Morgunblaðið - 21.09.1995, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995 25
JAN Garbarek og The Hilliard Ensemble.
Hallgrímskirkja
Jan Garbarek o g The
Hilliard Ensemble
AFMÆLISTÓNLEIKAR RúRek
1995 verða haldnir á laugardaginn
kemur í Hallgrímskirkju og blæs
norski saxófónleikarinn Jan Garba-
rek þar í sópran- og tenórsaxofón
og fjórmenningarnir í The Hilliard
Ensemble syngja; David James
kontratenór, Roger Covery-Crump
og John Potter tenórar svo og Gor-
don Jones barítón.
Á efnisskránni er tónlist frá end-
urreisnartímanum svipuð og heyra
má á geisladiski þeirra félaga:
Officium, en sá diskur hefur selst
vel, jafnt á íslandi sem í öðrum
löndum.
Hugmyndin að þessari samvinnu
djass-saxófónleikara og renisans-
söngkvartetts varð til á íslandi er
þýski hljómplötuútgefandinn,
Manfred Eicher, vann hér að kvik-
myndun. Hann notaði tónlist frá
endurreisnartímanum í myndina og
þar sem hann ók um hraunbreiður
landsins fannst honum allt í einu
eins og Jan Garbarek birtist með
saxófóninn og spynni kringum hina
fornu tónlist.
Nýjar bækur
Síðustu minnisblöð
Tómasar F.
SMÁSAGNASAFNIÐ
Síðustu minnisþlöð
Tómasar F. fyrir al-
mennings sjónir er eftir
norska rithöfundinn
Kjell Askildsen, en
hann var meðal gesta
á Bókmenntahátíð
1995.
Tvær sagnanna eru
lengstar, sagan af Karl
Lange og titilsagan,
Síðustu minnisblöð
Tómasar F. fyrir al-
mennings sjónir.
Sagan Karl Lange
ijallar um mann sem
lendir sér til mikillar furðu í því að
lögreglan bankar uppá hjá honum
einn góðan veðurdag og sakar hann
um svívirðilegan glæp.
Titilsagan fjallar um Tómas nokk-
ur F., mann sem á í basli vegna
þess hve uppnæmur hann er fyrir
smæstu atburðum hversdagslífsins.
í kynningu segir: „í sögum
Askildsens ríkir sérstök, kitlandi
stemmning, ekki alls óskyld þeim
andblæ sem finna má í
verkum Kafka eða Bec-
ketts. En umfram allt
skrifar Askildsen í nor-
rænni raunsæishefð
sem hann notar til að
draga upp mynd af því
hversu undarlegt hvers-
dag'slífið er, sé grannt
skoðað."
Kjell Askiidsen (f.
1929) hóf ritferilinn
árið 1953, þá tuttugu
og fjögurra ára, með
smásagnasafninu He-
retter folger jeg deg
helt hjem. Síðan hefur
hann sent frá sér tíu bækur, smásög-
ur og skáldsögur sem hafa skipað
honum í hóp athyglisverðustu rithöf-
unda Norðmanna.
Útgefandi er Mál og menning. Síð-
nstu minnisblöð Tómasar F. fyrir
almennings sjónir ergefm út íritröð-
inni Syrtlur. Bókin er 125 bls., unn-
in í Prentsmiðjunni Odda hf. Kápuna
gerði Robert Guillemette. Verð
1.780 kr.
Kjell Askildsen
LISTIR
Kristján og Jóhann Jóhannssynir á tónleikum í Kaye Playhouse
*
Italskt og
íslenskt í
New York
New York. Morgunblaðið.
KRISTJÁN Jóhannsson söng í
New York á þriðjudagskvöldið
á tónleikum sem haldnir voru
á vegum American-Scandina-
vian Foundation. Kristján hef-
ur áður sungið í Metrópólitan-
óperunni, en þetta var í fyrsta
sinn sem hann kemur fram á
opinberum tónleikum í New
York.
Ásamt Kristjáni söng Jó-
hann bróðir hans á tónleikun- .
um. Lára Rafnsdóttir lék undir
á píanó.
Kristján byrjaði með þremur
norrænum lögum en svo tók
Jóhann við og söng sex íslensk
lög, við góðar undirtektir í
salnum. Þá lék Lára Burlesca
og Capriccio eftir Pál ísólfs-
son, en Kristján lauk svo fyrri
hluta tónleikanna með því að
syngja Bikarinn, Kvöldsöng og
Hamraborgina.
Seinni hluti tónleikanna var
hápunktur þeirra, þá söng
Kristján það sem hann gerir
best, fyrst lög eftir fjögur ít-
ölsk tónskáld og að lokum tvær
aríur úr óperum eftir Puccini,
Recondita armonia úr Tosca
og Nessun dorma úr Turandot.
Það er ekki oft sem mönnum
gefst kostur á að heyra ís-
Morgunblaðið/Anna Pálmadóttir
BRÆÐURNIR Kristján og Jóhann Jóhannssynir á
tónleikunum í New York.
lenska tónlist í New York. ís-
lendingarnir í borginni fjöl-
menntu á tónleikana og hylltu
sína menn ákaft. Þeir bræður
klykktu út með tvísöng enda
voru tónleikagestir ekki á því
að láta þá lausa án þess að
heyra þá syngja saman.
Þetta var hinsvegar ekki síð-
asta tækifærið til að heyra í
Kristjáni hér í borginni, því
hann syngur hlutverk Rada-
mes í uppfærslu Metrópólitan
óperunnar á Aidu í haust.
Viltu hafa það
svart/hvftt eða f lit?
HP Desk Jet bleksprautnprentarar
BOÐEIND
Við eruin í Mörkinni 6. Sími 588 20(il . Fax 588 2002
IIP 320
HP 600
HP 6601!
kr. 26.900
kr. 28.900
kr. 49.900
HP 850C
HP 1200C
IIP 16001'
kr. 69.900
kr. 99.900
kr. 149.900
HP LaserJet geislaprentarar
HP 4L/ML kr. 55.900 IIP 5P kr. 129.900
HP 4Plus kr. 179.900
HEWLETT
PACKARD
Viðurkenndur
söluaðili
Þjónusia og ábyrgó