Morgunblaðið - 13.08.1995, Qupperneq 44
44 SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
Handvömm við með-
höndlun sýnis gæti
hreinsað Modahl
NYLEGA hnekkti áfrýjunardómstóll breska frjálsíþróttasam-
bandsins fjögurra ára keppnisbanni yfir fyrrum Samveldismeist-
ara í 800 m hlaupi kvenna, Diane Modahl. Alþjóða frjálsíþrótta-
sambandið úrskurðaði hana fyrir ári síðan ífjögurra ára keppnis-
bann vegna þess að þvagsýni frá henni reyndist innihalda mjög
hátt hlutfall af karlhormónum, testersterone í hlutfalli við hliðar-
efnið epitestosterone eða 42 gegn 1. Eðlilegt er að þarna sé
jafnvægi á milli. Frávik eru þó gefið 6 á móti 1. Dómstóllinn sagði
í niðurstöðu sinni að bannið hefði verið ákveðið á hæpnum for-
sendum þar sem sýni Modahl hafi ekki verið geymt við réttar
aðstæðar fram að þeim tfma að það var rannsakað auk þess
sem hún var fyrr á sl. ári sett í lyfjapróf, þá hefði ekkert óeðli-
legt komið fram.
Diane Modhal hefur statt og
stöðugt haldið fram sakleysi
sínu og hefur á undanförnum ellefu
mánuðum notið aðstoðar frá bresk-
um, þýskum og bandarískum sér-
fræðingum við vörn sína. Hún var
að vonum ánægð þegar niðurstaða
áfrýjunardómstólsins lá fyrir og
sagði að nú hefði réttlætinu verið
fullnægt. Hún væri hér eftir sem
hingað til stuðningsmaður þess að
lyfjaeftirlit færi fram á íþrótta-
mönnum. Það ríkti ekki sama gleði
í herbúðum alþjóða fijálsíþrótta-
sambandsins þegar niðurstaðan var
birt og í tilkynningu sem það lét
frá sér sama dag sagði að það væri
í þeirra valdi að úrskurða fijáls-
íþróttamenn í bann og hnekkja þeim
úrskurði kæmu fram vísbendingar
sem breytti málsatvikum.
Framkvæmdastjóri alþjóða
frjálsíþróttasambandsins, Istvan
Gyulai, sagði að stjórn sambandsins
hefði ákveðið að vísa málinu til
áfrýjunardómstóls síns og sú niður-
staða sem þar fengist yrði bindandi
fyrir báða aðila. Niðurstaðan verður
birt innan þriggja mánaða. Þangað
til hefur Modahl rétt á að keppa.
Ólíklegt er að svo verði þar sem
hún er eigi kona einsömul um þess-
ar mundir. Einnig sagði Gyulai það
HESTAR
vera veikleika í úrskurði dómstóls-
ins að breska frjálsíþróttasamband-
inu hefði ekki verið leyft að rann-
saka hin nýju sönnuargögn sem
fyrir dómstólinn hefðu verið lögð
og vógu þyngst við að létta banninu
af Modahl, eins og þeir hefðu farið
fram á.
Þessi nýju sönnunargögn sem
nefndin tók til greina og úrskurðaði
á voru að sýni sem tekið var hjá
Modahl hefði verið geymt við stofu-
hita í nokkra daga, en ekki í kæli
eins og nauðsynlegt hefði verið.
Þannig hefði sýnið geta breyst,
hlaupakonunni í óhag. Gyulai sagði
ennfremur að líklega yrði farið fram
á það við Modahl að hún sendi inn
nýtt þvagsýni.
En Modahl hefur ekki unnið
nema hálfan sigur því nú þegar
niðurstöður liggja fyrir þá er ljóst
að kostnaður hennar við málssókn-
ina hefur reynst mikill. Hún hefur
farið þess að leit við breska fijáls-
íþróttasambandið að það greiði lög-
fræði- og sérfræðingakostnað sinn
vegna ellefu mánaða málavafsturs.
Auk þess fer hún fram á skaðabæt-
ur frá sambandinu. Þessu neita for-
ráðamenn breska sambandsins al-
farið og segja að greiðsla komi
ekki til greina. í yfirlýsingu frá lög-
HER er Modahl
á sprettinum á
heimsmeistar-
mótinu fyrir
tveimur árum.
Nú er hún
fjarrl góðu
gamni vegna
keppnisbanns,
sem hefur ver-
Ið aflétt en al-
þjóða frjáls-
íþróttasam-
bandið hefur
ekki sagt sitt
síðasta.
fræðingi Modahls segir að það komi
til greina að fara með skaðabóta-
málið fyrir dómsstóla vilji breska
fijálsíþróttasambandið ekki taka
kröfur Modals til greina. En breska
sambandið svarar fullum hálsi og
segir að málið sé í höndum sérfræð-
inga sinna og þeir muni veijast
Modahl og kröfum hennar. „Kostn-
aður Modahl við málssóknina ekki
á okkar ábyrgð,“ sagði í yfirlýsingu
frá breska fijálsíþróttasambandinu
í vikunni.
