Morgunblaðið - 21.09.1995, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995
NEYTEIMDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Fæðuofnæmi
eða fæðuóþol
Ljósabekkjaleigan
Lúxus
Ljósin
heim dag
og nótt
UÓSABEKKJALEIGAN Lúxus,
sem nýverið hóf starfssemi, býður
viðskiptavinum sínum Ijósabekki
til heimanota.
Ljósabekkirnir eru með sérstök-
um andlitsljósum. Sverrir Eiríks-
son, eigandi fyrirtækisins, keyrir
bekkina heim, setur þá upp og
leiðbeinir um notkun. Hann segir
þjónustuna nýjung, sem sé einkar
þægileg fyrir þá, sem ekki eigi
alltaf heimangengt. Einnig segir
hann fjölskyldur spara mikið, því
hver og einn geti haft sína henti-
semi og farið í ljós á öllum tímum
sólarhringsins og eins oft og hann
vilL
Hægt er að fá bekkina leigða á
nóttu sem degi. Fyrir tólf daga,
auk daganna sem bekkurinn er
settur upp og tekinn niður, er leig-
an 6.800 kr., eða 570 kr. á dag.
Sverrir segir rafmagnskostnað
vera 3,80 kr. á klukkustund.
Auk ljósabekkjanna leigir fyrir-
tækið út þrekstiga og þrekhjól í
30 daga fyrir 4.800 kr., og nudd-
tæki í 18 daga fyrir 4.800 kr.
EINKENNI fæðuofnæmis og
fæðuóþols eru oft töluvert svipuð.
Kannanir sýna að um einn af
hveijum þremur telur sig vera með
fæðuofnæmi, en rannsóknir hafa
hins vegar leitt í ljós að innan við
tveir að hundraði hafa í raun slíkt
ofnæmi.
í bæklingi sem Hollustuvernd
ríkisins hefur nýlega gefið út er
að fínna ýmsar hagnýt-
ar upplýsingar og leið-
beiningar um fæðuof-
næmi, fæðuóþol og önn-
ur óþægindi af neyslu
matar og kemur þar
m.a.' fram að fæðuof-
næmi sé truflun á starf-
semi ónæmiskerfisins. Ónæm-
iskerfið komi aftur á móti hvergi
nærri í fæðuóþoli.
Bijóstamjólk fyrstu sex
mánuðina
Þar segir einnig
að einkenni
fæðuofnæmis
\ séu ein-
stakl-
ings-
bundin
og mjög
misjafnt hversu alvarleg
þau séu, hvernig þau lýsi
sér, hvenær þau komi
fram og hversu mikið
af ofnæmisvaldinum
þurfi til að framkalla
þau.
Algengustu ofnæm-
isvaldarnir séu mjólk,
egg, fiskur, skelfisk-
ur, sojabaunir, hnet-
ur, jarðhnetur, grænar baunir og
hveiti.
Fæðuofnæmi er algengast meðal
ungra bama en hægt er að minnka
líkur á að bam fái ofnæmi með
því að gefa því bijóstamjólk fyrstu
sex mánuðina, enga fasta fæði fyrr
en eftir sex mánaða aldur og ekki
gefa því fæðutegundir eins og egg,
fisk, hnetur og grænar baunir
fyrstu eitt til tvö æviár
þess, að því er fram
kemur í bæklingnum.
Orsakir fæðuóþols
Orsakir fæðuóþols
em sagðar í flestum til-
vikum óþekktar. Dæmi
um matvæli sem geta valdið óþoli
eru m.a. mjólkurvörur og vörur
sem innihalda glúten auk þess sem
sum litarefni, rotvarnarefni og
þráavarnarefni geta valdið óþoli.
Ef einhvern grunar að hann
hafi fæðuóþol er honum ráðlagt
að prófa að útiloka þá fæðuteg-
und, sem hann telur að valdi óþol-
inu, úr fæðu sinni, bæta henni síð-
an við aftur að einhveijum tíma
liðnum og athuga hvort einkennin
koma fram að nýju. Þessa aðferð
er hins vegar ekki hægt að nota
við greiningu á fæðuofnæmi, held-
ur verður að leita aðstoðar læknis
sem gerir ýmis greiningapróf.
Þeir sem áhuga hafa á að lesa
sér betur til um fæðuofnæmi og
fæðuóþol geta nálgast bæklinginn
Fæðuofnæmi og fæðuóþol á skrif-
stofu Hollustuverndar ríkisins að
Armúla la eða á skrifstofum heil-
brigðiseftirleits sveitarfélaga og
greitt 200 krónur fyrir.
Einn af hverj-
. um þremur
telur sig vera
með fæðuof-
næmi.
