Morgunblaðið - 22.08.1995, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1995
FRÉTTIR
. /S-fAu(\iD-------------
Stjornarstefnan okkar er farin að skila árangri, atvinnuleysingjarnir eru farnir að hverfa
emn af öðrum, eins og dögg fyrir sólu.
Tveir menn grunaðir
um fjölda innbrota
MAÐUR, sem handtekinn var að-
faranótt laugardags með afsagaða
hlaðna haglabyssu í fórum sínum,
hefur verið úrskurðaður í gæslu-
varðhald út þessa viku. Maðurinn
er grunaður um fjölda innbrota í
félagi við annan sem handtekinn
var á fimmtudag.
Lögreglan handtók á fimmtudag
mann sem grunaður er um aðiid
að innbrotum, meðal annars á
Drangsnesi og Hólmavík í síðustu
viku. Lögreglan taldi sig vita hver
hefði verið í för með honum og var
sá maður eftirlýstur. Aðfaranótt
iaugardags var hann svo handtek-
inn og fannst afsagaða haglabyssan
við framsæti bíls, sem hann var
farþegi í. Báðir mennirnir sitja í
gæsluvarðhaldi út þessa viku.
Hörður Jóhannesson, yfir-
lögegluþjónn Rannsóknarlögreglu
ríkisins, sagði að mennirnir tveir
væru grunaðir um fjölda innbrota
dagana fyrir handtökurnar. „Við
erum að rannsaka aðild þeirra að
tveimur innbrotum í Grindavík, auk
innbrota í Þykkvabæ, Borgarfirði,
Kirkjuhúsið í Reykjavík og fyrir-
tæki og verslanir á Drangsnesi og
Hólmavík," sagði Hörður.
Lögreglumenn vilja úrbætur
Stjórn Lögreglufélags Reykja-
víkur sendi frá sér fréttatilkynn-
ingu í gær, þar sem fram kemur
að þeir lögreglumenn, sem komu
að handtöku mannsins með hagla-
byssuna, hafi unnið það verk af
fagmennsku þrátt fyrir augljósa
hættu.
„Stjórn Lögreglufélags Reykja-
víkur vill hins vegar vekja fólk til
umhugsunar um að þetta er sá
veruleiki sem biasir við lögreglu-
mönnum hvar á landinu sem þeir
eru og að heimur afbrota fer sí-
harðnandi," segir í fréttatilkynn-
ingunni og loks er vakin athygli á
að lögreglumenn sitji ekki öllu
lengur undir því að engar úrbætur
náist fram á þeirra málum, hvorki
launaliðum né öðrum réttindamál-
um.
ÞESSA dagana er unnið að við-
gerð á steypuskemmdum á aðal-
öyggingu Háskóla íslands, en að
sögn Sveinbjörns Björnssonar
háskólarektors hafa engar sér-
stakar viðgerðir farið fram á
húsinu frá því það var tekið í
notkun 17.júní 1940.
Allt þakskegg hússins verður
endurnýjað og þétt meðfram
gluggum, en húsið er með þeim
fyrstu hér á landi sem gluggar
voru settir í eftirá. Allar súlur
hússins eru klæddar plötum úr
sérstakri silfurbergssteypu, sem
margar hverjar eru brotnar, og
hefur þurft að losa þær af og
maia og síðan steypa að nýju til
að nýta sama efnið. Þegar við-
Endurbætur
á aðalbygg-
ingu HI
gerð hefur fram á þakskeggi,
gluggum og súlum verður húsið
múrhúðað að utan úr samskonar
kvartsi og upphaflega, en það
er úr námum í Mosfellssveit.
Verkið er gert samkvæmt út-
boði og á því að vera lokið 1.
október næstkomandi, en heild-
arkostnaður er áætlaður rétt inn-
an við 50 milljónir króna.
Að sögn Sveinbjörns verður
því húsnæði, þar sem háskóla-
bókasafn var í bakálmu aðal-
byggingar Háskólans, breytt til
nota fyrir skrifstofur og skjala-'
safn. Námsráðgjöf skólans flyt-
ur í kjallara fyrrverandi bóka-
safnsrýmis, en á 1. hæðina er
gert ráð fyrir að almenna skrif-
stofa skólans og starfsmanna-
skrifstofa flytji. Sagði Svein-
björn að það yrði gert í þeim
tilgangi að losa húsnæði á 1. hæð
í norðurálmu aðalbyggingarinn-
ar þar sem skrifstofurnar hafa
verið til húsa, en með því fást
fimm nýjar kennslustofur. Er
vonast til að þær verði tilbúnar
á næsta ári.
Hagyrðingamót haldið í sjöunda sinn
Lýsa eig-inleikum
sínum og gæðum
HIÐ ÁRLEGA Hag-
yrðingamót verð-
ur haldið í Súlna-
sai Hótels Sögu næst-
komandi iaugardag.
Kvæðamannafélagið Ið-
unn í Reykjavík hefur veg
og vanda af framkvæmd
mótsins að þessu sinni en
hagyrðingar hvaðanæva
af landinu munu þar leiða
saman hesta sína, meira
þó í gamni en alvöru.
Mótið er hið sjöunda í
röðinni en það var fyrst
haldið á.Skagaströnd árið
1989.
