Morgunblaðið - 02.09.1995, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1995 39
FRÉTTIR
TORFKIRKJA í Árbæjarsafni byggð árið 1842.
Sumarstarfí lýkur
á Árbæjarsafni
LOKAHELGI sumarstarfsins
í Árbæjarsafni verður helgina
2.-3. september.
Á laugardag kl. 15 munu
Karl Jónatansson og Einar
Magnússon leika valinkunn
lög á harmoniku og munn-
hörpu. Svo eru það gömlu
leikimir þeirra langmömmu
og -afa sem leiðsögumenn
kenna börnunum um kl. 15.30.
Á sunnudag kl. 13-17 býðst
gestum að líta í geymslu-
skemmur safnsins undir leið-
sögn Helga Sigurðssonar,
safnvarðar munadeildar. í
fórum safnsins eru þúsundir
muna og gefur augaleið að
ekki er hægt að hafa þá alla
til sýnis. Glímufélagið Ár-
mann mun sýna glímu og
forna leiki kl. 14.
Kl. 15 verður slegið upp
töðugjaldaballi á Kornhúsloft-
inu. Karl Jónatansson leikur
polka, ræl og fleira sem tíðk-
aðist á böllunum hér á árum
áður. Nokkrir fótafimir dans-
arar munu leiða dansinn.
SUNNLENSKU tónlistarmennirnir sem koma fram
á Kringlukránni á sunnudagskvöld.
íslenskur djass
á Kringlukránni
RÚREK djasshátíðin verður
sett í Ráðhúsinu sunnudaginn
3. september. Ýmsir erlendir
gestir munu leika á hátíðinni
en innlendir djassleikarar
verða þó í meirihluta.
Ókeypis er inn á alla tón-
leika á Fógetanum og
Kringlukránni og á sunnu-
dagskvöld verða mjög for-
vitnilegir tónleikar á
Kringlukránni. Þar munu
sunnlenskir hljóðfæraleikarar
koma fram undir forystu Ól-
afs Stolzenwald, bassaleikara.
Krisljana Stefánsdóttir frá
Selfossi syngur og síðan verða
tveir reykvískir gestir sem
þekktari eru fyrir annað en
djass, Hjördís Geirs söngkona
og Grettir Björnsson harmon-
ikuleikari.
Hluti versl-
ana í Kringl-
unni opnar á
sunnudögum
FYRIRTÆKJUM í Kringlunni er
nú heimilt að hafa opið lengur á
virkum dögum en sameiginlegur
afgreiðslutími hússins gerir ráð
fyrir. Einnig er mögulegt fyrir
þá sem það vilja að hafa opið á
sunnudögum. I vetur ætlar hluti
verslana og veitingastaðirnir í
Kringlunni að lengja afgreiðslu-
tíma sinn.
Sameiginlegur afgreiðslutími
Kringlunnar er mánudaga til
fimmtudaga frá kl. 10-18.30,
föstudaga kl. 10-19 og laugar-
daga kl. 10-16. Á þessum tíma
geta viðskiptavinir gengið að því
vísu að opið sé í öllum verslunum
og þjónustufyrirtækjum hússins.
Einu undantekningarnar frá
þessari reglu eru ÁTVR, Póstur
og sími og Búnaðarbankinn, sem
eru með nokkru styttri þjónustu-
tíma.
Frá 1. september ætlar hluti
verslana og allir veitingastaðir
Kringlunnar að hafa opið lengur
en hinn sameiginlega afgreiðslu-
tíma hússins. Matvöruverslun
Hagkaups, Eymundsson, Skífan,
Sólblóm, leiktækjasalurinn Ga-
laxy og veitingahúsið Mirabelle
verða með opið mánudaga til
föstudaga til kk- 21, á laugardög-
um til kl. 18 og milli kl. 12 og 18
á sunnudögum. Auk þess verður
opið alla sunnudaga í Byggt &
Búið, Hagkaup sérvöruverslurf,
Hans Petersen, versluninni
Sautján, Smash, Kaffihúsinu og
veitingastöðunum Kvikk. Hard
Rock Café er opið alla daga til
kl. 23.30. Þá mun hluti fata- og
skóverslana Kringlunnar notfæra
sér þessa heimild til að hafa opið
lengur á laugardögum og fyrsta
sunnudag hvers mánaðar. Breyt-
ingin á afgreiðslutímanum verður
nú um helgina.
