Morgunblaðið - 13.08.1995, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/Sambíóin og Borgarbíó á Akureyri sýna bandarísku spennumyndina
Bad Boys, eða Tveir með öllu eins og myndin kallast á íslensku. Fjallar hún um tvær
leynilöggur og vandræði þeirra við að reyna að endurheimta rísastóran eiturlyfjafarm
sem stolið hefur verið úr geymslum fíkniefnalögreglunnar.
Kapphlaup
í kúlnahríð
I* KVIKMYNDINNI Bad Boys
fara þeir Martin Lawrence og
Will Smith með hlutverk lögreglu-
manna í Miami sem fá það verk-
efni að endurheimta stolinn heró-
ínfarm að andvirði hundrað millj-
óna dollara og þetta þurfa þeir
að gera áður en lögregludeildin
sem þeir starfa hjá verður lögð
niður eins og fyrirhugað er.
í miklu kapphlaupi við tímann
eltast lögreglumennirnir Burnett
(Lawrence) og Lowrey (Smith)
við stórþjófinn Fouchet (Tcheky
Karyo) um undirheima Miami, og
allan tímann þurfa þeir að kljást
við fúlmenni hin mestu og fljúg-
andi byssukúlur. Kynæsandi vitni
(Téa Leoni) getur ein borið kennsl
á þjófínn alræmda, en þegar hún
kemur á lögreglustöðina neitar
hún að tala við nokkurn annan
en Lowrey, sem er þá hvergi
nálægur.
Burnett bregst hins vegar
skjótt við og þykist vera Lowrey.
En sá böggull fylgir skammrifí
að hann verður að halda áfram
að þykjast vera Lowrey á meðan
málið stendur yfír því ella á hann
að hættu að missa traust vitnis-
ins. Á milli þess sem kúlumar
fljúga og æðisgenginn eltingar-
leikur á sér stað verður Bumett,
sem er kvæntur maður, því að
látast vera glaumgosinn Lowrey
og halda sig sífellt í nálægð vitn-
isins, en Lowrey fer hins vegar
heim til eiginkonu Bumetts og
bama hans og taka þau nauðug
viljug þátt í feluleiknum þar til
málið hefur verið leyst.
Framleiðendur Bad Boys em
þeir Don Simpson og Jerry Bmck-
heimer, en leikstjóri myndarinnar
er hinn þrítugi Michael Bay og
er þetta fyrsta kvikmyndin í fullri
lengd sem hann leikstýrir. Hann
hefur hins vegar getið sér mjög
gott orð sem leikstjóri tónlistar-
myndbanda og auglýsinga hjá
Propaganda Films, sem Siguijón
Sighvatsson stofnaði með öðmm,
og fyrr á þessu ári var Bay út-
nefndur af samtökum bandarí-
skra leikstjóra sem auglýsinga-
leikstjóri ársins.
Þeir Martin Lawrence og Will
Smith em báðir vel þekktir úr
bandarísku sjónvarpi. Þar hefur
sá fyrmefndi verið með eigin grín-
þátt sem kallast einfaldlega Mart-
in, en hann hefur jafnframt farið
með hlutverk í kvikmyndunum
Do the Right Thing, sem Spike
Lee leikstýrði, House Party, House
Party 2 og þá lék hann á móti
Eddie Murphy í Boomerang.
Lawrence er fæddur í Þýska-
landi en hann ólst upp í Maryland
í Bandaríkjunum. Það var kennari
hans sem ráðlagði honum að reyna
fyrir sér sem grínisti og svo fór
að lokum að hann reyndi fyrir sér
í klúbbi á Manhattan. Hann vann
svo fljótlega til verðlauna í hæfí-
leikakeppnum og ekki leið á löngu
þar til hann var kominn á samning
hjá Columbia Pictures. Hann hefur
þrisvar sinnum flutt grín sitt á
sviði í Radio City Music Hall, og
þar sló hann aðsóknarmet sem
Eddie Murphy átti áður.
Will Smith stofnaði árið 1986
rappsveitina D.J. Jazzy Jeff and
The Fresh Prinee með félaga sín-
um Jeff Townes. Þeir unnu til
Grammy-verðlauna árið 1988
fyrir besta rapplagið það ár, og
sama sagan endurtók sig árið
1991. Hæfileikar Smiths á tón-
listarsviðinu og sem alhliða
skemmtikraftur leiddu til þess
að sjónvarpsþátturinn The Fresh
Prince of Bel Air varð til en
hann hefur notið mikilla vin-
sælda í Bandaríkjunum
undanfarin ár. Smith
hefur m.a. farið með
hlutverk í kvikmyndun-
um Made in America,
sem Whoopi Goldberg
og Ted Danson fóru með
aðalhlutverk í, og Six
Degrees of Seperation,
en fyrir hlutverk sitt í
henni hlaut hann mikið
lof gagnrýnenda.
Skúrkinn Fouchet
leikur franski leikarinn
Tcheky Karyo, en hann
er meðal vinsælustu leik-
ara í heimalandi sínu.
Hann hlaut sérstakt lof fyrir hlut-
verk sitt sem leyniþjónustumaður
sem þjálfar unga stúlku til að
verða morðingi í mynd Luc Bes-
sons, La Femme Nikita. Karyo
fæddist í Istanbúl í Tyrklandi en
ólst upp í París. Að loknu leiklist-
amámi lék hann um skeið á leik-
sviði, en fyrsta kvikmyndahlut-
verk hans var í myndinni Martin
Guerre snýr aftur, sem gerð var
1981. Síðan hefur hann farið með
hlutverk í fjölda mynda, og meðal
annars fór hann með aðalhlut-
verkið í Nostradamus. Hann fer
með hlutverk í Golden Eye, nýj-
ustu James Bond myndinni, og
einnig fer hann með hlutverk í
Operation Dumbo Drop, sem nú
er meðal aðsóknarmestu mynd-
TCHEKY Karyo fer með hlutverk
þjófsins og eiturlyfjasalans Fouchet.
