Morgunblaðið - 21.09.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995 39
FRÉTTIR
Mótmæla far-
gjaldahækkun
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi:
„Við undirritaðir fulltrúar náms-
manna mótmælum fyrirhugaðri
hækkun á fargjöldum Strætisvagna
Reykjavíkur. Námsmenn eru stór
notendahópur strætisvagna og
hækkunin bitnar því á námsmönn-
um af fullum þunga. Við skorum á
meirihluta borgarstjórnar að endur-
skoða ákvörðun sína og leita ann-
arra og frumlegri leiða úr þessum
vanda, en seilast í pyngju náms-
manna.
Undir þetta skrifa: Borgar H.
Þórisson, formaður nemendafélags
Iðnskólans í Reykjavík, Hreinn
Pálsson, formaður nemendafélags
Fjölbrautaskólans við Ármúla,
Tanja tatara-
stelpa í
Ævintýra-
Kringlunni
TANJA tatarastelpa skemmtir í
Ævintýra-Kringlunni á 3. hæð í
Kringlunni kl. 17 í dag, fimmtudag.
Tanja tatarastelpa hefur áður
komið í heimsókn í Ævintýra-
Kringluna og hefur frá ýmsu að
segja. Tanja tatarastelpa er leikin
af Ólöfu Sverrisdóttur, leikkonu.
Ævintýra-Kringlan er listasmiðja
fyrir börn á aldrinum 2ja til 8 ára
og geta foreldrar verslað í rólegheit-
um á meðan börnin dveljast þar í
góðu yfirlæti. Á hveijum fimmtu-
degi kl. 17 eru þar leiksýningar
fyrir börn. Börn og fullorðnir hafa
kunnað vel að meta þessa ný-
breytni og hafa leiksýningar verið
vel sóttar.
Ævintýra-Kringlan er á 3. hæð
í Kringlunni og er opin virka daga
frá kí. 14 til 18.30 og laugardaga
frá kl. 10 til 16.
------» --------
Námskeið um
ofvirk börn
Á VEGUM Barna- og unglingageð-
deildar Landspítalans verður haldið
námskeið laugardaginn 23. septem-
ber nk. og ber það heitið Fræðsla
um afvirk börn.
Markmið námskeiðsins sem ætl-
að er foreldrum og kennurum of-
virkra barna er að auka þekkingu
þeirra sem annast og kenna ofvirk-
um börnum. Á námskeiðinu verða
fluttir sex fyrirlestrar af fagfólki
sem starfar við meðferð ofvirkra
barna. Fyrirlestrarnir fjalla m.a. um
greiningu, orsakir og lyfjameðferð,
atferlis- og umhverfismeðferð sem
og kennslu.
Námskeiðið verður haldið í hús-
næði Barna- og unglingageðdeild-
arinnar við Dalbraut 12. Fyrirhugað
er að halda á næstunni sambærilegt
námskeið ætlað fagfólki í heilbrigð-
isstéttum.
------♦■■» »----
Haustblót í
Grindavík
HAUSTBLÓT og uppskeruhátíð
Vors siðar í Grindavík verður hald-
ið laugardaginn 23. september.
Dagskráin hefst kl. 18 í hofi
Óðins og Urðar í bakgarðinum hjá
hofgoðanum Tryggva Hansen. Þá
verður blótað og hofið helgað eldi,
þinggriðum lýst og torfmynd fóm-
að. Blótveislan hefst kl. 21 í ný-
byggðri skálatóft í Ægisgarði við
samnefnda götu í Grindavík. Að
lokum geta þeir sem vilja dansað
fram á nótt á Hafurbirninum. Blót-
ið er opið öllum almenningi.
