Morgunblaðið - 13.08.1995, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Morgunblaðið/Kristinn
Æringjar að veiðum
Ölafsvík
Oánægja
með út-
sendingar
ÓÁNÆGJU hefur gætt í Ólafsvík
með slæmar útsendingar Stöðvar 2,
Ríkissjónvarpsins og kapalsjónvarps
bæjarins. Bæjarráð ályktaði um
málið í apríl síðastliðnum, en ástand-
ið hefur enn ekkert lagast. Truflan-
irnar lýsa sér helst í óskýrri mynd,
snjó, suði í tali og að liturinn detti
stundum út. Þetta virðist bundið við
þá sem notast við kapalkerfi bæjar-
ins, en mjög fáir eru með útiloftnet
í Ólafsvík.
Bára Guðmundsdóttir í Ólafsvík
segir að það sé alveg sama hvert
hún hringi, alls staðar vísi menn
hver á annan og ástandið sé alveg
óviðunandi: „Á mánudag datt mynd-
in alveg út í klukkutíma. Á fimmtu-
dagskvöld hoppaði og titraði mynd-
in. Það þýðir ekki lengur að horfa
á Stöð 2 vegna þess að hún er alltaf
að ruglast. Ég veit að ástandið er
svona á fleiri stöðum í bænum. Fólk
hringir og kvartar eða biður mig að
hringja og kvarta fyrir sig. Ég er
að verða snarvitlaus á þessu.“
Hjá Stöð 2 fengust þær upplýs-
ingar að útsendingar væru með því
móti að leigusamningur væri við
aðila á staðnum. Meginvandamálið
lægi hins vegar í búnaðinum sem
væri hjá notendum sjálfum.
Bilaðar heimtaugar
„Kapalkerfiseigandinn sér um
rekstur á ákveðnum stofnkössum.
Síðan er heimtaug frá þessum
tengiboxum að húsunum og það
hefur komið í ljós við athugun okkar
manna að mest af þessum vandamál-
um liggur í þessum heimtaugum,"
segir Asmundur Einarsson, mynd-
tæknistjóri Stöðvar 2. Hann segir
að sumar hveijar séu skaddaðar eða
jafnvel slitnar og oft hafi komist
vatn í þær. „Ýmis vandamál hafa
komið upp í sambandi við þessar
heimtaugar, en fólk á sjálft að sjá
um viðhald á þeim,“ segir Ásmund-
ur. „Það er ekkert meira um bilanir
í kerfinu sjálfu en gengur og gerist
út um landið." Hann segir að ekkert
annað sé hægt að gera en leiðbeina
fólki með viðgerðir á þessu. Þá seg-
ist hann ekki hafa orðið var við þetta
vandamál víðar en í Ólafsvík. Bæjar-
ráð sendi frá sér ályktun um málið
í apríl, þar sem skorað var á RUV
að koma þessum málum í viðunandi
horf, en lítið hefur breyst síðan. Örn
Johnsen bæjarritari segir að það
verði að skoðast að hve miklu leyti
bærinn geti komið inn í málið og
spurning sé hvernig kostnaðinum
yrði deilt niður.
MEIRA en helmingur rækjuverk-
smiðjanna í landinu hefur keypt
eða pantað rækjuflokkunarvélar,
eða að a.m.k. 12 af 22 verkmiðj-
um. Búist" er við að um 15 verk-
smiðjur fái sér slíkar vélar. Við það
fækkar störfum við_ rækjuvinnsl-
una um 170-200. Á móti gætu
skapast önnur störf í fyrirtækjun-
um.
Umræddar flokkunarvélar eru
settar við færiböndin úr pillunar-
vélunum. Þær taka við rækjunni
og meta það með myndavélum og
útfjólubláu ljósi hvort rækjan sé
nægilega vel pilluð eða hvort að-
skotahlutir séu með. Rækjan sem
er í lagi fer áfram eftir bandinu
en sú sem er ilia pilluð fer aftur í
pillunarvélina eða í handpillun.
Konur hafa unnið þessi störf í
höndunum og hefur vélin því
VEGFARENDUR í miðbæ
Reykjavíkur hafa eflaust rekið
upp stór augu í gærmorgun þar
sem tveir æringjar höfðu tekið
sér stöðu úti í Tjörn með veiði-
stangir. Sagðist fólkið vel búið
til veiðanna, var með kaffi á
brúsa og beitti maðki. Morgun-
blaðið fékk úpphringingu, þar
sem tilkynnt var að tytlendingar
væru að veiða á stöng í Tjörn-
inni og fór ljósmyndari á staðinn.
