Morgunblaðið - 15.08.1995, Blaðsíða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
HÁSKOIABÍÓ
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÓIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
KEVIN KLINE
MEG RYAN
JACK& SARAH
Perez fjölskyidan
2 FYRIR 1
2 FYRIR 1
Sýnd kl. 4.50, 7, 9 og 11.10.
2 FYRIR 1
Rieu
i
2 FYRIR 1
Vinninqslnafinn í Frencli
Kiss leiknum er:
Bjöpn Einarsson, Siqtúni 21
oq (cep nann fcrii fijpip Ivo til
Papísap í boði Pluqleitfa.
BRúðkaup
muRiel
OAVID «*AOE
Eftip f lj f s t u s (] n i n q a r fi e I q i n a fiafa 8.455 séS Fpanskan Koss!
Kað gp 1200 qest um fleipa en sjálf Fjöqup LpúSkaup náðu!!
Söngleikja-
soðgrýla
TÓNLIST
G e i s 1 a d i s k u r
„SÚPERSTAR"
„Súperstar", tónlist úr rokkóper-
unni Jesus Christ Superstar eftir
Andrew Lloyd Webber og Tim
Rice í íslenskri þýðingn Hannesar
Arnar Blandons og Emiliu Bald-
ursdóttur. Helstu hlutverk syngja
Stefán Hilmarsson, Pétur Óm
Guðmundsson, Guðrún Gunnars-
dóttir, Daníel Ágúst Haraldsson
og Páll Óskar Hjálmtýsson.
Hyómsveitarstjóm annast Jón
Ólafsson, sem leikur einnig á
hljómborð, en aðrir hljóðfæra-
leikarar em Guðmundur Péturs-
son og Stefán Hjörleifsson gít-
arleikarar, Róbert Þórhallsson
bassaleikari og Jóhann Hjörleifs-
son trommuleikari. Japís gefur
út. 44,34 mín., 1.999 kr.
ROKKÓPERAN um Jesúm
Krist vakti gríðarlega athygli á
sínum tíma og deilur, því mörg-
um þótti óvarlega farið með guð-
spjallið. Plata með verkinu seld-
ist gríðarlega vel og það var vin-
sælt sviðsverk, var meðal annars
átta ár samfleytt á fjölunum í
Lundúnum. Þrátt fyrir það er
„Súperstar" heldur klént verk,
söguþráðurinn klastur og tónlist-
in ekki merkileg; einskonar söng-
leikjasoðgrýla. Það má þó hafa
gaman af því á köflum, sérstak-
lega ef vel er sungið og lipurlega
leikið undir og víða fara hljóð-
færaleikarar og söngvarar á
kostum á disknum sem hér er
til umfjöllunar. Þannig er Stefán
Hilmarsson hreint frábær í hlut-
verki Júdasar, til að mynda í
upphafslagi plötunnar, Paradís,
og í lokalaginu, Superstar.
Veigamikið hlutverk er Maríu
og í höndum Guðrúnar Gunnars-
dóttur. Guðrún syngur geysilega
vel eins og alltaf, en röddin er
full tær og sakleysið of mikið; í
laginu fræga Á ég ást mína að
játa? bregður hvergi fyrir efa,
angist eða ástríðu. Daníel Ágúst
Haraldsson dregur upp sannfær-
andi mynd af Pontíusi Pílatusi
og syngur sérdeilis vel, Páll Ósk-
ar Hjálmtýsson fer á kostum sem
Heródes, þó hann fari yfir strik-
ið í lokin, og Vilhjálmur Goði á
fyrirtaks spretti í sínu eina lagi
sem Símon oftrúaði (sérkenni-
legt orð oftrúaði, sérstaklega ef
tekið er tillit til þess að Símon
Morgunblaðið/Golli
PÉTUR Guðmundsson, Guðrún Gunnarsdóttir, Matthías Matthíasson, Vilhjálmur Goði, Daníel
Ágúst Haraldsson og Stefán Hilmarsson.
var „sílóti", eða byltingarmaður,
en ekki ofsatrúarmaður).
Jesús Kristur þeirra Webbers
og Rice var alltaf hálfgerð
pissudúkka, tilvistarhyggjuhippi
sem erfitt er að hafa samúð með
og þarf sjóaðan og kraftmikinn
söngvara til að beija í brestina.
Til þess hefur Pétur Örn Guð-
mundsson ekki burði. Hann hef-
ur þokkalega rödd en á langt í
land með að öðlast þá reynslu
sem til þarf í raddbeitingu og
túlkun.
Jón Ólafsson og félagar hans
fara víða vel með; sérstaklega
er orgelleikur Jóns smekklegur
og víða má finna frábæra gítar-
spretti.
Þýðingin er víða vel af hendi
leyst og víða miður og þannig
er til að mynda ekki gott að
gera sér grein fyrir því á hvern
ruglið með fallbeygingu nafns
söguhetjunnar skrifast. Það er
h'ka afskaplega afkáralegt og
aulalegt að nota orðskrípið „Súp-
erstar“.
Árni Matthíasson
Hrosshdr — spuni — spjaldvefnaður
Silla — Sigurlaug Jóhannesdóttir kennir hrosshársspuna 30. ágúst til 1. september
og Philippe Ricari spjaldvefnað 6.-8. september kl. 10-15.
Kynning d hrdefhinuy vinnuaðferðum og notagildi.
Spjaldvefnaðarsýning í húsinu 26. ágúst—9. september.
Upplýsingar og skrdning d skrifstofu skólans eftir kl. 13 alla daga í síma 551-7800.
■ yjjcijaw m vís-.‘xst' ■ 4sv v.'.1.-
• mMmm ■ mJLm ■ JL ■ JU I aJka ■ ■ bJLb ■ ■Am ■ mMm ■ mMmm I «4»
írBrTSk'ar: m1!
■ aJLa ■ mJLm ■
í
í
í
¥
l
.4