valdi's Inga Valgarðsdóttir, Elis Rúnar Víglundsson, Hrönn Norðdahl, Aðalsteinn Víglundsson, Guðrún Kristín Reimarsdóttir, Jónína Halla Víglundsdóttir, Haraldur Ingólfsson og barnabörn. t Innilegar þakkir til allra.sem sýndu okk- ur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ARNHEIÐAR GÍSLADÓTTUR, Keldulandi 1, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 1-B Landakotsspítala. Hörður Jóhannsson, Agnes Karlsdóttir, Sigmar Jóhannesson, Sævar Larsen, Árni Jóhannesson, Valgerður Jóhannesdóttir, Þórarinn Grímsson, Jóhanna Sóley Jóhannesdóttir, Guðjón Skúlason, Anna Sólrún Jóhannesdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. listmuni en hún var mikil listakona. Oft nutum við frásagnarhæfileika hennar þegar hún veitti okkur inn- sýn inn í annan heim, þ.e. uppvaxt- arár hennar í Svarfaðardalnum. Sumar sögumar voru sagðar oftar en aðrar og höfðu tilhneigingu til að breytast með hverri frásögn. Amma okkar var glaðlynd kona sem aldrei kvartaði eða talaði illa um náungann. Annað einkenni hennar var þrjóskan en hún hélt alltaf við sína skoðun þó að sýnt væri fram á annað. Við bamaböm- in lærðum að brosa í kampinn og dást að þijóskunni. Við viljum minnast afa okkar og ömmu með þessum fallegu orðum úr Spámanninun: „Þið fæddust saman, og saman skuluð þið vera að eilífu. Saman skuluð þið verða, þegar hvítir væng- ir dauðans leggjast yfir daga ykk- ar. Já, saman skuluð þið verða jafn- vel í þögulli minningu Guðs.“ (Kahlil Gibran: Spámaðurinn.) Barnabörn og fjölskyldur þeirra. Sem betur fer upplifa flestir þá hamingju að kynnast góðu og mætu fólki og eiga með því sam- leið á lífsgöngunni. Fæstir gera sér þó fulla grein fyrir þeirri hamingju sinni, meðan hún varir, heldur taka henni sem gefnum hlut. Það er sjaldnast fyrr en gott fólk kveður þessa tilvist að eftirlifendur finna hve mikið þeir áttu. Þannig er því farið við fráfall tengdamóður okkar, Jóhönnu Krist- ínar. Hún tók okkur, eins og við vorum, bætti okkur í sinn eigin barnahóp og veitti okkur skjól og umönnun eins og sá einn getur, sem þekkir lífið og elur í hjarta sér elsku til mannanna barna. I Hlíðargöt- unni áttu börnin, tengdabörnin og afkomendur sér ætíð vísa þá at- hygli, sem hver og einn þarfnast og nærist á. Hlýjan og velvildin voru einkenni hennar, hún var móðurímyndin sem höfðar til okkar allra, þegar á bját- ar. En okkur þótti ekki aðeins vænt um Jóhönnu; við bárum líka virð- ingu fyrir henni, því hún var kona viljasterk og fylgdi eftir skoðunum sínum. Hún hafði skoðun á því hvernig lifa bæri lífinu; var félagi í Náttúrulækningafélaginu og trúði því að í náttúrunni væri að finna bót ýmissar vanheilsu og heilsusamt líferni væri besti læknirinn. Hún var einnig félagi í Guðspekifélaginu á Akureyri og Sálarrannsóknarfé- laginu á Akureyri og tengdi þannig þessa tilveru við aðrar. Vorið og gróandinn var árstíð Jóhönnu. Hún unni náttúrunni og því lífi sem kviknar hvert vor. Nú hverfur hún á braut, einmitt þegar Eyjafjörðurinn skartar sínu feg- ursta og sumarbirtan og sólin gleðja. Við vitum að birtan fylgir henni þar sem hún er. Við kveðjum ástkæra tengdamóður með alúðar- þökk og virðingu. Nú er sál þín rós í rósagarði Guðs kysst af englum döggvuð af bænum þeirra