Morgunblaðið - 21.09.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995 15
LANDIÐ
Bakkabræður í sér-
stæðri kaupstaðarferð
Selfoss - Bakkabræður áttu í erf-
iðleikum með umferðarreglurnar á
Tryggvatorgi þegar þeir komu í
kaupstaðarferð á Selfoss og hugð-
ust nýta sér fjölmörg hagstæð
haustdagatilboð í verslunum bæj-
arins á laugardag.
Fjöldi fólks fylgdist með komu
þeirra félaga og ferð þeirra um
verslanirnar en ráðskonan var með
í för og vildi kaupa inn og hafa
sína menn vel til fara. Einnig var
hún óspör á að siða þá félaga til
enda heimsmanneskja. Þeir félag-
ar létu það ekki á sig fá þótt það
rigndi og tóku þátt í haustdag-
skránni á Selfossi eins og fjöl-
margir aðrir en mikil umferð var . Morgunbiaðið/Sig. J6ns.
í miðbæ Selfoss og í verslunum í EIRIKUR og Helgi með kútinn góða.
bænum.
Boðið úr kútnum
Lögreglumenn tóku á móti
Bakkabræðrum er þeir komu yfir
Ölfusárbrú og leiðbeindu þeim um
hringtorgið á Tryggvatorgi. Þeir
voru til dæmis bílbeltalausir í
hinni 70 ára gömlu bifreið sinni
en leystu snarlega úr því með
hrosshársreipum sem þeir höfðu
meðferðis. Þetta var sönn kaup-
staðarferð hjá þeim bræðrum með
ráðskonunni enda voru þeir óspar-
ir á að bjóða fólki að smakka það
sem í kútnum var og virtist mik-
ils virði.
,BÍLBELTUNUM“ komið fyrir á Eiríki og Helga i aftursætinu.
Vitara V6
Nýr ebaljeppi þar sem afl
og öryggi hafa forgang.
Vitara 1/6 er einstaklega aflmikill, meö hljóöláta V6 vél,
24 ventla, sem afkastar 136 hestöflum.
Hann er byggöur á sjálfstæöa grind og er meö hátt og lágt drif.
Nákvæmt vökvastýriö og lipur 5 gíra handskiptingin
eöa 4ra gíra sjálfskiptingin gera Vitara V6 auöveldan
í akstri á vegum sem utan vega.
Öryggisloftpúöar fyrir ökumann og framsætisfarþega,
höfuöpúöar á fram og aftursætum og styrktarbitar í huröum
gera Vitara V6 aö einum öruggasta jeppa sem býöst.
Einstaklega hljóölátt farþegarýmiö er búiö öllum þægindum
sem eiga heima í eöaljeppa eins og Vitara V6.
SUZUKl BÍLAR HF.
SKEIFAN 17- SÍMI: 568 5100
9. oktober.
40 sœti til
London
á kr.
16.930
Flug og hótel
kr. 19.930
Við höfum nú fengið nýtt hótel í London á hreint frábæru verði,
sem við bjóðum nú á kynningarverði 9. október. Great Eastem
Hotel, einfalt en gott hótel í hjarta London. Kynntu þér
glæsilegar ferðir Heimsferða til London, mestu heimsborgar
Evrópu, á ótrúlega hagstæðu verði. Glæsileg hótel, spennandi
kynnisferðir, besta verslunarborg Evrópu og íslenskir
fararstjórar tryggja þér ánægjulega dvöl í heimsborginni.
Bókaðu strax, það er aðeins um fá sæti að ræða.
Verð kr.
16.930
Verð með flugvallasköttum, 9. október.
19.930
Verð kr.
m.v. 2 í herbergi, Great Eastem Hotel, 3 nætur.
Verð með flugvallasköttum, 9. október.
HEIMSFERÐIR
V (;
Austurstræti 17,2. hæð. Sími 562 4600.