Morgunblaðið - 21.09.1995, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
URVERINU
Groundfish Forum haldið í fjórða sinn í Bretlandi
Framtíð í auðlindum
fjarlægra þjóðlanda
París. Morgunblaðið.
„IÐNAÐUR talar við iðnað,“ segir
Friðrik Pálsson, forstjóri Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna, um
ráðstefnuna Groundfish Forum,
sem haldin verður í fjórða sinn í
byijun október. Hann er einn af
forsprökkum þessa árlega fundar
og segir færri komast að en vilja.
Hámarki 150 manna hafi verið
haldið með því að fækka fólki frá
hveiju fyrirtæki. Ráðstefnan verð-
ur nú í annað sinn í Bretlandi og
efni hennar að þessu sinni óvenju-
legt.
Hvert fer fiskurinn sem sífellt
meira er veitt af, hvað verður um
það sem veitt er í löndum utan
hins vestræna heims? Þjóðir þess-
ara landa borða meiri fisk en fyrr
og þetta eru lítt kortlögð svæði,
að sögn Friðriks. Hann telur fram-
tíðina í kaupum á físki erlendis
frá, íslendingar geti vissulega
unnið vöruna meira, en verði að
skipta við aðrar veiðiþjóðir til að
komast af. Hráefni af fjarlægum
slóðum og verkkunnátta hei'ma
fyrir verði góð blanda.
ísland með 1% fiskaflans
Fiskneyslan skiptist milli veiði-
landa og heimsverslunar og verð-
ur smám saman meiri á heima-
slóðum, að' sögn Friðriks. Hann
segir Islendinga veiða um 1%
fiskafla heimsins til manneldis en
eiga upp undir 5% heimsverslun-
ar. „Við veiðum mikið, en getum
ekki borðað þetta magn,“ segir
Friðrik. „Við höfum horft til Evr-
ópu, Bandaríkjanna og Japans um
útflutning en verðum að gá að
því að framboð á fiski fer vax-
andi við Norður-Atlantshaf og
Alaska, á ufsa fyrst og fremst,
og mjög mikið í Rússlandi. Kína,
Suður-Ameríka og suðurhluti
Afríku eru líka í sókn og einfald-
lega svæði sem við höfum ekki
kortlagt.
Fiskeldi og Kína
Það verður verkefnið á Ground-
fish Forum, við reynum að átta
okkur á stöðu á þessum fjarlæg-
ari svæðum. Áhrifum aukinnar
neyslu í veiðilöndum, eins og ríkj-
um Suður-Ameríku, þar sem
tæknikunnátta við veiðar og kaup-
geta hafa henst upp á við.
Framleiðsla og sala á eldisfiski
verður annað efni ráðstefnunnar.
Kína verður þar í brennidepli,
Bandaríkin og svo Noregur þar
sem ekki er hægt að líkja þróun-
inni undanfarin misseri við annað
en ævintýri."
Markvissari vinnubrögð
Tveir starfsbræður Friðriks frá
Þýskalandi og Danmörku hafa
skipulagt Groundfish Forum með
honum undanfarin ár. Ráðstefnan
var fyrst haldin í Hamborg, þá
Kaupmannahöfn og svo í Bret-
landi. Kynning og markaður,
fyrirtæki Jóns Hákons Magnús-
sonar, hefur annast framkvæmd-
ina, en hugmyndin var alltaf að
hafa þetta litla ráðstefnu fag-
manna, kaupenda og seljenda.
Samræður valins hóps með mark-
vissari vinnubrögð að takmarki
og meiri vöruþróun.
Morgunblaðið/Sigrún Sveinbjömsdóttir
BJORN Eymundsson Franzson hugar að veiðarfærum en hann
rær á net á Sævari SF-72 með Omari Franzsyni.
Tölvur og tækni
Fimmtudagsblaði Morgunblaösins, 28. september nk., fylgir blaðauki
sem heitir Tölvur og tækni, en þann dag hefst í Laugardalshöll
tölvusýning. í þessum blaðauka verður fjallað um sýninguna, það
nýjasta í tölvutækni, alnetið (Internetið) og tækni því tengdu, aukna
samkeppni á einkatölvumarkaðinum, nýjungar í fyrirtækjatölvum,
CD-ROM tæknina og forrit og leiki á CD-ROM diskum, nýjar
leikjatölvur og tölvubækur. Einnig verður fjallað um nýjustu tækni í
hljómtækjaheiminum og þróun sjónvarps- og farsímatækni.
Þeim, sem áhuga hafa á ab auglýsa í þessum blabauka, cr
bent á ab tekib er vib auglýsingapöntunum til kl. 13.00
fimmtudaginn 21. september.
Nánari upplýsingar veita Rakel Sveinsdóttir og Dóra Gubný
Sigurbardóttir, sölufulltrúar í auglýsingadeild, í síma
569 1171 cba meb símbréfi 569 1110.
-kjarni málsins!
Gott verð á ufsa
Hornaflrði. Morgunblaðið.
UFSAVERÐ hefur haldist nokk-
uð jafnt og gott í sumar og hafa
því útgerðarmenn Hornafjarðar-
báta reynt fyrir sér með net nú
seinni part sumars. Á sama tíma
í fyrra var ágætis ufsaveiði út
af suðausturlandi en verðið var
ekki upp á það besta. Afli hefur
verið tregur og þorskblanda háir
kvótaminni bátum við veiðarna.
Ingvi Sigurðsson hjá Skinney hf
sagðist oft vera að fá minna í
húsið frá tveimur bátum í ár en
frá einum báti í fyrra.
Aðalfundur Samtaka i %
fiskvinnslustöðva '' •• :v’
verður haldinn í Hveragerði föstudaginn
22. september 1995 kl. 10.30.
Fundarstaður: Hótel Örk.
Dagskrá: i
Skýrsla stjórnar: Arnor Sigurmundsson,
formaður SF.
Ársreikningar 1994.
Kosning í stjórn og kjör endurskoðanda. ' í
Ræða: i
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráöherra. ! ^ |
Erindi:
Friðrik Pálsson, forstjóri:
Erum við ennþá landnámsmenn? 'i ir-zm
Einar Svansson, framkvæmdastjóri:
Styrkir til sjávarútvegs í Noregi og ESB.
Umræður
Erindaröð:
Veðrið, sjórinn og fiskurinn: 'fbw
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur. i.152
Jón Olafsson þrófessor, hafefnafræðingur.
Olafur Karvel Pálsson, fiskifræðingur.
Umræður.
Önnur mál. 1
Stjórnin.