Hulda B. Heijólfsdóttir, formaður
nemendafélags Menntaskólans við
Hamrahlíð, Katrín Jakobsdóttir,
formaður nemendafélags Mennta-
skólans við Sund, Sigríður M. Tóm-
asdóttir, formaður nemendafélags
Kvennaskólans í Reykjavík, Valtýr
Sævarsson, formaður nemendafé-
lags Verslunarskóla íslands, Vignir
S. Halldórsson, formaður nemenda-
félags Fjölbrautaskólans í Breið-
holti, Þórlindur Kjartansson,
inspector scholae í Menntaskólan-
um í Reykjavík, Hreinn Sigurðsson,
formaður Iðnnemasambands ís-
lands, Guðmundur Steingrímsson,
formaður Stúdentaráðs Háskóla ís-
lands og Þröstur Sigurðsson, for-
maður Bandalags íslenskra sér-
skólanema.
Rúna Gísladóttir
■ MYNDLISTARKENNSLA
Rúnu Gísladóttur, listmálara og
kennara er að heíjast þessa dag-
ana. í ellefu ár hefur Rúna haldið
námskeið þar sem hún leiðbeinir
áhugasömum frístundamálurum og
þeim sem hyggjast leggja í mynd-
listarnám. Námskeiðin eru ætluð
byijendum, engu síður en þeim sem
eitthvað hafa stundað myndlist áð-
ur. Aðaláhérslan er lögð á málun
og þá ekki síst á að leggja góða
undirstöðu sem kemur nemendum
að haldi hvort sem þeir vilja mála
með vatnslitun, olíulitun eða öðrum
efnum. Á byijendanámskeiði er far-
ið ítarlega í litablöndun og litaáhrif
ásamt myndbyggingu. Kennt er í
hópum og stendur innritun yfir
þessa dagana. Kennslustaður er
vinnustofa listakonunnar að Látra-
strönd á Seltjarnarnesi.
-----♦ ♦ ♦-----
Ekiðá Lödu
í bílastæði
EKIÐ var á dökkgráa Lödu Sam-
ara, BS 461, sem stóð í bílastæði
við Borgarleikhúsið, að kvöldi
þriðjudagsins 12. september, eða.
aðfaranótt þess 13.
Vinstra frambretti bílsins
skemmdist við ákeyrsluna og er
ökumaðurinn, sem olli tjóninu, eða
vitni að óhappinu beðin um að hafa
samband við slysarannsóknadeild
lögreglunnar í Reykjavík.
-----» ♦ ♦-----
Chevrolet ek-
ið á og á brott
EKIÐ var á Hyundai Elantra bíl,
ST-573, við Gauk á Stöng aðfara-
nótt föstudagsins 15. september.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu er vitað að tjónvaldurinn var
rauður Chevrolet Monza og er öku-
maður hans beðinn að hafa sam-
band við slysarannsóknadeild.
-----» ♦ ♦-----
■ ÁHUGAHÓPUR um hjólreiðar
á höfuðborgarsvæðinu stendur fyrir
hjólreiðaferð niður Fossvogsdal og
út á Seltjarnarnes í kvöld, fimmtu-
dagskvöld 21. september. Öllum er
velkomið að taka þátt í ferðinni.
Mæting við Fákshúsin við Reykja-
nesbraut kl. 20.30. Hjólað verður
um Eiðistorg og niður á Miðbakka.
Hjólreiðaferðin tekur um 1 klst.
Ahorfendur púuðu á jafnteflið
SKAK
World Trade Ccnter,
Ncw York:
Heimsmeistaraeinvígi At-
vinnumannasambandsins
11. sept—13. október 1995
SJÖTTA skákin í einvígi Kasparovs
og Anands í New York var bæði
skemmtileg og spennandi, en endaði
alltof snemma er Kasparov bauð jafn-
tefli í tvísýnu endatafli. Áhorfendur
púuðu á kappana þegar friðarsamn-
ingarnir voru undirritaðir.