í dag, laugardag, verður Dans-
smiðja Hermanns Ragnars með
uppákomur um allt hús. Nemend-
ur í danssmiðjunni sýna dans og
kennarar bjóða viðskiptavinum
upp á danskennslu á staðnum.
Einnig ætlar Lína langsokkur að
koma í heimsókn í Kringluna og
Umferðarráð verður með upplýs-
ingabás til að vekja athygli á
hættum í umferðinni nú í upp-
hafi skólaárs.
Fjölskyldudag-
ar við höfnina
FJÖLSKYLDUDAGAR verða
haldnir laugardag og sunnudag
við Reykjavíkurhöfn.
Á Hvalnum, útivistarsvæði
Miðbakkans, verða sælífskerin á
sínum stað, léttbáturinn, eimreið-
in og leiktæki. Þá verður á Hvaln-
um sjóklár árabátur til sýnis frá
kl. 12—17 báða dagana með
árum, seglum, handfærum,
gogg, saxi, seilum, austurtrogi
og sýrukút. Sýruna, harðfisk,
hákarl og fleira verður hægt að
fá að smakka inni í Miðbakka-
tjaldinu. Það verður flaujaður,
breiddur og tekinn saman salt-
fiskur á Hvalnum upp á gamla
mátann. Frá kl. 14—16 verða
stuttar fjölskylduferðir frá kynn-
ingarstandinum. Farið verður um
hluta gömlu háfnarinnar og m.a.
litið á skip í slipp, vitjað um
krabbagildru í höfninni og notið
útsýnis yfir höfnina frá stað með
auðvelda uppgöngu.
Ef sjóveður leyfir verður boðið
upp á siglingu á sunnudag með
bryggju og hafnarbökkum. I Mið-
bakkatjaldinu verður báða dag-
ana fiskmarkaður og sala og
kynning á öðru sjávarfangi, líf-
rænt ræktuðu grænmeti og kaffi-
veitingar upp á gamla mátann.
Mosfellsbær
Opið hús í
Héraðsbóka-
safni
OPIÐ HÚS verður í hinu nýja
Héraðsbókasafni Mosfellsbæjar
um þessa helgi. Fjölbreytt dag-
skrá verður, m.a. ættfræðikynn-
ing, sögustund fyrir börnin,
kynning á Alnetinu, upplestur
rithöfunda o.fl. Þá opnar Inga
Elín glerlistakona sýningu á
verkum sínum í safninu.
Héraðsbókasafnið var opnað í
nýjum húsakynnum í gær, föstu-
dag, í Kjarna við Þverholt, sem
er nýja miðbæjarbyggingin í
Mosfellsbæ. Við opnunina færði
Lista- og menningarsjóður Mos-
fellsbæjar safninu tölvu, sem
verður til afnota fyrir viðskipta-
vini safnsins. Þá afhenti fjöl-
skylda Halldórs Laxness, heið-
ursborgara Mosfellsbæjar, safn-
inu til varðveislu bijóstmynd af
skáldinu eftir Sigurjón Ólafsson
myndhöggvara.
í dag hefst opið hús kl. 14
með ættfræðikynningu og sögu-
stund, kl. 15 verður kynning á
Alnetinu og sögustund á ný og
kl. 16 les Þórey Friðbjörnsdóttir
rithöfundur úr verkum sínum
fyrir börn og unglinga.
Á morgun eru eldri borgarar
sérstaklega velkomnir. Kl. 14
segir Magnús Guðmundsson frá
Lestrarfélagi Lágafellssóknar,
lesið verður úr ljóðabók Bjarka
Bjarnasonar, Fjörbrot, og Birgir
Sigurðsson les úr gestabók Stef-
áns í Reykjahlíð. Kl. 16 lesa rit-
höfundarnir Einar Már Guð-
mundsson og Vigdís Grímsdóttir
úr verkum sínum.
