Morgunblaðið - 11.08.1995, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1995
AÐSENDAR GREIIMAR
MORGUNBLAÐIÐ
SKOGRÆKTARDAGURINN
var gefinn út kynningarbæklingur
um félagið og upplýsingabæklingur
um Heiðmörk.
Töluverðar breytingar voru gerð-
ar á félaginu á síðastliðnu ári þegar
gróðrarstöðin í Fossvogi var aðskilin
frá annarri starfsemi og stofnað um
rekstur hennar sjálfstætt hlutafélag,
Fossvogsstöðin hf. Eftir þessar
breytingar mun félagið einbeita sér
að rekstri og umsjón með Heiðmörk
og stefnt er að því að festa betur í
sessi umsjón og eftirlit með öðrum
skógræktarsvæðum í borgarlandinu.
A skógræktardaginn, þann 12.
ágúst, mun félagið kynna starfíð í
Heiðmörk og verður þar lögð áhersla
á að kynna hin fjölmörgu verkefni
sem þarf að inna af hendi með þraut-
seigju og þolinmæði til að skapa
útivistarperlur eins og Heiðmörkin
er orðin í dag.
Vilhjálmur Sigtryggsson,
framkvæmdastjóri.
Skógræktarfélag
Strandasýslu
Starfssvæði Skógræktarfélags
Strandasýslu nær yfir alla sýsluna
frá norðri tii suðurs. Tilgangur fé-
lagsins er að efla trjárækt, skógrækt
og skrúðgarðarækt á svæðinu, sem
er óvíða eins mikilvæg og í skóglaus-
um héruðum Strandasýslu. í félag-
inu er núna 31 félagsmaður.
Félagið var stofnað upp úr erindi
Ingimundar Ingimundarsonar bónda
frá Svanshóli árið 1939 til sýslu-
nefndar Strandasýslu þar sem hann
sagði meðal ahnars: „Við sjáum það
alltof oft að þegar skógarkjarrið
eyðileggst þá feykir vindurinn í
burtu hinum fínu jarðkornum og
ekki líður á löngu þar til gróðurmold-
in er horfín og berar klappirnar reka
nákaldan skallann upp úr þeim skóg-
sæla reit sem mennimir hjálpuðu
skepnunum og náttúruöflunum til
að gjöreyða."
Skógræktarfélagið hefur undan-
farin ár ekki staðið sjálft fyrir mik-
illi gróðursetningu, heldur séð um
að útvega félagsmönnum og öðrum
áhugasömum plöntur. Einnig hefur
félagið staðið að Landgræðsluskóga-
verkefninu í Kálfanesborgum við
Hólmavík og séð um að gróðursett
sé þar árlega. Hefur það verið unnið
í samvinnu við Hólmavíkurhrepp,
sem hefur lagt til unglinga til starf-
ans. Að undanförnu hefur mest
áhersla verið lögð á að gróðursetja
brúnan alaskavíði og strandavíði, en
þær tegundir hafa vaxið ágætlega
á svæðinu. Nýiega var skógræktar-
félaginu falið af héraðsnefnd að sjá
um Hermannslund, minningarreit
um Hermann Jónasson fyrrverandi
ráðherra. Framtíðaráform félagsins
eru þau að stefnt verði að því að
koma upp skógræktarreitum í hverj-
um hreppi. Eins það að markvisst
verði leitað þeirra tijátegunda og
afbrigða sem henta til ræktunar á
svæðinu. Stórauka þarf skjólbelta-
ræktun, en góður árangur af ræktun
brúns alaskavíðis og strandavíðis
gefur það til kynna að hún er fylli-
lega raunhæfur kostur. Félagið
stefnir sömuleiðis að því að fá land
til skógræktar í nágrenni Hólmavík-
ur, þar sem hægt væri að úthluta
félagsmönnum reitum til ræktunar.
Á skógræktardaginn 12. ágúst ætlar
félagið að standa fyrir hátíð í Her-
mannslundi við Hólmavík. Skóg-
ræktarfélagið ætlar meðal annars
að standa fyrir glímukeppni að forn-
um íslenskum sið, en í Hermanns-
lundinum hefur verið byggður sér-
stakur glímupallur. Boðið verður upp
á ljúffengar veitingar og eins er
gert ráð fyrir að strandavíðirinn
mæti á svæðið í eigin persónu!
Jóhann Bjöm Arngrímsson,
formaður.
Skógræktarfélag
Stykkishólms
Skógræktarfélag Stykkishólms
hefur stundað skógrækt allt frá ár-
inu 1947. Félagið er eitt af eldri
skógræktarfélögum í landinu og eru
félagar þess nú um 70 talsins.
Starfssvæði þess nær yfir Helga-
fellssveit og Stykkishólm.