Ofsagnir í bækl-
ingi um kísilsýru
LYFJAEFTIRLIT ríkisins hefur g;ert
athugasemd við kynningabækling
með silicon kísilsýru sem seld er í
Sjónvarpsmarkaðinum á Stöð 2 og
verður dreift í apótek eftir áramót.
Athugasemdin tekur til ofsagna um
um lækningarmátt vörunnar. Inn-
flytjandinn segist hafa beðið Lyfja-
eftirlitið um að lesa bæklinginn yfir
fyrir prentun en það var ekki hægt
sökum anna hjá eftirlitinu.
Lyíjaeftirlitið fyallaði um silicol
kísilsýruna í sumar og var niðurstað-
an að efnið væri skaðlaust heilsu
manna og flokkaðist sem almenn
vara. í auglýsingabæklingi um silicol
kýsiisýru sem heildversl-
unin Ymus hf. hefur gef-
ið út stendur hins vegar
meðal annars: „Náttúru-
lega bætiefnið silicol
virkar gegn bijóstsviða,
vægu magasári, upp-
þembdum maga, og bæði
niðurgangi og harðiífi." Einnig að
„mikilvægasti eiginleiki þess er að
það dregur í sig aðkomu bakteríur,
sem orsaka oft ýmis óþægindi." Og
að silicol sé „sérstaklega gott til
notkunar eftir slys eða aðgerðir."
Eidra fólki er ráðlagt í bæklingn-
um að bæta útfelldri kísilsýru við
mataræði sitt til að viðhalda húðinni
betur og hreyfanleika liðamótanna
og vöðvanna. Mælt er með notkun
kýsilsýrunnar til að draga úr óþæg-
indum samfara lyfjatöku, vegna
óþæginda í munni og koki, til styrk-
ingar á húð, hári og nöglum sem
og beinum, liðum og vöðvum.
Sanna þarf lækningamáttinn
Silicol kýsilsýra er þýsk fram-
leiðsluvara og er samkvæmt bæk-
lingnum vinsælasta heilsuefnið í
Þýsklandi, Svíþjóð og á Bretlandi.
Guðrún S. Eyjólfsdóttir hjá Lyija-
eftirliti ríkisins segir að stofnunin
hafi fengið silicol til um-
ijöllunar í sumar og feng-
ið niðurstöðuna að ekki
þyrfti að gera athuga-
semd þó að varan væri
seld á almennum mark-
aði. Innflytjanda var líka
gerð grein fyrir að ekki
mætti selja vöruna með þeim orðum
að hún hefði fyrirbyggjandi eða
læknandi áhrif á sjúkdóma eða bæti
heilsuna.
Guðrún segir Lyijaeftirlitið hafa
gert athugasemd við bæklinginn
vegna þess að í honum væri gefið
til kynna að silicol kýsilsýra byggi
yfir lækningarmætti. Vilji innflytj-
endur selja silicol sem lyf eða nátt-
úrulyf þurfi að færa sönnur á lækn-
ingarmáttinn.
Arnheiður Sigurðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Ýmus hf., segir bækl-
inginn um silicol kýsilsýru þýddan
hér eins og í Þýskalandi, Noregi,
Svíþjóð og Danmörku. „Ég var búin
að spyija þá hjá Lyfjaeftirlitinu hvort
það væri möguleiki á að fá bækling-
inn lesinn yfir áður en ég prentaði
hann. Vegna anna var ekki hægt
að veita þá þjónustu."
Arnheiður segir að í Svíþjóð borgi
fyrirtæki fyrir slíka þjónustu hjá
lyfjaeftirlitinu þar. Henni finnst að
Lyfjaeftirlit ríkisins mætti taka upp
samskonar fyrirkomulag. „Ég mun
nú leiðrétta bæklinginn í samræfni
við ábendingar Lyijaeftirlitsins og
Iáta prenta hann aftur og þar með
verður málið úr sögunni."
Bað Lyfjaeft-
irlitið að lesa
bæklinginn
yfir fyrir
prentun
FJARÐARKAUP
GILDIR FRÁ 21.-22. SEPTEMBER
Lambalifur 1 kg 197 kr.
Lambanýru 1 kg 99 kr,-
Fiskpylsur 1 kg 395 kr.
Fiskrúllur 1 kg 178 kr.
Fiskisæla 178kr.
Búmanns/ráðskonubrauð 69 kr.
Samlokubrauð 98 kr.;
lceberg 99 kr.
BÓNUS GILDIR FRÁ 21.-29. SEPTEMBER
Bónusglerúði 500 ml 69 kr.
Bónus fljótandi sápa m/dælu 300 ml 89 kr.