Er hann spurði parið, sem hafði
einn sæmilegan silung í fartesk-
GUÐMUNDUR Sigurðsson, við-
skiptafræðingur hjá Samkeppnis-
stofnun, segir að úrskurður Sam-
keppnisstofnunar um samstarf 01-
íufélagsins og Olís skapi ekki for-
dæmi um samstarf annarra fyrir-
tækja nema í þeim tilvikum þar sem
aðstæður séu þær sömu. Hann segir
að ef Olíufélagið telji að ekki þurfi
að gera breytingar á setu manna í
stjóm Olís muni Samkeppnisstofnun
ekki gera athugasemdir við það.
„Við teljum að þetta hafi ekki
svona víðtækt fordæmisgildi eins og
Kristján Eoftsson, stjómarformaður
Olíufélagsins, telur. Þetta hefur ein-
ungis fordæmisgildi gagnvart fyrir-
tækjasammna sem verður hér eftir
og þá einungis í þeim tilvikum þar
Störfum við full-
vinnslu og pökk-
un fjölgar
stundum verið nefnd „kvennaban-
inn“.
Fyrirtækin tvö sem eru aðalselj-
endur þessarra véla hér á landi
hafa selt tólf vélar, Plastco er að
setja_ upp vélar í átta fyrirtækjum
og Asgeir Hjörleifsson í fjórum.
Pétur Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Félags rækju- og hörpudisk-
framleiðenda, segir raunhæft að
búast við að 15 verksmiðjur kaupi
sér slíkar vélar. Miðað við að hver
vél spari 8-10 störf myndu
120-150 konur missa vinnuna við
flokkun. Með tilkomu vélarinnar
aukast afköst verksmiðjanna og
inu, til nafns sagðist karlmaður-
inn heita Platino Pescatore og
svaraði á allsæmilegri íslenzku.
Konan kvaðst heita Gullveig og
vera Kristinsdóttir. Létu þau vel
af veiðinni í Tjörninni. Þykir
nafnið Platino Pescatore sæma
manninum afskaplega vel enda
merkir pescatore fiskimaður á
ítölsku. Platino þýðir hvítagull
og en minnir óneitanlega á ís-
lenzka orðið „plat“, sem allir
skilja. Skemmtilegt spaug, ekki
satt?
sem aðstæður eru þær sömu og í
þessu tilviki, þ.e.a.s. um er að ræða
markað með samkynjaða vöru eins
og olíuvörurnar eru, þar sem mönn-
um er gæðalega séð nánast sama
hvar þeir versla, og þar sem mark-
aðsaðstæður eru svipaðar. í þessu
dæmi eru Olís og Olíufélagið með
um 70% markaðshlutdeild,“ sagði
Guðmundur.
Áhrif á stjórn
Guðmundur sagði að úrskurður-
inn hefði engin áhrif á stjómir í
öðrum fyrirtækjum sem væru inn-
byrgðis tengd vegna samruna eða
hlutabréfakauga sem þegar hefðu
átt sér stað. í því sambandi benti
hann á að úrskurðir Samkeppnis-
áætlar Pétur að það spari 50 störf
tii viðbótar, eða 170-200 alls.
Pétur segir að þessi tækni sé
komin í rækjuverksmiðjur í ná-
grannalöndunum. Nauðsynlegt sé
fyrir íslensku verksmiðjurnar að
taka hana einnig í notkun til að
vera samkeppnisfærar. Annars
haldi þær ekki velli og öll störfin
tapist. Með vélunum skapist mögu-
leikar til að auka vinnsluna og
pakka meira í smápakkningar. Við
það skapist ný störf í verksmiðjun-
um. Segir Pétur að reynslan sýni
að starfsfólki fækki í raun lítið við
uppsetningu vélanna, heldur færist
fólk til í störfum. Minnir hann á
að störfin við forflokkunina séu
stundum talin einhæf og leiðinleg.
Vélamar kosta á bilinu 10-20
milljónir kr., samkvæmt upplýsing-
um seljendanna.
Lítinn sportbát
rak upp í fjöru
SEXTÁN feta sportbát rak vélar-
vana upp í fjöru við Suðurnes á
Seltjarnamesi um miðnætti aðfara-
nætur laugardags. Björgunarsveitir
Alberts á Seltjarnarnesi og Ingólfs
í Reykjavík voru kallaðar út og
fluttu tvo bátsveija í land.
Að sögn vaktmanna Tilkynninga-
skyldunnar vom mennimir aldrei í
hættu staddir. Afráðið var að bíða
eftir flóði og náðist báturinn á flot
lítið skemmdur um klukkan þijú
um nóttina.
stofnunar hefðu ekki áhrif á hluta-
bréfaviðskipti sem áttu sér stað áður
en samkeppnislög tóku gildi. Krist-
ján Loftsson sagði við Morgunblaðið
í gær að það væri sitt mat að úr-
skurður Samkeppnisstofnunar kall-
aði ekki á breytingar á stjórn Olís.