Skákæfingar
fyrir börn og
unglinga að
hefjast
ÓKEYPIS skákæfingar hefjast
laugardaginn 2. september hjá
Taflfélagi Reykjavíkur fyrir börn
og ungiinga 14 ára og yngri. Þær
verða haldnar alla laugardaga í
vetur. Aðgangur er ókeypis.
Æfingarnar eru haldnar í fé-
lagsheimili Taflfélags Reykjavík-
ur í Faxafeni 12. Tefldar verða
sjö umferðir og fær hver kepp-
andi tíu mínútna umhugsunar-
tíma fyrir hveija skák. Verðlaun
eru veitt fyrir þijú efstu sætin.
Einnig hefur verið tekin upp sú
nýbreytni að veitt eru sérstök
verðlaun til ungra skákmanna
sem enn hafa ekki fengið skák-
stig. Þannig geta byijendur jafnt
og þeir sem lengra eru komnir
átt von á verðlaunum á æfing-
unni.
Allir sem kunna mannganginn
eiga erindi á æfingarnar og vel
er tekið á móti nýjum þátttakend-
um, bæði drengjum og stúlkum.
Taflfélagið útvegar töfl og skák-
klukkur, þannig að þátttakendur
þurfa ekki að hafa neitt með sér
til að geta tekið þátt í æfingunni.
Kynning á
bílahúsum
borgarinnar
Á „LÖNGUM laugardegi" 2.
september nk. ætlar Bílastæða-
sjóður að gera átak í því að kenna
gestum miðborgarinnar notkun
bílahúss.
Frá kl. 10-18 verða hópar ungs
fólks frá Hinu húsinu í og við
bílahúsin til aðstoðar þeim sem
vilja kynna sér þægingi húsanna.
Þá munu starfsmenn Bílastæða-
sjóðs ennfremur verða til taks
ef á þarf að halda. Ókeypis að-
gangur verður að húsunum eins
og er reyndar alla laugardaga
um þessar mundir.
Bílastæðasjóður rekur nú 6
bílahús í miðborg Reykjavíkur
með stæðum fyrir nærri 1.100
bíla. Noktun húsanna fer vaxandi
en þó hafa starfsmenn Bíla-
stæðasjóðs orðið varir við að hluti
ökumanna veigrar sér við að
nota húsin sökum ókunnugleika
á notkun þeirra.
Mannrétt-
indi á Inter-
netinu
MANNRÉTTINDASKRIFSTOFA
íslands og aðildarfélög hennar,
Amnesty, Biskupsstofa, Barna-
heill, Hjálparstofunun kirkjunn-
ar, Jafnréttisráð, Kvenréttinda-
félag íslands, Rauði kross ís-
lands, Unifem og Bahái samtökin
bjóða mánudaginn 4. september
kl. 20 til fundar á Kaffi Síberíu.
Kynnt verður 4. heimsráð-
stefna Sameinuðu þjóðanna um
málefni kvenna á Internetinu.
Einnig verða kynnt framtíðar-
markmið Mannréttindaskrifstof-
unnar á netinu og rætt um hvaða
gildi þetta nýja samskiptaform
hefur fy.rir mannréttindabaráttu
fijálsra félagasamtaka.
Þeir
eruekfá
barafbttk
Þeireru
• • *
ntfog
vamaðir
ogsterfárí
m
Nimco bamaskór.
Vandaðir leðurskór
með innleggjum
frá einum stærsta
sj úkraskóframleiðanda
í Evrópu.
Veldu aðeins það besta
fyrir bamið þitt!
Lækjargötu 6a • 101 Reykjavík
Sími 551 4711
Sendum í póstkröfu samdægurs.
Gtsli
Ferdinandssonfif
SKÓVERSLUN
Teg.:33l36l9 Brúnir / Rauðir
Stærðir: 23 -35
Verð: 4.850,- / 5.290,-
Teg.: 3313621 Svartir
Stærðir: 23 - 35
Verð: 4.850,-/5.290,-
Teg.: 4313613 Brúnir/Dökkbláir
Stærðir: 32 -37
Verð: 4.990,- / 5.790,-
Teg.: 3313620 Brúnir
Stærðir 23 - 35
Verð: 4.850,- / 5.290,-
Teg.: 3315636 Rauðir
Stærðir 23 - 30
Verð: 4.850,- / 5.080,-