Sigurður Sigurðarson
sem á sæti í undirbún-
ingsnefnd segir að mótið
verði vettvangúr átaka
hagyrðinga í millum sem
þó muni einkennast af
góðsemi. „Þarna verður kveðið,
stemmur fluttar og væntanlega
hluti úr Númarímu. Vestanmenn
og sunnanmenn takast á í
skanderingu og norðanmenn og
austanmenn yrkjast á og freista
þess að kveða niður hvetjir aðra.
Þá munu snillingar svara sam-
viskuspurningum í bundnu máli
og ennfremur verður lögð
áhersla á að menn komi fram
°g flytji vísur sem þeir hafa
gert um sjálfa sig og lýsi með
þeim hætti eiginleikum sínum
og gæðum.
Heiðursgestur mótsins er
Helgi Hálfdanarson og flytur
hann ávarp um gildi þess að
binda orð auk þess sem Njáil
Sigurðsson talar um listina að
kveða. Þá mun Skálda sem er
skip Iðunnar sigla um svæðið og
fiska vísur sem gerðar eru á
staðnum eða áður óbirtar vísur.
Gefið hefur verið út vísnakver
eftir hvert einasta mót og verður
þeirri útgáfu haldið áfram.“
Hermt er að dúllað verði á
mótinu?
„Já, vonandi verður hægt að fá
dúllara. Langt er síðan dúllað
hefur verið á íslandi en frum-
kvöðuli og höfundur dúllsins
Guðmundur Árnason úr Landeyj-
um, þekktari sem Gvendur dúll-
ari, lést árið 1913.
Guðmundur var eftirtektar-
verður maður sem kallaður var
flakkari í sinni tíð.
Hann var vel greindur
en veiktist og tók aldr-
ei á heilum sér á seinni
hluta ævi sinnar. Guð-
mundur hafði aldrei ró
í sínum beinum og
ferðaðist víða um land til að
fremja þessa list sína sem hann
fann upp með því að líkja eftir
vatnsgúlgri undir holbökkum.
Fékk hann margsinnis húsfylli á
skemmtunum."
- Hvers vegna þykir mönnum
nú mál til komið að endurvekja
dúllið?
„Dúllið hefur lifað í minning-
unni og lengi staðið til að vekja
það upp. Sjálfur þekkti ég fólk
sem mundi eftir Guðmundi og
móðir mín var meðal þeirra sem
heyrðu hann dúlla.“
-Hvetjir eiga erindi á mót sem
þetta?
„Allir sem hafa gaman af
vísnagerð og njóta þess að heyra
farið með vísur og kveðskap þótt
þeir yrki ekki sjálfir. Þetta er
smitandi fyrirbrigði og margir
Sigurður Sigurðarson
► Sigurður Sigurðarson
fæddist 2. október 1939 að
Sigurðarstöðum í Bárðardal.
Hann lauk prófi í dýralækn-
ingum árið 1967 og hefur
starfað við fag sitt síðan, með-
al annars við smitsjúkdóma-
varnir og rannsóknir á dýra-
sjúkdómum á Tilraunastöð-
inni á Keldum. Sigurður liefur
verið félagi í Kvæðamannafé-
laginu Iðunni í Reykjavík síð-
astliðin fimm ár. Hann er
kvæntur Halldóru Einarsdótt-
ur og eiga þau fjögur börn.
Snillingar
svara
spurningum
hafa byijað að yrkja á svona
samkomum. Þetta er í sjöunda
sinn sem hagyrðingamót fyrir
allt landið er haldið og aðsóknin
hefur vaxið ár frá ári.“
-Bendir það til þess að kveð-
skapurinn sé að sækja í sig veðr-
ið um þessar mundir?
„Áhuginn fer vaxandi, sér-
staklega meðal ungs fólks. Eldra
fólk hefur verið fjölmennara á
hagyrðingamótinu til þessa, en
yngra fólkið sem hefur komið
hefur komist að því að þetta er
glettilega skemmtilegt. Aidurs-
dreifingin er því meiri en áður
og vonandi verður hægt að leiða
elsta meðliminn í Kvæðamanna-
félaginu Iðunni sem er 102 ára
og þann yngsta sem er ellefu ára
saman á laugardaginn."
-Hvaða þýðingu hef-
ur það fyrir þjóðina að
leggja rækt við kveð-
skapinn og hittast á
mótum sem þessu?
________ „Það hefur þá þýð-
ingu að viðhalda mál-
inu og aga það. Það er mikilvægt
að geta sett saman orð á
skemmtilegan hátt. Þá er það
einnig mikilvægt fyrir hugsunina
og til að efla þjóðernið; þá á ég
við þjóðerni í sérstaklega góðum
skilningi."
-Fá le'sendur Morgunblaðsins
vísbendingu um það sem koma
skal á mótinu á laugardaginn?“
„Já, ég hef reyndar verið
kenndur við ýmislegt annað en
kveðskap um mína daga, meðal
annars að láta skera niður sauðfé
vegna riðuveiki og þess vegna
sagði ég einhvern tíma þegar ég
átti að lýsa sjálfum mér á hag-
yrðingamóti:
Aldrei hefur átt við mig
að yrkja kvæði.
Sinni helst um sjúkdómsfræði
og sé til þess að öðrum blæði. “
ORÐABÓK MENNINGARSJÓÐS:
'flúlla.-aOi s rau/a með lokudum munni og skjálfandi röddu.
skanderast (skandérast) kveðast á, koma á víxl með vísur sem byria á sama staf
H‘irra)Sta V'Sa enðað' &' fara með í'e':skeTíía'' vísur a ',íx/ (án tillits til upphafsstafs