Aðeins einu sinni áður hafa fleiri
skákir í upphafi einvígis orðið jafn-
tefli. Það var hjá Karpov og Kortsnoj
í Baguio 1978, að ekki fengust úrslit
í fyrstu sjö skákunum. Fleira varð til
þess að skákáhugamenn rifjuðu upp
það sögufræga einvígi. Sjötta skák
Kasparovs og Anands tefldist nefni-
lega eins og 10. skákin í Baguio 1978
lengi framan af. Það er mikið hrós
fyrir Kortsnoj að Anand fylgdi for-
dæmi hans, því afbrigðið hefur verið
umdeilt í fræðunum og ekki hefur
verið talið að Kortsnoj hafi fundið
besta svarið yfir borðinu.
Kasparov tefldi miðtaflið mjög vel
að vanda og þvingaði Anand í 20. leik
til að fórna skiptamun fyrir peð. Það
reyndist fullnægjandi, en möguleikar
heimsmeistarans virtust þó heldur
betri.
Þess getur nú vart orðið langt að
bíða að sverfi til stáls. Tölvufyrirtækið
Intel hefur sett hundruði milljóna
króna í mótshaldið, íjallað er um ein-
vígið í sjónvarpi víðs vegar um heim,
annars staðar en á íslandi, þ.á.m. á
Sky, CNN, Eurosport og BBC. Kepp-
endumir verða safna kjarki til að tefla
skákir til enda, annars nýtist ekki
þetta tækifæri til útbreiðslu listarinn-
ar.
Hvítt: Kasparov
Svart: Anand Spánski leikurinn
I. e4 — e5 2. Rf3 — Rc6 3. Bb5 -
a6 4. Ba4 - Rf6 S. 0-0 - Rxe4 6.
d4 - b5 7. Bb3 - d5 8. dxe5 - Be6
9. Rbd2 - Rc5 10:c3 - d4 11. Rg5!?
Skákheimurinn ' gapti af undrun
þegar þessi leikur sá fýrst dagsins ljós
í heimsmeistaraeinvígi Karpovs og
Kortsnojs í Baguio 1978. Mikhail Tal,
fyrrum heimsmeistari, mun eiga heið-
urinn af uppfinningunni, sem byggist
á því að 11. — Dxg5 er svarað með
12. Df3 — Kd7 13. Bd5 oghvítur vinn-
ur manninn til baka. Þetta hefur verið
endurbætt með 12. — 0-0-0 13. Bxe6+
— fxe6 14. Dxc6 — Dxe5 15. b4 —
Dd5 og það er svartur sem fær bætur
fyrir mann,
II. — dxc3 12. bxc3 — Dd3 13.
Rxe6 - fxe6 14. Rf3 - 0-0-0
Það er fyrst hér sem Anand breytir
útaf 10. skák Karpovs og Kotsnojs
1978. Eftir 14. - Dxdl 15. Bxdl -
Be7 16. Be3 - Rd3 17. Bb3 hafði
hvítur ívið betra tafl.
15. Del - Rxb3 16.axb3 - Kb7 17.
Be3 - Be7 18. Bg5! - h6 19. Bxe7
- Rxe7 20. Rd4
Hér kom 20. c4 vel til greina, en
því svarar svartur með 20.— Rc6! og
vegna þess hve hvíta drottningin á fáa
reiti er svarta staðan viðunandi. Næsti
leikur Anands er þvingaður:
20. - Hxd4! 21. cxd4 - Dxb3 22.
De3!?
Það er ekki fyllilega rökrétt að bjóða
uppá drottningakaup í þessari stöðu
því samstæð frípeð svarts á drottning-
arvæng hljóta að vega þungt í enda-
tafli. Með uppskiptunum vinnst hins
vegar það að hvítur hrókur kemst á
opna línu. Sú yrði ekki raunin eftir
22. Da5 - Ha8 23. Hfcl c6 (Síður
23. - Rd5 24. Hc5 - c6 25. Hacl)
24. Hc3 — Dd5 25. Db4 — Rf5. Þama
stóð Kasparov frammi fyrir geysilega
erfiðri ákvörðun.