Skógræktarsvæði félagsins eru
Grensás við Stykkishólm, Vestra-
Setberg og Langás í landi Saura í
Helgafellssveit, Tíðás í Helgafells-
sveit og Vatnsdalur í landi Drápu-
hlíðar, alls um 100 hektarar. Hefur
félagið gróðursett á þessum svæðum
að jafnaði í kringum 5.000 tijáplönt-
ur árlega og hefur mest áhersla
verið lögð á tijátegundirnar birki,
sitkagreni, sitkabastarð, blágreni,
stafafuru og elri. Þannig hefur verið
blandað saman tijátegundum, sem
gefur meiri tryggingu í ræktuninni
gagnvart skakkaföllum.
Markmið félagsins er að auka við
skóglendi á starfssvæði sínu og nota
til þess þær tijátegundir sem bestan
vöxt sýna. Þannig stefnir félagið að
því, að koma upp skóglendum á sem
flestum stöðum til að sem víðtækust
reynsla og þekking fáist um skóg-
ræktarskilyrði svæðisins.
Skógræktarfélagið hefur haft
samstarf við Rannsóknastöð Skóg-
ræktar ríkisins á Mógilsá um skóg-
ræktarrannsóknir á svæðinu. Hafa
þær m.a. tengst asparræktun og
skemmdum af völdum sitkalúsar.
Félagið hefur verið í samvinnu við
Stykkishólmsbæ um að útvega ungl-
ingum sumarvinnu við skógræktar-
störf. Einnig hefur það haft mjög
gott samstarf við sveitarstjórn
Helgafellssveitar. Frá árinu 1990
hefur félagið tekið þátt í samvinnu-
verkefni Skógræktarfélaganna,
Skógræktar ríkisins og Landgræðslu
ríkisins um Landgræðsluskóga.
Helsta nýjungin í starfi félagsins
hefur falist í móttöku á erlendum
ferðamönnum í samstarfi við ferða-
skrifstofuna Samvinnuferðir-Land-
sýn frá árinu 1988. Hafa ferðamenn-
imir komið á svæði félagsins og
gróðursett tijáplöntur. Þannig hefur
þeim gefíst kostur á að vinna beint
að umhverfisvernd og að leggja sitt
af mörkum við endurheimt íslensku
skóganna. Árlega hafa 400-700
ferðamenn af ýmsum þjóðernum
gróðursett og hefur þetta framtak
mælst mjög vel fyrir hjá þeim.
Á skógræktardaginn hyggst fé-
lagið bjóða fólki að koma á elsta
skógræktarsvæði sitt í Grensás við
Stykkishólm. Þar hefur verið gerð
ágæt aðstaða til útivistar með
göngustígum, grilli, borði og bekkj-
um þannig að gestir geta gengið um
og notið skógarins og að því loknu
gætt sér á gómsætum veitingum.
• Sigurður Ágústsson,
formaður.
Skógræktarfélag
Suðurnesja
Skógræktarfélag Suðurnesja er
yngst skógræktarfélaganna og var
stofnað í febrúar síðastliðnum. Á
árunum áður var starfandi skóg-
ræktarfélag með sama nafni og bar
starf þess þann árangur að eftir
standa fallegir tijálundir á þremur
stöðum á Suðunesjum, við Háabjalla
sunnan Voga, i Sólbrekkum við Sel-
tjöm og í norðurhlíðum Þorbjamar.
Suðurnesjamenn sækja þessa staði
í auknum mæli til útivistar.
Nú þegar hafa um 200 manns
gengið til liðs við hið nýstofnaða
félag. Unnið er að því að fá svæ'ði
til ræktunar og einnig verður lögð
áhersla á að koma upp plöntuupp-
eldi þar sem verða ræktaðar þær
tegundir mnna og tijáa sem þrífast
á Suðurnesjum. Á undanförnum
ámm hefur verið lögð áhersla á
gróðursetningu víðitegunda á vegum
bæjarfélagsins og áhugasamra fé-
lagasamtaka. Einnig hafa verið
g'róðursettir Landgræðsluskógar við
Sólbrekkur. Hansarósin, sem er ein-
kennisplanta hins nýstofnaða skóg-
ræktarfélags, hefur reynst ákaflega
vel á Suðurnesjum og mun verða
gerð góð skil í framtíðinni.
Félagið mun að sjálfsögðu starfa
í tengslum við bæjarfélögin á Suður-
nesjum og náið samstarf hefur þeg-
ar tekist við garðyrkjudeild Keflavík-
ur-Njarðvíkur. Myndast hafa góð
tengsl við Skógræktarfélag Hafnar-
Qarðar og hyggst félagið nýta sér
þekkingu og reynslu Hafnfírðinga.