MARTIN Lawrence og Will Smith leika leynilöggurnar
Burnett og Lowrey.
anna í Bandaríkjunum.
Theresa Randle, sem
fer með hlutverk eigin-
konu Bumetts, mun á
næstunni sjást í aðal-
hlutverki í nýrri mynd
Spike Lee, Girl 6.
Hún hefur áður farið
með stórt hlutverk
í Sugar Hill, þar
sem hún lék á
móti Wesley
Snipes, og
einnig
fór hún
með
stórt
hlut-
verk
í Malcolm X. Síðast
sást hún á hvíta
tjaldinu í Beverly
Hills Cop 3, en meðal
annarra mynda sem
hún hefur leikið í eru
The Guardian, The
King of New York og
Jungle Fever.
THERESA
Randle leik-
ur eigin-
konu lögg-
unnar Bur-
netts.
Snaggaraleg
endurkoma
FRAMLEIÐENDUR Bad Boys
eru Don Simpson og Jerry
Bruckheimer, en þeir eru meðal
happasælustu kvikmyndafram-
leiðenda allra tíma. Áratugurinn
milli 1980 og 1990 var nánast ein
samfelld sigurganga hjá þeim
félögum, en þá stóðu þeir m.a.
að baki myndunum Flashdance,
Beverly Hills Cop og Top Gun.
Það sem af er þessum áratug
hefur reyndar ekkert komið úr
smiðju þeirra félaga fyrr en Bad
Boys leit dagsins ljós í apríl síð-
astliðnum, en hún hefur nú skilað
um 70 milljóna dollara tekjum í
Bandaríkjunum. Siðan hefur
mynd þeirra Crimson Tide með
Denzel Washington og Gene
Hackman litið dagsins ljós og
skilað hátt í 100 milljón dollurum
í tekjur og væntanleg er myndin
Dangerous Minds með Michelle
Pfeiffer í aðalhlutverki.
Bruckheimer ólst upp í Detro-
it, og var faðir hans afgreiðslu-
maður í fataverslun. I fyrstu
starfaði hann við auglýsingagerð
en hóf fljótlega að framleiða kvik-
myndir, en þeirra á meðal voru
Cat People og American Gigolo.
Simpson ólst hins vegar upp í
Alaska en þar var faðir hans leið-
sögumaður hreindýraveiði-
manna. Hann segist hafa verið
heldur baldinn á æskuárum sín-
um og meðal annars hafi hann
verið ákærður fyrir innbrot, bíla-
þjófnað og ávísanafals. Leið hans
lá fljótlega til Hollywood þar sem
hann hugðist gerast kvikmynda-
leikari. Hann var hins vegar fyrr
en varði farinn að starfa við fram-
leiðsludeild Paramount Pictures
þar sem hann varð fljótlega fram-
kvæmdasljóri. Hann sagði því
starfi svo lausu til að geta fram-
leitt Flashdance með Bruckhei-
mer, en hann hafði þá þegar haf-
ið framleiðslu fyrir Paramount.
Ekkert lát varð á vinsældum
þeirra mynda sem Simpson og
Bruckheimer framleiddu, og tal-
ið er að Flashdance, Beverly
Hills Cop I og II, Top Gun og
Days of Thunder hafi samtals
skilað rúmlega þrem milljörðum
dollara í tekjur. Þeir félagar
voru taldir einkennandi fyrir allt
það besta og versta sem Holly-
wood hafði upp á að bjóða á síð-
asta áratug. Þeir framleiddu
stórmyndir og gerðu stórstjörn-
ur úr Eddie Murphy og Tom
Cruise, þeir keyptu sér risastór
íbúðarhús og óku um á nákvæm-
lega eins kolsvörtum Ferrari bíl-
um. Sagt er að Simpson hafi á
tímabili eingöngu klæðst svört-
um Levi 501 gallabuxum og hent
þeim eftir tvo þvotta þar sem
þær væru þá ekki lengur nógu
svartar.
Árið 1988 gerðu þeir félagar
samning við Paramount um að
framleiða fimm kvikmyndir og
þáðu þeir að sögn 300 milljónir
dollara fyrir. Þetta þótti geysihá
upphæð á þeim tíma þegar með-
alkvikmynd kostaði um 20 millj-
ónir dollara í framleiðslu. Þrátt
fyrir að fyrsta myndin, Days of
Thunder, skilaði á endanum hátt
í 400 milljóna dollara tekjum
gekk allt á afturfótunum við
gerð hennar og kostnaðurinn
rauk upp úr öllu valdi. Þetta
varð til þess að upp úr samvinn-
unni við Paramount slitnaði og
Simpson og Bruckheimer sömdu
við Disney, en þar komust þeir
ekki upp með það sem þeir vildu.
Þeir lentu því loks á samningi
hjá Columbia, sem réðst í gerð
Bad Boys sem Disney hafði hafn-
að, og sömu sögu er að segja um
Crimson Tide. Velgengni þess-
ara mynda félaganna Simpson
og Bruckheimer þykir sanna að
þeir hafi engu gleymt á því fimm
ára tímahili sem leið án þess að
þeir framleiddu nokkra kvik-
mynd, og snaggaraleg endur-
koma þeirra í sviðsljósið hefur
þaggað niður allar raddir um að
þeir væru útbrunnir og búnir að
vera.