sem þú elskaðir aldrei framar mun þessi rós blikna að hausti _ (Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir: Grafskrift) Guðlaug Stefánsdóttir, Kristinn Hólm, Hannes Haraldsson. Mig langar að senda nokkur kveðjuorð í sambandi við fráfall Jóhönnu. Henni kynntist ég vegna samvinnu og vinskapar við mann hennar, Guðmund Jónsson, sem var deildarstjóri Olíusöludeildar KEA á Akureyri. Guðmundi kynntist ég fýrst, þeg- ar vinur minn einn hjá Olíufélaginu hf. kom til mín með honum til að leita upplýsinga um tæknileg mál- efni. Frá þeirri stundu var innsigluð trú vinátta okkar Guðmundar, enda virtumst við finna sameiginlegan þráð til að bindast þeim vináttu- böndum. Vegna verkefna, sem ég vann á snærum Guðmundar, þurfti ég iðulega að fara norður til Ákur- eyrar, og þar kemur að þætti Jó- hönnu, en Jóhönnu fékk Guðmund- ur þegar hún var 21 árs gömul. Ekki brást það, að alltaf krafðist Guðmundur þess, að ég mætti á heimili þeirra uppi á Hlíðargötunni í eftirmiðdagskaffi, sem svo var kallað. Samanstóð það af súkkulaði með ijóma (ég drekk nefnilega ekki öskuseyði), og ijómapönnukökum með sveskjusultutaui, eins og sulta hét á þeim árum. Gestrisni var mikil á Hlíðargöt- unni. Ég minnist þess, að eitt sinn kom ég í hópi 17 manna af Gæsa- vatnaleið svokallaðri til Akureyrar. Ekki vildi ég aka hjá garði, en leit við á Hlíðarveginum rétt til að segja góðan daginn og verið þið bless. Ekki kunnu húsráðendur því, heldur buðu öllu Iiðinu inn, 17 sand- orpnum ferðalöngum, og var á hálf- tíma riggað upp sviðaveizlu fýrir allt þetta óhreina og reyndar svanga fólk. Við vorum þó ekki hæfari til annars útlitsins vegna en að borða á pylsuvagni. Þarna kom fram það, sem ein- kenndi allt heimilishaldið á Hlíðar- götunni: Þar var alltaf nóg pláss fyrir alla, gesti og gangandi, og heimilishald með einstökum mynd- arbrag, og Guðmundur gat komið með gesti í mat fyrirvaralaust, og gestum tekið sem stórmennum. Við mig var einfaldlega sagt: Þetta eru þínir vinir og þá eru þetta líka mín- ir vinir! Basta. Aldrei man ég til neinnar óreiðu á heimilinu, og hefur þó væntanlega verið nokkuð þröngt um 6 manna NÍELS BREIÐFJÖRÐ BÆRINGSSON + Níels Breið- fjörð Bærings- son var fæddur í Stykkishólmi 8. ág- úst 1916. Hann lést 6. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar hans voru þau Bæring Níelsson og Ólöf Guðrún Guðmunds- dóttir. Frá sjö ára aldri til tuttugu og sjö ára aldurs bjó Níels í Sellátri á Breiðafirði ásamt fjölskyldu sinni. Hann gerði út smá- bát frá eynni ásamt föður sín- um frá 1930-1943. Eftir það lá leið hans suður á Iand þar sem biðu hans mörg störf og mis- jöfn. Var það til að nefna vinna tengd landbúnaði, byggingar- vinna, hafnarvinna hjá Eim- skip, róðrar á netabátum, stór- um sem smáum, svo og síldarbátum. Þar að auki vann hann um skeið á millilandaskipum. Eftir að faðir hans veiktist flutt- ist Níels aftur til Stykkishólms og vann að mestu í Trésmiðjunni. Útför Níelsar fer fram frá Stykkis- hólmskirkju laug- ardaginn 12. ágúst kl. 14. Enn hefur dauðans armur ætt minni slegið sár, særir þvi hjartað harmur, hníga af augum tár. (Kristján Jónsson) ÞAÐ er erfitt að sjá eftir einstökum frænda sem kom manni í snertingu fjölskylduna + eitt