Það er því ljóst að það geti enn
tekið nokkurn tíma að fá botn í
þetta allt saman og kostnaður fyrr-
um samveldismeistarans í 800 m
hlaupi við að hreinsa mannorð sitt
gæti jafnvel gert hana að eigna
lausri manneskju áður en yfirlíkur.
Framtíð Háfeta frá Krossi óljós
ÞAÐ skýrist á næstu tveimur
vikum hvort Háfeti frá Krossi,
hestur Piet Hoyos Austurriki,
verður nothæfur til reiðar eftir
slysið sem átti sér stað í gæð-
ingaskeiði á nýafstöðnu heims-
meistaramótinu í hestaíþrótt-
um sem haldið var í Fehraltorf.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um greip Háfeti fram á sig, sem
kallað er, og hjó í sundur sinar
á leggnum á framfæti.
Líklegt þykir að klárinn verði að-
eins nothæfur til léttrar brúk-
unar fyrir krakka eftir slysið. Farið
var með klárinn á
Valdimar dýralæknaháskólann
Kristinsson í Zurich þar sem
skrifar gerð var aðgerð á
honum. Um ástæður
óhappsins sagði Piet Hoyos í sam-
tali við Morgunblaðið að Háfeti, sem
væri frekar viðkvæmur fyrir um-
hverfinu, hefði greinlega brugðið svo
við að sjá áhorfendaskarann og
stífnað upp og gripið á sig. Sagðist
hann ásamt fleirum hafa farið fram
á það við mótsstjórn að leyft væri
að sýna hestunum brautina við þær
aðstæður sem keppt var við rétt
áður en keppnin hófst en ekki feng-
ið. Þótti þeim það skrýtið því nægur
tími hafi verið til þess og ekki um
neina tímaþröng að ræða. Piet sagði
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Síðasti spretfurinn?
EFTIR slysið í gæðingaskeiðinu haltraði Háfeti út af vellinum
þar sem settar voru spelkur á hann til að auðvelda honum
ganginn og hann síðan fluttur á dýralæknaháskólann í Zurich
þar sem gerð var á honum aðgerð. Piet Hoyos heldur í hestinn.
aðspurður að vissulega hafi þeir
verið búnir að sýna hestunum braut-
ina en þá hafi ekki verið neinir
áhorfendur þar og auk þess var
búið að setja inn á brautina hálm-
bagga sem notaðir voru sem trekt
við enda stökkkaflans. Kvaðst Piet
mjög ósáttur við þessa ákvörðun
mótsstjórnar en einnig gætti
óánægju innan austurrísku sveitar-
innar með hvað allt væri dýrt þarna
varðandi þátttöku í mótinu og
nefndi hann í því sambandi meðal
annars alla aðstöðu fyrir keppnis-
hrossin, bíla- og tjaldstæði.
Strax eftir óhappið fór af stað
orðrómur um að Háfeti væri á lyfjum
en til að kveða þann orðróm niður
hafi verið ákveðið að taka úr honum
blóðsýni að viðstöddum dýralækni
mótsins og þau send til rannsóknar.
Á tímabili gekk sá orðrómur að búið
væri að aflífa hestinn.
Piet keypti Háfeta síðastliðið
haust en hann var að sögn kunn-
ugra talinn mjög góður hestur. Hafa
ýmsir sem til hans þekktu viljað taka
svo djúpt í árinni að setja hann í
flokk með gæðingum eins og Muna
frá Ketilsstöðum og Gými frá Vind-
heimum. Taldi Piet sig hafa átt mjög
góða möguleika á sigri í gæðinga-
skeiði og fimmgangi en nú sæti
hann eftir með sárt ennið og hugsan-
lega gæðingnum fátækari.
KARFA
Samið
ílMBA
Samtök leikmanna í NBA og
forráðamenn deildarinnar
náðu í fyrrinótt nýju samkomu-
lagi sem lætur næsta keppnis-
tímabil ganga ótruflað. Nýi
samningurinn felur í sér að ekki
verða settir lúxusskattar á lið
sem fara yfir launaþakið, en það
settu leikmenn helst fyrir sig,
var undirritaðui aðeins nokkrum
mínútum áður en iokafrestur,
sem leikmenn settu upp, rann
út en enn á eftir að ganga frá
lausum endum.
Búið var að útbúa samning í
júní en þar sem leikmenn frest-
uðu atkvæðagreiðslu um hann
vegna óánægju margra frægra
leikmanna, svo sem Michael
Jordan og Patrick Ewing, sem
hótuðu að leysa upp deildina
frekar en samþykkja hann, lok-
uðu eigendur liðanna öllum ieik-
mannasamningum i. júlí.
Verkalýðsráð ákvað að gengið
skyldi til atkvæða hvort leysa
ætti upp deildina seint í ágúst
í fyrsta lagi en leikmannasam-
tökín sögðu þá að ef ekki yrði
gengið frá samningi um mið-
nætti mundu þeir sjálfir gera
út um málið og til frekari at-
kvæðagreiðslu þyrfti ekkí að
koma. Eigendur sáu sig strax
um hönd.
„Þó að þessi samningur sé
verri fyrir eigendur, skora ég á
þá að samþykkja hann tii að
tryggja áframhaldandi vöxt
NBA,“ sagði David Stem fram-
kvæmdastjóri deildarinnar.