Guðmundur sagði að miðað við
þær upplýsingar sem hann hefði
þýddi úrskurður Samkeppnisstofn-
unar að gera þyrfti breytingar á
stjórninni. Hann sagði að ef það
væri mat Kristjáns að allir stjórnar-
menn Olís uppfylli skilyrði Sam-
keppnisstofnunar myndi stofnunin
ekki gera athugasemdir. Skilyrði
stofnunarinnar væru skýr og Olíufé-
lagið ætti að geta metið þetta mál
út frá þeim.
Ók út af til
að forðast
árekstur
Vík í Mýrdal. Morgunblaðið.
BÍLSTJÓRI fiskflutningabíls
slapp ótrúlega vel eftir að bíll
hans valt við Hvammsá nærri
Vík í Mýrdal um hádegisbil í
gærdag.
Flutningabíllinn, sem var
fulllestaður af frosnum fiski,
var að koma að einbreiðri brú
við Hvammsá þegar ökumað-
urinn sá skyndilega að lítill
fóiksbíll var þegar kominn á
brúna. Ökumaðurinn valdi að
keyra út af veginum af tvennu
illu til að koma í veg fyrir
árekstur. Flutningabíllinn vait
á toppinn, húsið gjöreyðilagðist
og flutningakassinn skekktist.
Einbreiðar brýr hafa að und-
anförnu reynst slysagildrur en
um verslunarmannahelgina
varð einmitt þriggja bíla árekst-
ur á þessari sömu brú.
Handan við lög og
reglu
►Fyrirtæki með löglega starfsemi
hafa verið nýtt til að „þvo“ stolna
peninga og illa fengin verðmæti.
/10
Bosnía milli steins og
sleggju
► Sigur Króata á Serbum í Krajina
gæti að margra mati auðveldað
friðarsamning í löndum gömlu
Júgóslavíu. /14
Á nýrstu bungum
Grænlandsjökuls
►Tveir íslendingar voru í miklum
þýskum leiðangri um lítt kannaðan
norðurhluta Grænlands á vegum
Alfred Wegener stofnunarinnar.
/16
Tel mig vita hvað Jón-
as var að segja
►Bandaríski prófessorinn Richard
Ringler hefur sl. þrjú ár notað
hveija stund sem hann hefur haft
aflögu til að að þýða ljóð Jónasar
Hallgrímssonar yfír á enska tungu.
/18
Við vöndum okkar
framleiðslu
► Saumastofan Sólin í Kópavogi
var upphaflega á vegum Kama-
bæjar og í eigu Guðlaugs Berg-
manns. I vor varð hins vegar rót-
tæk breyting þar á, þegar þær
Hrönn Norðdahl og Sigríður
Bjömsdóttur keyptu saumastof-
una. /20
B
► 1-28
Fólk á fjöllum
►Hálendi íslands er töfraveröld.
Víðátta, auðn, nakin hraun og
hijóstmg flöll. Mosató við lítinn
læk, jöklar og fossandi ár. Þetta
er uppistaðan í síbreytilegu sjónar-
spili fjallabirtunnar sem laðar til
sín æ fleiri ferðamenn af ólíkum
uppmna. /1&12-15
Á ferð og flugi ífjöl-
miðlaheimi
► Jónas R. Jónsson gegnir nú
ábyrgðarmiklu starfi hjá fjölmiðl-
unarrisanum Nethold, en var áður
dagskrárstjóri hjá Stöð 2. Hann
ræðir hér um tildrög þess að hann
kom til starfa hjá Nethold og hvað
starf hans þar felur í sér. /2
Leyniþjónusta á.
sálnaveiðum
►Um misnotkun austurþýsku
leyniþjónustunnar á sálfræðilegri
'þekkingu. /4
BÍLAR_____________
► 1-4
Mercedes-Benz E til
landsins
►Ræsir sýnir nú fyrsta eintakið
af nýju E-línunni sem flutt hefur
verið til landsins. /1
Reynsluakstur
► Mazda 323F - glæsilegur bíll
sem sameinarkosti fjölskyldubíls
og sportbíls. /4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak fdag 32
Leiðari 24 Fólk í fréttum 38
Helgispjall 24 Bíó/dans 40
Reykjavíkurbréf 24 íþróttir 44
Minningar 26 Útvarp/sjónvarp 45
Myndasögur 34 Dagbók/veður 47
Bréf til blaðsins 34 Mannlífsstr. 6b
Brids 34 Kvikmyndir 8b
Stjörnuspá 34 Dægurtónlist 9b
Skák 34
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4-6
,, Kvennabaninn ‘ ‘ vinnur
störf 200 kvenna
Samkeppnisstofnun um úrskurð um samstarf olíufélaganna
Ekkí víðtækt fordæmi