Félagsstarfið er að öðru ieyti
ómótað en vísir að fréttabréfí var
nýverið sendur öllum félagsmönnum
þar sem gerð var grein fyrir því sem
þegar hefur verið gert og framtíð-
aráformum, m.a. smíði tveggja gróð-
urhúsa.
Skógræktarfélag Suðurnesja mun
standa fyrir skógræktardegi með
íjölbreyttri dagskrá í Sólbrekkum
við Seltjörn þann 12. ágúst.
Konráð Lúðvíksson,
formaður.
Stefnir í að skuldir aukist
um 1 milljarð á þessu ári
EFTIR harða gagn-
rýni á fjármáiastjórn
sjálfstæðismanna í
Reykjavík glíma nú
R-listaflokkarnir við
að starfa samkvæmt
eigin fjárhagsáætlun.
Við upphaf þessa árs
gerðu þeir ráð fyrir að
heildarskuldir borg-
arinnar myndu aukast
um 180 milljónir á ,ár-
inu. Nú stefnir í að
þær aukist um 1 millj-
arð króna á þessu ári.
Þessar nöturlegu
staðreyndir virðast
blasa við þrátt fyrir
að R-listinn hafi hækkað fast-
eignagjöld á heimilin í borginni
um 26%, vegna sérstaks holræsa-
skatts. R-listinn hefur ekki látið
þar við sitja í nýrri fjáröflun því
Hitaveitan, Rafveitan og Vatns-
veitan voru krafðar um auknar
greiðslur úr sjóðum sínum beint í
borgarsjóð. Þannig nældi R-listinn
sér í 1,3 milljarða króna aukatekj-
ur.
Á miðju þessu ári er staðan
samt orðin slík að tilkynnt er um
550 milljón króna framúrkeyrslu
í rekstri borgarinnar. Fyrirhuguð
lántaka borgarinnar átti að vera
til skuldbreytinga og til þess að
greiða niður yfirdrátt borgarinnar.
Nú kemur í ljós að lántakan á að
að standa undir nýjum
kostnaðarliðum.
Meðal aukinna út-
gjalda er fjárhagsað-
stoð á vegum Félags-
málastofnunar sem
nemur 100 milljónum
króna. Við sjálfstæð-
ismenn gerðum alvar-
legar athugasemdir
við nýjar reglur R-list-
ans um fjárhagsað-
stoð. Það var orðið
álitamál hvort væri
hagstæðara fyrir fjöl-
skyldur í Reykjavík
að lifa af fjárhagsað-
stoð Reykjavíkur-
borgar eða vinna. Þessi tíðindi um
100 milljón króna aukna fjárþörf
vekja óneitanlega ugg um að hér
séu fyrstu afleiðingar þessarar
stefnu að koma fram.
Ávísun á enn hærri skatta
Borgarfulltrúar R-listaflokk-
anna hafa jafnan kennt okkur
sjálfstæðismönnum um allt sem
aflaga hefur farið í borgarrekstri.
Það reyndu þeir að gera þegar í
Ijós kom í lok árs 1994 að undir
þeirra stjóm varð framúrkeyrslan
600 milljónum króna meiri en ná-
kvæm athugun endurskoðenda á
vegum R-listans gaf til kynna á
miðju ári 1994. Fróðlegt verður
að fylgjast með hvernig þeir reyna
Það er verulegt
áhyggjuefni segir Árni
Sigfússon, að fjármála-
stjóm R-listans er ávís-
un á enn hærri skatta
á borgarbúa, auk hækk-
unar notendagjalda hjá
Hitaveitu og Rafveitu.
að kenna okkur um vanda þessa
árs.
Það er hins vegar verulegt
áhyggjuefni að fjármálastjórn R-
listans er ávísun á enn hærri
skatta á borgarbúa auk hækkunar
notendagjalda hjá Hitaveitu og
Rafveitu. Þess verður varla langt
að bíða að forysta R-listans reyni
næstu skref í þá átt. Enn sem
komið er hefur flokkunum í R-list-
anum, Alþýðubandalagi, Fram-
sóknarflokki, Alþýðuflokki, Nýjum
vettvangi og Kvennalista, helst
tekist að breyta borgarmálum með
auknum sköttum. Því miður munu
þau líklega áfram sameinast um
það.
Höfundur er oddviti sjálfstæðis-
manna í borgarstjórn.
Árni Sigfússon
••11 l^ Mótmælin, segir Katrí
Að Sökkva Ollll" fleldsted, emífullu
borpalli í sæ
samræmi við umhverfís-
væna stefnu tveggja
ríkisstjóma Davíðs
ÞAÐ vakti heimsat-
hygli á dögunum þeg-
ar risafyrirtækið Shell
fékk fulltingi brezku
stjórnarinnar til að
sökkva í sæ 800 tonna
olíuborpalli sínum.