22. - Dxe3 23. fxe3 - Rd5 24. Kf2
Eftir 24. Hxf7 — Rxe3 ætti hvítur
enga möguleika á að hrekja riddar-
anna burt af óskareitnum d5
24. - Kb6 25. Ke2 - a5 26. Hf7 -
a4 27. Kd2 - c5 28. e4
abcdaf g h
I þessari stöðu sömdu snillingarnir
jafntefli áhorfendum öllum til sárrar
gremju. Kasparov átti 32 mínútur eft-
ir þegar hann bauð jafnteflið, en An-
and 40. Ein mistök í svo tvísýnni stöðu
gætu kostað skákina. Næstu leikir
gætu orðið 28. — Rb4 29. dxc5+ (29.
He7!? er best svarað með 29. — Hf8!)
29. - Kxc5 30. Hxg7 - Hd8+ 31.
Ke2 — Hd4. Hlutlægt séð getur svart-
ur tæplega átt meira en jafntefli í
stöðunni. Það virðist veikleikamerki
hjá Kasparov að bjóða, þótt áhættan
sé mikil.
Viðbót við myndatexta
Það vantaði hluta myndatexta í
skákþættinum í gær. Myndin var frá
verðlaunaafhendingu á Friðriks-
mótinu, en Haukur Helgason, vara-
formaður bankaráðs Búnaðarbanka
íslands, afhenti verðlaunin. Á
myndinni frá vinstri vora Guðmundur
G. Þórarinsson, forseti SÍ, Haukur,
Friðrik Ólafsson, Bent Larsen og
Svetozar Gligoric.
Æfingar Taflfélags Reykjavíkur
fyrir böm og unglinga era hafnar af
fullum krafti eftir sumarhlé. Þær fara
fram á laugardögum klukkan 14 og
er ekkert þátttökugjald.
Á síðustu unglingaæfingu TR fyrir
sumarhlé fengu fjórir ungir skákmenn
viðurkenningu fyrir að hafa leyst
bronsverkefni. A myndinni era frá
vinstri: Daði Örn Jónsson, umsjónar-
maður unglingaæfinga TR, Dagur
Arngrímsson, Einar Hjalti Jensson,
Matthías Kormáksson og Stefán Krist-
jánsson
Margeir Pétursson
t
Faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, mágur
og afi,
MARGEIR VALBERG
HALLGRÍMSSON,
Grettisgötu 47A,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu
föstudaginn 22. september kl. 15.00.
María Margeirsdóttir, Ragnar Þór Arnljótsson,
Halla Margeirsdóttir, Árni Sigurðsson,
Guðrún Valberg, Jón Einarsson,
Andrés Valberg, Þuríður Jónsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum öllum þeim, sem sýndu okkur
vinarhug og samúð við andlát og útför
sonar okkar, bróður og frænda,
GUÐBJÖRNS MÁS
HJÁLMARSSONAR.
Halldóra Stefánsdóttir, Hjálmar Kristinsson,
Stefán Hjálmarsson, Smári Hjálmarsson,
Jónatan Stefánsson.
t
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð við and-
lát og jarðarför
SVAVARS BJARNASONAR.
Guð blessi ykkur öll.
Lilja Hallgrímsdóttir og fjölskylda.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför elskulegrar móður okkar
og sambýliskonu minnar,
ÖNNU MARÍU EGILSDÓTTUR,
Fögrubrekku,
Hrútafiröi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks St. Jó-
sefsspítala í Hafnarfirði.
Svavar Már, Sigfús og Sigurbjörn Einarssynir,
Eyjólfur Vilhelmsson og aðstandendur.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og vinarhug
vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, móður,
tengdamóður og ömmu, t
ÞÓRU ALDÍSAR HJELM,
Garðavegi 6,
Keflavík.
Sveinbjörn Eiriksson,
Þorsteinn V. Baldvinsson, Sigríður Björnsdóttir,
Berglind Sigurðardóttir,
Björn Axelsson
og barnabörn.