uppstillt taflborð í því rými, sem örugglega var vel undir stöðlum hinna þjóðnýttu lána- stofnana, sem reknar eru í landinu. Þar sem er hjartarúm, þar er líka húsrúm. Nú eru bæði Jóhanna og Guð- mundur gengin á eilífðarbrautina. Eftir fráfall Guðmundar fyrir tveim árum var Jóhanna ekki nema hálfur maður, en slík hafði verið ein- drægni þeirra. Þótt Guðmundur hafí verið fýlginn sér og vildi að sér yrði hlýtt, var hann ákaflega réttsýnn og heiðarleikinn var full- kominn. Þess vegna missti Jóhanna mikið, þegar hún missti Guðmund, og þótt hún héldi heimilissiðum eins og fjölskyldugraut á laugardögum, vantaði mikið þar sem neistinn log- aði ekki lengur. Mér er mikill söknuður að hafa misst þessa góðu vini mína og mun sakna þeirra svo lengi sem minn aldur endist. Sveinn Torfi Sveinsson. Jóhanna Kristín Gunnlaugsdótt- ir, áður húsfreyja í Hlíðargötu 6 á Ytri-brekkunni á Akureyri, er látin. Hún var ásamt bónda sínum Guð- mundi Jónssyni, sem nú er látinn, einn af frumbyggjum Hlíðargöt- unnar, en þar var mikið byggt á stríðsárunum síðari. Jóhanna var því eitt af þeim for- eldrum sem umbar okkur strákana - og stelpurnar - sem slitu bams- skónum og uxu úr grasi í Götunni á fímmta og sjötta áratugnum. Hjá okkur, sem Gatan fóstraði, var alltaf mikið að gera. Því hefur sjálfsagt fýlgt nokkur fyrirgangur, sem stundum barst inn á heimilin. Trúlega hefur íbúum í Hlíðargötu 6 stundum þótt nóg um söngæfing- ar þær sem fram fóru í vaskahúsi hússins, en okkur krökkunum þótti þær nauðsynlegur undirbúningur fyrir öskudaginn og voru þær því árlegur viðburður á meðan við töld- um óhjákvæmilegt að halda þann dag hátíðlegan, safna liði, slá kött- inn út tunnunni og syngja síðan í verslunum og fabrikkum bæjarins. Margar stundir sátum við á heimili Jóhönnu, „vorum inni hjá Lauga“ syninum á heimilinu, spjölluðum og spiluðum, hlustuðum á útvarp, skoðuðum í bókaskápa og þáðum góðgerðir og góð ráð við ýmsum vandamálum líðandi stundar. Með mildri glaðværð sinni hafði þessi ljúfa vinkona okkar, með ljósa hárið og bjarta svipinn, góð áhrif. Alltaf höfum við verið velkomnir á heimilið svo og síðar konur okkar og börn. Það viljum við nú þakka þegar leiðir skilur. Við og fjölskyld- ur okkar sendum börnum Jóhönnu svo og öðrum ættingjum innilegar samúðarkveðjur. Hún hvíli í friði. Gunnar Eydal, Sigurður H. Björnsson. við hina viðkvæmu náttúru. Hann kenndi okkur að tala við fuglana svo og hlúa að þeim. Hann gerði okkur þátttakendur í að laða þá að og umgangast. Eftir að hann lét af störfum sneri hann sér heils hugar að áhugamálum sínum sem voru tijá- og gróðurrækt, ungauppeldi og eyjalíf. Náttúran var hans líf og yndi og stendur lundurinn hans í Ný- ræktinni sem ódauðlegur minnis- varði um ógleymanlegan mann. Elsku Ninni frændi, þú munt ætíð lifa í minningunni. Er sólin hnígur hægt í djúpan sæ og hðfuð sitt til næturhvíldar byrgir, á svalri grund, í golu þýðura blæ, er gott að hvíla þeim, er vini syrgir. Þá líður nóttin Ijúfum draumum í, svo ljúft, að kuldagust þú fínnur eigi, og, fyrr en veiztu, röðull rís á ný, og roðinn lýsir yfir nýjum degi. (Hannes Hafstein) Fyrir hönd okkar allra, barnanna þinna, Kristbjörg Hermannsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.