Gerð hafði verið úttekt
á þeim förgunarleiðum
sem í boði voru og var
niðurstaðan sú, að
hafsbotn væri örugg-
asta og ákjósanlegasta
leiði þessara hundraða
tonna af málmi auk
geislavirks úrgangs og
eiturefna.
Umhverfisverndar-
sinnar mótmæltu
Umhverfisvemdarsinnar um all-
an heim risu upp til að mótmæla
þessu, enda þorri fólks orðinn
hlynntur því að „endurnýta, endur-
vinna og nota minna“, alla vega
um hinn vestræna heim. Á meðan
Jón Jónsson á Flateyri eða í Flór-
ens er af samviskusemi að flokka
sitt sorp og að koma öllu fyrir á
sem umhverfisvænztan hátt, er
erfitt að sætta sig við að þúsundum
tonna af málmi sé fargað á þeim
forsendum að lengi taki sjórinn
við. Gildir þar einu hvort um olíu-
borpalla er að ræða eða skips-
skrokka, eins og tíðkazt hefur við
íslandsstrendur.
Mótmæli bárust frá ríkisstjórn-
um og samtökum almennings víða
um heim og varð sá þrýstingur til
þess að Shell sá sitt óvænna, hætti
við áform sín og ákvað að leita
annarra leiða sem almenningur
gæti sætt sig við. Sú ákvörðun
vakti þó reiði og sára móðgun
brezku stjórnarinnar og e.t.v. skilj-
anlega, þar sem stjórn Majors hafði
stutt ákvörðun Shell „í góðri trú“,
eins og sagt er, og varið ákvörðun
um förgun í sjó í þinginu með oddi
o g egg. Stjórninni
fannst kálfur líklega
ekki launa ofeldið.
En það sem furðar
mig er, að stjórn Maj-
ors skyldi taka þá
ákvörðun að styðja
Shell í þessu máli, sem
brýtur svo gjörsam-
lega í bága við þá
stefnu, sem nú á dög-
um þykir umhverfis-
væn og sem almenn-
ingur víðast hvar í
heiminum telur mikil-
væga fyrir framtíðina.
Brezka stjórnin á auð-
vitað að gegna for-
ystuhlutverki í umhverfismálum
og setja stórfyrirtækjum eins og
Shell skorður við starfsemi sinni
sem samræmast kröfum nútímans.
íslendingar mótmæltu
Það gladdi mig að heyra að Al-
þingi íslendinga skyldi vera á með-
al þeirra sem mótmæltu áformum
Oddssonar.
Shell, og er það í fullu samræmi
við umhverfisvæna stefnu tveggja
ríkisstjóma Davíðs Oddssonar. Þar
hefur verið lögð áhersla m.a. á
sjálfbæra þróun og er sú stefnu-
mörkun öll til fyrirmyndar.
Vinstri stefna?
Um árabil hefur það verið svo,
að borgaralegir flokkar, t.d. í Vest-
ur-Evrópu hafa verið heldur seinir
að taka umhverfismál upp á sína
arma, hafa í raun allt of lítið sinnt
um þau. Það er löngu tímabært
að þetta breytist, og að það sé
ekki kölluð „vinstri stefna" að vilja
setja umhverfismál í öndvegi. Sýn-
ist mér að stefna íslenzkra stjóm-
valda geti verið öðram Evrópuþjóð-
um til fyrirmyndar.
Höfundur er varaþingmaður Sjálf-
stæðisflokksins.
Helgi Hálfdanarson
ÁRÉTTING
KUNNINGI minn gat þess við
mig, að í orðsendingu minni til
Jónu Margeirsdóttur í Morgun-
blaðinu 10. þ.m. mætti e.t.v.
með lagi misskilja þessi orð:
„Ekki teldi ég saka, að hún
yrði ögn líkari sjálfri sér í skapi
þá en í þetta sinn.“
Ekki óraði mig fyrir því, að
þetta gæti skilizt á annan veg
en það var hugsað, sem sé að
hún yrði blíðari á manninn en
hún er í grein sinni 9. þ.m.
Þetta áttu einungis að vera inn-
antómir gullhamrar við ókunn-
uga konu, sem hafði sent mér
kurteislega en dálítið gífuryrta
grein. Ég vona að fáum þyki
mér annað ætlandi sem verra
væri. En til vonar og vara tek
ég mark á athugasemd kunn-
ingja míns; rétt skal vera rétt.
Að öðru leyti ítreka ég til-
mæli mín til Jónu Margeirsdótt-
ur, að hún rökstyðji ummæli
sín.
Katrín Fjeldsted