Bónus súkkulaði-heilhveitikex 200 g Bónus súkkulaði-maríukex 300 g 69 kr. 77 kr.
[ Bónus kakó 400 g 175 kr.
Bónus appelsínusafi 61 354 kr.
Bónusappelsínuþykkni 11 149kr.
Bónus-ís3tegundir 1 I Sórvara í Holfagörðum 129 kr.
í Þykkir hvítir T-bolir 3 stk. 599 kr.
Sokkarhvítir6pör 299 kr.
Barna gallabuxur 690 kr.
Ide Line örb.ofn 850 w m/snún.disk 12.700 kr.
Samsung CD-spilari 9.500 kr.
HAGKAUP GILDIR FRÁ 21. - 27. SEPTEMBER
Dun-iet mykingarefm þykkni 1 ttr. 199 kr.
Ajax þvottaefni Ultra og Colour 1 kg 249 kr.
Lausfryst ýsuflök 1 kg 249 kr,
Kjarnafæði reykt medisterpylsa 1 kg 299 kr.
Emmess hversd.ís 2 Itr. súkkl. og van. 299 kr.
Ferskarperurl kg 89 kr.
Ferskar plómur 1 kg 169 kr.
Outspan ferskt greip hvítt og rautt 1 kg 99 kr.
11-11 BÚÐIRNAR GILDIR FRÁ 21.-27. SEPTEMBER
Svínasnitsel 1 kg 965 kr.
Nautagúllas 1 kg 974 kr.
Bayonneskinka 1 kg 998 kr.
Nautainnanlæri 1.298kr.
Sokkabuxur Vanto m/lycra 379 kr.
Pönnukökupanna 1.998 kr.
Bistro stálpottar m/glerloki 5,7 Itr. 3.100 kr.
Kleenex eldhúsrúllur 2 ri. 109 kr.
Núðlusúpur 22 kr.
Cabaret saltkex 200 g 149 kr.
Vivant saltkex 225 g 149 kr.
10-11 BÚÐIRNAR GILDIR FRÁ 21.-27. SEPTEMBER
Nýtt og saltað kjötfars 1 kg 248 kr.j
islenskt hvítkál 75 kr.
[ Nýuppteknar ís' kartöflur 1 kg 89 kr.
Skafísallarteg. 2 Itr. 368 kr.
Ostakaka mandarlnu 6-8 m. 498 kr.j
Breton saltkex 225 g 125kr.
Bon Bon bland í poka stór 145 kr.
Áriel Future þvottaefni 1,5 kg 498 kr.
GARÐAKAUP
GILDIR TIL 24. SEPTEMBER
Hönnunarsamkeppni Istex hf.
Hugmyndir að
lopapeysum
ITILEFNI100 ára afmælis
ullariðnaðar í Mosfellsbæ árið
1996 hefur ístex hf. efnt til
hönnunarsamkeppni á hand-
pijónuðum flíkum úr lopa eða
ullarbandi framleiddu af Istex.
Markmiðið er, að sögn Þrúðar
Helgadóttur, sölusfjóra, að leita
eftir nýjum hugmyndum að „ís-
lensku lopapeysunni“.
Mikill áhugi á prjónaskap
„Handprjónaskapur hefur
aukist mikið á síðastliðnum
tveimur árum og í kjölfarið
áhugi á ýmsum útfærslum hinn-
ar hefðbundnu íslensku lopa-
peysu. Handprjónasala fyrir-
tækisins jókst um 60% á árunum
1993-1994 og pijónabækur okk-
ar með uppskriftum úr lopa
seljast í stóru upplagi. Bók núm-
er tólf sló þó öll met og seldist
í 40 þúsund eintökum á fjórum
tungumálum, en í henni eru
uppskriftir af gömlum mynstr-
um í nýjum búningi hvað snið
og liti varðar."
Þátttakendur þurfa að skila
inn fullprjónuðum flíkum úr
Álafoss lopa, plötulopa, léttlopa,
loðbandi, Flóru eða Kambgarni
til ístex fyrir 15. febrúar nk.
Dómnefnd verður skipuð inn-
lendum og erlendum hönnuð-
um, ásamt öðru fagfólki. Veitt
verða fyrstu verðlaun 120 þús-
und krónur, önnur verðlaun 100
þúsund krónur og þriðju verð-
laun 80 þúsund krónur og verð-
ur verðlaunaafhending í lok
mars nk.
Þrúður segir að ístex áskilji
sér rétt til að kaupa innsendar
flíkur semekki hljóta verðlaun
á 25 þúsund krónur og birta
uppskriftir af þeim í pijónabók-
um sínum, en endursenda hinar.